Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1998, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1998
9
i>v Útlönd
Sænskur rannsóknarblaðamaður í samstarfi við öryggislögreglu:
Guillou kjaftaði frá
Sænski rannsóknarblaðamaður-
inn og rithöfundurinn Jan Guillou,
sem árum saman hefur gagnrýnt
sænsku leyniþjónustuna og sænsku
öryggislögregluna, gaf sjálfur örygg-
islögreglunni upplýsingar á árunum
1968 til 1973. Þetta kemur fram í
skjölum sem gerð voru opinber síð-
astliðinn fóstudag.
„Það er vel þekkt að ég gagnrýndi
sænsku öryggislögregluna. En hún
er lögreglan okkar og það er skylda
hennar að vemda okkur. Þar sem
njósnarar reyndu að myrða mig var
það hentugt að hafa beint númer til
öryggislögreglunnar," sagði Guillou
við sænska fjölmiðla.
ísraeli, sem ekki var sáttur við
umfjöllun Guillous um njósnamál í
ísrael, hafði sest í bíl hans og miðað
á hann byssu. Guillou hringdi í ör-
yggislögregluna og sjö mínútum síð-
ar hafði ísraelinn verði handtekinn.
Á árunum 1968 til 1973 var Guill-
ou virkur í Palestínuhreyfingunni í
Svíþjóð. Á þessum tíma greindi
Guillou sænsku öryggislögreglunni,
SÁPO, frá tveimur Svíum sem hann
grunaði um að ætla að byggja upp
hryðjuverkastarfsemi gyðinga í Sví-
þjóð fyrir samtökin Jewish Defence
League. Samtímis rannsakaði hann
og kom upp um starfsemi leynilegr-
ar njósnaþjónustu sænska hersins,
Informationsbyrán. Var Guillou
dæmdur í eins árs fangelsi fyrir
njósnir vegna rannsókna sinna á IB-
málinu svokallaða.
Við réttarhöldin vegna IB-máls-
ins bað hann um að samstarf hans
og SÁPO yrði ekki gert opinbert.
Hann furðar sig nú á því að skjölin
skuli hafa verið gerð opinber. „Þess-
ir tveir aðilar sem ég benti á brutu
aldrei neitt af sér,“ segir hann og
bendir á að erfíðara hafi verið að fá
leynd aflétt af ýmsum öðrum
skjölum sem mikilvægari séu.
Alsírbúar búa
sig undir enn
meira blóðbað
Tvær sprengjur sprungu í Al-
sir i gær og urðu sex manns að
bana. Önnur sprakk í höfuðborg-
inni en hin í nærliggjandi þorpi.
Á sama tíma var sendinefnd á
vegum Evrópusambandsins að
taka saman foggur sínar eftir við-
ræður um viö alsírsk stjómvöld.
Alsírstjórn hafnaði eina ferðina
enn kröfum um að alþjóðleg
rannsókn yrði gerð á voðaverk-
unum í landinu sem hafa orðið
meira ein eitt þúsund manns að
fjörtjóni á þremur vikum. Þá
höfnuðu Alsiringar einnig mann-
úðaraðstoð. Ráðamenn sögðu
sendimönnum ESB hins vegar að
Evrópuríki þyrftu að ganga milli
bols og höfuðs á alsírskum
hryðjuverkamönnum sem þar
hefðu bækistöðvar sínar. Reuter
Havel endur-
kjörinn forseti
Tékklands
Vaclav Havel, forseti Tékk-
lands, leikskáld og leiðtogi
flauelsbyltingarinnar sem velti
kommúnistum úr valdastólunum
árið 1989, var naumlega endur-
kjörinn í embætti í gær. Þing-
menn þurftu að greiða atkvæði
tvisvar áður en niðurstaða
fékkst.
Níutíu og níu þingmenn neðri
deildar af 197 greiddu Havel at-
kvæði i síðari umferðinni og 47
af 81 í efri deildinni. Havel var
eini frambjóðandinn í síðari um-
ferð atkvæðagreiðslunnar.
BIFREIÐASTILLINGAR
NICOLAI
Vlltu bæta
þjónustuna?
SÍMAKJÓNUSTAN
Bella eímamær
520 6123
http://www.mmedia.is/sima
Einn maöur týndi lífi og á þriðja tug slasaðist þegar sprengja sprakk í strætisvagni í einu úthverfa Algeirsborgar, höf-
uðborgar Alsírs, í gær. Sendimenn ESB voru í borginni á sama tíma. Símamynd Reuter
Komdu þangað sem andrúms-
loftið erblandað lífsgleði,
hjartans hlýju, menningarbrag,
rómantík og sögu við síkin og
núííma og ijöri á ysmiklum
verslunarstrætum.
Verðfrá
Borg sem býður ykkur velkomin
með fýrsta flokks gististöðum,
góðum veitingastöðum, smitandi
ljöri á kránum, góðu mannlííi,
litríkri menningarhefð, ágætum
verslunum og hagstæðu verðlagi.
Verð frá
Greiða má alla upphæðina með raðgreiðslum
Raðgreiðslur EURO og VISA til 24 mán.
Hver greiðsla þó að lágmarki 2.500 kr.
27.870k
Veíúr Flugleiða á Intemetinu: www.icelandair.is
Netfang fýrir almennar upplýsingar: info@icclandair.is |
á maiui í tvíbýli í 3 nætur
á Hotel Citadel.
á mann í tvíbýli í 3 nætur
á Hoiiday Inn Select.
FLUGLEIDIR
Hafðusambandviðsöluskrifstofurokkar.ferðaskriístofúmareðasmisöludeildFlugleiðaísíma 50 50100
(svarað mánud. - fösmd. kl. 8 -19 og á laugard. kl. 8 -16).
Tnnifalió: flug, flugvaliaiskattarpggistmg með moigunverði.
Traustur íslenskur ferðafélagi
p e
gM* o - A áI
..4 --8
' ■ ■** .3&&i?$SSsS.