Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Side 50
58
myndbönd
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997 i jl/
Hringjarinn
frá
Notre Dame
Eins og flestar teiknimyndir
frá Walt Disney, sem eru í
fullri lengd og hafa verið til
sýningar i kvikmyndahúsum,
fer Hringjarinn frá Notre Dame
beint á sölumyndband án við-
komu á myndbandaleigum.
Hringjarinn frá Notre Dame er
34. teiknimynd Disney-fyrir-
tækisins í fullri lengd og er
hún gerð eftir hinni klassísku
sögu Victors Hugos. Er óhætt
að segja að sagan öðlast nýtt líf
i meðfórum snillinganna hjá
Disney.
Hringjarinn frá Notre Dame
gerist í París. Hátt yfir mið-
strætum borgarinnar gnæfir
hinn frægi turn Frúarkirkj-
unnar, Notre Dame. Ýmsar
sögusagnir eru um hringjarann
Kvasímodó sem enginn hefur
séð nema húsbóndi hans, hinn
illgjarni Kári. Kvasí, eins og
hringjarinn er gjarnan kallað-
ur, er ærið stórgerður á að lita
og hangir einmana dig eftir
Eddie Murphy leikur lögreglu-
manninn Scott Rober, aðaipersónuna
í Metro sem er í efsta sæti mynd-
bandalistans þessa vikuna. Murphy,
sem er þekktastur fyrir ærslafengin
gamanhlutverk, hægir aðeins á sér í
myndinni og fetar í fótspor hetjuleik-
ara nútímans. Metro er fyrst og
fremst spennumynd, þó svo Eddie
Murphy láti stundum vaða nokkra
brandara. Sjáifur segir hann um
reynslu sína í Metro: „Ég tek hatt
minn ofan fyrir Stallone,
Schwarzenegger og Willis. Ég skil
ekki hvernig þeir nenna að leika
alltaf í hasarmyndum. Þetta var
skemmtilegt en ég var alveg búinn
eftir að tökum lauk.“ Um húmorinn í
myndinni segir Murphy: „Ég er fyrst
og fremst gamanleikari og ólst upp
í skemmtibransanum sem slík-
ur. Ef ég sé eitthvað sem
býður upp á grín þá stenst
ég ekki freistinguna."
Eddie Murphy er mik-
ill sviðsmaður og nýtur
sín einna best þegar
hann reytir af sér
brandarana
einn á sviði.
Honum líður
aldrei betur
en þegar
honum
tekst að
hneyksla
áhorfendur.
Eddie
Mimphy lék
í sinni
fyrstu kvik-
mynd 1982.
Var það 48 Hrs.
og mótleikari hans \
Nolte. Það vill nú svo
Hrs.-kvikmyndirnar tvær eru
kannski einu myndir Murphys sem
svipar eitthvað til Metro að
efnistökum. 48 Hrs.
varð óhemju vinsæl
og má segja að
Murphy hafi orðið
Hollywoodstjama
á einni nóttu. í
kjölfarið kom
Trading Places,
virkilega
skemmtileg gam-
anmynd, og fyrir
leik sinn fékk
hann
til Golden
Globe-verðlaunanna. Ef einhver hef-
ur efast um kvikmyndahæfileika
hans vora þeir staðfestir i Beverly
Hills Cop þar sem Eddie Murphy
sló eftirminnilega í gegn og
skapaði eina af skemmtilegri
persónum gamanmyndanna.
Hann endurtók leikinn í
tveimur framhaldsmyndum
sem voru ekki eins vel heppn-
aðar og fyrirrennarinn.
Eddie Murphy hefur verið
iðinn við leik í kvikmyndum,
auk þess sem gerð var ein kvik-
mynd, Eddie Murphy’s Raw, þar
sem hann sýndi hæfileika sina sem
grínisti á sviði. í nokkur ár hafði
hann ekki erindi sem erfiði í kvik-
myndum og voru sumir famir að af-
skrifa hann þegar hann sló aftur
í gegn, nú í endurgerð
kvikmyndar Jerrys
Lewis, The Nutty
Professor. Þar brá
hann sér í sjö
hlutverk og hafa
hæfileikar hans
aldrei komið
jafn vel fram
og í þeirri
mvnd.
Murphy í hlutverki Scotts
Robers í Metro.
Byrjaði að grínast í skóla
Eddie Murphy fæddist í Brooklyn-
hverfinu í New York. Meðan hann
var í skóla fór hann að reyna fyrir
sér í hinum ýmsu klúbbum en það
gekk nú oft erfiðlega þar sem hann
var aðeins fimmtán ára gamall.
Hann var orðinn aðeins eldri þegar
hann var ráðinn í leikflokkinn The
Comedy Strip.
Eddie Murphy var nítján ára þeg-
ar hann vakti fyrst athygli. Það var
þegar hann var ráðinn einn af gam-
anleikurum í hinni frægu sjón-
varpsseríu, Saturday Night Live, en
svo virðist sem flestir gamanleikarar
sem ná langt byrji þar. í Saturday
Night Live skapaði hann nokkrar
persónur sem urðu mjög vinsælar. í
þau Qögur ár sem Eddie Murphy var
í Saturday Night Live fékk hann
tvær Emmy-tilnefningar sem leikari
og eina sem handritshöfundur.
Með starfi sínu í Saturday Night
Live tróð Eddie Murphy upp í leik-
húsum og klúbbum og hefur einnig
gert það með
kvik-
mynda-
leiknum.
Fimm plötur
hafa verið
gefnar út
með Eddie
Murphy, tvær þar
sem hann flytur gam-
anmál, og voru þær báðar
verðlaunaðar, og þrjár þar sem
tónlistin fær að njóta sín. Allt frá
seinni hluta níunda áratugarins hef-
ur Eddie Murphy unnið í gegnum
eigið fyrirtæki sem hefur framleitt
flestar myndir hans, auk sjónvarps-
efnis. -HK
dag uppi í turninum og horfir
niður á mannmergðina á stræt-
unum og ímyndar sér hvernig
væri að taka þátt í leikjum
fólksins á jörðu niðri.
En á skammri stundu skip-
ast veður í lofti, skyndilega er
hann kominn f atburðarás sem
kemur honum niður á strætin
og innan um annað fólk. Kári
er ekkert hrifinn af þessu
frjálsræði sem Kvasi nýtur og
fara hann og varðliðar á stjá til
að handsama hann. En með
hjálp sígaunastúlkunnar
Esmeröldu og geitarinnar Djali
eru Kvasa skyndilega allar
leiðir færar og hann uppgötvar
að kærleikur og hugrekki eru
eiginleikar sem hann á nóg af.
Sam-myndbönd gefa út
Hringjarann frá Notre Dame og
er myndin með íslensku tali.
Kvikmyndir
Eddies Murphys
48 Hrs„ 1982
Trading Places, 1983
Beverly Hills Cop, 1984,
Best Defense, 1984
The Golden Child, 1986
Beverly Hills Cop, II, 1987
Eddie Murphy Raw, 1987
Coming to America, 1988
Harlem Nights, 1989
Another 48 Hrs., 1990
Boomerang, 1992
The Distilguised Gentlem-
an, 1992
Beverly Hills Cop III, 1994
Vampire in Brooklyn, 1995
The Nutty Professor, 1996
Metro, 1997
Hringjarinnn Kvasímodó og sígaunastúlkan Esmeralda,
• • o •
Andersonville
Andersonville er ný sjónvarps-
mynd sem leikstýrt er af einum
þekktasta leikstjóra Bandaríkjanna,
John Frankenheimer, sem á að baki
mjög svo at-
hyglisverðar
myndir þótt
honum hafi
verið mis-
lagðar hend-
ur á undan-
fórnum
árum.
Anderson-
ville er
þriggja tíma
mynd. Sögu-
sviðið er
fangelsið
Andersonville þar sem menn sem
eitt sinn börðust hlið við hlið berj-
ast nú hver við annan í örvænting-
arfullum tilraunum til að komast
af. Liðsforinginn McSpadden og
Josiah Day leiða sveit óttalausra
manna sem berjast gegn ofsóknun-
um í þessu skelfilega fangelsi þar
sem allur aðbúnaður er þannig að
stríðsástand getur skapast mflli
þeirra sem þar eru. Fangarnir eru
niðurlægðir og pyndaðir án misk-
unnar en þeir verða að standa sam-
an sem einn maður og fórna jafnvel
lífi sínu svo einhverjum takist að
flýja.
I aðalhlutverkum eru Frederick
Forrest og Jarrad Emerick.
Warner-myndir gefa út Anderson-
ville og er hún bönnuð börnum
innan 12 ára. Útgáfudagur er 25.
september.
1! ■
lHt fjfSl ■Æ Hi
Vegas Vacation
Chevy Chase er enn á ný mættur
í hlutverki Grisswolds, höfuðs
Grisswoldfjölskyldunnar, í Vegas
Vacation, en áður hafa komið
Christmas
Vacation
og Euro-
pean
Vacation.
Enn er fjöl-
skyldan á
leið í frí,
nú til Las
Vegas.
Enginn
skipulegg-
ur sumar-
leyfi sitt á
eins óvið-
jafnanleg-
an hátt og
Clark
Grisswold. Gallinn er bara sá að
Grisswold getur ekki skipulagt hið
óvænta og einhvern veginn er það
svo að fjöiskyldan dregur að sér
óvænta hluti. Clark gat til að
mynda ekki séð það fyrir að áður
en yfir lyki hafði hann ásamt allri
fjölskyldunni breyst úr venjulegu
bandarísku millistéttarfólki í mun-
aðarseggi sem gleyma sér undir
blikkandi neonljósum og sóa fjöl-
skyldufénu í íjárhættuspil. Spurn-
ingin í lokin er hvort fjölskyldan
geti nokkuð eða vilji snúa til hins
fyrra lífs. Auk Chevy Chase leika
stór hlutverk í myndinni Beverly
D’Angelo og Randy Quaid.
Warner-myndir gefa út Vegas
Vacation og er hún leyfð öllum
aldurshópum. Útgáfudagur er 29.
september.
fjpi «/.-
' hL - ■ ■
Executive Power
Executive Power er ný sakamála-
mynd þar sem forseti Bandarikj-
anna kemur við sögu en embættið
virðist einkar vinsælt þessa dagana
sem vett-
vangur í
sakamála-
myndum.
Aðalper- .
sónan
Nick
Seger,
fyrrum
leyniþjón-
ustumað-
ur, hefur
verið kall-
aður til að
rannsaka
morð á
einum
besta vini forsetans. Nick fmnur
strax að eitthvað er bogið við málið
þegar hann uppgötvar að hluti
sönnunargagnanna er horfinn.
Hann kynnist unnustu hins myrta,
Susan, og áttar sig á því að hún er
næsta skotmark morðingjanna sem
halda að Susan hafi undir höndum
myndbandsspólu sem geymir vafa-
samar upplýsingar um háttsetta
menn innan Bandaríkjastjórnar.
Nick ákveður með sjálfum sér að í
þessu máli sé engum treýstandi þar
sem angar þess liggja í æðstu stofn-
anir ríkisins.
í aðalhlutverkum eru Craig Shef-
fer, Andrea Roth og John Heard.
Leikstjóri er David Corley.
Skífan gefur út Executive Power
og er hún bönnuð börnum innan
16 ára. Útgáfudagur er 30. sept-
ember.