Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1997, Page 40
V I K I N G A
O
tvrra
■ jjrir líl. if í lUy
FRETTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
' virinkl
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUFt 17. DESEMBER 1997
Alvarlegt slys
Kona var flutt á sjúkrahús eftir
mjög alvarlegt umferöarslys á Suður-
götu á móts við Háskólann klukkan
8.30 nú í morgun. Konan varð fyrir bU
sem ekið var í norður í átt að hring-
k-torginu. Talið er að konan sé alvar-
lega slösuð. Loka varð götunni hátt í
klukkustund eftir slysið. -RR
Ungkratar æfir
„Ætli maður lofi ekki jólunum að
líða og sjái svo til,“ sagði Gunnar
Levy Gissurarson varaborgarfulltrúi.
Gunnari var ekki stillt
upp í prófkjöri R-list-
ans af hálfu Alþýðu-
flokksins og eru stuðn-
ingsmenn hans æfir.
Stuöningsmenn
hans eru einkum ung-______________
ir alþýðuflokksmenn Qunnar Levy
og hygaa þeir jafnvel Qissurarson.
á hópúrsagnir úr
^'Hflokknum af þessum sökum. Gunnar
vildi í samtali við DV í morgun ekki
segja hvort hann hygðist segja sig úr
Alþýðuflokknum, en sagði augljóst að
ákveðnir aðilar hefðu viljað sig út og
hefðu haft sitt fram. -SÁ
Landspítali:
Ætla aö hætta
Mikil óánægja ríkir meðal aðstoðar-
lækna á Landspítala, að sögn Helga H.
Helgasonar, formanns Félags ungra
^iækna. Þar hafa 42 unglæknar sagt
upp störfum og virðist svo sem flestir
ætli að hætta. Fyrstu uppsagnir taka
gildi í dag.
„Þama eru sömu forsendur að verk-
um, lækkuð yfirvinnuprósenta," sagði
Helgi. „Þá eru ungir læknar á Land-
spitala mjög óánægðir með að þar hef-
ur verið ákveðinn áróður í gangi sem
hleypt hefur kergju í hópinn."
Unglæknar á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri hafa allflestir dregið
uppsagnir sínar tfl baka, að sögn
Helga. -JSS
Allri áhöfn togarans Hvannabergs sagt upp:
Oskemmtileg jóla
gjof fra utgerðinni
DV, Akureyri:
„Það getm- hver og einn ímynd-
að sér það hvort ekki er þungt í
mönnum sem fá í hendumar upp-
sagnarbréf eftir tuttugu ára starf
hjá útgerðinni, ég segi ekkert
meira en þaö,“ segir Þorbjörn Sig-
urðsson, skipstjóri á rækjutogar-
anum Hvannabergi frá Ólafsfirði,
en öll áhöfn togarans hefúr fengið
í hendumar uppsagnarbréf frá út-
gerðinni, Þormóði ramma/Sæ-
bergi. Uppsagnarfrestur er allt frá
hálfum mánuði til þriggja mánaða
hjá yfirmönnum skipsins.
Málefni áhafnarinnar á
Hvannabergi hafa verið í brenni-
depli missemm saman. í fyrsta
lagi vegna sifefldra dómsmála um
þátttöku áhafnarinnar í kvóta-
kaupum en nú upp á síðkastið
vegna deUu áhafhar og útgerðar
um rækjuverð. Sú deila er reynd-
ar komin á borð úrskurðarnefnd-
ar sjómanna og útgerðarmanna og
mun eiga að ræða hana í nefnd-
inni í dag.
„Það má hver túlka það eins og
hann viU“ var svar Þorbjöms Sig-
urðssonar skipstjóra við þeirri
spurningu hvort hann tengdi upp-
sagnir áhafnarinnar við defluna
um rækjuverðið. Aðrir áhafnar-
meðlimir sem DV hitti að máli á
Ólafsfirði í gær voru hins vegar á
þeirri skoðun að þama væri sam-
hengi á milli. „Þetta er ekki
skemmtilega jólagjöf frá útgerð-
inni en maður mátti svo sem eiga
á öUu von,“ sagði einn úr áhöfn-
inni sem DV ræddi við í gær.
„Við höfum fengið um 85 krón-
ur fyrir kílóið af rækjunni í
nokkum tíma, en útgerðin gerði
okkur á dögunum tflboð um verð
á bilinu 40-95 krónur, eftir gæða-
flokkun rækjunnar. Við prófuðum
það í einum túr að flokka rækjuna
samkvæmt þessu tilboði og út-
koman var 20 króna lækkun þegar
upp var staðið. Auðvitað sættum
við okkur ekki við slíka launa-
lækkun,“ sagði einn viðmælenda
DV úr áhöfninni í gær.
„Það var yfirlýst þegar Þormóð-
ur rammi og Sæberg voru samein-
uð að til að ná hagkvæmni i
rekstrinum þyrfti að þjappa veiði-
heimildum saman á fæmi skip.
Þess vegna lögðum við rækjutog-
aranum Jöfri og þess vegna fer
það skip og Hvannabergið einnig
á söluskrá núna. Það er ástæða
uppsagnanna nú, málið er ekki
flóknara en það. Auðvitað verður
alltaf ágreiningur um fiskverð en
það hefur nákvæmlega ekkert með
uppsagnirnar að gera,“ sagði Ró-
bert Guðfinnsson, framkvæmda-
stjóri Þormóðs ramma/Sæbergs,
við DV í gær. -gk
Smári Sigurðsson, trúnaðarmaður áhafnarinnar á Hvannabergi, við skip-
ið ásamt syni sínum í gær. Smári vildi ekki tjá sig um deilu áhafnarinnar
og útgerðarinnar.
DV-mynd gk
< >
Vesturbær:
Gengu berserksgang
- skemmdu bíla og hús. Sjá forsíðumynd
Tveir átján ára strákar gengu ber-
serksgang í vesturbænum í nótt,
brutu rúður í húsum og fjölda
skemmdu bíla. Alls urðu þrettán bíl-
ar fyrir barðinu á piltunum og ljóst
er að tjónið á þeim nemur hundruð-
um þúsunda. Speglar voru brotnir,
lakk rispað, bílarnir dældaðir með
spörkum og hliðarrúður brotnar. Þá
voru rúður brotnar í húsum við
Framnesveg. Einhver spjöll voru
einnig unnin á húsum við Túngötu
en samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu er ekki vitað hvort umræddir
þokkapfltar voru þar á ferð.
Slóð berserkjanna lá frá Túngötu
og Holtsgötu og um Framnesveg og
siðan um Flyðrugranda og Fjöru-
granda. Ekki er vitað hvað pfltunum
gekk til. Þeir munu ekki vera þessir
svokölluðu fastagestir lögreglu. Pilt-
arnir voru handteknir um klukkan
tvö í nótt, voru í fangageymslum í
nótt og verða yfirheyrðir í dag. -sv
Kröfur um aðskilnað við Dani vegna bankamáls:
Færeyingar æfir
- eftir sjónvarpsþátt í gærkvöld
„Þeim vex nú ásmegin sem vilja að-
skilnað við Dani. Poul Nyrup Rasmus-
sen er hataðasti maður í Færeyjum og
það er mat flestra að hann og stjórnin
hafi svikið Færeyinga," segir Eiríkur
Þorvaldsson, framkvæmdastjóri
Mjólkursamsölunnar í Þórshöfn, um
þá reiði sem er í Færeyjum eftir að
færeyska sjónvarpið rakti sögu þess
hvemig Danir sviku milljarða út úr
Færeyingum. Lokaþátturinn var i
gær.
Forsagan er sú að færeyski Sjó-
vinnubankinn varð gjaldþrota. Þá
prönguðu Danir inn á Færeyinga úti-
búi Den danske bank í Færeyjum sem
var sameinaður rústum Sjóvinnu-
bankans. Hinn sameinaði banki lifði
aðeins i nokkrar vikur og varð gjald-
þrota með þeim afleiðingum að millj-
arðar danskra króna féllu á færeysk
stjómvöld. Það leiddi af sér kreppu og
skattahækkanir á almenning. Poul
Nyrup er væntanlegur í heimsókn tfl
Færeyja 6. janúar. Eiríkur segir hann
passa sig á að koma áður en niður-
stöður rannsóknar á bankamálinu
verða gerðar opinberar þann 15 janú-
ar. Eiríkur segir að þrátt fyrir
ofsareiði færeysks almennings eigi
hann ekki von á því að gengið verði í
skrokk á forsætisráðherranum.
„Við erum jafnlyndir menn Færey-
ingar en það er alveg ljóst að hann
mun mæta ískulda. Framhaldið ræðst
síðan af því hvort Danir taka á sig
hluta af þessu tjóni sem þeir hafa
valdið færeysku þjóðarbúi," segir Ei-
ríkur. -rt
VOÐA ERU ALLIR
ÆFIR í DAG!
Veörið á morgun:
Allhvasst
með suður-
ströndinni
Austankaldi en allhvasst með
suöurströndinni. Súld með köfl-
um við suður- og austurströnd-
ina en annars þurrt. Hiti 0 til 5
stig en sums staðar vægt frost í
innsveitum norðanlands.
Veðrið í dag er á bls. 37.
2°
~ u A
► * \
? ?
? ? ?
?? 5°
V ^ ??
;
/