Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1997 Þú getur bakað, steikt og griliað að vild í nýja BLÁSTURS - BORÐOFNINUM Rúmgóður 12,5 lítra ofn, en ytri mál aðeins 33x44x23 cm. 4 valmöguleikar: Affrysting, yfir- og undirhiti, blástur og grill. Hitaval 60-230ÍIC, 120 mín. tímarofi með hljóðmerki, sjálf- hreinsihúðun og Ijós. JÓLATILBOÐSVERÐ kr. 16.200,- stgr. 6 gerðir fÍ'MTffHllý) borðofna. á verði frá 9.300,- iFQnix HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420 Utlönd Nelson Mandela á landsfundi Afríska þjóðarráðsins: Kyssti Winnie - og ílr Nelson Mandela, forseti Suður-Afr- íku, gagnrýndi harðlega í maraþon- ræðu á landsfundi flokksins í gær ýmsa aðila meðal hvítra fyrir and- stöðu viö uppbyggingu nýrrar Suður- Afriku. Nelson lætur nú af for- mennsku Afríska þjóðarráðsins sem heldur nú sinn 50. landsfund. 3000 þáttakendur voru viðstaddir þegar Mandela hóf kveðjuræðu sína sem stóð í rúmar fjórar klukkustundir. Mandela lagði á það áherslu í ræðunni að tími kynþáttaaðskilnað- arstefnunnar væri liðinn og að lýð- ræðisstjórn hefði tekið við af stjóm hvíta minnihlutans jafnvel þótt hvítir íbúar landsins héldu fast í gömul forréttindi sín. ti þrumuræðu gegn „Flokkar, þar sem hvítir eru í meirihluta, hafa barist gegn laga- breytingum og aðgerðum sem miða að því að útrýma mismunun kyn- þáttanna. í hvert sinn sem Afríska þjóðar- ráðið hefur reynt framkvæmdir hafa talsmenn þessara sérréttinda- hópa borið fram alls kyns ásakanir um kynþáttahatur, heOaþvott, brot á stjómarskránni, einkavinavæð- ingu og einræði," þrumaði Mand- ela. Fullvíst þykir að varaformaður Afríska þjóðarráðsins, Thabo Mbeki, taki við flokksformennsk- unni af Mandela. Búist er við að Mbeki leggi minni áherslu á sættir hvítum milli kynþáttanna en Mandela og krefjist þess af hvítum að þeir leggi sitt af mörkum. Ekki er búist við að Winnie Madikizela-Mandela, fyrrverandi eiginkonu Nelsons Mandela, takist að ná kjöri sem varaformaður Afríska þjóðarráðsins. Henni var þó vel fagnað er hún kom á landsfund- inn í gær. Eftir kveðjuræðu sína í gær faðm- aði Nelson Mandela og kyssti Winnie. Hún hafði stillt sér upp í biðröð þeirra sem yildu þakka for- setanum ræðuna. Á meðan sungu og dönsuðu stuðningsmenn 1 kringum hjónin fyrrverandi. Reuter Særð kona af ættbálki mapuche-indíána í Chile nýtur aöstoöar eftir aö hún meiddist í átökum viö lögreglu í höfuö- borginni Santiago i gær. Indíánarnir efndu til mótmælaaögeröa til aö krefjast réttar síns. Símamynd Reuter Vinningshafar í Krakkaklúbb PV og ðcala 1. verðlaun: Scala-glæsiíbúð. Hólmfríður Fórhallsdóttir nr. 12.173 2. verðlaun: Scala-barnaherbergi. bórey Magndsrlóttir nr. 9701 3. verðlaun: Scala-snyrtiborð. Sigrún Erla Jónsdóttir nr. 10.103 4. -14. verðlaun: Scala-snyrtiherbergi. Guðlaug J. HelgaJóttir nr. 91Ö4 Fórir K. GuðmunJsson nr. 7363 Tinna Sturludóttir nr. 9196 Árný Ósk ArnaJóttir nr. 12.313 Halldóra Srynjólfsdóttir nr. 1430 Margrét Ó. Halldórsdóttir nr. 9357 Jóhanna FriðriksJóttir nr. 10.696 Dagný Kristjánsdóttir nr. 1957 Elísabet Hanna nr. 12.344 Haraldur 6. Magnússon nr. 6192 Guðrún S. Sigurjónsdóttir nr. 6371 Davíð Már óskarsson nr. 12.014 Hólmfríður Magnúsdóttir nr. 11.566 Ásdís Geírsdóttir nr. 2569 Krakkaklúbbur DV oq Lego óska vinningshöfum til ham- ingju og þakka öllum kasrlega fyrir frábasra pátttöku. Vínningarnir verða sendir vinningshöfum í póst'\ næstu daga. Hundruð barna á sjúkrahús í Japan: Horfðu á teikni- mynd og fengu flog Mikill ótti hefur gripið um sig í Japan í kjölfar þess að hundruð böm fengu krampaflog við það eitt að horfa á teiknimynd í sjónvarpinu sem byggð er á vinsælum Nin- tendofígúrum sem heita „Vasa- skrímslin". Talsmaður slökkviliðsins í Tokyo, sem kannaði ástandið um allt Japan, sagði fréttamanni Reuters að 618 böm að minnsta kosti hefðu fengið krampaflog, upp- sölur, óþægindi í augu og fleiri ein- kenni eftir að hafa horft á teikni- myndina á þriðjudagskvöld. Skuldinni var skellt á atriði þar sem rautt ljós úr augum Pikachu, vinsælustu figúrunnar, blikkar í fimm mínútur. Um 120 böm frá þriggja ára aldri voru enn á sjúkrahúsi síðdegis í dag að japönskum tíma með einkenni sem minna á flogaveiki. Ráðuneyti póst- og símamála, sem hefur eftirlit með sjónvarpsstöðv- um, sagðist ætla að láta rannsaka atburð þennan. Talsmaður Nintendo fyrirtækis- ins sagði að engin tengsl væm milli leiksins frá því og teiknimyndarinn- ar önnur en þau að sömu figúrum- ar kæmu þar fyrir. Teiknimyndin sem byggist á leiknum er sýnd á hverjum þriðju- degi og nýtur gífurlegra vinsælda meðal bamanna. Reuter Atvinnulaus prinsessa DV, Ósló: „Marta Lovísa Noregsprinsessa hefur ákveðið að leggja á hilluna fyrirætlanir um að gerast sjúkra- þjálfari. Hún hefur undanfarið stundað nám í greininni í Hollandi og er nú að ljúka vinnuskyldunni við námslok. Prinsessan segist hafa lært mikið á vem sinni í Hollandi og fengið dýrmæta reynslu í að umgangast fólk. Þá hafi það og verið þroskandi að kynnast sjúklingum sem jafnvel vom dauðvona en prinsessan vill samt ekki gera sjúkraþjálfun að að- alstarfi. Nú um jólin mun konungs- fjölskyldan setjast á rökstóla og ræða framtíð Mörtu. Síðan ákveður Sonja drottning hvað prinsessan tekur sér fyrir hendur en drottning ræður sem kunnugt er öllu í kon- ungshöllinni norsku. -GK Stuttar fréttir dv Heppinn Færeyjagutti Martin Kjeld, 9 ára færeyskur gutt, vann tæpar 3 milljónir ís- lenskra króna í getraunum á dög- unum. Hann ætlar að kaupa hjól handa sér og systur sinni. Danir fengu afslátt Danir hafa fengið afslátt á þátt- tökugjaldi sínu í NATO vegna bandarísku herstöðvanna á Græn- landi. Afslátturinn nemur útgjöld- um Dana vegna Grænlands og Færeyja. Skattar lækkaðir Ryutaro Hashimoto, forsætisráð- herra Japans, lét undan þrýst- ingi innanalds og utan í morg- un og lækkaði tekjuskatt ein- staklinga um sem svarar rúmum 1100 milljöröum íslenskra króna til að bjarga bágum efnahag landsins. Gengi japanska jensins steig mjög í morgun gagnvart Bandarikjadollar. Olíulekaleit lokið Breskt fyrirtæki hefur lokið leit sinni að olíuleka á færeyska land- gmnninu og era hlutaðeigandi ánægðir með árangurinn, þótt ekki hafi verið skýrt frá honum opin- berlega, segir í færeyska blaðinu Sosialurin. Sakaður um svindl Mohammad Sarwar, milljónari og fyrsti múslíminn sem var kjör- inn á breska þingið, hefur verið sakaður um kosningasvindl. Lög- reglan hefur gefið út handtöku- skipun á hann. Carlos óhress Hryðjuverkamaðurinn Carlos, betur þekktur sem Sjakalinn, las dómaranum í réttarhöldun- um yfir honum pistilinn í gær og krafðist þess að sér væri sýnd meiri viröing. Carlos skýrði dóm- inum frá kommúnísku uppeldi sínu. Áfram í Bosníu Utanríkisráðherrar NATO vom einhuga um að hersveitir banda- lagsins yrðu áfram í Bosníu. Þá undirrituðu ráðherramir aðildar- samkomuiag við þrjú fyrrum Var- sjárbandalagsríki. Leitað að loftsteini Danski flugherinn flaug þvers og kmss yfir Grænland I gær í leit að loftsteini. Talið er að loftsteinn hafi fallið á Grænland vegna risa- ljósglampa sem sást þar aðfaranótt 9. desember. Persson bjó ókeypis Göran Persson, forsætisráð- herra Svíþjóðar, bjó ókeypis í 10 daga fríi á Malaga i sumar. Húseigandinn var svo hrifinn af að fá að hýsa svo tiginn gest að hann neitaði að taka við greiðslu. Nýr forsætisráðherra Vaclav Havel, forseti Tékklands, útnefndi í gær seölabankastjórann Josef Tosovskí í embætti forsætis- ráðherra landsins. Tosovskí er ekki bundinn stjómmálaflokki. Skaðlegur stuðningur Sænskur hagfræðiprófessor segir stefnuna í sjávarútvegsmálum óheil- brigða auk þess sem hinn mikli fjár- hagslegi stuðningur sé skaðlegur. Stuðningurinn nemur nú rúmum 4 milljörðum íslenskra króna. Kosningar í S-Kóreu S-Kóreumenn ganga að kjörborðinu á morgun og velja sér forseta. Sérfræðingar segja að kosningarnar snúist frekar um persónur heldur en málefni. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.