Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Side 22
58
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
Afmæli_________________
Jóhann Pétursson
Jóhann Pétursson, fyrrv. bóksali,
Auðbrekku 23, Kópavogi, er áttræð-
ur í dag.
Starfsferill
Jóhann fæddist í Stykkishólmi og
ólst þar upp og stundaði þar bama-
skólanám. Fram til tvítugs vann
hann flest algeng störf til sjávar og
sveita.
Hann var formaður á fiskibáti í
Höfnum á Reykjanesi 1939-41, vann
við fornbókaverslun Kristjáns
Kristjánssonar í Hafnarstræti i
Reykjavík 1941, festi kaup á Bóka-
verslun Guðmundar Gamalíelsson-
ar í Lækjargötu 6 og starfrækti
hana 1942-50, var verslunarmaður
við verslunina Bækur og ritföng í
Reykjavík 1950-52, matsveinn til
sjós 1955-56, gjaldkeri og skrifstofu-
stjóri við síldarsöltun Gunnars
Halldórssonar á Raufarhöfn 1957-60,
sá jafnframt um útgerð hans í
Grindavík að vetrum og lifrar-
bræðslu þar auk þess að aka lýsinu
til Reykjavíkur, var vitavörður á
Hornbjargsvita 1960-85, var síðan
verslunarstjóri við fornbókaverslun
Klausturhóla meðan hún var starf-
rækt en gerðist þá hús-
vörður við gistiheimili í
Kópavogi þar sem hann
starfar enn.
Jóhann er óvenju víð-
lesinn maður og mikill
bókasafnari en honum
telst til að hann eigi um
tuttugu og fjögur þúsund
bindi af úrvals ritum.
Jóhann gaf út þrjár
skáldsögur, þjóðsagna-
safn og ásamt tveimur
öðrum Fornaldarsögur
Norðurlanda í þremur bindum.
Hann gaf út fyrsta leikritið sem
samið var á íslensku, Sperðil eftir
Snorra á Húsafelli. Þá gaf hann út,
ásamt Geir Kristjánssyni bók-
menntablaðið Gand.
Eftir Jóhann hafa komið út tvær
bækur, útg. af Helgafelli. Hann
samdi ritgerðina Hafís við Horn í
ritið Hafls við ísland og ritgerðina
Um óveður og glitský í tímaritið
Veðrið, samdi eftirmæli um Ragnar
í Smára í samnefnt rit, eftirmæli
um Björgu Ellingsen í Morgunblað-
ið og langa ritgerð í tímaritið Breið-
firðing, árg. 1998.
Jóhann fór til Spánar, ásamt
Steini Steinarr og frú
1954 og dvaldi þar í sjö
mánuði. Um þá ferð
skrifaði hann handrit
sem nú er verið að búa
til prentunar.
Jóhann átti frum-
kvæðið að stofnun Vita-
varðafélags íslands 1966,
var fyrsti og eini formað-
ur þess og vann þá mikið
að kjara- og réttindamál-
um vitavarða með góð-
um árangri.
Fjölskylda
Jóhann er þríkvæntur. Fyrsta
kona hans var Jónína Kristín Krist-
jánsdóttir, f. 3.5. 1922, leikstjóri og
húsmóðir í Keflavík. Foreldrar
hennar voru Kristján G. Einarsson-
ar, sjómaður í Reykjavík, og Katrín
Maguúsdóttir húsmóðir.
Önnur kona Jóhanns var Soffla
Kristín Sigurjónsdóttir, f. 21.8. 1916,
hjúkrunarkona í Reykjavík. For-
eldrar hennar voru Sigurjón Einars-
son, sjómaður á Eskifirði, og Sigríð-
ur Jónsdóttir húsmóðir.
Þriðja eiginkona Jóhanns: Erna
S. Júlíusdóttir, f. 19.9.1931, húsmóð-
ir í Kópavogi.
Dóttir Jóhanns fyrir hjónabönd
og Margrétar Pétursdóttur er Gréta
Mörk, f. 15.8. 1945, hjúkrunarfræð-
ingur á Akureyri.
Sonur Jóhanns og fyrstu konu
hans, Jónínu Kristjánsdóttur, er
Magnús Brimar, f. 18.6. 1947, flug-
stjóri hjá Atlanta, búsettur í Reykja-
vík, kvæntur Sigurlinu Wíum hús-
móður og eiga þau þrjú böm.
Systkini Jóhanns: Svava Hall-
dóra, f. 8.1. 1915, d. 15.1. 1992, hús-
móðir í Reykjavík; Guðrún, f. 14.8.
1916, húsmóðir í Kópavogi; Ásgerð-
ur, f. 11.4. 1919, húsmóðir I Reykja-
vík; Einar, f. 6.6.1920, fyrrv. bóndi á
Snæfellsnesi; Guðrún Arnbjörg, f.
30.9. 1921, verkakona á Stokkseyri;
Sigvaldi, f. 26.6. 1923, búsettur á
Kjalarnesi; Ingibjörg Eygló, f. 17.1.
1927, húsmóðir í Stykkishólmi; Lára
Karen, f. 6.10. 1931, húsmóðir í
Grindavík; .
Foreldrar Jóhanns voru Pétur
Einar Einarsson, f. 19.5.1885, verka-
maður í Stykkishólmi, og k.h., Jó-
hanna Jóhannsdóttir, f. 24.11. 1889,
húsmóðir.
Jóhann er að heiman.
Jóhann Pétursson.
Ólafur Þorláksson
Ólafur Þorláksson,
bóndi að Hrauni í Ölfusi,
er áttatíu og fimm ára í
dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist á
Hrauni í Ölfusi og ólst
þar upp. Hann var í
Hjallaskóla í Ölfusi og
stundaði siðan nám við
Héraðsskólann á Laugar-
vatni veturna 1930-32 og
sótti eftir það nokkur
námskeið í Reykjavík.
Ólafur starfaði við mjólkureftirlit
og uppgjör á mjólkurskýrslum á
vegum Búnaðarfélags íslands í
nokkur ár en stundaði sjómennsku
á vertíðum í Þorlákshöfn og Sand-
gerði. Hann starfaði hann hjá Setu-
liðinu 1941^42 en setti síðan á stofn
verkstæði ásamt bróður sínum þar
sem steyptir voru hleðslusteinar og
milliveggjaplötur. Við það starfaði
Ólafur í nokkur ár ásamt því að
starfa við bú móður sinnar.
Árið 1945 hóf Ólafur að reisa ný-
Ólafur Þorláksson.
býli á hluta jarðarinnar,
Hraun II, og byggði jafn-
framt upp jörðina næstu
árin á eftir. Þar hefur
hann búið alla tíð síðan.
Ólafur var einn af stofn-
endum Ungmennafélags
Ölfusinga.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 16.12.
1939 Helgu S. Eysteins-
dóttur, f. 2.7. 1916, hús-
móður. Hún er dóttir Ey-
steins Bjömssonar frá Grímstungu
og Guðrúnar Gestsdóttur frá Björn-
ólfsstööum.
Böm Ólafs og Helgu eru Þórdís, f.
20.11. 1940, bóndi á Valdastöðum í
Kjós, gift Ólafi Þór Ólafssyni, bónda
þar, og eiga þau fjögur börn; Guð-
rún, f. 15.10. 1943, húsmóðir i Þor-
lákshöfn, gift Helga Ólafssyni, verk-
stjóra hjá Ölfushreppi, og eiga þau
fjögur böm; Hjördís, f. 28.7. 1946,
skrifstofustúlka í Lúxemborg, gift
Mark Origer og á hún einn son með
Valgeiri T. Sigurðssyni; Ásdís, f.
25.1. 1949, iþróttakennari, búsett í
Kópavogi, gift Sverri Matthíassyni,
endurskoðanda í íslandsbanka, og
eiga þau þrjú börn; Þórhildur, f.
11.4. 1953, bóndi og skrifstofustjóri
að Hrauni, gift Hannesi Sigurðs-
syni, útvegsb. og forstjóra flskiðj-
unnar Vers og eiga þau tvö böm;
Herdís, f. 1.3. 1957, skrifstofumaður,
búsett í Reykjavík, gift Þórhalli B.
Jósepssyni útgefanda og eiga þau
þrjú börn.
Bamabamabörn Ólafs era orðin
þrettán talsins.
Systkini Ólafs eru Sæmundur, f.
15.9.1903, d. 14.12.1985, skipstjóri og
garðyrkjubóndi, var kvæntur Svövu
Jónsdóttur, f. 22.11. 1910, d. 20.7.
1965, húsmóður og eignuðust þau
þrjá syni; Elin, f. 29.10. 1904, d. 10.7.
1997, ljósmóðir og húsmóðir, fyrri
maður Sigurjón Guðmundsson, nú
látinn, og eignuðust þau eina dótt-
ur, en seinni maður hennar var Sig-
urður Grímsson sem einnig er lát-
inn; Guðrún, f. 9.1.1906, d. 29.5.1989,
var gift Sæmundi Guðmundssyni og
eignuðust þau þrjú börn, tvö þeirra
em á lífl; og Karl, f. 20.1.1915, ttóndi
að Hrauni, kvæntur Brynhildi Ey-
steinsdóttur húsmóður og eiga þau
sex böm.
Foreldrar Ólafs voru Þorlákur
Jónsson, f. 26.12. 1872, d. 11.5. 1915,
bóndi á Hrauni í Ölfusi, og Vigdís
Sæmundsdóttir, f. 23.12.1877, d. 5.10.
1965, bóndi á sama stað.
Ætt
Þorlákur var sonur Jóns Hall-
dórssonar, hreppstjóra í Þorláks-
höfn. Móðir Þorláks var Guðrún
Magnúsdóttir, b. á Litlalandi, í Þor-
lákshöfn og síðast á Hrauni, Magn-
ússonar, b. í Þorlákshöfn, Beinteins-
sonar, b. í Þorlákshöfn og Breiða-
bólstað, Ingimundarsonar, Bergs-
sonar, b. í Brattholti.
Vigdís var dóttir Sæmundar, b. á
Vindheimum í Ölfusi, Eiríkssonar,
b. á Litlalandi. Móðir Vigdísar var
Elín Magnúsdóttir, hreppstjóra á
Efstu-Grund undir Eyjafjöllum, Ein-
arssonar, Símonarsonar, Indriða-
sonar, Arnbjörnssonar í Vallna-
túni.
Ólafur er að heiman í dag.
Sigrún Edda Hringsdóttir
Sigrún Edda Hringsdóttir, aðal-
bókari hjá Seltjarnamesbæ, Austur-
strönd 2, Seltjamamesi, varð fertug
á~sunnudaginn var, þann 15.2. sl.
Starfsferill
Sigrún fæddist á Akranesi en ólst
upp á Flateyri við Önundarfjörö.
Hún stundaði nám í skrifstofutækni
og lauk prófum í þeirri grein 1989
og stundaði nám í rekstrarhagfræði
við VÍ 1995-96.
Sigrún ílutti frá Flateyri til
Grundarfjarðar 1971. Hún stundaði
staðgreiðslu-
og greiðslukortaafsláttur oW mll/í hirnin'.
og stighœkkandi
birtingarafsláttur
Smáauglýsingar
550 5000
skrifstofustörf hjá
Hraðfrystihúsi Grund-
arfjarðar 1977-88. Þá
flutti hún til Reykjavík-
ur þar sem hún hefur
stundað bókhalds- og
skrifstofustörf. Hún
hefur verið aðalbókari
hjá Seltjamamesbæ frá
1996 og hefur verið bú-
sett á Seltjamamesi frá
1997.
Fjölskylda
Sigrún giftist 3.7. 1976 Hafsteini
Jónssyni, f. 16.3. 1950, verkstjóra.
Hann er sonur Jóns Hanssonar,
verkstjóra í Grundarfirði, og Guð-
mundu Hjartardóttur húsmóður.
Böm Sigrúnar og Hafsteins eru
Sigrún Hafsteinsdóttir, f. 13.10.1975,
myndlistamemi í Eastbome á
Englandi; María Hafsteinsdóttir, f.
12.10. 1979, nemi við MS; Hermann
Hafsteinsson, f. 2.7. 1986, nemi í
Mýrarhúsaskóla.
Systkini Sigrúnar era
Halldór Gunnar Hringsson,
f. 13.7.1951, starfsmaður hjá
Rafmagnsveitu Hafnarfjarð-
ar, búsettur í Reykjavík;
Guðbjörg Hringsdóttir, f.
4.2.1955, starfsmaður hjá ís-
landspósti í Grundarflrði;
Hjörleifur Hringsson, f.
18.3. 1956, sölustjóri hjá
Austurbakka hf., búsettur í
Kópavogi; Hinrik Hrings-
son, f. 20.8.1959, skipstjóri á
Grænlandi, búsettur á Sel-
tjarnamesi.
Foreldrar Sigrúnar eru Hringur
Hjörleifsson, fyrrv. skipstjóri og-
framkvæmdastjóri, og Sigrún Hall-
dórsdóttir, stöðvarstjóri íslands-
pósts á Fáskrúðsfirði.
Sigrún er með eiginmanni sínum
og syni á Kanaríeyjum um þessar
mundir.
Sigrún Edda
Hringsdóttir.
Hl hamingju
með afmælið
18. febrúar
75 ára
Halldóra Gísladóttir,
Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík.
Jóhann H. Valdimarsson,
Flyðragranda 4, Reykjavík.
Ursula Hermannsson,
Gnoðarvogi 50, Reykjavík.
70 ára
Helgi Sveinsson,
Ósabakka 2, Skeiðahreppi.
Sigfús Kristinsson,
Hótel Djúpavík, Ámeshreppi.
Stefán Skaftason,
Blikanesi 15, Garðabæ.
60 ára
Kristján Guðmundur
Óskarsson,
Reynilundi 12, Akureyri.
50 ára
Bergdís Jóhannsdóttir,
Búlandi, Skaftárhreppi.
Hrönn Pálsdóttir,
írabakka 8, Reykjavík.
Jónbjöm Bjömsson
verktaki,
Álfabyggð 2, Súðavik.
Hann er að heiman.
Stefán Kárason,
Eikarlundi 7, Akureyri.
Svanur Baldursson,
Eskihlíð 12 B, Reykjavík.
40 ára
Anna Sigrún
Gunnlaugsdóttir,
Hömram 4, Djúpavogi.
Einar Sigurður
Sigursteinsson,
Lækjarflöt 1, Þórshöfn.
Guðmundur Tryggvi
Jakobsson,
Faxabraut 37 A, Keflavík.
Jón Heiðar Reynisson,
Seljabraut 72, Reykjavík.
Kristín P. Aðalsteinsdóttir,
Seilugranda 9, Reykjavík.
Magnús Rúnar Jónsson,
Löngumýri 12, Garðabæ.
Stefán Öm Magnússon,
Frostafold 4, Reykjavík.
Sveinn Sigurður
Þorgeirsson,
Frakkastíg 22, Reykjavík.
Unnsteinn Óskarsson,
Vesturvegi 12, Þórshöfn.
Þórunn Finnsdóttir,
Stóragerði 4, Reykjavík.
aukaafslátt af
smáauglýsingum
Smáauglýsingar
f»Ki
550 5000 '