Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1997
Viljum ráða umboðsmann á
Reyðarfirði frá 1. janúar 1998
upplýsingar í síma 474-1374 eða 550-5741
Fréttir_______________r>v
Myndum lenda
í steininum
Jólalilboð
Rvksugur
öflugarjéttar og fallegar
- segir Guðni Kristinsson í Skarði
„Ef þetta hjálmamál
yrði lögfest og því fram-
fylgt, þá myndum við
Andrés á Kvíabekk og
fleiri karlar lenda í
steininum eftir nokkur
ár af því að við hefðum
ekki notað hjálma,"
sagði Kristinn Guðna-
son, hreppstjóri í
Skarði í Landsveit.
Kristinn hefur unnið
mikið við að sýna hross
og keppa, auk þess sem
ur verið fjallkóngur í s
Guðni Kristinsson.
hann hef- boð og 1
inni sveit hafa vit
um árabil. Hann sagð-
ist aldrei nota hjálm á
fjalli, en vitaskuld á
keppnisvelli þar sem
það sé samkvæmt regl-
um.
„Mér finnst óþægi-
legt að vera meö hjálm
og geri það ekki nema
ég þurfi. Ýmislegt varð-
andi einstaklingsfrelsið
er farið að ganga út í
öfgar. Þessi endalausu
nn, þar sem allir vilja
’rir öðrum, ganga ekki
upp í mínum huga. Svo hvarflar
ekki að nokkrum manni að hægt
sé að framfylgja svona lögum.
Þeim gengur nógu illa að fram-
fylgja notkun öryggisbelta í bílum
og hjálmanotkun á reiðhjólum.
Ætla þeir að elta hjálmlausa hesta-
menn uppi í óbyggðum, kæra þá
eða sekta? Auðvitað á að hvetja
fólk til þess að gæta allrar varúðar
en þessar endalausu reglur sem
ekki er hægt að framfylgja eru allt
annars eðlis. Þessir sveitakarlar
mínir hér myndu aldrei setja upp
hjálrna." -JSS
RADGREIÐSLUR
Verð frá kr. 8.650,-
VERSLUN FYRIR ALLA I
Mánud.
Vi& Fellsmúla
Sími 588 7332
OPIÐ:
- föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-16
Gjafakort Óperunnar
Ðoriii'ct.fi
pj\,$t&rdrtflykvriixi\
Ógleymanleg jólagjöffyrir œttingja og vini.
Fást í verslunum JAPIS,
Skífunni Laugavegi 26
og í íslensku óperunni.
Lögleiðing á notkun reiðhjálma:
Mjög gott mál
- segir Kári Arnórsson
„Það er mjög gott mál að fá þetta
frumvarp fram og vekja umræðu
um hjálmanotkun," sagði Kári Am-
órsson um frumvarp til laga sem
lagt hefur verið fram á Alþingi um
hjálmanotkun hestamanna. Kári er
ötull hestamaður og notar alltaf
reiðhjálm, hvort sem hann er á hest-
baki í þéttbýli eða óbyggðum.
í frumvarpinu segir að menn á
hestbaki skuli bera viðurkenndan
hlífðarhjálm. Forráðamenn barna
skuli sjá til þess að þau séu með
slíka hjálma. Brot gegn lögunum
varði sektum.
Flytjendur frumvarpsins eru
Kristín Halldórsdóttir, Guðmundur
Ámi Stefánsson, Hjálmar Jónsson,
ísólfur Gylfi Pálmason og Sigríður
Jóhannesdóttir.
„Spurningin er hvemig menn
ætla að standa að því að fram-
kvæma lögin ef þau verða altæk. Ef
til vill yrði það auðveldara ef miðað
yrði við ákveðið aldursmark. En
auðvitað hlýtur að þurfa að vinna
að því að allir noti hjálma," sagði
Kári. „Hjálmar eru öryggistæki og
hestamennskan er orðin svo al-
menn. Slysatíðni mun aukast i sam-
Kári Arnórsson.
ræmi við aukinn ijölda hestamanna
ef menn nota ekki þann öryggisbún-
að sem tiltækur er. Það ætti að reka
miklu meiri áróður fyrir hjálma-
notkun en gert er. Þar ættu hesta-
mannafélögin að koma inn.“ -JSS
Verslunarfólk !
Munið rétt
ykkar til 11
klukkustunda
hvíldar.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur