Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
Fréttir
^ Ný skýrsla frá Evrópusambandinu um menntun í Evrópu:
Island klúðrar
- íslenskar konur duglegar að sækja sér háskólamenntun
DV; Ósló:
Vel er búið að íslenskum skóla-
börnum við upphaf skólagöngunn-
ar. Sjö ára gömlum eru þeim ætlaö-
ar álíka margar kennslustundir og
jafnöldrunum í Evrópu. Síðan
klúðra íslensk skólayfirvöld öllu og
við tíu ára aldur fá íslensku börnin
færri kennslustundir á ári en öll
önnur evrópsk böm - ef frá eru tal-
in þau búlgörsku.
Þetta eru niðurstöður nýrrar
skýrslu frá Evrópusambandinu um
menntun í álfunni. Þar er farið yfir
öll menntunarstig í öllum Evrópu-
löndum, frá forskóla upp í háskóla.
Athyglinni er sérstaklega beint að
stöðu kvenna sem fer batnandi í
skólakerfinu en ekki í atvinnulífinu.
íslensku bömin standa vel að vígi
í forskólanum. Óvenju mörg þriggja
og fjögurra ára böm sækja forskóla
á íslandi og þar em átta böm um
hvern forskólakennara. Aðeins í
Finnlandi eru færri böm á forskóla-
kennara en í flestum löndum álf-
unnar verða 25 til 30 börn að deila
með sér einum forskólakennara.
Þegar hærra dregur í skólakerf-
inu dregst ísland æ meira aftur úr
og þegar börnin eru orðin tíu ára er
ástandið „austurevrópskt". íslensku
börnin fá þá 640 kennslustundir á
ári en hollensku jafhaldramir em
t.d. 1000 tíma í skólanum á ári.
Á einu sviði menntunar stendur
ísland vel að vígi. íslenskar konur
era duglegri en flestar aðrar evr-
ópskar konur að sækja sér háskóla-
menntun. Á móti hverjum 100 ís-
lenskum körlum era 136 konur í há-
skólanámi. Hins vegar er í skýrsl-
unni látinn í ljós ótti við að háskóla-
menntun kvenna leiði ekki alltaf til
aö þær fái betri störf. Jafnréttið er í
skólunum en ekki atvinnulífinu.
-GK
Yfirlögregluþjónn um bifreiðastöður á gangstéttum:
Þetta eru
mín tilmæli
- engin undanþága frá borgaryfirvöldum
„Við höfum einbeitt okkur að þvi
að sekta bíla sem hafa tafið og truflað
umferð. Borgin er fúll af slíkum bíl-
um og lögreglumenn hafa
fengið fyrirmæli um að
einbeita sér að þeim verk-
efnum þar sem ástandið er
verst,“ sagði Jónmundur
Kjartansson yfirlögreglu-
þjónn við DV vegna bréfs
sem hann sendi lögreglu-
mönnum í október sl. Þar
beinir hann þeim ein-
dregnu tilmælum til
þeirra að við ákvörðun
sektar verði fyrst og
fremst miðað við þá „þum-
alfingursreglu“ að fjórðungur eða
meira af bílnum sé uppi á gangstétt.
Lögreglumenn hafa dregið í efa heim-
ild yfirlögregluþjónsins til slíkrar
ákvörðunar, enda segi í umferðarlög-
um að bannað sé að leggja ökutæki á
gangstéttum nema að fenginni undan-
þágu frá borgarstjóm.
„Þessi tilmæli koma til vegna
kvartana frá íbúum þar sem svo hátt-
ar til að mikill halli er á götunni að
rennusteini," sagöi Jónmundur. Þeg-
ar fólk opnar dymar hægra megin
Jónmundur Kjartansson.
rekast þær í gangstéttina. í þessum
tilvikum hefur fólk tyllt bifreiðinni
upp á gangstéttarbrún tO að rétta
hana af án þess að það hafi
á nokkum hátt hindrað
umferð gangandi um gang-
stéttina. Af þessum sökum
hef ég, til samræmingar,
beðið lögreglumenn að
hafa þetta vandamál í
huga og miða þá við þá
þumalfingursreglu að ekki
sé meira en fjórðungur
ökutækis á gangstéttinni.
og þá þannig að umferð
gangandi, t.d. fólks með
bamavagna og blindra,
stafi ekki hætta af.“
Þegar Jónmundur var spurður
hvort hann hefði fengið undanþágu
frá borgaryfirvöldum vegna þefrrar
þumalputtareglu sem hann hafi gefið
fyrirmæli um vegna rangstöðu bif-
reiða kvað hann svo ekki vera. Þegar
DV spurði hann hver hefði þá heimil-
að þumalfingursregluna svaraöi
hann: „Þetta era tilmæli mín til lög-
reglumanna til samræmingar á
vinnubrögðum vegna átaks okkar í
þessum málaflokki. -JSS
Haröur árekstur varð um kl. 16 f gær þegar ökumaður flutningabifreiðar
keyrði á mikilli ferð á kyrrstæðan vörubfl með tengivagni nálægt gatnamót-
um Sæ ;rautar og Dugguvogs. Kiippa þurfti ökumanninn úr flutningabflnum.
Hann var fluttur á slysadeild en reyndist lítið slasaður. DV-mynd S
Utandagskrárumræöa um mál Franklíns Steiners:
Eðlilega staðið að málum
- segir Þorsteinn Pálsson dómsmálaráöherra
Snarpar umræður urðu í utan-
dagskrárumræðum um meint óeðli-
leg afskipti dómsmálaráöherra af
málum Franklins Steiners. Sökuðu
menn hver annan um dylgjur og lét
ráðherra þung orð falla í garð Al-
þýðuflokks.
Lúövík Bergvinsson, þingmaöur
Alþýðuflokks, var málshefjandi og
sagði að þessi umræða væri til bóta
og mætti sem dæmi um það nefna
að fyrst nú væra að koma til reglur
um óhefðbundnar rannsóknarað-
ferðir sem lögreglan hefði lengi bar-
ist fyrir. Hanii taldi að stjómvöld
hefðu ekki búiö lögreglunni nógu
gott starfsumhverfi.
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra réöst hart að þingflokki jafn-
aðarmanna og furðaði sig á aðdrag-
anda þessarar utandagskrárum-
ræðu sem hann taldi einsdæmi.
Hann sagöist hafa þurft aö sitja und-
ir dylgjum vegna þess trúnaðar sem
hann taldi sig þurfa að halda við
lögregluna. Hann sagði aö yfirstjóm
lögreglunnar
hefði ekki komið
til sín tilmælum
um reglur um
óhefðbundnar
rannsóknarað-
ferðir og þær
hefðu fyrst komiö
upp á borðið í
skýrslu starfs-
hóps sem hann
skipaði og hafði
það hlutverk að undirbúa átak gegn
fikniefnavandanum.
Þorsteinn sagði að á vordögum
ársins 1991 hefðu fulltrúar lögregl-
unnar komið á sinn fund og sagst
hafa vilyröi fyrir reynslulausn
Franklíns Steiners þar sem Frank-
lín hefði lofað að gefa upplýsingar.
Þær upplýsingar gætu leitt til hand-
töku manna sem annars myndu
ekki komast undir laganna hendur
og að þessar upplýsingar hefðu þá
þegar leitt til handtöku nokkurra.
„Ég gerði að sjáifsögðu embættis-
mönnum í ráðu-
neytinu, sem fóra
með þessi mál,
grein fyrir þessu
viðtali. Niður-
staða okkar var
sú að í ljósi nýrra
upplýsinga væri
rétt að senda mál-
ið aftur til með-
feröar fullnustu-
matsnefndar og
Fangelsismálastofnunar en báðir
þessir aðilar höfðu á fyrra stigi, án
þessara upplýsinga, hafnað erind-
inu,“ sagði Þorsteinn. Halldór Ás-
grímsson, utanríkisráðherra og
fyrram dómsmálaráðherra, sagði að
hann hefði fengið upplýsingar um
að upplýsingar Franklíns hefðu
komið að góðum notum í tveimur
fikniefnamálum.
Þorsteinn sagði einnig, og vitnaði
í minnisblað Þorsteins Geirssonar
ráðuneytisstjóra um samtal við Jón-
atan Þórmundsson, að fullnustu-
matsnefiid hefði verið sammála um
þessa afgreiðslu og hún hefði verið
fyllilega lögmæt. Ráöherra sagði
enn fremur: „Hér hefur í einu og
öllu verið rétt og eðlilega staðiö að
málum að hálfu dómsmálaráðuneyt-
isins og ekki með neinum rökum
hægt að færa fram líkindi fyrir því
að annað sé uppi á teningnum."
Ráðherra sakaði jafnaöarmenn
um að hafa farið að sér með dylgj-
um og sagði að varaþingmaður og
þingmaður Alþýðuflokksins hefðu
komið að málinu í fjölmiðlum, ann-
ar sem ritstjóri Mannlífs og hinn
sem annar af ritstjóram DV.
Sighvatur Björgvinsson, formað-
ur Alþýðuflokks, og Rannveig Guð-
mundsdóttir, þingflokksformaður
jafnaðármanna, mótmæltu bæði því
sem þau kölluðu dylgjur ráðherra
og sagði Rannveig það fráleitt að
kenna Alþýðuflokknum um þá fjöl-
miðlaumfjöllun sem hefði verið um
málið.
-sm
Þorsteinn
Pálsson.
Lúðvík
Berqvinsson.
Stuttar fréttir dv
Endurunnin smurolía
íslenskir að-
ilar og banda-
riskt fyrirtæki
eru að kanna
hagkvæmni
þess að endur-
vinna notaða
smurolíu hér á
landi eða ann-
ars staðar.
Hreinsa á olíuna með vetni. Þessi
mál hafa áður verið könnuð í sam-
bandi við Áburðarverksmiðjuna
sem framleiðir vetni. Fyrrverandi
forstjóri verksmiðjunnar stjómar
athuguninni sem nú stendur yfir.
Viðskiptablaðið segir frá.
SH á Verðbréfaþing
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
er nú skráð á Verðbréfaþingi ís-
lands. Fyrsti kaupandi hlutabréfa í
SH er Álpha Group, fyrirtæki í S-
Afríku sem veiðir og vinnur Nílar-
karfa í Viktoriuvatni í Kenía. Það
keypti fyrir 200 þúsund krónur.
Ganga af Arnarnúpi
Skipstjóri og þrír stýrimenn,
þeirra á meðal er trúnaðarmaður
áhafiiar, eru að hætta á togaranum
Amamúpi á Raufarhöfh. Ástæður
em deilur um fiskverð og uppgjör
við útgerðina. RÚV sagði frá.
Hátt gengi krónunnar
Gengi ísl. krónunnar er í sögu-
legu hámarki. Ástæðan er mikil
kaup á gjaldeyri og erlendar lán-
tökur að sögn RÚV.
Sundabraut einkavædd
Ámi Sigfússon og borgarfúlltrú-
ar sjálfstæðismanna vilja athuga
kosti þess að einkafyrirtæki fjár-
magni og leggi Sundabraut úr
Kleppsvík í Geldinganes á fjórum
árum.
Ósjúkir kærendur
Ummæh
Eggerts Hauk-
dal, oddvita í
Landeyjum,
um sjúka kær-
endur í sveitar-
félaginu hafa
verið ómerkt
með dómi. Egg-
ert viðhafði
ummælin í svarbréfi til félagsmála-
ráðuneytisins.
Raftækjakjörbúð
BYKO opnar á næstu dögum
fyrsta stórmarkaðinn á landinu
með raftæki við Smáratorg. Mark-
aðurinn verður á 2000 fermetrum
og heitir ELKO. Hann verður rek-
inn í samvinnu við norska raf-
tækjakeðju sem heitir Elkjöb að
sögn Viðskiptablaðsins.
Alda aftur til Ingólfs
Alda Andrésdóttir, bæjarfulltrúi
í Hveragerði, hefur hætt félagsskap
við Bæjarmálafélag sjálfstæðis-
manna í Hveragerði og snúið tfi
baka í sjálfstæðisfélagið Ingólf.
Einkasamningi andmælt
Sjálfstæðis-
menn í stjóm
SVR og borgar-
ráði mótmæla
samningi við
danskt fyrir-
tæki um einka-
rétt þess til
auglýsinga á
borgarmann-
virkjum næstu 20 árin gegn því að
fyrirtækið komi upp biðskýlum á
stoppistöðvum SVR.
Asíugjaldmiðlar
Ringit, gjaldmiðiU Malasíu,
hækkaði um 1,16% gagnvart dollar
í nótt, rúpían í Indónesíu um
6,86%, batið I Taílandi steig um
2,43%, pesinn á Filippseyjum um
1,37%, Singapúrdollar um 0,88%,
Taívandollar féll um 0,22% og
vonnið í Kóreu féll um 0,82%.
Keikó má koma
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir að háhymingurinn Keikó
megi koma til landsins frá Banda-
rikjunum. Hann hefur veriö úr-
skurðaður heilbrigður og búinn að
ná sér eftir kvilla sem hijáðu hann
í S-Ameríku.
-SÁ