Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1997
13
I>V
Fréttir
Héraðsdómur Suðurlands:
Jarðeignir ríkisins tapa máli
- vegna umráða yfir túnum í Ölfushreppi
Jarðeignir rikisins hafa tapað
máli gegn Hrefnu S. Kjartansdóttir í
Héraðsdómi Suðurlands. Jarðeignir
ríkisins kröfðust sem sóknaraðili að
Hrefna yrði látin víkja af túnum
jarðarinnar Gufudals í Ölfushreppi
sem hún hafði á leigu samkvæmt
heimildarbréfi frá 8. maí 1978. Jafn-
framt krafðist sóknaraðili þess að
hann yrði látinn hafa umráð yflr
túnunum sem eru ca 5,7 hektarar að
stærð. Dómurinn úrskurðaði að hin
umbeðna aðfarargerð skyldi ekki ná
fram að ganga.
Málavextir eru þeir að faðir
Hrefnu hafði 1971 fengið túnin leigð
til 7 ára samkvæmt samningi. Með
bréfi dagsettu 15. febrúar 1978
óskaði Hrefna eftir þvi að fá að
ganga inn í leigusamninginn og
ákvað ráðuneytið að leigja henni
fyrrgreint land til eins árs í senn
með 3ja mánaða uppsagnarfresti
miðað við fardaga.
í desember 1993 sagði landbúnað-
arráðuneytið upp leiguafnotum
Hrefnu miöað við fardaga 1994.
Hrefna mótmælti uppsögninni og
HEÍIUR
OG
ÞURR
THERMO varmanærfötin eru í
raun tvær flíkur í einni.
Tveggja laga spunatækni flytur
rakann frá líkamanum og heldur
þér heitum og þurrum.
Notaöu Thermo nærfötin í
næsta feröalag,
þú sérö ekki eftir því.
Sportvörugerðin
Heildsalasmásala
Mávahliö 41, Rvík, sími 562-8383
féllst ráðuneytið á að framlengja
uppsagnarfrestinn til loka fardaga-
ársins 1994-1995.
Ráherra leigði golfklúbbi
Með samningi dagsettum 12. júlí
1995 leigði landbúnaðarráðherra,
fyrir hönd jarðadeildar ráðuneytis-
ins Golfklúbbi Hveragerðis land-
spildu úr umræddri jörð til reksturs
golfvallar, eins og segir í samningn-
um. Ekki var sérstaklega tilgreind
stærð hins leigða lands í samningn-
um en honum fylgdi hins vegar upp-
dráttur að væntanlegum golfvelli.
Samkvæmt honum átti golfvöllur-
inn að ná m.a. yfir sömu tún og um
er deilt í þessu máli.
Hrefna mótmælti réttmæti þessa
samnings og vísaði hún til framan-
greindra samninga ráðuneytisins
við sig og föður sinn. Kvað hún því
uppsögnina ekki heimila en krafðist
jafnframt framleiguréttar á landinu.
Hrefna hefur ekki látið af afnotum
túnanna heldur nýtt þau áfram,
bæði til beitingar og slægna. Jarð-
eignir ríkisins kveða Hrefnu m.a.
hafa herfað yfir túnin og þar með
jafnóðum eyðilagt þær framkvæmd-
ir sem nýr leigutaki, Golfklúbbur
Hveragerðis, hefði lagt í.
Því segir sóknaraðUi að honum sé
nauðugur sá kostur að krefjast
dómsúrskurðar um að Hrefna víki
af túnunum og láti sóknaraðila í té
umráð þeirra. Dómurinn úrskurð-
aði hins vegar eins og áður segir að
umbeðin aðfarargerð skyldi ekki ná
fram að ganga. -RR
E
Allar aðgerðir á slcjá
Svefnrofi f 15 - 120 mín
Fiarstýring o-m.ffl-
TIL ALLT AÐ 36 MÁNAÐA
RAÐGREIOSLUR
j vmMjP*mrcciNG U