Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998
Fréttir
Fjölmennur fundur ævareiöra sjómanna 1 Hafnarfírði:
Bara eftir að mála
okkur svarta
- og taka af okkur kosningaréttinn, sagöi einn fundarmanna
Óskar Vigfusson, formaður Sjó-
mannafélags Hafnarfjarðar, hélt
framsöguræðu á fjölmennum fundi
sjómanna á veitingastaönum Kæn-
unni í Hafnarfirði í gærdag. Hann
sagðist stoltur af því að tekist hefði
að loka landinu öllu með verkfalls-
aðgerðum. Hann var harðorður þeg-
ar kom að afskipt-
um ríkisstjómar
af sjómannadeil-
unni.
„Viö þyrftum
ekkert á þessum
mönnum að halda
ef sjómenn og út-
gerðarmenn næðu
samkomulagi. Það
er ríkisvaldið sem
son, formaður setur leikreglum-
Sjómannafé- ar í þessu þjóðfé-
lags Hafnar- iagi. gf leikregl-
fjarðar. umar em ósann-
gjamar þar sem öðrum aðilanum er
gert kleift að níðast á hinum þá
kalla ég það ólög. íslensk stjómvöld
hafa gefið út leikreglur sem annar
aðili þessarar deilu getur ekki sætt
sig við og þess vegna stöndum við
nú andspænis
þriöju löggjöfinni
vegna sama máls-
ins. Ég set stjóm-
arliða og stjómar-
andstæðinga á
sama helvítis
bekkinn," sagði
Óskar
Hafsteinn Hall- Afnám mann-
dórsson. réttinda
Mikill urgur var í fundarmönn-
um vegna þeirra viðbragða stjóm-
valda að vilja setja lög á deilu þeirra
við útgerðarmenn. Alþingismenn
fengu það óþvegið bæði úr ræðustól
sem og utan úr sal.
Guðmundur Jónsson fundar-
Yfir 100 fundarmenn samþykktu einróma ályktun fundarins þar sem afskipti stjórnvalda af sjómannadeilunni voru
fordæmd. DV-myndir Pjetur
stjóri las upp ályktun þar sem ger-
ræði ríkisstjómarinnar með fram-
lagningu fmmvarps til að stöðva
deiluna með lagasetningu var for-
dæmt. í ályktun-
inni segir að verið
sé að afnema þau
sjálfsögðu mann-
réttindi að geta
varið kjör sín í
frjálsum samning-
vun. Þá segir að
núverandi ríkis-
stjóm falli í þá
gryfju að beygja
sjómenn undir
nauðungarlög sem ekki taki í
neinu á þeim vandamálum sem
deilan standi um. Yfir 100 manns
sem sátu fundinn samþykktu
ályktimina einróma.
Nokkrir fundarmenn tóku til
máls og vora harðorðir. Þorvaldur
Svavarsson stýrimaður sagði að
réttast væri að sjómenn semdu um
fast kaup.
„Þeir geta þá haft þetta eins og
þeir vilja og við getum hætt aö velta
okkur upp úr þessu lengur. Það er
búið að gefa þeim auðlindina en við
getum sótt til þeirra fjarvistarálag,
óþægindauppbót og guð má vita
hvað. Eins og staðan er nú á bara
eftir að mála okkur svarta og taka
af okkur kosningaréttinn," sagði
Þorvaldur.
Gjafakvóti
„Maður getur ekki farið i útgerð
án þess að borga einhverjar milljón-
ir til einstaklinga sem fengu á sín-
um tíma gjafakvóta frá ríkinu. Það
er helvíti hart að vera komnir aftur
í miðaldafyrirkomulag nú þegar 21.
öldin er að ganga í garð. Það má
sparka svo oft í hund að hann bíti
ffá sér,“ sagði Hafsteinn Halldórs-
son háseti.
Fleiri fundarmenn tóku í sama
streng og fordæmdu afskipti stjóm-
valda af deilunni jafnt og það hátta-
lag einstakra útgerðarmanna að
braska með kvóta á kostnað sjó-
manna.
-rt
Þorvaldur
Svavarsson.
DV
Kristján Þór í
efsta sætinu
DV, Akureyri:
Kristján Þór Júlíusson, fyrr-
verandi bæjarstjóri á ísafirði og
Dalvík, mun leiða lista Sjálfstæð-
isflokksins við bæjarstjómar-
kosningamar á Akureyri í vor.
Kristján Þór er hugsanlegt bæj-
arstjóraefni flokksins en ekki
boðinn fram sem slíkur. Þetta
var endanlega samþykkt á full-
trúaráðsfundi flokksins á Akur-
eyri í gærkvöldi.
Þar var einnig samþykkt að
Valgerður Hrólfsdóttir bæjarfull-
trúi skipi 2. sæti listans, Þórar-
inn B. Jónsson bæjarfúlltrúi 3.
sætið og Sigurður J. Sigurösson
bæjarfulltrúi, sem leitt hefúr list-
ann undanfarin kjörtímabil,
verður í 4. sætinu. í 5. sæti verð-
ur Vilborg Gunnarsdóttir, í 6.
sæti Þóra Ákadóttir, Steingrím-
ur Birgisson í 7. sæti, Páll Tóm-
asson í 8. sæti, Guömundur Jó-
hannesson í 9. sæti, Sunna Borg
í 10. sæti, Jóhanna H. Ragnars-
dóttir í 11. sæti og Sveinn H.
Jónsson í 12. sæti.
Það hefur af mörgrnn veriö
túlkað þannig að menn teldu Sig-
urð „kominn á tíma“, en Sigurð-
ur segir að svo sé ekki.
„Það er ekki verið að setja mig
upp að vegg og færa mig þannig
niöur á listanum. Þetta er gert í
fullu samstarfi," sagði Sigurður.
-gk
Ásgeir oddviti
Akureyrariistans
DV, Akureyri:
Ásgeir Magnússon, forstöðumað-
ur skrifstofú atvinnulífsins á Akur-
eyri, mun skipa 1. sæti Akureyrar-
listans við bæjarstjómarkosning-
amar í vor. Það kemur í hlut Al-
þýðubandalagsins að skipa í það
sæti. Oktavía Jóhannesdóttir ffá Al-
þýðuflokki verður í 2. sæti. í 3. sæti
verður Þröstur Ásmundsson ffá Al-
þýðubandalagi, í 4. sæti Sigrún Stef-
ánsdóttir ffá Kvennalista, í 5. sæti
Jón Ingi Cesarson frá Alþýðuflokki,
í 6. sæti Kristín Sigfúsdóttir frá Al-
þýðubandalagi, Kristján Halldórs-
son ffá Alþýöuflokki verður í 8.
sæti, Bjöm Guðmundsson frá Al-
þýðubandalagi í 10. sæti, Hilmir
Helgason frá Alþýðubandalagi í 11.
sæti og Finnur Birgisson frá Al-
þýðuflokki í 12. sæti. -gk
Dagfari
Norðmenn vilja handritin „heim“
Ekki er að ffændum okkar Norð-
mönnum að spyrja. Nú em þeir að
æsa sig upp í handritastríð við
okkur og Dani. Sú nýríka þjóð vill
hrifsa til sín þau íslensku handrit
sem enn era í Kaupmannahöfn.
Fýsilegast þykir þeim að næla sér í
eitt handrita Heimskringlu eftir
Snorra Sturluson og það sem eftir
er af verkum Sturlu Þóröarsonar,
þ.e. Hákonarsögu gamla og Magn-
úsar sögu lagabætis.
Fátt kemur raunar á óvart í sam-
skiptum viö hið meinta norræna
stórveldi. Það hefur andskotast í
okkur eftir að snjöllum mönnum
hérlendis datt í hug að draga fisk
úr Smugunni. Þar er alþjóölegt haf-
svæði og öllum opið. Norðmenn
sætta sig ekki við það enda vilja
þeir drottna á norðurslóð. Þá meg-
um við ekki fiska við Svalbarða
vegna yfirgangs þessarar þjóðar.
Lengst hafa þeir gengið í fiskveiði-
deilunni þegar þeir skutu gat á ís-
lenskan togara um árið og i fyrra
þegar þeir drógu aflaskipið Sigurð
til hafnar, hundrað mílna.
Látum það vera þótt Norðmenn-
irnir ólmist svolitiö á hafinu. Þar
hitta þeir fyrir þjóð sem er enn
þrárri en þeir. Verra er ef þeir
reyna að stela frá okkur menning-
ararfinum. Alþekkt er að Norð-
menn hafa lengi reynt að eigna sér
Snorra okkar Sturluson. Þá vantar
stórmenni fom til þess að hampa.
Hið sama gildir um Leif okkar
Eiríksson. Sá íslenski sonur vann
það sér til frægðar að finna Vín-
land. Norðmenn hafa aldrei getað
séö hann og þjóðemi hans í friði.
Það á eftir að versna þegar líður að
aldamótaárinu. Um leið og menn
fagna nýju árþúsundi verður þess
minnst að þúsund ár era frá fundi
Ameriku. Okkar menn eru þegar
farnir að undirbúa húllumhæ
vestra vegna þessa. Þar verðum viö
að hafa á okkur fúlla gát. Norö-
menn reyna án efa að stela því sjói
meö þvi að vefja minningu Leifs
norska fánanum.
Það verður því að bregðast við af
fúllri hörku. Leif og Snorra verður
að veija. Sama gildir um handritin
vænu í Kaupannahöfn. Danir
sýndu fádæma stórhug þegar þeir
ákváðu að skila okkur handritun-
um. Nú snúa íslendingar og Danir
bökum saman og gegn menningar-
legum yfirgangi olíufurstanna.
Norðmennimir era svo ósvífnir í
kröfum sínum að þeir biðja Danina
að senda sér handritin „heim“.
Danskur forstöðumaður Áma-
stofnunar í Kaupmannahöfn hefúr
réttilega bent á að handritin sem
Norömennimir ágimast séu ekki
og hafi aldrei verið norsk. Þau hafi
aldrei til Noregs komið. Þetta er
maður í okkar liði. Við styðjum
hann því heilshugcir, sem og góöar
hugmyndir hans. Forstöðumaður-
inn er nefnilega tilbúinn að splæsa
ljósriti á olíugreifana. Lengra geng-
ur hann ekki, enda ástæðulaust.
Engan eigum við vamarmála-
ráðherrann til þess að taka á mál-
um sé stríð í uppsiglingu. Þar sem
um handritastríð er að ræða verð-
ur að dubba menntamálaráðherr-
ann upp í hlutverkið. Það ætti ekki
að vefjast fyrir Bimi Bjamasyni.
Þrái hann eitt ráðherraembætti
öðra fremur er það embætti vam-
armálaráðherrans. Dagfari