Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1998, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1998
Fréttir
DV
Bensínverö á íslandi:
Innkaupsverð og heims-
markaðsverð úr takti
Innkaupsverð og heimsmarkaðs-
verð á bensíni virðist ekki fylgjast
að þegar bomar eru saman verslun-
arskýrslur Hagstofu og heimsmark-
aðsverð á hverjum tíma.
Athugun á innflutningi og verð-
myndun á bensíni, sem Neytenda-
samtökin óskuðu í sumar eftir að
Samkeppnisstofnun gerði, lýkur í
næsta mánuði að sögn Guðmundar
Sigurðssonar, deildarstjóra hjá
Samkeppnisstofnun. Fulltrúar Fé-
lags ísl. bifreiðaeigenda áttu einnig
óformlegan fund með Samkeppnis-
stofnun nýlega til að vekja athygli á
miklum lækkunum bensíns á
Bensínverö á íslandi hefur ekki haldist í hendur viö heimsmarkaösverö.
heimsmarkaði án þess að verð þess
lækkaði hér á landi í sama mæli.
FÍB telur að bensín hefði átt að
lækka bæði fyrr og meir í verði en
það hefur gert og fylgja þannig
lækkun þess á heimsmarkaði.
DV hefur borið saman bensíninn-
flutning samkvæmt verslunar-
skýrslum Hagstofunnar og heims-
markaðsverð miðað við mánaðar-
meðalgengi dollars. Samkvæmt
skýrslunum voru flutt inn tæp
10.420 tonn af bensíni í júlí og verð-
ið var 187 dollarar tonnið. Heims-
markaðsverðið var þá 189 dollarar. í
ágúst sýnast olíufélögin hafa gert
enn betri innkaup því að þá er með-
alheimsmarkaðsverð 95 oktana
bensíns 223 dollarar tonnið en olíu-
félögin hafa fengið tonnið á 186 doll-
ara.
Þessi þróun virðist hafa snúist
við i september. Þá verður verðfall
á heimsmarkaðnum og bensíntonn-
ið ferð í 184 dollara, en olíufélögin
hafa greitt 205 fyrir það. í október
var heimsmarkaðsverðið að meðal-
tali 204 dollarar en fob-verð olíufé-
laganna samkvæmt skýrslum Hag-
stofunnar 208. í nóvember er fob-
verðið 201 dollari en heimsmarkaðs-
veröið 194 dollarar.
Á meðfylgjandi grafi er heims-
markaðsverðið miðað við verð á 95
oktana bensíni. í verslunarskýrsl-
um Hagstofunnar er ekki greint á
milli 95 og 98 oktana bensíns. Hlut-
ur 98 oktana bensíns af heildarsöl-
unni er hins vegar mjög litill, eða
talsvert innan við 10% og fer
minnkandi. -SÁ
Isaflöröur:
Strætó f árekstri
Strætisvagn ók í veg fyrir fólks-
bU í mikUli hálku á ísafirði í
fyrradag.
Ökumaður fólksbUsins hlaut
minni háttar meiðsl í árekstrin-
um. Ökumaður strætisvagnsins
slapp ómeiddur. FólksbUinn er tal-
inn ónýtur eftir áreksturinn.
-RR
Dagfari
Blettur á forseta
Það er ekkert nýtt að menn eigi
í vandræðum með kroppinn á sér.
Það er alkunna frá fornu fari. Mun-
urinn er bara sá að áður þótti það
heldur kostur á körlum að vera
kvennamenn eða kvennabósar. Þá
þótti ekki tiltökumál þótt klipið
væri í stelpu eða jafnvel gengið
heldur lengra.
Þetta er liðin tíð. Hegðun þessi
er skUgreind sem kynferðisleg
áreitni og þykir ekki fin. Kvenna-
menn og -bósar eru ekki lengur
menn með mönnum. Þeir eiga
erfitt uppdráttar í eiginlegri og
óeiginlegri merkingu. Frægt var til
dæmis fyrir jólin er læknir nokkur
greindi frá kvennamálum sínum
og mikUli náttúru. Hann var út-
hrópaður jafnt af starfsfélögum
sem almenningi. Bókin sem fór vel
af stað í sölu datt út af sölulistum.
Þá var henni að sögn skUað um-
talsvert eftir jól. Hluti þeirra sem
fékk bókina í jólagjöf vildi kvenna-
manninn ekki í sitt bókasafn.
Svona eru örlögin. Tíðarandinn
er annar en áður. Þá gátu karlar
átt sér hjákonur í röðum án þess
að tiltökumál þætti. Konur í álnum
gátu svo sem veitt sér það sama.
Þær voru bara heldur færri en
karh'emburnar sem leyfðu sér að
halda fram hjá, dufla, káfa og
klípa.
í>rir þessu finna fyrirmenn
jafnt og þeir sem lægra standa í
samfélagsstiganum. Þessa dagana
er harðast sótt að sjálfum Banda-
ríkjaforseta. Það er ekki einu sinni
vörn að gegna valdamesta embætti
veraldarinnar. Það orð hefur lengi
farið af Clinton að hann sé maður
kvensamur. Áður hefði það engan
snert nema frú HiUarý. Nú er öld-
in önnur. Kona nokkur, Paula Jo-
nes, ber það á forsetann aö hann
hafi sýnt sér kynferðislega áreitni.
Samkvæmt heimildum dagblaöa
ytra á forsetinn, sem þá var ríkis-
stjóri Arkansas, að hafa fengið
löggu til þess að næla í stelpu. Það
var téð Pála. Hún á að hafa kíkt á
Clinton á hótelherbergi.
Forsetanum og Pálu ber ekki
saman um fund þennan. Clinton
segir ekkert ósæmilegt hafa gerst
en Pála þykist hafa séð ríkisstjór-
ann þáverandi beran. Svo langt
hefur hún gengið aö hún þykist
þekkja sérstaklega leyndarlim for-
setans, gott ef þar á ekki að vera
fæðingarblettur.
Vegna þessa aUs spyr heims-
byggðin sig aðeins eins þessa dag-
ana: Hefur blettur faUið á forset-
ann? Er Bandaríkjaforseti með
blett á þessum viökvæma stað lík-
amans? Þessu getur í raun enginn
svarað og má enginn svara nema
HiUarý sjáU. Ólíklegt er samt að
hún geri það. Sumt hafa hjón jú að-
eins fyrir sig sjálf.
Pála lætur sig samt ekki og viU
fá afsökunarbeiðni frá forsetanum
og 140 miUjónir króna tU viðbótar.
Sennilega veitir henni ekki af því
hún hefur ráðið fjölda lögmanna
sér tU aðstoðar. Lögfræðingar í
Bandaríkjunum eru ekki gefnir.
Bandaríkjaforseti verður að láta
sig hafa það að mæta tU dómara tU
yfirheyrslu vegna áburðar Pálu.
Við það bætist svo starfskona í
sjálfu Hvíta húsinu sem sakar for-
setann einnig um kynferðislega
áreitni. Þá versnar nú í því. Látum
það vera þótt ríkisstjóri sé sakaður
um káf og dónaskap. Verra er að
vera sakaður um slíkt sem forseti í
sjálfum embættisbústaðnum.
Ekkert hefur þó frést um það
hvort þessi kona á einnig að hafa
eygt blett á manndómi valda-
mannsins
Það er því vissara að sýna sig að-
eins beran þar sem það á við.
Dagfari