Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Qupperneq 24
MIÐVTKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998 *^4 kvikmyndir Tilnefningar til óskarsverðlaunanna 1997 Besti leikari í aukahlutverki Robert Forster - „Jackie Brown“ Anthony Hopkins - „Amistad" Greg Kinnear - „As Good as it Gets“ Burt Reynolds - „Boogie Nights“ Robin Williams - „Good Will Hunting" Besta leikkona í aukahlutverki Kim Bassinger- „L.A. Confidential” Joan Cusack - „In & Out” Minnie Driver - „Good Will Huntlng” Julianne Moore - „Boogie Nights” Gloria Stuart - „Titanic” Besta erlenda myndin „Beyond Silence" - Þýskaland „Character" - Holland „Four Days in September" - Brasilía „Secrets of the Heart" - Spánn „The Thlef“ - Rússland Titanic hlaut 14 tiinefningar og er það mesti fjöidi sem ein kvikmynd hefur fengið í 48 ár. Næstar komu Good Will Hunting og L.A. Confidental með 9 tilnefningar hvor. Besta myndin „Tltanic“ „L.A. ConfidentiaP' „As Good as it Gets“ „The Full IVIonty" „Good Will Huntlng" Besti leikstjórinn Peter Cattaneo - „The Full Monty" Gus Van Sant - „Good Will Huntlng" Curtis Hanson - „L.A. Confidential" Atom Egoyan - „The Sweet Hereafter" James Cameron - „Titanic" Besti leikarinn Matt Damon - „Good Will Hunting" Jack Nicholson - „As Good as it Gets" Dustin Hoffman - „Wag the Dog" Peter Fonda - „Ulee’s Gold" Robert Duval - „The Apostle" Besta leikkonan Kate Winslet - „Titanic" Helen Hunt- „As Good as it Gets“ Judi Dench - „Mrs. Brown" Julie Christie - „Afterglow" Helena Bonham Carter- „The Wlngs of the Dove" Titanic As Good as it Gets L.A. Confidential The Full Monty Stjörnubíó/Bíóhöllin - Ég veit hvað þú gerðir í fyrrasumar: Sumarsaga ★★★ Handritshöfundurinn Kevin Williamson er hér aftur búinn að hrista þessa fínu unglingahrollvekju út úr erminni og á víst glás í skúffunni. Þótt Fyrrasumarið sé ekki eins frábærlega flott og klár og Scream, þá tekst stráknum bara vel upp í þessari öllu lágværari formúluparódíu. Á þjóðhátíðardaginn 4. júlí eru tvö pör að fagna menntaskólalokum niðri á strönd, með tilheyrandi sögum-við-bálkesti og kveðju-kynlífi. Þegar þau svo blússa heim á flna béemmvafFi ríka stráksins keyra þau óvart niður mann og eftir dramatískar yfirlýsingar um framtíð í rúst ákveða þau að losa sig við líkið. En ekki fer allt eins og til var ætlast og næsta sumar fara undarlegir atburðir að gerast. Aðalhetjan Julie (Jennifer Love Hewitt) fær bréf; ’I Know What You Did Last Summer’, og Barry bíleigandi (Ryan Phillipe) er næstum keyrður niður af eigin bíl. Og þrátt fyrir að atburðir fyrrasumarsins hafi valdið vinslitum, sjá félagamir fjórir að þau verða að taka höndum saman til að ráða fram- úr málinu. Williamson sýnir þekkingu sína á hrollvekjunni með því að láta söguhetjurnar fjórar segja hryllingssögur við bálköstinn, hryUingssögu sem síðan gengur aftur í gegnum aUa myndina, og notar þannig formúl- una á markvissan hátt, bæði til að sýna fram á (póstmóderníska) sjálfs- meðvitund og til að gefa tóninn fyrir það sem eftir kemur. Á sama hátt eru vísanirnar í (ó)jafnrétti kynja og stéttamismun bæði markaðar írónískri sýn á pólitíska rétthugsun og ákveðinni gagnrýni á fordóma. Eins og í Scream tekst WiUiamson og leikstjóranum Jim GiUespire að halda hinu hárflna jafnvægi miUi paródíu og hroUvekju og mitt í allri meðvitundinni er hér á ferðinni mynd sem er alvöru spennandi hroU- vekja, smart og vel gerð. Og það flaug popp. Það hlýtur að vera þriggja stjörnu virði. Leikstjóri: Jim Gillespie. Handrit: Kevin Williamson. Aðalhlutverk: Jenni- fer Love Hewitt, Sarah Michelle Geller, Ryan Phillipe, Freddie Prinze, Jr„ Anne Hecke. Ulfhildur Dagsdóttir topp ao í Bandaríkjunum - aðsókn dagana 6.-8. febrúar. Tekjur i mllljónum dollara og helldartekjur Slagsmálastjarna frá Hong Kong Titanic er áttundu vikuna í röð mest sótta kvikmyndin í Bandaríkjunum og hefur aösóknin aðeins minnk- að um 11% frá því I stðustu viku. I dag er Titanic fjórða vinsælasta kvikmyndin frá upphafi í Bandaiílg- unum og á möguleika aö ná hærra Blúsbræöur eru aftur komnlr á krelk þótt varla nái hún þeim 450 millj- 1 Blues Brothers 2000. ónum dollurum sem Star Wars hefur fengið í aðsóknareyri en þess má geta aö hluti gróðans á Star Wars kom á síöasta ári þegar hún var endursýnd viö miklar vinsældir. Tvær nýjar kvikmyndir koma inn í efstu sætin. i ööru sæti er The Replacement Killers, sakamálamynd þar sem í aðalhlutverki er Chow Yun- Fat, nýjasti innflutningurinn frá Hong Kong. í fjóröa sæti er svo Blues Brothers 2000, sem er framhald hinnar klassísku kvikmyndar, Blues Brothers. Mynd þessi hefur lengi veriö f bígerð en ávallt hefur strandaö á því aö ann- ar „bræðranna", John Belushi.'er látinn. Dan Aykroyd, hinn helmingurinn, er til staöar og í staö Belushi er kominn sá ágæti þungavigtarmaður, John Goodman. Tekjur Heildartekjur 1.(1W Titanlc 23.027 337.355 2. (-) The Replacement Killers 8.046 8.046 3. (3) Good Will Huntlng 6.828 68.295 4. (-) Blues Brothers 2000 6.129 6.129 5. (2) Great Expectations 5.302 17.111 6. (5) As Good as It Gets 5.029 92.284 7.(4) Spice World 4.010 23.723 8. (7) Wag the Dog 3.372 33.803 9. (6) Desperate Measure 3.004 10.252 10. (8) Deep Rlslng 2.517 8.383 11. (9) Fallen 1.283 23.371 12. (10) Hard Raln 1.211 18.384 13. (12) Tomorrow never Dies 1.054 119.691 14. (13) Mouse Hunt 0.972 57.847 15. (19) The Apostle 0.965 1.953 16. (14) Amistad 0.6958 40.860 17. (11) Half Baked 0.792 16.152 18. (-) Zero Effect 0.450 1.051 19. (16) StarKid 0.449 5.590 20. (17) For Rlcher or Poorer 0.446 30.256 Háskólabíó - That Old Feeling: Ástir fráskil- inna foreldra Ekki þori ég að full- . . yrða hvort Bette rTrT Midler hafl allan sinn leikferil í kvikmyndum leikið skass, allavega er erfitt að muna eftir henni i öðruvisi hlutverki. í That Old Feeling bætir hún enn einu skassinu við, leikur miðaldra Hollywoodstjörnu sem gift er hjónabandsráðgjafa. Þennan ráðgjafa hafði hún tekið upp á arma sína þegar fyrrum eigin- maður, þekktur rithöfundur, fór að halda fram hjá henni og giftist síðan sameiginlegri vin- konu þeirra. Hjónin fyrrver- andi hafa ekki talast við í fjórtán ár og hefur dóttir þeirra séð um að láta þau ekki hittast, veit sem er að allt muni fara í bál og brand. Dóttirin kemst þó ekki undan því að bjóða þeim í brúðkaup sitt þar sem þessi fyrrum hjón fara að ausa úr skálum reið- innar yfir hvort annað. Eng- inn verður því meira undr- andi en dóttirin þegar hún kemst að því á brúðkaupsnótt- unni að foreldrar hennar eru stungin af og það saman. Til að bjarga hjónaböndum þehra og þá ekki síður sínu eigin hefur hún leit að foreldrum sinum og fær sér til aðstoöar ljósmyndara sem hafði sér- hæft sig í myndum af móður hennar. Úr ágætri hugmynd hefur ekki tekist að gera gott hand- rit og margt sem fyrh augu ber er í raun einstaklega hall- ærislegt. Bette Midler og Dennis Farina í hlutverkum foreldranna eiga samt góða spretti inn á milli enda bæði miklir fagmenn og er gaman að sjá hvemig Dennis Farina er að koma sér út úr hlutverk- um hörkutóla yfir í gaman- hlutverk með góðum árangri. Þá er það ekki síður að þakka leikstjóranum Carl Reiner að ekki fer allt úr böndunum, hann hefur áralanga reynslu í gerð gamanmynda sem oft em á mörkum þess að vera farsar, en yfirleitt hefur hann haft meira að moða úr. Leikstjóri: Carl Reiner. Hand- rit: Leslie Dixon. Kvikmynda- taka: Steve Mason. Tónlist: Patrick Williams. Aðalhlut- verk: Bette Midler, Dennis Farina, Paula Marshall, Gail O'Grady og David Rasche. Hilmar Karlsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.