Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1998, Side 28
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
Deilt um
rannsóknar-
aðferöir
Mikil gagnrýni kom fram hjá
stjórnarliðum á Alþingi á umíjöll-
un um mál Franklíns Steiners og
yfirvalda. Það kom fram í máli
fjölmargra stjórnarliða að nú væri
mál að linnti og horft yrði fram á
veginn, reynt að byggja lögregl-
una upp i stað þess að gera hana
tortryggilega.
Utanríkisráð-
herra og dómsmála-
ráðherra sögðu að
gagnrýnin umræða
um lögregluna og
þær upplýsingar
sem fram hefðu
komið á síðustu vik-
um og mánuðum
hefðu skaðað lög-
'"•regluna. Aðrir sögðu að öll um-
ræða væri gagnleg.
Þingmenn voru almennt sam-
mála um að skýrari reglur um
óhefðbundnar rannsóknaraðferðir
myndu gera starf lögreglunnar
auðveldara og að þessar óhefð-
bundnu rannsóknaraðferðir væru
nauðsynlegar til að árangur næð-
ist í stríðinu gegn eiturlyfjavánni.
Margrét Frímannsdóttir, for-
maður Alþýðubandalags, sagði
enn fremur að málið snerist ekki
um reynslulausn Franklíns K.
Steiners, heldur um nýtt vanda-
mál sem þjóðin stæði frammi fyr-
ir. „Við höfum ekki búið nógu vel
að þessum málum,“ sagði Mar-
grét.
Sjá nánar á bls. 2
-sm
Franklín
Steiner.
Loðnan:
Veiði í morg-
unsárið
DV, Akureyri:
„Við vorum að koma hingað og
< ^köstuðum strax. Ég held að við
séum með um 100 tonn í þessu
fyrsta kasti,“ sagði Jóhannes Er-
lingsson, vélstjóri á Svani RE 1
morgun, en skipið var þá nýkomið
á loðnumiðin úti af Fáskrúðsfirði.
Bræla var úti af Austurlandi í
gær og nótt og flest skip í landi.
Þau voru hins vegar að tínast á
loðnumiðin í morgun og nokkur
voru búin að kasta fljótlega eftir
að þau komu þangað. Loðnan, sem
virtist vera nokkuð þétt og ekki á
miklu dýpi, var hins vegar á litlu
svæði og því þröngt á þingi á mið-
unum. Því var ekki ljóst í morgun
hvort þama væri um eitthvert um-
talsvert magn að ræða eða minna
magn eins og skipin hafa verið að
“ 'ilnna undanfarna daga.
-gk
Nú má leggja bílum upp á gangstéttir í Reykjavík, samkvæmt fyrirmælum sem lögreglan hefur fengið. Er þá miðað við að ekki meira en fjórðungur bílsins
sé á stéttinni og að hann hindri ekki umferð vegfarenda. Þessi bfll er vel yfir þeim mörkum, eins og sjá má, og eigandinn yrði að punga út dágóðri sekt.
Sjá nánar bls. 2. DV-mynd Hilmar Þór
íslendingar í fangelsum erlendis vegna fíkniefna:
Fjórir teknir
á tæpu ári
Franskur réttargæslumaður hefur
verið skipaður handa íslendingnum
sem tekinn var með 5 kíló af hassi í
Suður-Frakklandi i síðustu viku, að
sögn Sverris Hauks Gunnlaugssonar,
sendiherra íslands í Paris. Sverrir
Haukur sagði að ræðismaður íslend-
inga í Nice hefði fengið leyfi til að
heimsækja manninn í fangelsi í dag
til þess að ræða um stöðu hans.
Eins og DV greindi frá i gær var
maðurinn, sem er tæplega fertugur,
handtekinn 8. febrúar sl. í rútu við
landamæri Frakklands og Spánar eft-
ir að franskir lögreglumenn fundu
hass í bakpoka hans. Maðurinn hefur
síðan setið í fangelsi í borginni Nice.
Handtaka í desember
Þá var karlmaður handtekinn í
byijun desember síðastliðinn og situr
nú í fangelsi í borginni Lingen i
Þýskalandi, rétt við hollensku landa-
mærin. Yfirvöldum er ekki kunnugt
um hvort hann varð uppvís að smygli
á fikniefnum eða hvort mál hans er af
öðrum toga og engar upplýsingar eru
um aldur hans. Ingimundur Sigfús-
son, sendiherra Islands í Borrn, vildi
ekkert um málið segja er DV hafði
samband við hann i gær.
Fjórir í fangelsum
íslensk yfirvöld hafa haft afskipti af
málum fjögurra íslendinga, sem sitja í
fangelsi erlendis, á tæpu ári og að
minnsta kosti þrír þeirra tengjast
fíkniefnamálum. Rúmlega þrítugur ís-
lenskur karlmaður var handtekinn á
Antilla-eyjum í lok október á síðasta
ári fyrir að hafa reynt að smygla 14
kilóum af kókaíni til Amsterdam. Þá
hefur 23 ára íslendingur setið í fang-
elsi í Þýskalandi frá því i apríl eftir að
hann var handtekinn í lest með veru-
legt magn af amfetamíni.
Fleiri Islendingar kunna þó að sitja
i fangelsum erlendis án þess að utan-
ríkisráðuneytið hafi haft bein afskipti
af málum þeirra. -Sól
Veðrið á morgun:
Hvasst og
hlýnandi
Á morgun er gert ráð fyrir
austan hvassviðri og slyddu
norðanlands en breytilegri vind-
átt í öðrum landshlutum. Víða
verður allhvasst og vætusamt.
Veður mun fara hlýnandi.
Veðrið í dag er á bls. 61.
Húsavík:
15 milljóna
fjárdráttur
DV, Akureyri:
Egill Olgeirsson, formaður trún-
aðarráðs Dvalarheimihs aldraðra á
Húsavík, hefur orðið uppvís að þvi
að hafa staðið að fjárdrætti á undan-
fornum 7 árum sem nemur um 8
milljónum króna. Við þá upphæð
bætast vextir og einnig neitar stjórn
heimilisins að greiða reikninga sem
Egill skrifaði á stofnunina í nafni
fyrirtækisins Tækniþjónustunnar
ehf. þar sem hann er einn eigenda og
framkvæmdastjóri. Þegar allt er
talið mun þama vera um að ræða
upphæð sem nemur um 15 milljón-
um króna.
Fjárdrátturinn uppgötvaðist við
endurskoðun reikninga stofnunar-
innar en reikningar hennar höfðu
ekki verið lagðir fram árum saman
og ekki haldnir aðalfundir. Fór fjár-
drátturinn þannig fram að Egill, sem
jafnframt var framkvæmdastjóri
dvalarheimilisins, skrifaði út ávísan-
ir til einkaneyslu og bjó svo til reikn-
inga á dvalarheimilið 1 þeirra stað.
Upp komst um athæfi hans seint á
síðasta ári og sagði Egill þegar af sér
störfum fyrir dvalarheimilið og einn-
ig sagði hann af sér sem stjórnarfor-
maður Kaupfélags Þingeyinga. Málið
er komið til ríkssaksóknara.
-gk
MERKILEGA MERKIVELIN
brother PT-220 n» véi
íslenskir stafir
Taska fylgir
8 leturgeröir, 6 stæröir
6, 9, 12, 18 mm borðar
Prentar í 4 Ifnur
Aðeins kr. 10.925
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport