Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Qupperneq 46

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Qupperneq 46
54 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997 Jón Steinar Gunnlaugsson Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta- réttarlögmaður, Stigahlíð 63, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Jón Steinar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá MR 1967, embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1973, öðlaðist hdl.- réttindi 1975 og hrl.-réttindi 1980. Jón var þingfréttaritari Morgun- blaðsins 1973-74, framkvæmdastjóri Listahátíðar i Reykjavík 1974, full- trúi hjá lögmönnunum Eyjólfi Kon- ráð Jónssyni hrl., Jóni Magnússyni hrl. og Hirti Torfasyni hrl. 1974-77, stofnaði þá eigin lögmanns- og end- urskoðunarstofu og rak hana síðan í félagi við Baldur Guðlaugsson hrl., Sverri Ingólfsson, lögg. endurskoð- anda, Þorstein Haraldsson, lögg. endurskoðanda og síðar einnig Kristján Þorbergsson hdl. Frá 1995 hefur hann rekið sína eigin lögmannsstofu. Þá var Jón stundakennari við HÍ 1975-77, settur dósent þar 1977-78 og aðjúnkt 1979-81. Hann kenndi versl- unarrétt við VÍ 1975-77. Jón sat í stjórn Heimdallar 1968-69, í stjóm SUS 1969-71, í Há- skólaráði HÍ 1970-72, formaður Orators 1971—72, i stjórn Lögfræð- ingafélags íslands 1974-79 og í vara- stjóm 1979-83 og 1986-92, í réttar- farsnefnd 1981-89, í stjóm Lög- mannafélags íslands 1981-86 og for- maður 1983-86, í kjaranefnd félags- ins 1979-80, í framkvæmdastjóm SÁÁ 1982-84, í dómstóli KSÍ frá 1983 og formaður frá 1985, í stjórn Bridgesambands íslands 1986- 89 og forseti þess 1987- 89, formaður dóm- neíhdar sambandsins frá 1990, formaður kjörnefnd- ar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 1985-91, í lands- kjörstjórn 1991-95, formaður yfirkjörstjórnar við alþingiskosningar í Reykjavik frá 1995, var skipaður í nefnd til að endurskoða stjómkerfi íslands 1983-84 og í nefnd um endurbætur á reglum um dráttarvexti 1985 og er nú formaður nefndar sem athugar hvort reglur EES hafi verið leiddar í lög á íslandi á stjómskipulegan hátt. Jón samdi ritið, Deilt á dómar- ana, útg. 1987. Þá hefur hann skrif- að fjölda greina um stjórnmál og lögfræðileg efni, í blöð og tímarit. Fjölskylda Jón kvæntist 27.7. 1974 Kristínu Pálsdóttur, f. 14.11. 1952. B.Sc. í hjúkrunarfræði og húsmóður. Hún er dóttir Páls Bergþórssonar, veöur- fræðings og fyrrv. veðurstofustjóra, og k.h., Huldu Baldursdóttur lækna- ritara. Börn Jóns og Kristínar em ívar Páll, f. 27.2. 1974, háskólanemi; Gunnlaugur, f. 4.6. 1976, háskólanemi; Konráð, f. 12.2. 1984; Hulda Björg, f. 16.3. 1986; Hlynur, f. 30.8. 1988. Dætur Jóns frá því fyrir hjónaband eru Steinunn Fjóla, f. 30.11. 1970, nemi við KHÍ; Ásdís, f. 16.9. 1972, háskólanemi; Birna íris, f. 14.1.1973, háskólanemi. Systkini Jóns: Grettir, f. 24.7.1945, húsasmíðameist- ari; Ingibjörg, f. 12.11.1958, d. 29.1.1960; Ingibjörg Mar- grét, f. 8.11.1961, leikskóla- kennari. Foreldrar Jóns: Gunn- laugur Ólafsson, f. 10.11.1919, d. 3.6. 1979, leigubílstjóri i Reykjavík, og k.h. Ingibjörg Margrét Jónsdóttir, f. 3.6. 1923, húsmóðir og bókavörður. Ætt Gunnlaugur var sonur Ólafs, múrara í Reykjavík Þórarinssonar, b. á Kjaransstöðum Jónssonar, b. á Iðu Jónssonar. Móðir Gunnlaugs var Þorgerður Gunnarsdóttir, b. á Skálahnjúki Hafliðasonar. Móðir Gunnars var Björg, systir Pálma í Valadal, afa Jóns á Nautabúi, langafa Jóns Ásbergssonar, for- stjóra Útflutningsráðs. Björg var dóttir Magnúsar, b. í Syðra-Vall- holti Péturssonar. Móðir Þorgerðar var Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, b. á Ytri-Ásláksstöðum Jónssonar. Móð- ir Gunnlaugs var Þorgerður Þor- kelsdóttir, systir Lopts, langafa Þor- iáks Johnson kaupmanns, afa Arn- ar Johnson forstjóra. Bróðir Ingibjargar Margrétar var Eyjólfur Konráð, alþm.. Ingi- björg er dóttir Jóns Guðsteins, kaupmanns í Reykjavík Eyjólfsson- ar, b. á Mælifelli Einarssonar. Móð- ir Eyjólfs var Sigurlaug Eyjólfsdótt- ir, b. á Meingrund, bróður Sigur- laugar, langömmu Björns, afa Jóns L. Ámasonar stórmeistara. Eyjólfur var sonur Jónasar, b. á Gili i Svart- árdal Jónssonar, af Skeggstaðaætt- inni, bróður Jóns á Finnastöðum, afa Björns Jónssoncir á Veðramót- um, afa Sigurðar Bjamasonar, fyrrv. alþm. Móðir Ingibjargar var Sesselja, skólastjóri Konráðsdóttir, b. á Syðra-Vatni Magnússonar, bróður Jóns, prests á Mælifelli, fóður Magnúsar, dósents og ráðherra, og Þóris Bergssonar rithöfundar. Móð- ir Konráðs var Rannveig, systir Ingibjargar, langömmu Gylfa Gísla- sonar, fyrrv. ráðherra, föður Vil- mundar ráðherra, og langömmu Vilhjálms Gíslasonar, fóður Þórs, dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Rannveig var dóttir Guð- mundar, b. á Mælifellsá Jónssonar og Ingibjargar Bjömsdóttur, ættföð- ur Bólstaðarhlíðarættarinnar Jóns- sonar. Móðir Sesselju var Ingibjörg Hjálmarsdóttir, alþm. i Norðtungu Péturssonar, bróður Þorsteins, langafa Ögmundar Jónassonar, for- manns BSRB. Móðir Ingibjargar var Helga Árnadóttir, b. í Kalmans- tungu Einarssonar, bróður Bjarna, afa Bjama Þorsteinssonar, prests og tónskálds. Jón Steinar Gunnlaugsson. Katrín Sylvía Katrín Sylvía Símonardóttir, hús- móðir og saumakona, Hamrahlíð 9, Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í dag. Starfsferill Katrín fæddist í Vatnskoti í Þing- vallasveit og ólst þar upp. Hún lærði sauma og starfrækti sauma- stofu með Helgu, systur sinni, en þær voru með saumastofu við Laugaveginn um árabil. Þá stund- aði hún sauma á heimili sínu, jafn- framt heimilisstörfum. Fjölskylda Katrín giftist 16.4. 1949 ívari Bjömssyni, f. 28.7. 1919, ísiensku- kennara og skáldi. Hann er sonur Björns ívarssonar og Pálínu Sigríð- ar Sveinsdóttur, búenda að Steðja. Synir Katrínar Sylvíu og ívars era Gunnar Páll, f. 7.8. 1949, skrif- stofustjóri hjá Fiskveiðisjóði, bú- settur í Reykjavík en kona hans er Jónína Ragnarsdóttir, eiga þau tvær dætur; Símon Helgi, f. 9.3. 1951, gítarleikari og tónlistarkenn- sæi við Tónskóla Sigursveins D. Símonardóttir Kristinssonar en kona hans er María Jóhanna ívarsdóttir og eiga þau tvö börn auk þess sem Símon á eina dóttur frá fyrra hjóna- bandi. Systkini Katrínar Sylviu: Pétur Karl Símon- arson, lengst af rafvéla- virki í Reykjavík; Helga Símonardóttir Melsted, húsmóðir í Reykjavík; Sveinbjörg Símonardóttir, húsmóðir í Reykjavík; Að- alsteinn Símonarson, látinn fyrir nokkrum áram, garðyrkju- bóndi í Laufskálum í Borg- arfirði. Foreldrar Katrínar Sylvíu vora Símon Daníel Pétursson, bóndi og þús- undþjalasmiður að Vatns- koti í Þingvallasveit, og k.h., Jónína Sveinsdóttir húsfreyja. Katrin Sylvía dvelur um þessar mundir á hjúkran- arheimilinu Eir, Hlíðar- húsum 2, Reykjavík. ----------------y------ Hörður Vestmann Arnason Hörður Vestmann Árna- son, framkvæmdastjóri Árvéla hf. á Selfossi, Birki- völlum 31, Selfossi, er sex- tugur í dag. Starfsferill Hörður fæddist i Vallar- hjáleigu í Gaulverjabæjar- hreppi en ólst upp í Dalbæ í sömu sveit. Hörður flutti til Selfoss 1960. Hann stundaði nám við Iðnskólann á Selfossi og lærði ketil- og plötusmíði. Hörður stofnaði fyrirtækið Árvél- ar og hefur starfrækt það síðan. Þá var hann einn af stofnendum Bifreiðastöðv- ar Selfoss en Hörður var leigubílstjóri með öðram störfum á áranum 1962-86. Fjölskylda Hörður kvæntist 26.12. 1962 Jóhönnu Kristinsdótt- ur, f. 6.3. 1941, bókasafns- fræðingi við Bæjar- og hér- aðsbókasafnið á Selfossi. Hún er dóttir Kristins Guðfinns Pét- urssonar, f. 28.9. 1898, d. 12.3. 1968, og Kristínar Pétursdóttur, f. 30.8. 1905, d. 14.8. 1977. Böm Harðar og Jóhönnu eru Kristinn Harðarson, f. 15.11. 1963, framkvæmdastjóri á Selfossi og er sonur hans Karl Valdimar, f. 10.9. 1987 en sambýliskona Kristins er Sæunn Ingibjörg Brynjólfsdóttir; Hallgrímur Harðarson, f. 24.4. 1966, þungavinnuvélstjóri á Selfossi; Lóa Hrönn Harðardóttir, f. 22.3. 1969, þroskaþjálfi í Reykjavík; Pétur Harðarson, f. 12.8. 1975, nemi á Sel- fossi. Uppeldissystkini Harðar eru Ei- ríkur Hallgrímsson, f. 20.4.1935, lög- regluþjónn á Selfossi; Gunnþórunn Hallgrímsdóttir, f. 24.6. 1937, starfs- maður við Ljósheima á Selfossi; Steinunn Hallgrimsdóttir, f. 5.6. 1946, starfsmaður viö Mylluna hf., búsett í Reykjavík. Foreldrar HcU'ðar: Árni Jóhanns- son, f. 26.3. 1913, d. 19.12. 1995, og Jósefina Margrét Andrea Þorláks- dóttir, f. 28.9. 1911. Fósturforeldrar Harðar vora Hall- grímur P. Þorláksson, f.18.6. 1913, d. 2.2. 1996, og Bjarnþóra Eiríksdóttir, f. 6.6. 1906, d. 28.9. 1990. Hörður verður að heiman á af- mælisdaginn. Höröur Vestmann Árnason. Asa Sigríður Olafsdóttir Ása Sigríður Ólafsdóttir húsmóð- ir, Vesturgötu 163, Akranesi, verður sextug á morgun. Starfsferill Ása fæddist í Arnardal á Akranesi og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Gagnfræðaskóla Akraness. Að námi loknu stundaði hún verslunarstörf í Staðarfelli á Akra- nesi. Þá starfaði hún um skeið hjá Akraprjóni og í frystihúsi á Akra- nesi. Þá stundaði hún verslunarstörf í Reykjavík og vann við verksmiðj- una Vífilfell. Eftir að Ása gifti sig hefur hún stundað húsmóðurstörf. Fjölskylda Ása giftist 23.10.1965 Vali Sólberg Gunnarssyni, f. 20.8. 1939, verktaka. Hann er sonur Gunnars Sólberg Gíslasonar, sjómanns í Reykjavík, og k.h., Auðar Guðmundsdóttur húsmóður. Dóttir Ásu frá því áður er Jó- hanna Margrét Steindórsdóttir, f. 21.8. 1958, hárgreiðslumeistari í Reykjavík, gift Stefáni Snorra Stef- ánssyni og eru börn þeirra Hjörtur Líndal, Bjarki Hlífar og Katrín. Böm Asu og Vals era Auðunn Sólberg, f. 8.3. 1964. matreiöslumað- ur i Reykjavík og er sonur hans Jökull Sólberg; Saga, f. 7.4. 1966, húsmóðir á Seyðisfirði, gift Jóni Berg- mann bakara og er dóttir hennar Auður María Agn- arsdóttir; Hekla, f. 1.8.1968, verslunarmaður í Reykja- vík gift Guðmundi Björns- syni framkvæmdastjóri og er dóttir þeirra Auður; Val- ur Ásberg, f. 15.3. 1971, barkari í Reykjavík en kona hans er Friðmey Ása Sigríður Ólafsdóttir. Baldursdóttir sjúkraliði og er dóttir þeirra Móeiður Ása. Systkini Ásu urðu tíu talsins en sjö þeirra era á lífi. Foreldrar Ásu: Ólafur Sigurðsson, f. 1902, vél- smiður á Akranesi, og Ólafina Ólafsdóttir, f. 11.10. 1902, d. 12.10. 1995. Fósturfaðir Ásu var Ólafur Þorsteinsson. Ása tekur á móti gestum í sal Tónlistarskólans við Þjóðbraut, Akranesi, sunnudaginn 28.9. frá kl. 15.30. 711 hamingju með afmælið 27. september 95 ára Gunnþórunn Helga Jónsdóttir, Hjallaseli 55, Reykjavík. 90 ára Bjargey Ólafsdóttir, Stafholti 16, Akureyri. Sólveig Kristjánsdóttir, Dalbæ, Dalvík. 80 ára Sigurbjörg Sigurjónsdóttir, Hofsvaílagötu 21, Reykjavík. 75 ára Ragnheiður Einarsdóttir, Miðvangi 22, Egilsstöðum. 70 ára Ásta Stefánsdóttir, Langholtsvegi 32, Reykjavík. Bragi Sigurðsson, Árskógum 6, Reykjavík. Sæmundur Þórðai-son, Stóra-Vatnsleysu, Vatnsleysustrandarhreppi. Jófríður Bjömsdóttir, Hólavegi 17, Sauðárkróki. 50 ára Halldóra Jóna Ingibergsdóttir, eftirlitsmaður viö Veðurstofu íslands, Aratúni 28, Garðabæ. Eiginmaður hennar er Eiríkur Jónsson. Þau verða með opið hús á Garðaholti i Garðabæ kl. 17.00-20.00. Logi Ásgeirsson, Álftamýri 22, Reykjavík. Markús Guðmundsson, Holtabrún 6, Bolungarvík. Alda Finnsdóttir, Vörðu 12, Djúpavogi. Sigurður HaUdórsson, Smáragrund 9, Sauðárkróki. Guðný Magnúsdóttir, Breiðvangi 38, Hafharfirði. Jóhanna Guðrún Bjömsdóttir, Þrastarlundi 1, Garðabæ. Einar Hörður Þórðarson, Háteigi 6 A, Keflavík. Þorsteinn Högnasón, Hlíðarbraut 14, Blönduósi. 40 ára Jóhanna Gréta Guðmundsdóttir, Foldahrauni 41 C, Vestmannaeyjum. Ingibjörg R. Þengilsdóttir, Grýtubakka 18, Reykjavík. Bára Bjamadóttir, Grundarhúsum 42, Reykjavík. Erna Matthíasdóttir, Búlandi 29, Reykjavík. Gunnar Aðalsteinn Hilmarsson, Skógarhjalla 21, Kópavogi. Ágústa Sigurðardóttir, Lindargötu 42 A, Reykjavík. Oddný Snjólaug Þórðardóttir, Krossnesi, Ámeshrepþi. Karlotta L.L. Hafsteinsdóttir, Álfaskeiði 74, Hafnaifirði. Bryndís Baldursdóttir, Höfðahlíð 1, Akureyri., Sigrún Lóa Jósefsdóttir, Grenihlíð 18, Sauðárkróki. Birna Hugrún Bjarnadóttir, Laugarnesvegi 48, Reykjavík. Erna Margrét Viggósdóttir, Vegghömram 27, Reykjavík. Sigurður Öm Sigurðsson, Lyngrima 13, Reykjavík. Kirsten Lybæk Vangsgaard, Austurströnd 14, Seltjamamsesi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.