Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1997 23 Fréttir Hveragerði: Afmæli í klofningi Þingmenn Sjálfstæöisflokksins á Suðurlandi í hófinu ásamt Hvergerðingum. DV-mynd Eva DV Hveragerði: Hálfrar aldar afmælis sjálfstæð- isfélagsins Ingólfs í Hveragerði var minnst 13. desember. Félagið var stofnað 21. desember 1947. í því eru á 3ja hundrað félagsmenn og er það stærsta stjómmálafélag í Hveragerði. Boðið var til fjölmenns hófs á Hótel Örk þar sem fluttar vom stuttar afmælisræður. Meðal gesta vom þingmenn flokksins á Suður- landi, Þorsteinn Pálsson og Ámi Johnsen. Fjórir stofnendur voru gerðir að heiðursfélögum, Aðal- steinn Steindórsson, Georg Michelsen, Theódór Halldórsson og Ólafur Steinsson. Þeir fluttu hingað á unga aldri og hafa starf- að og búið hér síðan. í afmælinu létu ræðumenn í ljós þá von að klofningur, sem orðið hefur í félaginu, væri tímabund- inn og unnt yrði að leysa þau mál. í ræðu sagði Bjöm S. Pálsson, formaður félagsins, að íbúar í Hveragerði hefðu ekki verið marg- ir þegar félagið var stofnað - helstu forvígismenn verið skáld og listamenn, ásamt garðyrkjumönn- um. Frá stofnun sveitarfélagsins hefði framboð á vegum Ingólfs haft meirihluta oftar og lengur en nokkur önnur framboð. -ehr Hvalfj aröargöngin: Bergið styrkt DV, Akranesi: Framkvæmdir í Hvalfjarðar- göngunum ganga samkvæmt áætl- un og margir þættir verksins unn- ir samtímis. Verki við að styrkja bergið í öllum göngunum er hald- ið áfram og því lýkur um miðjan janúar. Eftir áramót hefst vinna við að setja dúk í loft ganganna til að beina vatni úr berginu frá ak- brautinni inn í dælukerfið. Norsk- ur verktaki sér um þann þátt. Fufl- trúar hans voru þar í síðustu viku að undirbúa verkið sem felst í að byggja upp sjálfan veginn gegnum göngin. Byrjað verður að malbika fyrra lagið á akbrautinni norðan megin fyrir jól. Unnið er að því að steypa vatns- þróna í botni ganganna, leggja kapla og rör og ganga frá spenni- stöðvum. Þá er unnið að undir- stöðum fyrir vegsvalir norðan megin. Steypuvinna við sjálfar vegsvalirnar hefst svo eftir ára- mót. Byrjað er að fylla með dren- möl að vegsvölunum að sunnan- verðu. Þær verða huldar jarðvegi að mestu leyti næsta sumar. -DVÓ Margir vilja vera stjórar Ullarjakki Ntí 14.900 Nýjar vörur í hverri viku ffiápusalan Snorrabraut 56 S. 562 4362 Vorum að fá mikið úrval af klassískum bíómyndum td. The Giant, Casablanca, Gone with the wind og margar fleiri. Verð frá kr. 899,- Kringlunni 4-6 • sími 533 2266 -miklu meira en bara tónlist DV, Akranesi: Spölur ehf., sem á og rekur Hvalfjarðargöng þegar þau verða opnuð formlega, auglýsti eftir framkvæmdastjóra nýlega. Um- sóknarfrestur rann út fyrir helg- ina og sóttu hátt í 40 manns um starflð. Gert er ráð fyrir að nýr fram- kvæmdastjóri hafi aðsetur á Akra- nesi enda er lögheimili Spalar þar. Stjórnendur Spalar fara næstu daga yfir umsóknir og ráða fram- kvæmdastjóra innan tíðar. Margir vilja vita hvað muni kosta að aka um Hvalfjarðargöng. Norskt ráðgjafarfyrirtæki, Gröner A/S, er að kanna gjaldskrármál og innheimtuaðgerðir fyrir Spöl. Nið- urstaðan ætti að liggja fyrir í jan- úar. Frá upphafi hefur verið talað um að grunngjald fyrir fólksbíl verði 800 krónur og 2.700 fyrir Stöðvarfjörður: Síldar- og atvinnuleysi DV, Stöðvarfirði: Atvinnuástand hefur verið mis- jafnt það sem af er vetri því síld- veiði hefur verið frekar gloppótt. Forsvarsmenn Gunnarstinds hafa reynt ýmislegt til að fá síld. Togarinn Már EA var fenginn til flotvörpuveiða en gekk ekki sem skyldi. Áhöfn nótaskipsins Kambarastar fór yfir á Má en er nú aftur komin á sitt skip til loðnuveiða og er þegar komin inn til hafnar með afla. Þá hafa nótaskipin Dagfari og Júpiter einnig landað hér loðnu, mest 600 tonnum sem Júpiter kom með nýlega. Vinna hefur því verið sæmilega stöðug við loðnufryst- inguna en meðan síldin gaf sig ekki var atvinnuleysi aflt upp í 3 vikur í einu. Þá hefur starfsfólkið í frysting- unni fengið sinn árlega jólaglaðn- ing; uppsagnarbréf kauptrygging- ar sem gildi tekur þann 22. desem- ber. -GH Askrifendur fá aukaafslátt af smáauglýsingum DV Smáauglýsingar ^ 550 5000 flutningabíl. Akstur í gegn tekur um 5 mínútur þegar allt verður fullfrágengið. -DVÓ Erfíður vínnudagur að bakí? Það er fátt þægílegra en að hvílast í sjónvarpssófunum frá Lazy-Boy® HÚSGAGNAHÖLUN Bíldshöföl 20 - 112 Rvík - S:510 8000 Opfift auiiiodafa fifil fffiœaifiodaga ffrá kl. 9-18 fösSadaga fxá k3 9-19 lacigsrdaga frá kl 9-16 Með einu handtaki gerir þú þægilegan sófa enn þægilegri *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.