Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
Spurningin
Hvaöa bók hefurðu
á náttboröinu?
Sigrún Helga Guðbjartsdóttir
sölumaður: Heilan bunka af skóla-
bókum.
Guðmunda Jóhannesdóttir versl-
unarmaður: I dag varð ég kona eft-
ir Gunnar Dal.
Rakel Sæmundsdóttir: Fótspor á
himni eftir Einar Má Guðmunds-
son.
Elías Guðmundsson afgreiðslu-
maður: 24 stunda bókina.
Árni Ingvarsson trillukarl: Það er
einhver spennusaga.
Hrafnhildur Smith afgreiðslu-
maður: Fótspor á himni.
Lesendur
Loftleiðir, Flug-
félagið og Eimskip
„Eignir fyrirtækisins hafa rýrnað um 9 milljarða síðustu árin“, segir bréfritari
m.a. - Frá aðalfundi Flugleiöa. Við stjórnarborðiö.
Gísli Þór Gunnarsson skrifar:
Fyrir þrjátíu árum skiluðu. Loft-
leiðir hf. hluthöfum sínum 25% arði
og ekkert lát virtist ætla að verða á
velgengni fyrirtækisins. Þá komu
nýútskrifaðir vargar úr viðskipta-
deildum bandarískra háskóla til
skjalanna. Þeim var sigað á sauða-
hópinn, stjórn og starfslið Loftleiða,
til þess að nýir herrar gætu komist
að kjötkötlunum.
Yfirsjón Loftleiðamanna var tví-
þætt. Annars vegar ögruðu þeir ætt-
ar-auðvalds-íhaldi sem sá rautt yfir
velgengni „ættsmárra" flugstjóra
Loftleiða. Á hinn bóginn þótti
keppinautum Loftleiða ófært að
flugfélag á hjara veraldar, gæti
stundað grimm undirboð á vinsæl-
um ferðaleiðum. - Og Flugleiðir
urðu til við sameiningu Loftleiða og
Flugfélags íslands.
Trójuhestur yfirtöku-aðalsins,
hafði innanborðs fulltrúa Eimskipa-
félagsins sem réðu 40% hlut Flugfé-
lagsins, sem var yfirfærður á tæpan
fjóröungshlut í Flugleiðum. Og
flandinn varð laus. Öllum samgöng-
um við útlönd skyldi nú ráðstafað af
sjálfskipuðum íslenskum aðli sem
kunni að gera sér mat úr einokun-
araðstöðu sinni. Heildarvelta Flug-
leiða náði 23 milljörðum króna á
síðasta ári. Launakostnaður fór
lækkandi, 85% sætanýting var á
helstu flugleiðum og eldsneytisverð
var lágt.
Þrátt fyrir hagstæö ytri skilyrði
sýndu Flugleiðir fram á bókhalds-
legt tap eftir afskriftir, við ársupp-
gjör. Eignir fyrirtækisins hafa rýrn-
að um 9 milljarða siðustu árin
vegna þeirrar áráttu forkólfa þess
að selja fyrir gjafverð nánast af-
skrifaðar þotur, keyptar með ríkisá-
byrgð lána, til huldumanna í út-
löndum.
Þegar gengið hafði verið frá sö-
lusamningum gerðu þeir undan-
bragðalaust leigusamninga við
sjálfa sig um áframhaldandi nýt-
ingu þeirra þotna sem þeim hugnað-
ist að selja sjálfum sér á spottprís.
Þessi undarlega rekstrartækni
veldur undanskotum á sköttum,
skömmtun 5% prósenta arðs til al-
mennra hluthafa og hæpinnar rétt-
lætingar á okri almennra fargjalda.
Á sama tímabili hreyktu bandarísk
flugfélög sér af 200% til 400% hagn-
aði. Helsta úrræði Flugleiðamanna
við taprekstrinum var brask með
þotukost fyrirtækisins. - En sniðug-
ir milliliðir ku geta hagnast á kaup-
um, leigu og sölu á þotum.
Starfsmannafélag Reykja-
víkurborgar á tímamótum
Grétar Jón Magnússon skrifar:
Fram undan er kosning til for-
manns 18.-19. febrúar. Hef ég ákveð-
ið að gefa kost á mér til formanns
vegna áskorunar margra félaga.
í St. Rv. eru 16 deildir, mjög ólík-
ar innbyrðis. Deildimar kjósa sér 74
fulltrúa alls. Saman mynda þeir full-
trúaráð ásamt stjórninni. Þeir eru
kallaðir á fund með stjórn félagsins
einu sinni í mánuði. -11/2-2 klukku-
tíma i senn. Á þeim tíma er vonlaust
að leysa þau mál sem fyrir liggja hjá
fulltrúum. Dagskrá fundanna er
sjaldnast dreift til fulltrúa fyrirfram
sem vita þess vegna ekki hvað ræða
á á fundum. Því er nánast um eintal
sitjandi formanns að ræða.
Þetta er eitt af því sem verður að
breyta. Halda þarf fundi með full-
trúum á vinnustöðum og undirbúa
mál sem í gangi eru. Það auðveldaði
félagsmönnum að koma á framfæri
skoðunum sínum. Ekki er gott að
formaður sitji á skrifstofu sinni og
einangrist þar. Fara þarf til félags-
manna og eiga frumkvæði að því að
kynna sér stöðu mála.
Margt hefur farið á verri veg á
síðustu árum. Einstaklingar og
hópar hafa gengið úr samtökum
okkar og þannig náð fram betri
kjörum. Það hefur líka verið rætt
að leiðrétta laun okkar til samræm-
is við laun í öðrum sveitarfélögum
en hefur ekki náðst fram. Fleira
mætti nefna sem félögum okkar
mislíkar.
Ágæti félagi! Vilt þú búa við nú-
verandi ástand í stéttarfélagi þínu,
eða vilt þú að fylgt sé stefnu sem er
í meiri tengslum við nútímann og
hinn almenna félagsmann?
Viljir þú breytingu, þá heiti ég
því að leggja mig fram, þannig að
kraftar okkar nýtist sameiginlega
til hagsbóta fyrir okkur öll, í sam-
vinnu við stjórnarmenn og starfs-
fólk. Fólk sem ég hef ágæta reynslu
af og treysti fullkomlega. Til þess að
koma þessum hugðarefnum okkar í
framkvæmd gef ég kost á mér til
formanns í kosningunum 18.-19.
febr. n.k. - Félagskveðja.
Faxafloi - þjoðgarður
Reykvíkinga
Þórarinn skrifar:
Til eru hvetjandi lög til lögbrota í
sjávarútvegi. Faxaflói, sem ég tel
eins konar þjóðgarð Reykvíkinga,
hefur þá sérstöðu gagnvart veiðum
snurvoðarbáta að þar má ekki
stunda veiðar nema með ströngum
skilyrðum sem hvergi gilda annars
staðar.
Á bátnum sem ég er á gerðist það
að við fengum 4 tonn af þorski í
einu kasti, öllum að óvörum. Við
gerðum að fiskinum, ísuðum hann
ÍU^IWlfM þjónusta
allan sólarhringi
i sima
»0 5000
kl. 14 og 16
Er Faxaflóaþorskur öðru vísi?
og lönduðum á markað. Við fengum
fint verð enda allt stórþorskur. Bát-
urinn á 90 tonna þorskkvóta. - En,
nei takk! Svona gerið þið ekki, þetta
er lögbrot.
í Faxaflóa gildir sú regla að
þorskur má ekki vera nema 15% af
öðrum afla hálfsmánaðarlega. - Við
megum sem sé veiða þorsk, bara
ekki á Faxaflóa nema að litlu leyti.
Ég bendi á að þorskurinn fer viðar,
jafnt norður í Barentshaf sem í
Faxaflóa, og ég hef ekki tekið eftir
því að þessi þorskur sé neitt öðru
vísi en annar þorskur á miðunum
við strendur íslands.
Tími Sólveigar
kominn
Valtýr skrifar:
Vegna þess að í fréttum hefur
verið ýjað að því að forsætisráð-
herra hyggist skipta út mönnum
í ráðherrastólum síns flokks, datt
mér í hug að benda á að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur engri
konu á að skipa sem ráðherra.
Mér finnst tími Sólveigar Péturs-
dóttur alþingismanns vera kom-
inn. Hún hefur sett sig vel inn í
öll mál þingsins, ekki síst sam-
göngumál og er auk þess at-
kvæðakona. Ég vildi sjá hana
sem ráðherra og hún er vel að því
komin.
Frábær
Aðalstöð
Sigurbjörg skrifar:
Ég held að mjög margir séu
mér sammála þegar ég staðhæfi
að Aðalstöðin hafl talsvert for-
skot fram yfir hinar nýju frjálsu
útvarpsstöðvar sem hófu göngu
sína fyrir þó nokkru. Það er ekki
bara á morgnana sem Eiríkm-
leiðir mann erfiðustu sporin,
heldur tekur við hvað af öðru
betra. Bjarni Ara er 1 eftirmið-
daginn með vel valda tónlist frá
miðjum áratugnum o.fl. Ég tel
Aðalstöðina frábæra útvarpsstöð
með alvöru og léttleika í bland.
Stækkum Kvía-
bryggju
Torfi hringdi:
Ég las í blaði um daginn að
verið væri að gefa eftir óreiðu-
skuldir bamsfeðra sem ekki
greiddu sín meðlög. Mér faimst
nú rökin ekki vera beysin. Sagt
var að sumir hefðu gifst og væra
orðnir barnmargir sjálfir! Og
annaö í þessum dúr. Ég vil að
Kvíabryggja verði stækkuð og öll-
um skuldugum meðlagsgreiöend-
um boðin þar vist. Enn fremur
mætti vikka starfssviðiö og taka
þarna inn erlenda kollega hinna
íslensku. Þarna gæti hugsanlega
skapast gjaldeyrisinntekt fyrir
þjóðarbúið. Skyldi veita af?
Tvískinnungur
borgarstjórnar-
forseta
Gísli Guðmundss. skrifar:
Ég heyrði í forseta borgar-
stjórnar í sunnudagsspjalli á Rás
2 daginn eftir prófkjör R-listans.
Ekki var þar allt gáfulega sagt. í
lokin skaut þulurinn því að að
eiginmaður borgarstjómarforset-
ans væri kominn til að sækja
hana. Hún sá ástæðu til að leggja
áherslu á að það væri vegna þess
að þau hjónin ættu einungis einn
bíl, en allir vita aö forseti borgar-
stjórnar gerir sitt til að vinna
gegn bíleigendum og gera um-
ferðina greiðari. Ég held hins
vegar að landsmenn myndu ekki
eyða sínum eigin peningum í
aukabíl hefðu þeir bíl til umráða
sem útsvarsgreiðendur borga.
Áfengisgosið
meinlaust
Þóra skrifar:
Það er verið að flargviðrast út
af áfengi í gosdrykkjum sem hér
eru seldir. Hér er um aö ræða
eitthvað um 4.6% eða svo. En
menn tala ekki um áfengismagn í
gosdrykkjunum sem blandað er
út í brennivínið á börunum og
pöbbunum, af neytendunum sjálf-
um. Ætli þar sé ekki um að ræða
svo sem þrisvar eða fjórum sinn-
um sterkara áfengi sem komið er
í gosið? Það virðist sem fólk
hlaupi af sér tærnar í rökleys-
unni og dæmi og úthúði hlutum,
oft algjörlega út í loftið. - Já, það
er rétt sem einhver skrifaði í les-
endabréf í DV nýlega; þjóðin er
ekki viðræðuhæf og hefur aldrei
uppi haldbær rök í málflutningi
sínum.