Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
13
Háskóli í
hágæðaflokki
íslendingar eru stoltir
af því að eiga Háskóla
og flestir vilja veg hans
sem mestan. En hvað á
Háskóli íslands að hafa
að leiðarljósi í starfi
sínu?
Háskóli er stofnun
sem á að leiða rann-
sóknir og þróun á öllum
sviðum. Sá háskóli sem
ekki keppir að þessum
markmiðum og nær
þeim hlýtur þau örlög
að verða undir í sam-
keppni við aðra skóla.
Fábrotin aöstaöa
Samkeppni við Há-
skóla íslands er sífellt
að aukast. Nærtækasta
dæmið er Viðskiptahá-
skóli Reykjavíkur sem
nú er að rísa. Hann mun
hefja kennslu í við-
skiptagreinum næsta
haust. Nú þegar hyllir und-
ir brottför margra góðra
kennara þangað frá Há-
skóla íslands. Það er ljóst
að Viðskiptaháskólinn og
fleiri skólar á háskólastigi
bjóða betri laun og aðstöðu
en Háskóli íslands.
Aðstaða nemenda við Há-
skólann er slæm. Tölvur
eru of fáar og í mörgum til-
vikum úreldar. Bóka- og
tímaritakaup eru í algjöru
lágmarki. Kennarar eru
streittir og svekktir vegna
bágra launakjara og mikils
vinnuálags. Aðstaða til
rannsókna er víðast hvar
fábrotin. Þessar aðstæður
geta aldrei leitt til þess að
Háskólinn nái því mark-
miöi sem hann hlýtur að
keppa að.
Svartsýnisspá
En hvað þýðir þetta? Að-
eins það að Háskóli íslands
mun brátt heltast úr lest-
inni. Að hann verður
„Aðsta&a nemenda við Háskólann er slæm. Tölvur eru of fáar og f mörgum tilvikum úreltar. - Kennarar eru streittir og
svekktir vegna bágra launakjara og mikils vlnnuálags."
Kjallarinn
Guölaug M.
Júlíusdóttir
skipar fimmta sæti á
lista Vöku, félags lýð-
ræ&issinnaðra stúdenta,
tll Stúdentará&s
hvorki leiðandi í
rannsóknum né
þróun. Háskólinn
verður ekki æðsta
menntastofnun
landsins. Við stúd-
entar getum
ekki sætt okkur
við þetta. Enda
er það ekki ætl-
unin. Þvert á
móti mun Vaka
berjast fyrir því
að Háskólinn fái
það sjálfstæði
sem hann þarf
til að vera góður
háskóli. Það eru
frumkvæði og ný-
sköpun sem eiga að
vera í fyrirrúmi í
rekstri æðstu
menntastofnunar
þjóðarinnar en ekki stöðnun og
framtaksleysi.
Tveir valkostir
Núna hefur skólinn hvorki
nægjanlegt frelsi né hvata til að
„Það eru frumkvæðl ognýsköpun
sem eiga að vera í fyrirrúmi í
rekstri æðstu menntastofnunar
þjóðarinnar en ekki stöðnun og
framtaksleysi
leita af fullum krafti til atvinnu-
lífsins um fjármagn. Hann verður
að öðlast sjálfstæði í stjómun, þró-
un og rekstri og fá svigrúm til að
ráðstafa tekjum sínum að vild.
Auk þess þarf hann að hafa fullt
sjálfstæði í launa- og starfsmanna-
málum. Fyrst þá verður nægjan-
legur hvati fyrir þátttöku af hálfu
atvinnulífsins og sveitarfélaga til
að leggja meira fé til reksturs Há-
skólans.
Háskólafólk stendur
nú frammi fyrir
tveimur valkostum.
Ætlum við að horfa
upp á Háskólann
breytast í annars
flokks menntastofn-
un eða ætlum við að
gera skólann að
sjálfstæðri, skil-
virkri og lifandi
stofnun sem sættir sig ekki við
neitt annaö en að vera í fremstu
röð? Við í Vöku höfum gert upp
hug okkar.
Guðlaug M. Júlíusdóttir
Verjum Háskóla íslands
Þann 19. febrúar næstkomandi
verða kosnir fulltrúar nemenda í
stúdentaráð og háskólaráö Há-
skóla íslands. Undanfarin ár hefúr
Röskva, samtök félagshyggjufólks
við Háskóla íslands, verið í meiri-
hluta í Stúdentaráði Háskóla ís-
lands. Á þessum tíma hefur
Röskvufólk sýnt frumkvæði og
festu innan háskólasamfélagsins
og sannað að námsmenn geta haft
mikil áhrif.
Gegn skólagjöldum
Samkvæmt nýrri rammalöggjöf
um nám á háskólastigi er sá mögu-
leiki ekki útilokaður að tekin
verði upp skólagjöld við Háskóla
íslands. Mikil andstaða er gegn
þessari hugmynd á meðal nem-
enda Háskólans. Röskva hefur
andæft henni og mun berjast gegn
henni við gerð sérlaga um Háskóla
íslands.
Jafhrétti til náms, óháð efnahag,
er eitt af grundvallarmannréttind-
um siðmenntaðs þjóðfélags. íslend-
ingar stofnuðu Háskólann á aldar-
afmæli Jóns Sig-
urðssonar árið
1911 með það að
markmiði að
hann yrði öflug-
ur þjóðskóli
allra íslendinga.
Eigi að síöur hef-
ur Háskólanum
verið naumt
skammtað fé af
stjómvöldum
seinustu árin.
Röskva telur það
skyldu stjómvalda að standa vörð
um háskóla íslensku þjóðarinnar.
Menntun er arðbærasta fjárfesting
þjóðarinnar allrar þannig aö auk-
in fjárveiting til Háskólans mun
skila sér margfalt til baka. En
stjómvöld hafa haft aðra forgangs-
rööun. Röskva vill ekki að nem-
endur Háskólans verði látnir
borga brúsann af þessum áhersl-
um stjómvalda og
mun beita sér af
krafti gegn frekari
gjaldtöku af nem-
endum.
Gegn pólitísk-
um fulltrúum
Annað sem fram
kom í áðurnefndri
rammalöggjöf er að
hér eftir á mennta-
málaráðherra að
skipa tvo fulltrúa
atvinnulífsins í há-
skólaráð. Röskva
andmælir þessari
hugmynd. Þó að
það sé skylda
stjórnvalda að
halda uppi öflugum
háskóla þá er
einnig nauðsynlegt
að sá háskóli sé frjáls og óháð mið-
stöð rannsókna og skapandi hugs-
unar.
Það samræmist ekki
akademísku frelsi að tveir fulltrú-
ar í tíu manna háskólaráði séu
skipaðir af hinu pólitíska valdi.
Við leggjum til að þessir fulltrúar
utan Háskólans verði fremur lýð-
ræöislega valdir af þverpólitískum
samtökum á borð viö
Hollvinasamtök Há-
skólans.
Röskva
framkvæmir
Röskva hefur sýnt það
á síðastliðnum sjö
árum að hún getur
framkvæmt. Nýsköpun-
arsjóður námsmanna,
Atvinnumiðlun náms-
manna, þjóöarátak í
bókasöfnun og mikil-
vægar breytingar á
lánasjóðsfrumvarpinu
eru aðeins brot af því
mikla starfi sem
Röskva hefur unnið á
meðan hún hefúr haft
meirihluta í Stúdenta-
ráði Háskóla íslands.
Meirihluti nemenda
Háskólans hefur viðurkennt þessi
störf með því að greiöa Röskvu at-
kvæði sitt öll þessi ár.
Það er mikilvægt að stúdentar
taki afstööu nú í þeim málum sem
varða framtíð alls háskólasamfé-
lagsins. Ég hvet því alla stúdenta
til að nýta sér lýðræðislegan rétt
sinn og kjósa þann 19. febrúar.
Katrín Jakobsdóttir
„Menntun er arðbærasta fjárfest-
Ing þjóðarinnar allrar þannig að
aukln fjárveiting til Háskólans
mun skíla sór margfalt til baka.
En stjórnvöld hafa haft aðra for■
gangsröðun
Kjallarinn
Katrín
Jakobsdóttir
í 1. sæti tll Háskólará&s
fyrlr Röskvu
Með og
á móti
Á að leyfa a& leggja
bílum að hluta tll upp
á gangstéttir?
Ef aðstæður
krefjast
„Almennt tel ég að virða beri
rétt gangandi fólks. Að því til-
skildu að umferð gangandi fólks
sé ekki hindruð þá tel ég ekki rétt
að banna alfarið að leggja bílum
að hluta upp á
gangstéttir.
Gangstéttir og
götur eru mis-
munandi, ekki
síst í eldri borg-
arhverfum. Ef
við tökum sem
dæmi Ingólfs-
stræti. Þar er
gangstéttin ým-
ist þriggja
metra breið eða
rúmlega hálfur metri og ég sé satt
að segja ekki mun á því hvort það
er hús eða bíll sem þrengir gang-
stéttina. Sums staðar er þannig
að fólki búið hér í borginni að
það er ekki rými fyrir bíla nema
því aðeins að skáka þeim lítillega
upp á gangstéttiná. Taka má
dæmi af því að í gær fann ég
hvergi pláss fýrir bilinn minn í
grennd við þann stað sem ég
þurfti að heimsækja nema með
því að tylla hjólunum öðrum
megin upp á gangstétt án þess þó
að það hamlaði umferö gangandi
fólks eða jafhvel fólks í hjólastól
hið minnsta. Hvort leggja megi að
hluta upp á gangstétt eða ekki
hlýtur að fara eftir aðstæðum á
hverjum stað. Þar af leiðandi
finnst mér fráleitt að setja for-
takslaust bann við því að leggja á
gangstéttir og fráleitt að einhver
algild og altæk regla um þetta
efni sé látin gilda.“
Alfarið á móti
„Ég er alfarið á móti því að
leyfa að bílum sé lagt uppi á gang-
stéttir og samkvæmt gildandi um-
ferðarlögum er það bannað. Laga-
greinin er skýr um þetta bann. í
henni segir að
á almannafæri
megi ekki
leggja eða setja
það sem hindr-
ar umferð og að
bannað sé að
leggja ökutækj-
um á gangstétt-
ir. Borgarstjóm
geti þó veitt
undanþágu frá
banninu en þá
skuli merýa
þau bílastæöi sem undanþága
nær til. Þessi stæði megi ekki
taka meira af breidd gangstéttar
en svo að eftir verði minnst 1,5 m
fyrir umferð um gangstéttina. Ef
yflrlögregluþjónninn í Reykjavík
getur leyft sér^breyta lögum og
reglugerðum upp á sitt eindæmi
þá flnnst mér lögreglan orðin
minna en einskis viröi. Þegar bU-
ar eru hálfir uppi á gangstéttum
þá getur það hent að þeir sem eru
sjóndaprir reki sig illa utan í þá,
brjóti spegla á þeim eða lemstri
þá eða sjálf'a sig á einhvern annan
hátt. Ef á að sveigja lögin til með
þessum hætti þá hlýtur aö þurfa
að spyrja næst, hver á að borga
skaðann sem af því getur hlotist?
Víða erlendis er líka þröngt um
bUa og gangandi fólk en þar eru
ökumenn vandir á að nota bUa-
stæðahús eöa þar tU gerð bUa-
stæði. Þeim er jafnframt gert
mögulegt að nota þessi bUastæöi
án þess að þurfa að greiða okur-
gjald fyrir. Það er búiö að reisa þó
nokkur bUastæöahús í borginni
og ef mönnum væri gert mögulegt
að nota þau á nóttunni þá myndi
það rýmka mjög mikið um á göt-
um í eldri hverfunum." -SÁ