Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1997 Fréttir Áróðursstríð sjómanna og útgerðarmanna í fullum gangi: Hagfræðingurinn ástundar sögufölsun „Hvorki Sveinn Hjörtur né aðrir vinna þannig að þeir taki sér ekki sumarfrí. Hann er í vinnunni um 200 daga á ári og skipstjórar eru að meðaltali 230-250 daga á sjó enda er miðað viö að fullt starf sé 245 dagar. Það er því verið að þúa til stöðuna sem slíka og er úr takt við allan raunveruleika. Þetta er því ekkert annað en sögufölsun og ber keim af hagræöingu hagtræðingsins á talna- dæminu," segir Guðjón A. Krist- - segir Guðjón jánsson, forseti Farmanna- og físki- mannasambands íslands, vegna þeirra upplýsinga sem LÍÚ hefur sent um launakjör sjómanna. Þar upplýsir Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur LÍÚ, að skipstjórar tiltekins úrtaks skipa hafi 10,2 millj- ónir króna í árslaun miðað við fullt úthald. Á sömu forsendum segir LÍÚ 1. stýrimann hafa 690 þúsund krónur á mánuði. „Þetta er aðeins byggt á 45 Kristjánsson um stærstu og kraftmestu skipunum sem þar með afla eigendum sínum mestra tekna á metaflaári íslands- sögunnar. Þá eru þetta ekki sist undarlegar upplýsingar i því Ijósi að það eru vélstjórar en ekki skip- stjórar sem hafa boðað verkfall," segir hann. Hann segir þessar upplýsingar vera kjaradeilum skipstjómar- manna og útgerðarmanna óviðkom- andi þar sem ekki sé ætlunin að hagfræðing LÍÚ sækja hærri laun. „Kjarakröfur okkar snúast ekki um hækkuð hlutaskipti en eingöngu um að treysta undirstöður hluta- skipakerfisins með því að afnema návígið í samskiptum sjómanna og útgerðarmanna. Ég bendi hins veg- ar á að allar gagnkröfur útgerðar- manna eru til þess fallnar að lækka laun sjómanna mitt í öllu góðær- inu,“ segir Guðjón. „Hann segir yfirlýsingar Þorsteins Más Baldvinssonar, framkvæmda- stjóra Samherja, um ofsalaun starfs- manna sinna vísbendingu um vinnu- brögð útgerðarmanna. „Yfrrlýsing framkvæmdastjóra vísar veginn i þeim vinnubrögðum sem á að viðhafa í baráttunni. Nú er liðinn sá tími að stjórnvöld þurfi að koma að deilunni. Nú er runninn upp sá timi að sægreifarnir berja milliliðalaust á launþegum og leigu- liðum,“ segir Guðjón. -rt vantar 30,5 milljónir Fjáraukalög 1997: Siglingamálastofnun í frumvarpi til fjáraukalaga er farið fram á 30,5 milljóna króna aukafjárveitingu til Siglingamála- stofnunar af þrenns konar tilefni: vegna rannsókna á flaki skelbátsins Æsu, til rannsókna á stöðugleika ís- lenskra fiskiskipa og í þriðja lagi til að standa straum af húsaleigu fyrir húsnæði sem stofnunin notar ekki en stendur autt. Vegna rannsókna á flakinu af Æsu, sem sökk á Amarfirði í júlí 1996, vantar 12,5 milljónir upp í kostnað við að kafa ofan í skipið fyrr á árinu til að komast að raun um hvað olli því að skipið sökk. Ekki tókst að varpa ljósi á það mál. Þá vantar 10 milljónir króna vegna könnunar á stöðugleika fiski- skipa sem hófst árið 1988. Ríkis- stjómin ákvað fyrr á þessu ári að þess- ari könnun yrði að Ijúka og síðasti áfangi hennar klár- aður. Sá áfangi nær til 134 skipa. Loks vantar 8 Átta milljónir vantar til aö greiöa húsaleigu af þessu auða húsnæð’i 2,3 milljónir í Good morning America: Þetta er lokagreiðsla - segir formaður fjárlaganefndar „Þetta er lokagreiðsla, sagði Jón Kristjánsson, formaður fjárlaga- nefndar Alþingis, þegar DV spurði hann um 2,3 milljóna króna auka- fjárframlag vegna útsendingar sjón- varpsþáttarins Good morning America frá íslandi sem farið er fram á I fjáraukalögum þessa árs. Jón segir að á sínum tíma hafi verið ákveðið að Islendingar tækju þátt í útsendingu þáttarins ásamt hinum Norðurlandaþjóðunum og kostnaður við það greiddur af ráð- stöfunarfé ríkisstjórnarinnar. Hækkun á gengi Bandaríkjadollars hafi leitt til þess að að framlag rík- isstjómarinnar hafi ekki dugað til að greiða kostnaðinn eins og hann var áætlaður í fjárlögum. „En þetta er endanlegt uppgjör á málinu," sagði Jón Kristjánsson. -SÁ milljónir til að greiða húsaleigu fyr- ir fyrrverandi húsnæði stofnunar- innar í JL-húsinu við Hringbraut. Eins og greint hefúr verið frá í frétt- um DV er stofnunin löngu flutt úr húsnæðinu og hefur það staðið autt síðan. Húsaleigusamningur við eig- anda húsnæðisins er hins vegar enn í gildi og ekki hefur tekist að fram- leigja húsnæðið. -SÁ Thorvaldsensstræti 2 við Austurvöll, sem oft er kallað Sjálfstæðishúsiö eða gamli Kvennaskólinn, hefur verið gert upp og er nú miðbæ Reykjavíkur til mikillar prýöi. DV-mynd E.ól. Dagfari Eins og gráir kettir Steingrímur J. Sigfússon er sam- viskusamur þingmaður. Það mættu fleiri fara að dæmi hans og taka starf sitt alvarlega. Steingrím- ur fylgist vel með hverjir mæta í þinginu og hann fylgist áreiðan- lega vel með því hvað þeir aðhafast í þinginu. Og það þarf svona menn, því ekki veitir af að hafa gætur á al- þingismönnum sem leyfa sér stundum ýmislegt sem ekki má. Sumir eru kannski í kaffi þegar þeir eiga að hlusta á Steingrím tala, aðrir sitja jafnvel hálfsofandi undir ræðum Steingríms og svo eru þeir sem eru alls ekki í þing- húsinu þegar Steingrímur vill hafa þá í húsinu. Hér er ekki aðeins um þaö að ræða að Steingrímur vilji að menn sitji og standi eins hann sjálfur vill. Steingrímur hefur þingsköpin sér til halds og trausts. Steingrím- ur hefur kynnt sér þingsköpin og veit hvað má og hvað ekki má. Hann situr og horfir vökulum aug- um yfir salinn og skrifar niður hjá sér hverjir virða þingsköp og hveijir ekki og honum blöskrar það kæruleysi og það virðingar- leysi sem ríkir í þingsölum. Enda er Steingrímur löghlýðinn maður og virðir reglur og venjur og það er ekki nein tilviljun að Steingrím- ur J. Sigfússon hefur valið Alþýðu- bandalagið sem sinn flokk. Alþýðu- bandalagið er íhaldssamastur allra flokka og leggur mest upp úr því að lög og reglur séu virtar í hví- vetna. Innan þings sem utan. Þetta hefur valdið því að Stein- gi’ímur er eins og grár köttur í ræðustól á Alþingi að kenna mönn- um þingsköp og það var af þessum ástæðum sem Steignrimur sá ástæðu til að ávíta Davíð forsætis- ráðherra fyrir að vera ekki mætt- an við afgreiðslu íjárlagafrum- varpsins. Nú halda kannski sumir að Steingrímur allaballi hafi mátt vera feginn að Davíð skyldi vera fjarstaddur og Árni Johnsen líka þegar atkvæðagreiðslan fór fram um frumvarpið. Tveimur atkvæð- um færra fyrir stjórnarliðið. En Steingrímur er ekki þannig maður að hann vilji græða á fjarvist and- stæðinga sinna. Hann vill fara aö þingsköpum og þegar hvorki Davíð né Árni hafa lögmæt forfoll eru þeir að brjóta þingsköp og það líkar Steingrími ekki, hvað sem líður öllum at- kvæðum og afgreiðslum. Hann er þingskaparmaður, hann Stein- grimur. Ekki endilega drengskap- armaöur. En þingskaparmaður. Steingrímur sagði að Davið hefði verið á Gráum ketti þegar hann átti að vera á Alþingi. Og Árni var á Stórhöfða að hlusta á sinfóníuna sína. Látum það nú vera með Áma, enda ekki margir sem vilja hlusta á Stórhöfðasvítuna hans Árna og skiljanlegt að hann vilji gera það sjálfur. En Davíð var ekki að hlusta á neitt eftir sjálfan sig. Hann var að lesa eftir sjálfan sig og skrópaði í þinginu. Og Steingrimur dró upp kladdann og gaf áminningu. For- sætisráðherra getur ekki leyft sér að skrópa til þess eins að láta aðra hlusta á sig. Hvað þá ef það era kjósendur sem hlusta á ráðherrann. Svoleiðis gera menn ekki samkvæmt þing- sköpum. Samkvæmt þingsköpun- um, sem Steingrímur kann utan að, mega menn vera eins og gráir kettir í ræðustóli en þeir mega ekki vera á Gráum ketti eins og gráir kettir meðan gráu kettirnir á Alþingi mega ekki vera að því sjálfir að lesa upp á Gráum ketti. Það er bannað samkvæmt þing- sköpum. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.