Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1997 Allt er fegurra en vorkvöld í Reykjavík „Allt er fegurra en vorkvöld í Reykjavík þegar ið- andi götulífið er plastpokar að fjúka um gráar götur og einn og einn geðvonsku- legur bíll að sil- ast niður Bankastrætið." Guðmundur Andri Thorsson rit- höfundur, í Degi. Einhver grár köttur „Að láta þjóðina horfa upp á það að hann taki það fram yfir að lesa upp úr smásagnasafni sínu á ein- hverjum Gráum ketti hér úti í bæ og vera ekki viðstaddur fjárlaga- frumvarpið..." Steingrímur J. Sigfússon alþingis- maður um forsætisráðherra, á Al- þingi. Ummæli Viðgerð á tönnum hefur fleygt fram i áranna rás. Tarmfyll- ingarefni í fornöld, aðallega í Egypt- alandi, reyndu menn tannfylling- arefni af ýmsu tagi, jarðttni frá Núbíu, koparsíliköt, steinflísar o.fl. Árið 1484 getur Arculanus (Giovanni d’Arcoli) þess að holur í tönnum séu fylltar með blað- gulli. Árið 1853 var farið að nota gljúpt gull í stað blaðgulls. Sex árum áður var einnig farið að nota gúttaperka, blandaða kalki, kvarsi og feldspati. Blessuð veröldin Amalgam Árið 1319 fór Dh. Bell að nota blöndu af kvikasilfri og silfri til að fylla holur í tönnunum og í framhaldi varð til amalgam, geysi- sterkt efni sem er blanda af kvika- silfri, kopar, tini og/eða silfri og hefur það efni einkum verið notað til fyllingar í jöxlum. Nú á dögum er auk amalgams notað hvítt fyll- ingarefni sem getur verið silikat eða blanda af oplasti og postulíni, svokallað composit. Eins og grár köttur „Ég veit að háttvirtur þingmaö- ur er eins og grár köttur í ræðustól að öllu jöfnu en ég skal svo sannar- lega halda mér við aga ef það verð- ur gert það sama við aðra rnenn." Davíð Oddsson forsætisráðherra, á Alþingi. Stjórnunarstíll „Ég held að það hljóti að vera meðvituð stefna og stjórnunarstíll. Það er naumt skammt- aö og siðan kemur eitthvað á auka- fjárlögum sem enginn veit hvað verður og það gerir alla áætl- unargerð ómögulega.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri um fjárveitingu til Sjúkrahúss Reykjavíkur, í Degi. Laufabrauð og rjúpa „Ég get boðið þér uppskrift að laufabrauði eða kennt þér að ham- fletta ijúpu. Þú færð ekki orð upp úr mér um þessi mál.“ Guðrún Pétursdóttir um hvort hún taki baráttusætið á lista sjálfstæð- ismanna, i DV. Pétur Ingi Frantzson, formaður Félags maraþonhlaupara: Fyrsti stjórnarfundurinn verður haldinn á hlaupum „Okkur sem erum saman í hlaupahópi og öðrum hópum furðu- fólks sem stundar maraþonhlaup og eru að hlaupa í alls konar veðri fannst vanta einhvem vettvang eða félagsskap til að sameina sjónarmið okkar og koma á fót einhvers konar vetrarmaraþoni og til að halda utan um önnur löng hlaup sem eru ekki endilega maraþonhlaup," segir Pét- ur Ingi Frantzson, formaður Félags maraþonhlaupara, sem er nýstofnað félag. Pétur segir fyrirhugað vetrarmar- þonhlaup verða í mars: „Við mun- um einnig standa að ferðum í mara- þonhlaup í útlöndum og er fyrsta ferðin fyrirhuguð í aprfl til að taka þátt í London-maraþonhlaupinu. Fyrsta verkefni félagsins er næsta sunnudag. Þá er stefnt að því að hlaupa allan daginn, frá sólarupp- rás tfl sólarlags en stystur sólar- gangur er þennan dag.“ Um 230 Islendingar hafa hlaupið heilt maraþon: „Á stofnfundinn mættu um sextíu hlauparar sem var mun meira en við bjuggumst viö. Síðan hefur fjölgaö ört og ég býst við að þegar við gefum út félaga- skrána í febrúar verðum við orðnir yfir eitt hundrað. Fyrsti stjórnar- fundurinn hefur enn ekki verið haldinn en verður líklega haldinn á hlaupum. Ekki verður félagsstarf- semin eingöngu hlaup. Við erúm að reyna að fá er- lenda fyrirlesara tfl landsins, með- al annars í sam- bandi við skófatnað, og höf- um verið í sam- bandi við skóframleiðend- ur út af þessu máli og hafa þeir sýnt því áhuga.“ Pétur Ingi Frantzson var spurður hvaða ís- lendingur hefði oftast hlaupið maraþonhlaup: „Það er Sighvat- ur Dýri Guð- mundsson. Ég held að hann hafi hlaupið 17 mara- þon. Næstur hon- um er Gísli Ragn- ar Ragnarsson, sem er búinn með 14 maraþon- hlaup. Margir hafa hlaupið mörg maraþonhlaup en ég vil sérstaklega geta Sigurðar Gunnsteinssonar sem hljóp fjögur fyrstu maraþonhlaup sín á einu ári, þá 53 ára gamall." Pétur segist sjálfur hafa hlaupið þrjú maraþon- hlaup: „Enn sem komið er hef ég bara hlaupið maraþon í Mý- vatnssveit. Það eru sex ár síðan ég byrjaði að hlaupa, lagði sí- garettunni og setti mér það markmið að kom- ast heilt maraþon eftir þrjú ár, þeg- ar ég væri fertug- ur, og það tókst. Það var samt ekki fyrr en í maraþoninu í sumar að ég fann að lungun voru loksins orðin hrein.“ Pétur ætlar að vera í hópnum sem fer til London í apríl og byrjar stíft æf- ingaprógramm í janúar. Ekki snýst þó allt um hlaup hjá Pétri. Hann er mikfll handboltaáhugamaður: „Ég er gallharður ÍR-ingur, var formað- ur handknattleiksdeildarinnar um skeið og hef fylgt mínum mönnum eftir í gegnum súrt og sætt.“ -HK Pétur Ingi Frantzson. Maður dagsins Helga E. Jónsdóttir og Pröstur Leó Gunnarsson í hlutverkum Guöríðar og Hallgríms. Heimur Guðríðar Heimur Guðríðar - Síðasta heimsókn Guðríðar Símonar- dóttur í kirkju Hallgríms, verð- ur sýnt í Hallgrímskirkju í Saur- bæ annað kvöld kl. 21. Heimur Guðríðar er eftir Steinunni Jó- hannesdóttur og var frumsýnt á Kirkjulistahátíð í Reykjavík sumarið 1995. Leikhús í leikritinu er rakin ævi- og píslarsaga Guðríðar Símonar- dóttur, sjómannskonu úr Vest- mannaeyjum, sem var í hópi tæplega 400 íslendinga sem rænt var í Tyrkjaráninu 1627. Hún var ein af fáum sem komust aft- ur heim en á þeirri leið kynntist hún ungu prestsefni í Kaup- mannahöfn, Hallgrími Péturs- syni. Margrét Guðmundsdóttir leik- ur Guðríði eldri, Helga E. Jóns- dóttir leikur hana á yngri árum, og Þröstur Leó Gunnarsson er í hlutverki Hallgríms. Steinunn leikstýrir sjálf verki sínu. Bridge Pakistaninn Zia Mahmood og Bandaríkjamaðurinn Peter Weic- hsel voru heillum horfnir á Politi- ken Pairs boðsmótinu í Danmörku sem spilað var í nóvember. Zia og Weichsel þurftu að sætta sig við að verma botnsætið í lokin, sem var töluvert áfall fyrir þá þegar tillit er tekið til þess að þeir enduðu í efsta sætinu í mótinu í fyrra. Zia og Weichsel sóttu ekki gull í greipar Dananna Lauge Scháffer og Morten Andersen í þessu spfli í mótinu. Sagnir gengu þannig, austur gjafari og allir á hættu: * K973 ÁK8 -f 863 * 752 f D10542 V - -f 95 4 ÁG10643 * ÁG6 «f DG6532 -f KDG7 4 - Austur Suður Vestur Norður Weich. And. Zia Scháffer pass 1 * pass 2 * 3 v 4 «f 5 4 pass pass 5« 6 4 dobl pass pass redobl p/h 4 8 * 10974 4 Á1042 4 KD98 Eftir að Weichsel hafði sýnt tví- lita hönd sína á þriðja sagnstigi ákvað Zia ekki aðeins að fara í 6 lauf yfir 5 hjörtum heldur einnig að redobla lokasamninginn. Ef til vill var Zia að vonast til þess að and- stæðingamir myndu flýja í 6 hjörtu sem hann bjóst við að ættu ekki vinningsmöguleika. En Danimir ákváðu að sitja sem fastast og sýndu enga vægð i vörninni. Útspilið var lauf og 3-0 legan í litnum gerði það að verkum að Zia gat ekki fríað fimmta spaðann. Hann varð að sætta sig við að vera 2 niður og Dan- irnir fengu 1000 í sinn dálk sem var 13 impa virði. ísak Öm Sigurðsson ( ( ( ( ( < ( ( ( ( ( í ( ( i í í C í í c í I 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.