Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1997
3
Sijfunkrdáttir %
■ ■ ni.MtWg?;.-
K r i $ t í n
Ómarsdóttir
„Þrátt fyrir allan framandleika og fantasíu er eitthvað
ánægjulega kunnuglegt og innilegt við skáldsögu Kristínar
og ef himnaríki hennar stendur tíl boða þá panta ég borð
við gluggann."
Úlfhildur Dagsdóttír/ Rás 1
I ^Ílnefnin<’
03,-
Björn Olafsson,
Einar Stefánsson,
Hallgrímur'Magnússon
og Hörður Magnússon
segja sögu íslenska
Everest-leiðangursins 1997
..."■nffiiiij.n- .. . .*ffn
Hskan mín ég dey
Við fyrstu sýn er þetta fjölskyldusaga úr íslensku sjávarþorpi og greinir frá lífsbaráttu ekkjumanns og fjögurra
sona hans. En þegar nánar er að gáð eru margar furðulegar persónur á kreiki og samskipti manna sérstæð -
og á himnum fylgjast framliðnir fjölskyldumeðlimir með öllu saman. Smám saman raðast upp brot sögunnar
og andrúmsloftið verður harmrænt, en um leið sérkennilega fyndið.
„Margbrotin skáldsaga sem... geislar af persónulegri kimni höfundar,
ljóðrænum og hugmyndaríkum texta og djúpri alvöru undir gáskafullu
yfirborði ...Með fremstu verkum Krístínar.“
Skafti Þ. Halldórsson/ Morgunblaðið
Lauqavegi 18 Síðumúla 7-9
Sími 515 2500 Sími 510 2500
Mál og menning
' " ■■ ■■ 3
Everest
ævintýrið
íslenska þjóðin stóð á öndinni og fylgdist með því þrekvirki er
þeir Björn Ólafsson, Einar Stefánsson og Hallgrimur Magnússon
klifu tind Everest í vor. Hér segja þeir alla söguna - segja frá
átökum, ótta, spennu, háska og efasemdum sem hvergi hafa
komið fram í fyrri frásögnum.
Þeir félagar þurftu að kljást við hæðarveiki og hrikalegustu falljökla
i heimi, þeir stóðu af sér frosthörkur og fárviðri í hliðum Everest
þar sem eitt lítið vixlspor getur kostað menn lífið. Og loks lýsa
þeir því dýrlega augnabliki þegar þeir snertu koll „Gyðjunnar,
móður heimsins“ eins og fjallið er nefnt þar eystra. Bókina prýða
á þriðja hundrað litmynda sem lýsa frábærlega vel þessu mikla
ævintýri og þeim einstæða heimi sem umvefur Everest.
„í bók þessari er sagan sögð... án þess að skafið sé utan af hlutunum
... fyrst við lestur hennar fær maður tilfinningu fyrir því hversu mildð
afrek það hefur verið... að klífa tíndinn... Frásögnin... er skemmtileg
og spennandi aflestrar eins og bókin öll.“
Þröstur Helgason/ Morgtmblaðið
Mál og menning
Laugavegi 18
Sími 515 2500 Sími 510
Ung íslensk kona er að vinna um nokkurra mánaða skeið í Rotterdam í Hollandi. Dag nokkum hittir hún Amo,
suðrænan og heillandi karlmann, og fellur samstundis kylliflöt fyrir honum. En kynni þeirra verða endaslepp,
því örfáum klukkustundum eftir fyrsta og síðasta ástarfúnd þeirra er hann skotinn til bana úti á götu!
Spennandi, óvenjuleg og vel skrifuð saga eftir höfund skáldsögunnar Borg
sem kom út fyrir nokkrum ámm og var tilnefnd til íslensku
bókmenntaverðlaunanna.
„Hún er vel byggð, fangar athygli lesandans strax í byijun
og heldur henni vandræðalaust allt til loka þegar allir
endar koma saman ... sérlega vel skrifuð."
Þröstur Helgason/Morgunblaðið
Laugavegi 18 Siöumula 7-9
Sími 515 2500 Sími 510 2500
Mál og menning