Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1997 31 . Sviðsljós Knattspymuhetjur utan vallarins: Slást um kryddpíu Böm Stefaníu prinsessu úti í kuldanum Orðrómur er á kreiki í Mónakó um að Rainier fursti láti böm Stefaniu dóttur sinnar og fyrrum líf- varðar henn- ar, Daníels Ducraets, vera úti í kuldanum. Stefanía og Daníel eign- uðust tvö börn, Louis, sem er fimm ára, og Pálínu sem er þriggja ára. Þau fá ekki að vera viðstödd opinberar athafnir. Bæði Stefanía og Daniel era sögð æst vegna málsins. Talsmaðm- furstans segir börnin of ung til að taka þátt í athöfnunum. Pamela alveg að springa Sílíkongellan Pamela Ander- son er nú alveg að springa. Pamela, sem er komin átta mánuði á leið, kom fram í sjón- varpsþætti á dögunum íklædd flegn- um og níð- þröngum kjól sem í raun leyndi ekki neinu. Óttuðust menn helst að hann myndi springa utan af henni. Pamela gengur með dreng sem hún er þegar búin að gefa nafnið Dylan Jagger. Stóri bróðir er 17 mánaða og heitir Brandon Thomas. Kryddpían Victoria Adams, sem hefur viðumefnið Flotta kryddið vegna glæsileika síns, hlýtur að vera ánægð með sig þessa dagana. Svo vill nefnilega til að hvorki fleiri né færri en tveir knattspymukapp- ar á heimsmælikvarða slást nú um hug hennar og hjarta. Þeir era ítalski hjarta- og boltaknúsarinn Filippo Inzaghi, framvörður í Juventus liðinu, og breski miðvörð- urinn David Beckham hjá Mémchester United, núverandi kær- asti Victoriu. Fyrsta lota slagsmálanna fór fram á knattspymuvellinum um daginn þegar Juventus og United áttust við í einhverri meistarakeppni. Fyrir leikinn lýsti sá brúneygði Filippo því yfir að hann ætlaði að leika fyr- ir Victoriu. Skemmst er frá því að segja að ítalirnir unnu leikinn og sjálfur Filippo skoraði sigurmarkið. Það má þvi segja að hann hafi unn- ið hjarta stúlkunnar. Hvort hún vill gefa það eftir og hvort David lætur sér vel lynda er svo annað mál. Victoria Adams og stöllur hennar í Kryddpíunum voru giæsilegar aö vanda þegar þær mættu til frumsýningar kvik- myndarinnar sem þær hafa leikið í. Karl Bretaprins og synir hans tveir voru meðal frumsýningaraesta. í steininn fyrir nektarmyndir Ástralska ofurfyrirsætan Elle Macpherson getur nú sofiö ró- lega þar sem maðurinn sem braust inn til hennar óg stal nektarmynd- um af henni hefur verið dæmdur til sex ára fang- elsisvistar og átta mánuðum bet- ur. Kauði hélt því fram við réttar- höldin að fyrirsætan hefði hryggbrotið sig. Hún segist hins vegar aldrei hafa hitt hann, hvað þá meira. Elle sagði í myndbandsupp- töku sem sýnd var í réttinum að öll þessi reynsla hefði verið martröð líkust. Fjórða barnið á leiðinni Sylvester Stallone, sem er orð- inn 51 árs, á von á fjórða barn- inu sínu. Eig- inkona hans. Jennifer Fla- vin, sem er 28 ára, gengur með annað barn sitt sem á að fæðast í maí. Fyrir eiga þau Stallone dótturina Sophiu Rose sem gekkst undir hjartaaðgerð fárra vikna vegna meðfædds galla. Jennifer er sögð hafa misst fóstur í júlí í síðast- liðnum og á Stallone að hafa bannað henni að ferðast með flugvél þar til bamið, sem hún gengur meö, er fætt. ttriíorvi: Intel Fentium 200MHz MMX. Vinniluminni: 32MB SDRAM. Harðdiikur: 4.2GB. SkjAr: 15" IBM. Skjakort: ATi 3D Rage 11+ meö 2 MB SGRAM. Margmiðlun: 24 hraða geisladrif, hljáökort, hátalarar og bassabox. Samikipti: 33.600 baud mótald. Hugbúnaður: Windows 95, Lotus SmartSuite 97, Simply Speaking, IBM Antivirus. Aptiva-tölvurnar hafa á að skipa sárstaklaga öflugum vél- og hugbúnaði. Þassar einstöku tölvur eru hannaðar með það í huga að vinnslan sé skemmtileg, auðveld og hröð. Glæsilegt útlit þeirra á sér enga hliðstæðu og hljóðgæðin eru lík því sem þú átt að venjast í kvikmyndahúsum. Láttu drauminn rætast og festu kaup á IBM Aptiva - tölvu sem á sér engan líka! úrgjörvi: Intel Pentium II 233MHz. Vinmluminni: 32MB SDRAM, má auka i 384. Hirðdiikur: 4.2GB. SkfAr: 17" IBM meö Bose hátölurum. \ SkJAkorl: ATi 3D Rage Pro með 2 MB SG^AM. Margmiðlun: 24 hraða geisladrif, hljóökort og bassabox. Simikipti: 33.600 baud mótald. Hugbúmður: Wlndows 95, Lotus SmartSuite 97 og 28 önnur forrit (hjálparforrit, fræðsla og leikir. Skaítahlíö 24 • Sími 569 7700 SlóB: http://www.nyherji.is sa Netfang: nyherji@nyherji.is pentium' r-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.