Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Síða 16
16
ennmg
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1997 M 3"%?"
Gaman á hverri opnu
Hafið kallar
Bókin Halastjama geymir
tuttugu ljóð fyrir böm á öllum
aldri eftir Þórarin Eldjám en
Sigrún Eldjárn myndskreytir
kveðskapinn. í raun get ég
ekki gert það upp við mig
hvort mér finnst ljóðin betri
en myndirnar eða öfugt, en
saman skapa myndir og ljóð
svo sterka heild að hver opna
er heimur út af fyrir sig.
Bókmenntir
Margrét Tryggvadóttir
Það er vandi að búa til ljóða-
bók sem er jafn mikið fyrir
böm og fullorðna. Ljóðin mega
ekki vera of háfleyg eða
dramatísk, því þá er hætt við
að þau hitti ekki í mark hjá
bömunum, en þeir fullorðnu
þurfa líka aö fá eitthvað fyrir
sinn snúð. Þórarni tekst frá-
bærlega að samræma þarfirn-
ar og ég held að allir ættu
einnig að hafa gaman af mynd-
um Sigrúnar. Ég skemmti mér
konunglega við lesturinn og
sonur minn á fimmta ári
einnig. Hann vill fá að heyra ........... .... .
ljóðin aftur og aftur og foreldr- Svona ll,ur halastjarnan sjalf ut.
ar hans eru viljugir við lestur-
inn. Betri meðmæli getur bamabók vart feng- Uppáhaldsljóð sonar míns er „Á Hundagötu
ið. hundrað". Þar segir frá fólkinu í svarta hús-
inu og þeim sem eru úti í garði, Hannesi
Jónssyni bakara, Sigru'liða rakara, Gunnari
ýsuflakara, ótrúlegum kvakara (fugli í striga-
skóm með bindi), aðvífandi takara - og svo
segir:
Og bakarinn fór aö baka
og rakarinn aö raka
og flakarinn aö flaka
og kvakarinn aö kvaka
og íakarinn aó taka
myndir af þessu öllu.
Mamman er hrifnust af ljóðinu „Tölvuleik-
ur“ sem hefst svo:
Meö lafandi tungu vió tölvuna sat hann
og tökkunum hamaöist á
en faöir hans þurfti á meóan aö mata hann
og mamman bar kopp til ogfrá.
Þessu ljóði þyrfti að
koma inn á veraldar-
vefinn til að boðskap-
ur þess skilaði sér til
réttra aðila!
Halastjarna er
stórskemmtileg
ljóðabók fyrir
fólk frá þriggja
ára aldri.
Þórarinn Eld
Halastjarna.
Sigrún Eld-
járn gerði
myndirnar.
Forlagið 1997.
hjartfólgnum afkvæmum þeirra.“ (13) En
þessir vængir gagnast ekki til flugs ...
Edna er ekki móður-kona og er hafið notað
sem tákn til að sýna hve fjarlægur hugur
hennar er raunvemleika þessara kvenna. Haf-
ið seiðir hana til sín og hún lærir að synda. í
hafinu býr óendanleikinn, þar em engin
mörk, þar er Edna frjáls.
Bókmenntir
Sigrídur Albertsdóttir
Þó hundrað ár skilji veröld Ednu frá nú-
tímalesanda er hægastur vandinn að sam-
sama sig þessari lífsþyrstu konu því löngunin
til að njóta aUs þess besta sem lífíð hefur upp
á að bjóða fylgir manninum á öllum tímum.
Og sagan er svo falleg. Textinn rennur saman
við blóðið og ólgar þar. Slíkum áhrifum ná að-
eins vandvirkir og skapandi þýðendur.
Kate Chopin:
Sálin vaknar
Bjartur 1997
Þegar
bókin Sálin
vaknar (The
Awakening)
eftir Kate
Chopin kom út í
Bandaríkjunum
árið 1899 fékk hún
fremur blendnar
viðtökur, enda fjall-
aði hún um við-
kvæmt og eldfimt
efni: stöðu konunnar í
formfostu samfélagi
nítjándu aldar. Aðcd-
söguhetjan, Edna Pontellier, fer á skjön við
þau óskrifuðu lög samfélagsins að kona skuli
fyrst og síöast hlúa að þörfum eiginmanns og
bama og fer að veita sér og eigin löngunum
meiri athygli en sæma þykir. Þetta þótti les-
endum óþarfa eigingimi og voru ósáttir við
að sögumaður verksins skyldi ekki fordæma
þetta draumórakennda óstýrilæti! (Sjá eftir-
mála þýðanda bls. 147)
Sagan um Ednu féll í gleymsku um stund
en eftir að hún var enduruppgötvuð hefur
mikið verið rætt um hana og ritað auk þess
sem hún hefur verið þýdd á ótal tungumál. Og
nú hefur hún loksins borist íslenskum les-
endum i þýðingu Jóns Karls Helgasonar.
Edna Pontellier er haldin óþoli sem hún
á oft erfitt með aö skilgreina. I tilraun til
að kveða óþolið niður gefur hún tilfinn-
ingum sínum og ástríðum lausan taum-
inn og það er yndislegt að fylgjast með
því hvemig ólíkar listgreinar, tónlist,
bókmenntir og myndlist, vekja hana
smám saman til meðvitundar um að
tilvistin hafi upp á annað og meira að
bjóða en bamastúss og húsmóðurskyldur. Til
að byrja með er athafnasvæði Ednu fremur
þröngt á meðan karlmennirnir í lífi hennar
eru meira eða minna fjarverandi í mikilvæg-
um erindagjörðum. Þegar líður á söguna fer
svæðið hins vegar stækkandi og þá staðreynd
nemur lesandi á svipaðan hátt og aðrar stað-
reyndir sögunnar - hægt og hljótt.
Framarlega í Sálin vaknar rekumst við á
athyglisverða líkingu sem dregur fram þrúg-
andi áhrif kvenhlutverksins. Grannkonur
Ednu eru kallaðar móður-konur og eru sagð-
ar auðþekktar á því að þær flögri „til og frá
með útbreidda vemdarvængi þegar einhver
hætta, raunveruleg eða ímynduð steðjaði að
Blýlund
Innrás liljanna mun vera önnur bók Berg-
sveins Birgissonar en enginn samanburður
verður gerður hér við þá fyrri. Þá bók hef ég
ekki lesið enda skáldið mér áður ókunnugt.
Það er ljóst að Bergsveinn er vel að sér í
skáldskap og sér þess víða merki; hér er vís-
að í Eddu og Egil, þjóðkvæði og Tómas Guð-
mundsson og er þó ekki allt talið. Er það vel
að skáld kunni skil á þvi sem áður er best ort
en stundum liggur við að vísanimar fái skáld-
fákinn til að prjóna og beri orð skáldsins
sjálfs ofurliði.
Bókmenntir
Geirlaugur Magnússon
hvað ljóðformið snertir og hægt sé
að róa á fleiri mið .
í Innrás liljanna eru 34 stök ljóð
og tvær kviður, Blýlundarkviða
og Ódáinskviða. Sú fyrri e:
fimm-skipt og hefst hver hluti á
stefi úr Sonatorreki Egils. Má
vera að einhverjum þyki
djarft en margt er hér vel
gert svo sem þessi vísa úr V.
hluta:
Viö Sefafjöll fer sólin mild
sefur þar blómiö mitt
í lautinni fer Ijóóaskáld
meö litla steflö sitt
von er allt sem á ég til
eina stefiö mitt
stundum reiður nú-
tímanum og yrkir um
skyrdollur á Ströndum
og Krist sem komi ým-
ist 1 fallhlíf eða á glans-
andi felgum. Nokkuð um
lífsleiða en einnig um ást-
ina sem í „Kvöldljóði":
Ég er hús í veörum en mér
finnst aö líf þitt sé hér
í lágu risi einhversstaöar
innst í mér
Innrás liljanna lofar að mínu
viti góðu um frekari göngu Berg-
sveins Birgissonar sem skálds. Að vísu mætti
losna örlítið um lærdómshlekki en þess verð-
ur ekki langt að bíða.
Meira er þó um vert að Bergsveinn er vel
máli farinn og nýtir sér einnig af kunnáttu og
hagmælsku eldri hætti og beitir vel. Sýnir
það að máske er tími þvermóðskunnar liðinn
Ódáinskviðan er að mínu mati athyglis-
verðari en of viðamikil til að vitna í hér; þó
gætir þess um of í báðum þessum kviðum að
minni séu endurtekin. En mörg styttri ljóð-
anna eru líka athyglisverð. Skáldið er þar
Bergsveinn Birgisson:
Innrás liljanna
Nykur1997
Bakgrunnur vesturferðanna
í nýju Tímariti Máls og menningar, síð-
asta hefti þessa árs, er grein eftir Böðvar
Guðmundsson, „Að ljúga frá víða“, byggð á
fyrirlestri sem hann hélt á vegum Sögufé-
lagsins í haust um heimildir sínar og heim-
ildanotkun við samningu skáldsagnanna
um vesturferðimar, Híbýli vindanna og
Lífsins tré. Skáldsögurnar tvær komu ný-
lega út í einni bók sem hefúr tekið sæti á
metsölulistum og má búast við að margir
velti enn fyrir sér hvað sé satt og hvað log-
ið í þessum bókum. Grein Böðvars er bráö-
skemmtileg eins og hans er von og vísa.
Aöalgrein Tímaritsins heitir „Framhjá
Þögnuðuholtum". Hún er eftir Eystein Þor-
valdsson prófessor og fjallar
um „Náttúruvemd í ljóðum
Stefáns Harðar Grímsson-
ar“. Meðal annars efnis má
nefna „Listamannslif. Hug-
leiðingar um nútíð og fortíð"
eftir Atla Heimi Sveinsson
tónskáld; grein eftir
Frangois Ricai'd um Óljós
mörk eftir Milan Kundera,
„Augnaráð elskendanna" og „Athugasemd-
ir. Um nokkur atriði í leikritum Shakespe-
ares“ eftir Helga Hálfdanarson. Ljóð em eft-
ir Elías Mar, Geirlaug Magnússon, Johann
Peter Tammen og Bergsvein Birgisson. Auk
þess eru ritdómar og ádrepur, þ. á m. svar
Matthíasar Viðars Sæmundssonai- við rit-
dómi Einars Más Jónssonar um þriðja
bindi Bókmenntasögu sem út kom í fyrra.
Ritstjóri Tímarits Máls og menningar er
Friðrik Rafnsson.
Andvari
Aðalgrein tímaritsins Andvara að þessu
sinni er æviágrip Jóns Helgasonar prófess-
ors og skálds eftir Ólaf Halldórsson hand-
ritafræðing. Fleiri merkum mönnum em
gerð skil í heftinu, m.a. Jóni Sigurðssyni
forseta sem Guðmundur Hálfdanarson
bregður á nýju ljósi, Brynjólfi Bjamasyni
heimspekingi og stjómmálamanni og Finni
Magnússyni prófessor og leyndarskjala-
verði.
Meðal efnis um bókmenntir er grein eft-
ir Ármann Jakobsson um Theodoru
Thoroddsen skáldkonu og langömmu sína.
Þar sýnir hann fram á hvað Theodora var
nýstárleg í ljóðum sínum og
í takt við evrópskan tíðar-
anda þó að sess hennar í ís-
lenskri bókmenntasögu sé
ótryggur. Þröstur Helgason
ber saman þýðingar Halldórs
Laxness og Gunnars Gunn-
arssonar á Fjallkii'kju Gunn-
ars og Haraldur Bessaon
fjallar um lauslæti í fornum skáldskap.
Auk þess birtir Böðvar Guðmundsson þrjú
áður óbirt bréf frá Stephani G. Stephans-
syni til Jóns Jónssonar frá Mýri og Am-
heiður Sigurðardóttir á þýðingar á tveim
ljóðum eftir danska skáldið Nis Petersen.
Ritstjóri Andvara er Gunnar Stefánsson
og skrifar hann fomstugrein um stöðu þjóð-
kirkjunnar.
Andblær
Sjöunda hefti Andblæs er komið út. Nýr
ritstjóri er Hjörvar Pétursson og tilkynnir í
fomstugrein að Andblær hafi selt sál sína
djöflinum. Alvaran á bak við þá fullyrðingu
viröist þó ekki vera önnur en sú að nú ætli
þeir Andblæs-menn að reyna að koma tíma-
riti sinu til fólksins og hætta að reka það
með tapi: fjölga áskrifendum og selja bak-
síðu undir auglýsingar.
í ritinu er fjöldi ljóða,
prósaljóða/örsagna og smá-
sagna eftir kunna sem lítt
kunna höfúnda. Meðal þeirra
eru Sigtryggur Magnason,
Öm Úlfar Sævarsson, Jó-
hamar, Eva Heiða Önnudótt-
ir, Börkur Gunnarsson, Ein-
ar Öm Gunnarsson, Eyvind-
ur P. Eiríksson, Bergsveinn Birgisson og
Auður Jónsdóttir - og Heimir Viðarsson
sem á þessa vísu:
í október
klœóa trén sig
úr skœru sumarfötunum
til að vera nakin
undir hvítum
pelsi vetrarins
Áhugasamir hafi samband við Pósthólf
1542, 121 Reykjavík.
Umsjón
Sílja Aðalsteinsdóttir