Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1997
Fréttir
Lögreglan setti gerviefni í staö flkniefna í trjálund í Vatnsendalandi:
Stórfikniefnasali
gekk í gildruna
Þegar rannsókn flkniefnalögregl-
unnar á stórtækum fikniefnasala
stóð sem hæst í Kópavogi í haust
var gerviefnum komið fyrir til að
leggja gildru fyrir manninn. Maður-
inn gekk í gildruna og hefur nú ver-
ið ákærður fyrir stórfellt flkniefna-
brot - hundruð ætlaða skammta af
ecstasy og amfetamíni.
Maðurinn er 22ja ára. Lögreglan
hafði hann sterklega grunaðan um
að hafa mikið magn fíkniefna undir
höndum. Fylgst hafði verið með
ferðum hans. Lögreglan fann síðan
felustað hans - í trjálundi í hlíð í
Vatnsendalandinu rétt fyrir ofan
höfuðborgina.
Það sem fannst á felustaðnum
voru 153 grömm af ecstasy-efni, 28
töflur af sama efhi og 141 gramm af
metamfetamíndufti - mikið magn
sterkra og hættulegra flkniefna.
Talið er að hægt hefði verið að fá
tvö- til þrefalt fleiri skammta af
ecstasy en grömmin segja til um.
Athygli vekur að síöasttalda efnið,
sem er skylt amfetamíni en er þó
ekki það sama, hefur lögreglan
sjaldan ef nokkum tímann lagt hald
á hér á landi.
Þegar lögreglan fann efnin var
strax lagt hald á þau og þau fjar-
lægð en gerviefnum komið fyrir í
staðinn í trjálundinum. Maðurinn
Gerviefni sem líktist fíkniefni var komið fyrir á felustaö í trjálundi Vatnsendalandi til að leiða meintan fíkniefasala í
gildru lögreglunnar. DV-mynd S
kom og vitjaði efnanna síðar sama
dag. Lögreglan var þá í felum en
birtist á réttum tíma til að handtaka
manninn. Hann reyndist þá vera
með enn meira af fikniefnum á sér,
138 metamfetamíntöflur og nokkur
grömm af hassi, amfetamíndufti,
MDMA og marijúana.
Maðurinn er nú ákærður fyrir að
hafa ætlað allt framangreint efni til
sölu í ágóðaskyni. Ef hliðsjón er
höfð af dómum þar sem menn hafa
Guðrún P. og D-listinn:
Hefur reynslu
frá R-listanum
- segir Alfreð Þorsteinsson
„Þaö getur vel verið aö Guörún
Pétursdóttir gagnist Sjálfstæðis-
flokknum. Á það ber þó að líta að
hún hefur litla
reynslu af borg-
armálum. Hún
hefur unnið lít-
ils háttar að
borgarmálum
fyrir R-listann
og við höfum
ekkert
henni
kvarta
hennar
undan
að
eða
störf-
Guðrún
dóttir.
Péturs-
um,“ segir Alfreð Þorsteinsson,
borgarfulltrúi R-listans, vegna
þeirra hugmynda sem eru um að
Guðrún Pétursdóttir, forstöðu-
maður Sjávar-
útvegsstofnun-
ar Háskólans,
taki 8. sætið á
lista. Sjálfstæð-
isflokksins við
komandi borg-
arstjórnarkosn-
ingar.
Alfreð segir
aðstandendur
R-listans ekki
óttast að framboð Guðrúnar
myndi valda því að borgin tapað-
ist þeim. R-listinn muni halda
sínu striki hverjir sem skipi efstu
og neðstu sæti lista andstæöings-
ins.
-rt
Alfreð
steinsson.
Þor-
gerst sekir um innflutning eða
vörslur á ecstasy-efni, sem talið er
eitt það hættulegasta sem fram hef-
ur komið á síðari árum, og am-
fetamínefnum má búast við að fram-
angreind háttsemi geti varðað nokk-
urra ára fangelsi.
-Ótt
Óvenjumikiö um veikindi fyrir jólin:
Kvefpest og
magakveisa
- segir Samúel
Slæm kvefpest og lungnabólga
hafa hrjáö fjölda fólks undanfarnar
vikur, að sögn Samúels J. Samúels-
sonar, yfirlæknis Heilsugæslustöðv-
arinnar í Mjódd.
„Það hafa margir fengið háls-
bólgu og sumir fengið lungnabólgu.
Það hefur verið leiðinda kvefþest í
gangi, margir fengið langvarandi
hósta og bara verið veikir eins og
maður segir,“ segir Samúel. „Við
höfum þó ekki greint þessa eigin-
legu inflúensu enn þá.“
Samúel segir að svo virðist sem
þessar pestir hafi snert alla, jafnt
J. Samúelsson
unga sem aldna. Einhver hitavella
hafi fylgt meö þessu í einn eða tvo
daga en margir hafi verið með lang-
varandi hóstaeinkenni á eftir.
Þá hefur magakveisa einnig gert
vart við sig en Samúel segir hana
hafa verið frekar skammvinna.
Helstu einkenni séu magaónot og
ógleði og einhverjir hafi fengið upp-
köst en þetta sé ekki alvarleg pest.
„Ég hef það á tilfinningunni að það
sé meira um umgangspestir nú en í
fyrra,“ segir Samúel. „Mér finnst
þetta vera óvenjumikið núna í haust,
þrátt fyrir þetta góðviðri “ -Sól.
Sjúkrahús Reykjavíkur:
Dregur verulega
úr starfseminni
Nýdönsk, Helgi Björns og sönghópur úr Bugsy Malone koma fram á
árlegum jólatónleikum Háskólabíós, Coca-Cola og íslenska listans á
fimmtudagskvöld klukkan 19.30. Myndin var tekin á æfingu í gær.
- vegna uppsagna unglækna
„Það dregur verulega úr starfsem-
inni þegar rúmlega 50 manns ganga
út. Við getum haldið lykilstarfsemi
áfram talsvert lengi, þ.e. móttöku og
vinnu með bráðveika og slasaða. En
við gerum ekki mikið meira ef þetta
heldur svona áfram.“
Þetta sagði Jóhannes M. Gunn-
arsson, lækningaforstjóri Sjúkra-
húss Reykjavíkur, við DV.
í gær tóku uppsagnir 9 aöstoðar-
lækna gildi en samtals hefur 51 sagt
upp. Síðustu uppsagnirnar koma til
framkvæmda 20. þ.m. Þá áttu tveir
aðstoðarlæknar að hefja starf við
sjúkrahúsið um mánaðamótin en
þeir eru hættir við. Loks hætta sex
aðstoðarlæknar til viðbótar um ára-
mót en það var vitað fyrir.
Sérfræöingar á sjúkrahúsinu eru
nú famir að ganga í störf aðstoðar-
lækna. Til dæmis var sérfræðingur
á neyðarbilnum í gær.
Jóhannes sagði alvarlegast í mál-
inu að þó nokkrir unglæknanna
væru þegar búnir að festa sig ann-
ars staðar í vinnu. Verst væri þó ef
þeir flýttu utanfór. Sá hópur væri
þar með horfinn til frambúðar. Ofan
í kaupiö væru útskriftarárgangarn-
ir næstu árin fremur litlir.
„Fari fram sem horfir verðum við
væntanlega að breyta starfsháttum
eitthvað, fjölga sérfræðingum og
breyta vinnufyrirkomulaginu til
frambúðar með breyttum hlutfóllum
milli fjölda sérfræðinga og aðstoðar-
lækna. Meö þessu fækkar námsstöð-
um og því verður ekki svo auðveld-
lega breytt til fyrra horfs." -JSS
Stuttar fréttir i>v
Verkfalli frestað
Samkvæmt heimildum DV er
talið öruggt að verkfalli vélstjóra
verði frestað í einhverjar vikur.
Frestunin verður kynnt útgerðar-
mönnum á samningafundi á
morgun.
Einkavæðing P&S
48% landsmanna vilja einka-
væða Póst og síma samkvæmt
könnun sem Gallup hefur gert
fyrir Viðskiptablaöið. Meirihluti
höfuðborgarbúa vill einkavæða
símaþjónustuna en meirihluti
landsbyggðarbúa ekki.
87 miiy. á 50 þúsund
Á uppboði sem haldið var á
tveimur skuldabréfúm í eigu eig-
anda Bifreiöastöðvar ÞÞÞ á
Akranesi voru þau slegin á 50
þúsund krónur. Bréfm voru að
nafnverði 43,5 milljónir hvort og
talin þess virði. Uppboðið var
haldið til lúkningar skattaskuld
og refsisekt upp á 50 milljónir
króna. Viðskiptablaðið segir frá.
Breytt í forað
Jarðareigandi í Eyrarbakka-
hreppi segir að breyta eigi hluta
af jörð sinni í botnlaust forað.
Þar vill sveit-
arstjórnin
endurheimta
votlendi og
stofna fugla-
griöland og
Magnús Karel
Hannesson
oddviti segir
að íúglalíf geti
oröiö á heimsmælikvarða. RÚV
sagði frá.
Kaupmáttur jókst um 6%
Kaupmáttur atvinnutekna
jókst um rúm 6% milli 1995 og
1996. Það er það mesta síðan 1987
segir RÚV.
Akraborgin skóiaskip
Kaup á Akraborginni sem nýju
skólaskipi fyrir sjómenn voru
kynnt í ríkisstjórninni i gær.
Esther Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri SVFÍ, segir að
kennslu- og æfingaaðstaða batni
ef skipið verði keypt. Útgerð
Akraborgar verður hætt þegar
Hvalfjaröargöngin komast í gagn-
ið.
Fram með gögnin
Finnur Ingólfsson viðskipta-
ráðherra heftxr skipað Vátrygg-
ingaeftirlitinu að taka saman
upplýsingar
um bótafjár-
hæðir í til-
teknum tjón-
um árið 1993.
Þingnefnd
sem vinnur
að enduskoð-
un skaðabóta-
laga hafði
áður beðið um þessar upplýsing-
ar en tryggingafélögin og Vá-
tryggingaeftirlitið neitað að veita
þær. Stöð 2 sagði frá.
Drepandi stórverslun
Risaverslunarkjami, sem fyrir-
hugaður er í Smáranum í Kópa-
vogi, mun drepa niður verslun í
Hafnarfirði og lama verslun í
Miðbæ Reykjavíkur og í Kringl-
unni að mati bresks skipulags-
fræðings. Sjónvarpið sagði frá.
Smygi á E-töflum
Sænsk kona var handtekin í
Leifsstöð á sunnudag með 1.100
E-töflur. í kjölfarið voru fjórir
íslenskir karlmenn og ein icona
handtekin. Sænska konan og
tveir íslendinganna hafa verið
úrskurðuð í gæsluvarðhald til 19.
janúar nk.
Eldur í raðhúsi
Eldur kom upp i íbúð I raö-
húsi við Réttarholtsveg á sjötta
tímanum í gær.
íbúar höfðu skroppið út en ná-
grannar þeirra tilkynntu um eld-
inn. Slökkvistarf gekk mjög vel og
var eldurinn slökktur á stuttum
tíma. Miklar skemmdir urðu í
íbúðinni vegna elds og reyks. -SÁ