Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
Neytendur
Gleraugun eru
ódýrust í Bónusi
Fjarsýni háir talsverðum hluta Is-
lendinga og sérstaklega fólki sem er
komið um eða yfir miðjan aldur.
Stór hluti þessa fólks þarf gleraugu
við lestur eða nákvæmnisvinnu en
telur sig komast klakklaust af án
gleraugnanna dagsdaglega. Margir
úr þessum hópi virðast velja þann
kost að kaupa sér ódýr lesgleraugu,
sem sums staðar eru á boðstólum, í
stað þess að kaupa dýrari gleraugu
í hefðbundnum gleraugnaverslun-
um. Neytendasíðan kannaði verð
hjá nokkrum verslunum sem selja
ódýr gleraugu.
Bensín og gleraugu saman
Á bensínstöðvunum er selt tals-
vert af ódýrum gleraugum enda er
verðið þar hagstætt. Á bensínstöðv-
um Esso eru seld fjarsýnisgleraugu
á 735 krónur parið. Þau eru frá Taí-
van. Að sögn Agnars Þórs Agnars-
sonar hjá Esso fást gleraugun á öll-
um bensínstöðvum Esso og er eftir-
spum eftir þeim talsvert mikil.
Bensínstöðvar Olís selja einnig
ódýr lesgleraugu. Þar kostar parið
890 krónur. Að sögn Katrínar Er-
lersdóttur hjá Olís er sala á þessum
gleraugum nýhafln hjá fyrirtækinu
og því ekki komin mikil reynsla á
sölu þeirra. Gleraugun hjá Olís eru
seld á velflestum stöðvum fyrirtæk-
isins og eru norsk.
Bensínstöðvar Skeljungs selja
ekki lesgleraugu.
Nokkrir verðflokkar
hjá Hagkaupi
í Hagkaupi er hægt að fá átta
gerðir af ódýrum gleraugum í alls
þremur verðflokkum. Gleraugun er
seld á 989, 1995 og 2195 krónur. Þau
eru frá Finnlandi, Noregi, Græn-
landi, Sviþjóð og fleiri löndum.
Þessi gleraugu eru seld í þeim versl-
unum Hagkaups þar sem sérvara er
seld.
Hagkaup rekur einnig gleraugna-
verslun í Skeifunni þar sem hægt er
að fá vönduð gleraugu á svipuðu
verði og i öðrum gleraugnaverslun-
um. I gleraugnaversluninni er
einnig hægt að fá ódýr lesgleraugu á
1500 krónur. Gleraugun era kín-
versk og aðallega ætluð herrum.
Bónus ódýrastur
Bónus hefúr af og til verið með
tilboð á ódýrum lesgleraugum.
Að sögn Finns Magnússonar hjá
Bónusi hefur selst alveg ótrúlega
mikið af þessum gleraugum og er
svo komið að þau eru nú uppseld.
Ný sending er hins vegar væntanleg
199
lesgleraugu
- verösamanburöur í krónum -
2.195
1.500
Bónus Essð
ITCT
Olís Hagkaup Hagkaup
gleraugnabúö verslanlr
Ódýru gleraugun henta þeim best sem hafa eins sjón á báðum augum.
eftir eina til tvær vikur. Gleraugun
sem seld eru í Bónusi koma frá
Kína og kosta einungis 199 krónur.
Þau verða seld í öllum verslunum
Bónuss.
Hvað segja augnlæknar?
Að sögn augnlæknanna Elínborg-
ar Guðmundsdóttur og Arnar
Sveinssonar er aðalókosturinn við
þessi ódýru gleraugu frá læknis-
fræöilegu sjónarhomi sá að fólk
virðist kaupa þau án þess að fara í
augnskoðun. „Fólk trassar að fara í
skoðun og kaupir e.t.v. bara sterk-
ari og sterkari gleraugu þegar sjón-
in versnar í stað þess að fara til
augnlæknis. Fólk getur líka þreyst
ef sjónin er ekki eins á báðum aug-
um því þessi ódýru gleraugu eru
auðvitað stöðluð með jafnsterkum
glerjum báðum megin,“ segir Elín-
borg. Öm bætir við að ef fólk sem
ekki er með eins sjón á báðum aug-
um kaupi sér ódýr gleraugu, án þess
að fara í skoðun, geti það fengið
gláku sem ekki greinist nema við
skoðun. Örn segir hins vegar að ef
fólk sé með eins sjón á báðum aug-
um sé ekkert því til fyrirstöðu að
nota þessi gleraugu.
Að sögn Elínborgar hafa ódýru
lesgleraugun ekki verið könnuð sér-
staklega af augnlæknum og því
erfitt að alhæfa um þau. Hins vegar
segja Elínborg og Öm bæði að Ijóst
sé að ekki séu sömu gæðin í þessum
ódým gleraugum og hefðbundnum
gleraugum og að þau henti alls ekki
öllum. -glm
Skemmtilegir bananar
Þessir skemmtilegu bananabátar
era tilvaldir fyrir börn sem að öör-
um kosti vilja ekki borða ávexti.
I þá þarf einn banana á mann
vínber
niðurskorinn ost í teningum
rauða papriku
jarðarber
mandarínu- eða appelsínubáta
(hægt að nota flestalla ávexti),
stórar ostasneiðar settar á stóra
kokkteilpinna sem nota má sem
segl,
tannstöngla
skrautveifur
appelsínusafa - til að smyija með
yfirborðið á banönunum svo þeir
brúnist síður.
Hýðið er skorið af banananum
öðrum megin langsum en látið halda
sér á botni bátanna og bátamir
skreyttir.
(HoUt og gott fyrir bömin.)
-glm
Þing. hlutabréfa
2700 2450,0
2650
Stlg
Þórhildur Líndal er umboðs-
maður barna.
Heimasíða
umboðs-
manns barna
Embætti umboðsmanns barna
hefur opnað heimasíðu á verald-
arvefnum. Heimasíðan er liður í
viðleitni umboðsmanns barna
til þess að kynna hlutverk sitt
og verksvið fyrir umbjóðendum
sínum sem era allir íslendingar,
yngri en átján ára.
Kynningin miðar einnig að
því að gera böm meðvituð um
tilvist embættisins og hvemig
þau geti nýtt sér það til að koma
réttindamálum sínum á fram-
færi. Annað markmið heimasíð-
unnar er að koma á beinu og
milliliðalausu sambandi um-
boðsmannsins og bamanna. í
því skyni hefur verið sett upp
eyðublað á heimasíðunni sem
böm og unglingar geta fyllt út
og sent umboðsmannsins.
Rjómi til reiðu
Rjómi er frekar dýr mjólkur-
vara og því er um að gera að
láta hann ekki fara til spillis. Ef
rjómi verður afgangs er upplagt
að setja hann i ísmolapoka og
frysta. Síðan er hægt að klippa
einn mola af 1 einu og nota í
súpur og sósur eftir þörfum.
Of saltur
matur
Mörgum hættir til að nota of
mikið salt við matseldina. Ráð
við því er að bæta hráum kart-
öflusneiðum út í pottinn því þær
drekka í sig saltið. Að sjálfsögðu
era kartöflumar teknar áður en
maturinn er borinn á borð.
Litur víns
segir til um
gæði
Rauðvín er pressað úr bláum
vínþrúgum og hýðið er í legin-
um á meðan á gerjun stendur.
Glæný vín
eru næst-
um
blárauð á
litinn.
Þegar vín-
ið hefur
legið í
tunnum
eða flösk-
um verður
það djúp-
rautt og
enn síðar
fær það
brúnleitan
blæ.
Litur-
inn sést
vel ef glas
með víni
er borið að
ljósu blaði
og ljósið
látið skína
á ská.
Ódýr
vin eru
oftast rauðblá af því þau eru yf-
irleitt ung. -glm