Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Síða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Síða 51
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997 Hmgtfi myndbond 59 The People Vs. Larry Flynt Klámkóngurinn Larry Flynt hef- ur verið í meira lagi áberandi í bandarískum fjölmiðlum síðustu áratugina. Hann hóf feril sinn í með rekstri klámiðnaðinum Hustler-nektar- dansklúbbanna i Ohio snemma á áttunda ára- tugnum og það var á þeim tíma sem hann kynntist eigin- konu sinni, Althea Flynt (þá Althea Leisure). Fyrsti. vísirinn að Hustler-tíma- ritinu var Hustler-frétta- . bréfið, heimatil- búinn bleðill sem var dreift í klúbbunum hans. Fyrsta eintak tímarits- ins Hustlers seldist nánast ekki neitt en með því að birta myndir af Jacqueline Onassis alls- berri í sólbaði í næsta eintaki tryggði hann Hustler víðtæka dreifíngu og blaðið hefur síðan verið eitt af mest seldu klámblöðum í heiminum. Larry Flynt hefur átt i hverjum mála- ferlunum á fætur öðrum og hefur kosið að nota milljónirnar sínar til að berjast fyrir rétti sínum til að segja og prenta hvað sem er. Fræg- asta dómsmálið er skaðabótamál sem Jerry Falwell, leiðtogi hins svo- kallaða „Morai Majority", höfðaði á hendur honum vegna háðsauglýs- ingar sem birtist í Hustler þar sem fyrsta kynlífsreynsla Jerrys Falwells var sögð hafa verið með móður hans á útikamri. Larry Flynt það árið var hann dag eftir dag á forsíðum dagblaða vegna ótrúlegra uppátækja sinna. Þá langaði alla tíð síðan til að semja kvikmyndahand- rit um hann en þóttust vita að þeir kastamikill síðan þá en 1989 leik- stýrði hann Valmont og sneri sér síðan að ritun sjálfsævisögu sinnar sem kom út árið 1993. í aðalhlutverkum í myndinni eru Woody Harrelson (White Men Can’t Jump, Indecent Proposal, Natural Born Killers, Money Train) í hlut- verki klámkóngsins Larrys Flynts, rokkstjarnan Courtney Love (og ekkja Kurts heitins Cobains) í hlutverki Altheu Flynn og Edward Norton (Primal Fear) í hlutverki Alans Isa- acmans, lögfræðings Larrys Flynts. Þá má geta þess að Larry Flynt leik- ur lítið hlutverk í myndinni, dómar- ann Morrisey sem dæmdi Larry Flynt í 25 ára fangelsi í fyrsta dóms- máli hans. -PJ Courtney Love leikur eigin- konu Flynts sem var haldln sjálfseyð- ingarhvöt og var forfallin eiturlyfja- neytandi. Gerir myndir um uppreisnarseggi Handritshöfundarnir Scott Alex- ander og Larry Karaszewski (Ed Wood, Mars Attacks!) fengu fyrst áhuga á Larry Flynt þegar hann bauð sig fram til forseta árið 1984 en n UPPÁHALDSMYNDBANDIÐ MITT Inger Anna Aikman „Ég verð að viðurkenna að ég horfi mjög lítið á myndb Mannlegar myndir sem fjali samskipti fólks, sem eru auð á ýmsan veg, heilla mig mest. Hins vegar forðast ég myndir sem byggjast upp á blóðsúthellingum eins og heitan eldinn. Nýlega horfði ég á mynd með Barböru Streisand og Jeff Bridges sem ég hafði mjög gaman að. Það er myndin The Mirror Has Two Faces. Þetta er mjög mannleg mynd sem fjallar um samskipti tveggja einstak- linga. Jeff Bridges leik- sem hefur misst trú á ástarsamböndum og heldur að betiir' gangi að vera í sambandi byggist eingöngu upp á vin- :tu og gagnkvæmri virðingu. Að sjálfsögðu koma upp ýmis vanda- mál varðandi þetta fyrirkomulag eins og gefur aö skilja. Grínmyndir sem ná að kitla hláturtaugamar er nauðsynlegt að horfa á af og til. Ég á tvo bræð- ur sem eiga stórt safn gaman- mynda sem þeir kunna afturábak og áfram. T.a.m. eiga þeir allar myndir með Chevy Chase og Pet- er Sellers. Það hefur verið mikið hlegið að þessum myndum í gegnum tíðina en þeir eiga það einnig til að fara með heilu kaflana úr myndun- um og það vekur ekki síður kátínu. Annars virðist sem ég sé tímaskekkja í þessu eins og svo mörgu öðru. Afi minn, Haraldur Á. Sigurðsson, var leikari um miðja öldina og hjá honum kynntist ég öllum gömlu leikurunum t.d. Spencer Tracy, Danny Kaye og Katherine Hepbum. Það fer hins vegar minna fyrir þekkingu minni á yngri leikurum ss. Johnny Depp, Keanu Reeves og hvað þeir nú heita,“ seg- ir Inger Anna Aikman. fengju litlar undirtektir. Það var loksins eftir Ed Wood að þeir gátu farið til manns eins og Olivers Stones með hug- j myndina og verið teknir al- varlega. Oliver Stone fékk síðan leikstjórann Milos Forman til að gera myndina Milos Forman hefur áður gert myndir sem fjalla um árekstra upp- reisnarseggja við yfirvaldið og má þar nefna margfaldar óskarsverð- launamyndir hans, One Flew over the Cuckoo’s Nest og Amadeus. Hann átti það reyndar sammerkt með Oliver Stone að lítast ekkert alltof vel á umfjöllunarefnið - klám- kónginn Larry Flynt, en báðir skiptu þeir um skoðun eftir að hafa lesið handritið. Það var herferð Larrys Flynts gegn þeim sem vildu ritskoða hann sem heillaði Milos Forman. Stjórnvöldum er ekkert auðveldara en að afla ritskoðun klámefnis stuðnings. En þau eru út- smogin, þau hafa aðferðir til að hafa lögin þannig að þú kemst allt í einu að því að Shakespeare var klám- hundur, að Jesús var klámhundur, að hver sem ekki fellur að hug- myndum stjórnvalda er í raun arg- asti klámhundur," segir leikstjór- inn. Tékkneskur leikstjóri Milos Forman er tékkneskur að uppruna og hóf feril sinn í heima- landi sínu. Hann gerði fyrstu kvik- mynd sína, Black Peter, árið 1963 en hún vakti mikla athygli á kvik- myndahátíðum víðs vegar um heim- inn. Næstu myndir hans, Loves of a Blonde og Fireman’s Ball, vöktu enn meiri athygli á honum og hann var í París að semja um gerð fyrstu myndar sinnar í Bandaríkjunum, Taking off, þegar sovéski herinn réðst inn í Prag í ágúst 1968. Næsta mynd hans var One Flew over the Cuckoo’s Nest sem vann til allra helstu verðlauna á óskarsverð- launahátíðinni 1975 - besta mynd, besta handrit, besti leikari í aðal- hlutverki, besta leikkona í aðalhlut- verki og besti leikstjóri. Átta árum síðar gerði hann áttföldu ósk- arsverðlaunamyndina Amadeus og fékk aftur óskar sem besti leikstjóri en í millitíðinni gerði hann Hair og Ragtime. Hann hefur ekki verið af- Caravell fiystíkigitr danskar og vandaðar á mjöggoðu veiði. • Mjög vönduð kælikerfi. • DANFOSS kælipressur. • Stillanlegt termostat. • Hraðfrysting. Verð frá kr. 28310.- Margar stærðir, gott verð: 105 ltr. 28.310.- 180" 34.960.- 269 " 37.905.- 269" 39.805.- 376" 44.555.- 454" 56.810.- Verð miðast hér við staðgreiðslu. PFA F cHeimilisUekjaverslun Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 533 2222 Sölustaðir um allt land, uppl. hjá Gulu h'nunni, sími 58u 8000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.