Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Side 34
34
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1997
Afmæli_____________________
Einar Karl Haraldsson
Einar Karl Haraldsson ritstjóri,
Þórsgötu 18, Reykjavík, er funtugur
í dag.
Starfsferill
Einar Karl fæddist á Akureyri og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi ffá MA 1967, stundaði nám í
stjómmálafræðum við háskólann í
Toulouse í Frakklandi og við Stokk-
hólmsháskóla.
Einar var blaðamaður við Tím-
ann 1968-69, fféttamaður við RÚV
1972-74, fréttastjóri við Þjóðviljann
1974-78 og ritstjóri, þar 1978-84,
framkvæmdastjóri Alþýðubanda-
lagsins 1984-85, aðalritstjóri Nor-
disk Kontakt með aðsetur í Stokk-
hólmi 1985-90, ráðgjafl hjá Athygli
hf. í Reykjavík 1990-91, fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins
1992-95 og hefur starfrækt eigið fyr-
irtæki í almannatengsl-
um, Innform ehf.
Einar var varaformað-
ur íslandsdeildar Am-
nesty International við
stofnun deildarinnar
1974, formaður Blaða-
mannafélags íslands
1976-77, sat í stjóm Nor-
ræna blaðamannasam-
bandsins 1975-77, i stjóm
Norræna blaðamanna-
námskeiðsins i Árósum
1975-77 og í Öryggismála-
nefnd ffá 1982 og þar til
hún var lögð niður 1990,
situr í Útvarpsréttamefnd frá 1992,
er formaður íslensk-sænska félags-
ins, situr í sóknarnefnd Hallgríms-
kirkju og stjórn listvinafélags Hall-
grímskirkju.
Einar samdi, ásamt Ólafl R. Ein-
arssyni, bókina Gúttó-
slagurinn - 9. nóvember
1932, útg. 1977, og var
annar ritstjóri bókarinn-
ar Forsetakjör 1996. Þá
hefur hann skrifað fjölda
greina um þjóðmál í blöð
og tímarit.
Fjölskylda
Einar kvæntist 2.3. 1968
Steinunni Jóhannesdótt-
ur, f. 24.5. 1948, leikkonu
og rithöfundi. Hún er
dóttir Jóhannesar Finns-
sonar, sem nú er látinn,
sjómanns á Akranesi, og k.h., Bjam-
fríðar Leósdóttur kennara.
Dætur Einars og Steinunnar eru
Ama Kristín, f. 6.8.1968, flautuleik-
ari og tónlistarkennari í Bretlandi,
en maður hennar er Geir Rafnsson
slagverksleikari og er dóttir þeirra
Steinunn Halla Geirsdóttir, f. 12.9.
1992; Vera, f. 11.11. 1980, nemi við
MH; Gró, f. 12.4. 1988.
Bræður Einars Karls eru Sverrir,
f.1941, bóndi á Skriðu í Hörgárdal;
Sigurður Friðrik, f. 1944, d. 1991,
ffamreiðslumaður í Reykjavík; Har-
aldur Ingi, f. 1955, myndlistarmaður
og forstöðumaður Listasafns Akur-
eyrar; Jakob Öm, f. 1957, kjötiðnað-
armaður í Reykjavík.
Foreldrar Einars Karls eru Har-
aldur Axel Möller Sigurðsson, f.
19.5. 1923, fyrrv. íþróttakennari viö
Gagnfræðaskóla Akureyrar, og
k.h., Sigríður Kristbjörg Matthías-
dóttir, f. 10.8.1924, verslunarmaður.
Steinunn, kona Einars, verður
fimmtug í vor en þau hjónin munu
halda sameiginlega upp á afmælin
með hækkandi sól.
Einar Karl
Haraldsson.
Guðmundur Pálsson
Guðmundur Pálsson, fram-
kvæmdastjóri GP-húsgagna, til
heimlis að Klukkubergi 42, Hafnar-
flrði, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Reykjavík
en ólst upp í Hafnarfirði og hefur
átt þar heima alla tíð. Hann stund-
aði nám við Iðnskólann í Hafnar-
firði, lærði húsa- og húsgagnasmíði,
lauk prófum frá Iðnskólanum 1967
og stundaði síðar nám og lauk próf-
, um frá Lögregluskóla rikisins.
Að námi loknu stundaði Guð-
mundur smíðar. Hann starfaði í lög-
reglunni í Hafnarfirði á árunum
1973-86 en starffækti jafnframt eig-
in trésmiðju, auk þess sem hann
hannaði húsgögn í nokkur ár.
Guðmundur stofnsetti verslunina
GP-húsgögn í Hafnarfirði árið 1989
og starfrækir hana enn að Bæjar-
hrauni 12, Hafnarfirði.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 26.2. 1966
Vilfríði Þórðardóttur, f. 18.8. 1945,
húsmóður. Hún er dóttir Þórðar
Þórðarsonar bókara og Hrefnu Hall-
grímsdóttur húsmóður sem nú er
látin.
Böm Guðmundar og Vilfríðar eru
Páll Bergþór, f. 12.9.1966, verslunar-
stjóri GP-húsgagna, kvæntur Sig-
rúnu Einarsdóttur húsmóður og em
böm þeirra Einar Þór, f. 2.9. 1983,
Hrefna Þórdís, f. 22.8. 1986, d. 1986;
Guðmundur Freyr, f. 8.7.
1987, Úlfar Hrafn, f. 16.10.
1988 og Þórdís Silja, f.
22.5. 1991; Hrefna Þórdís,
f. 25.4. 1971, d. 1971;
Hrefna Guðný, f. 21.4.
1972, sjúkraliði í sambúð
með Gunnlaugi Gunnars-
syni bifvélavirkja og em
synir þeirra Gunnar Að-
alsteinn, f. 27.2. 1993, og
Hrafnkell Þórður, f. 5.3.
1996; Grímur Valtýr, f.
25.2. 1974, hönnuður en
sonur hans og Ásdísar Ránar Gunn-
arsdóttur er Róbert Andri, f. 27.6.
1997.
Systkini Guðmundar eru Gunnar
Ingi, f. 16.3. 1945, húsasmiður; Mar-
grét María, f. 3.1. 1952,
húsmóðir, gift Ara Krist-
inssyni kvikmyndagerð-
armanni; Guðrún Páls-
dóttir, f. 7.12. 1956, fjár-
mála- og hagsýslustjóri
Kópavogsbæjar, gift Jóni
Grímssyni flugmanni.
Foreldrar Guðmundar
eru Páll M. Jónsson, f.
19.7. 1919, húsasmiður,
frá Auðkúlu í Arnarfirði,
og Bergþóra Guðmunds-
dóttir, f. 17.10. 1918, klæð-
skeri, frá Sæbóli í Aðalvík.
Guðmundur og Vilfríður taka á
móti gestum að heimili sínu,
Klukkubergi 42, Hafnarfirði, í dag
milli kl. 17.00 og 21.00.
Guömundur
Pálsson.
Harry Sonderskov
Harry Sonderskov,
járnsmiður og vélvirki,
Þúfubarði 15, Hafharfirði,
er sjötugur í dag.
Starfsferill
Harry fæddist í Kastrap
í Kaupmannahöfn í Dan-
mörku og ólst þar upp.
Hann gekk í bamaskóla og
gagnfræðaskóla í Kaup-
mannahöfn, stundaði nám
við Teknisk skole í Kaup-
mannahöfn, lærði jám-
smíði og véívirkjun og lauk
prófum í þeim iðngreinum 1947.
Harry var í danska hemum 1948 og
stundaði síðan vélvirkjun í Kaup-
mannahöfn. Hann flutti til íslands
1950, stundaði jámsmíðar og vélvirkj-
un í Kaupmannahöfn,
1951-57, flutti þá aftur til
íslands þar sem hann hef-
ur átt heima síðan.
Harry stundaði jám-
smíðar í Hafnarfirði hjá
Alexander Guðjónssyni
1957-58, starfrækti eigið
járnsmíðaverkstæði í
Hafnarfirði 1958-69,
starfaði í fimm ár hjá
ísal, var sölumaður hjá
Gunnari Ásgeirssyni í
þrjú ár, vann síðan í
blikksmiðjum í Haíhar-
firði og Reykjavík og loks síðustu
fimm statfsárin hjá Sigurði Þor-
steinssyni og Marel.
Harry sat í stjóm Lionsklúbbs
Hafnarfjarðar, var gjaldkeri þar og
formaður klúbbsins í eitt ár. Þá er
hann frímúrari.
Fjölskylda
Harry kvæntist 28.10. 1950 fyrri
konu sinni, Guðbjörgu Guðmunds-
dóttur, f. 2.5. 1927, d. 13.4. 1975, hár-
greiðslumeistara. Hún var dóttir
Guðmundar Guðmundssonar, prent-
ara hjá Gutenberg, sem búsettur var
í Reykjavík, og k.h., Ágústu Guð-
jónsdóttur húsmóður.
Synir Harry og Guggu eru Gunn-
ar, f. 22.8.1950, sölustjóri hjá Sindra,
búsettur í Kópavogi, kvæntur Ósk
Hilmarsdóttur sjúkraliða og eiga
þau einn son; Helgi, f. 25.6. 1955,
slökkviliðsmaður í Hafnarfirði, og á
hann fjögur böm.
Harry kvæntist 25.10. 1976 seinni
konu sinni, Guðrúnu Þór, f. 17.6.
1945, hjúkrunarfræðingi. Hún er
dóttir Amalds Þór, garðyrkjubónda
i Blómvangi í Mosfellsbæ, og Krist-
ínar Jensdóttur Þór húsmóður.
Systkini Harrys: Tove, f. 1919,
húsmóðir í Kaupmannahöfn; Inger,
f. 1923, d. 1989, skrifstofúmaður í
Kaupmannahöfn; Birte, f. 1924, hús-
móðir á Jótlandi; Werner, f. 1927, d.
1994, húsasmíðameistari í Kaup-
mannahöfn.
Foreldrar Harrys vora Áge Sond-
erskov, f. 1893, d. 1966, mjólkurfræð-
ingur og sporvagnasjóri í Kaup-
mannahöfn, og k.h., Johanne Mette
Sonderskov, f. Andersen, f. 1892, d.
1965, húsmóðir.
Harry er að heiman á afmælis-
daginn.
Harry Sonderskov
Guðbjörg Jóhanna Snorradóttir
Guðbjörg Jóhanna Snorradóttir
húsmóðir, Leiratanga 30, Mosfells-
bæ, er fertug i dag.
Starfsferill
Guðbjörg fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún lauk gagnfræða-
prófi frá Álftamýrarskólanum og
. stundaði síðan nám við trésmíða-
deild Ármúlaskóla.
Guðbjörg starfaði á bamaheimil-
um í Reykjavík í fimm ár, var síðan
dagmóðir í tíu ár, starfaði viö Skála-
túnsheimilið í tæpt ár og hefur síð-
an stundað skrifstofustörf við fyrir-
tæki eiginmanns síns.
Fjölskylda
Guðbjörg giftist 18.3. 1978 Auð-
unni Hilmarssyni, f. 12.6.1959, fram-
kvæmdastjóra. Hann er sonur Hilm-
ars Jenssonar, f. 17.4. 1924, d. 16.2.
1991, og Agnesar Auðuns-
dóttur, f. 21.1. 1926.
Börn Guðbjargar og
Auðuns eru Sigrún Huld
Auðunsdóttir, f. 28.12.
1978, nemi við VÍ; Auð-
unn Jón Auðunsson, f.
4.12. 1981, nemi við Borg-
arholtsskóla; Anna María
Auðunsdóttir, f. 16.3.1992;
Vigdís Björk Auðunsdótt-
ir, f. 16.9. 1994.
Gu&björg
Snorradóttir.
Bróðir Guðbjargar, sam-
mæðra, er Guðmundur
Hannesson, f. 22.9. 1960,
smiður í Garðabæ.
Systur Guðbjargar, sam-
feðra, eru Agla Snorra-
dóttir og Sigrún Snorra-
dóttir.
Foreldrar Guðbjargar:
Snorri Karlsson, f. 1898,
d. 1978, og Sigrún Huld
Jónsdóttir bréfberi.
Upplýsingar vegna afmælisgreina sem eiga aö birtast í DV á tímabilinu
18.12. 1997-5.1. 1998 þurfa að berast Ættfræðideild DV eigi síðar en 18.12.
Til hamingju
með afmælið
17. desember
85 ára
Elísabet
Reykdal,
Setbergi,
Hafnarfirði.
Eiginmaður
hennar var Einar
Halldórsson,
bóndi á Setbergi, sem lést
1978. Elísabet og fjölskylda
hennar taka á móti ættingjum
og vinum í húsi Oddfellow-
reglunnar í Hafnarfirði,
Staðarbergi 8-10 (á 3. hæð í
nýja verslunarhúsinu í
Setbergshverfmu) í kvöld
kl. 20.00.
Óla S. Þorleifsdóttir,
Dalalandi 4, Reykjavík.
Sigurbjörg Þorleifsdóttir,
Bleikargróf 7, Reykjavík.
Unnur Stefánsdóttir,
Miðgarði 4, Egilsstöðum.
Valtýr Guðmundsson,
Sandi I, Aðaldælahreppi.
80 ára
Ellert D. Sölvason,
Hátúni 10 B, Reykjavík.
70 ára
Arnfríður Jóhannsdóttir,
Hellulandi, Glæsibæjarhreppi.
Ásgeir Sigurðsson,
Laugavegi 146, Reykjavík.
Erla Einarsdóttir,
Steinahlíð 3 E, Akureyri.
Guðfinna Jónsdóttir,
Helgavatni I,
Þverárhlíðarhreppi.
Jón Loftsson,
Hafnarbraut 35, Hólmavík.
Kristjana Benediktsdóttir,
Ásgarðsvegi 20, Húsavík.
60 ára
Magnús
Þorfinnsson,
bóndi í
Hæðargarði í
Landbroti,
verður
sextugur
á föstudaginn.
Hann tekur á móti gestum
á hótelinu á Kirkjubæjar-
klaustri milli kl. 17.00 og 19.00
á afmælisdaginn.
Aase Gunnarsson,
Háteigi 10, Akranesi.
Ámi Sigurjónsson,
Hálsaseli 21, Reykjavík.
Erla Ingimundardóttir,
Dverghömrum 4, Reykjavík.
Gunnar Lárusson,
Brekkustíg 14 B, Reykjavik.
50 ára
Gunnar S. Kristjánsson,
Hlíðarvegi 12, Kópavogi.
Hafdls Sigurðardóttir,
Frostafold 173, Reykjavík.
Hallbjörn Sæmundsson,
Háteigi 16 E, Keflavík.
Ragna Valgerður
Eggertsdóttir,
Lyngbrekku 15, Kópavogi.
Hún er að heiman.
Sigríður Hannibalsdóttir,
Þinghólsbraut 48, Kópavogi.
40 ára
Drífa Hrólfsdóttir,
Ytra-Ósi, Hólmavík.
Erlendur Halldórsson,
Víðihvammi 17, Kópavogi.
Guðlaug Helga
Konráðsdóttir,
Austurbrún 37 A, Reykjavik.
Ólafur ívan Wernersson,
Skólagerði 1&, Kópavogi.
Ólafur Þorvaldsson,
Grófarsmára 27, Kópavogi.
Sigrún Berg Sigurðardóttir,
Grundarstíg 6, Reykjavík.