Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Side 4
4 LAUGARDAGUR 21. MARS 1998 JL>V tiréttir______________________________________ Eyj aQ ar öar s veit: Matthías hefur sigur gegn sveitarstjórninni - fær greiddar 3 milljónir og málarekstur er úr sögunni DV; Akureyri: „Lögmaður minn og lögmaður sveitarstjómarinnar eru svo gott sem búnir að komast að samkomu- lagi um að sveitarstjómin gangi að mínum kröfum og málið verður þvi úr sögunni. Það er nánast frágengið að lyktir málsins verði þessar og það verði þá engin eftirmál frá hvorugum aðilanum," segir Matt- hías Eiðsson, hrossabóndi að Möðrufelli í Eyjafjarðarsveit, en Matthías hefur átt í útistöðum við sveitarstjómina siðan hann keypti jörðina Möðrufell sl. sumar. Sveitarstjómin ógilti sölu fyrri eiganda jarðarinnar til Matthíasar og tók jörðina yfir í nokkra mánuði eftir að hún átti samkvæmt kaup- samningi að vera komin í hendur Matthíasar. Matthías fór með málið fyrir dómstóla og hafði þar ótvíræð- an sigur. Þessi töf á afhendingu jaröarinn- ar til Matthíasr þýddi einnig að sala Matthíasar á mjólkurkvóta jarðar- innar tafðist og Matthías segir að þegar hann gat loks selt kvótann hafi hann lækkað verulega í verði Matthías er landsþekktur hrossabóndi. Hér er hann í hesthúsinu aö Möðru- felli með eitt af folöldum sínum sem fæddist sl. vor. DV-mynd gk frá því sem áður var. Matthías þrjár milljónir króna vegna sölu- krafði sveitarstjómina um samtals tapsins á mjólkurkvótanum og vegna tekjumissis af rekstri jarðar- innar á þeim tima sem sveitar- stjórnin hafði yfirráð á jörðinni. „Þetta er ágæt niðurstaða þó að það sé borðleggjandi að það er ég sem tapa á þessu máli öllu saman, en það er betra að ná niðurstöðu en fara með málið dómstólaleiðina sem myndi taka einhverja mánuði. Ég bíð einhvem skaða af þessu en það verður þá ekki mikið.“ Matthías segir að sér hafi verið vel tekið í sveitinni og hann hafi ekki orðið var við neitt annað. „Ég hef að vísu ekki haft mjög mikil samskipti við sveitungana en þeii- hafa tekið okkur mjög vel og ég hef þá tiffinningu að langflestir séu ánægðir með að við unnum þetta mál. Það má líka alveg koma fram að það vora aðilar í sveitarstjóm sem stóðu alltaf með mér og ég er þvi fólki afar þakklátur. Það vora Jón Jónsson, Ólafur Jensson og Áki Ákason og síðar Elísabet Skarphéð- insdóttir sem tók við að Áka í sveit- arstjórninni. Þetta fólk hafði já- kvæð áhrif á málið þrátt fyrir það hvemig það þróaöist," segir Matthí- as. -gk Akureyri: Nýtt framboð DV, Akureyri: „Þessi vinna er komin í gang af fullri alvöra, þetta er ekki lengur á skoðunarstigi heldur er ákveðið að við munum bjóða fram,“ segir Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Akureyri, en hann er framkvöðull að nýju fram- boði sem ákveðið er að komi fram fyrir bæjarstjórn- arkosningamar í maí. Oddur Helgi sagði aö í vikunni hafi verið haldinn fundur sem ekki var boðað form- lega til heldur lát- ið spyrjast út að hann stæði fyrir dyrum. Þar hefðu mætt yfir 30 manns og endanlega ver- ið gengið frá því að bjóða fram. Fastlega er reiknað með að Oddur Helgi muni skipa efsta sæti listans. Hann skipaði 6. sæti á lista Fram- sóknarflokksins fyrir kosningamar 1994 og tók sæti í bæjarstjóm á miðju kjörtímabili þegar einn bæj- arfulltrúanna flutti úr bænum. Odd- ur Helgi hlaut hins vegar ekki náð fyrir augum uppstillingamefndar flokksins og fuQtrúaráðsins þegar flokkurinn gekk frá lista sínum á dögunum. -gk Oddur Helgi Halldórsson. DV og Landsbankinn ætla á næstu vikum að gefa 70 þúsund litabækur. Börn um allt land geta farið í útibú Lands- bankans eða komiö til DV og umboðsmanna blaösins og fengið að gjöf skemmtilega Anastasiu leikja- og litabök. Litabókin er gefin út í tengslum við frumsýningu teiknimyndarinnar Anastasiu, sem sýnd verður í 7 kvikmyndahús- um um land allt. í bókinni er að finna getraun sem börnin geta skilaö til Landsbankans eða DV, og verölaunin eru ekki af verra taginu - ferð fyrir barnið og fjölskyldu þess til Anastasiueyjunnar undan strönd Flórída. DV-mynd Pjetur Smáratorg: Nýr verslunarkjarni opnaður Á morgun veröur opnaður nýr versl- unarkjarni i Smáralandi í Kópavogi. Þar verður boðið upp á þjónustu ým- issa verslana og fyrirtækja sem þegar eru starfrækt á höfuðborgarsvæðinu. Meðal verslana á hinu nýja Smáratorgi eru: Heilsuhúsið, Gler- augnaverslunin Ég-C, snyrtivöra- verslunin Sandra og Whittard of London. Á Smáratorgi verður einnig starfrækt apótek, kaffihús, matsölustaðir og banki. -glm Bensístöð Esso: 300 þúsund krónum stolið - starfsmaður grunaður Lögreglan rannsakar þjófhað á 300 þúsund krónum í peningum sem stolið var úr peningaskáp á bensín- stöð Esso á Bíldshöfða. Upp komst um þjófnaðinn sl. sunnudag. Ekki virðist sem um inn- brot hafi verið að ræða. Samkvæmt heimildum DV liggur starfsmaður fyrirtækisins undir grun. -RR 4 Kristinn „okkar" íslendingar eignuðust skyndilega nýja íþróttahetju í haust þegar Kristinn Björnsson varð í 2. sæti í heimsbikarmóti á skíöum. Talað var um „strákinn okkar“, eins og gert er um handboltalands- liðið þegar því tekst að sigra. Kristinn Bjömsson gerði sér svo lítið fyrir og varð aftur i 2. sæti í einu móti heims- bikarkeppninnar síðar á keppnis- tímabilinu. Skemmst er frá því að segja að þetta voru einu mótin sem Kristinn lauk keppni í. Ekki það að hann mætti ekki í hin mótin sem vora fjölmörg, brekkum- ar vora bara svo erfiðar að hann datt alltaf eða keyrði út úr brautinni og það gerði hann síðast um síöustu helgi eftir að hafa rennt sér í nokkr- ar sekúndur. Ekki var ástandið svo björgulegra þegar fleiri landar Krist- ins hittu hann á ólympíuleikunum í Japan en þar duttu allir sem einn meö miklum glæsibrag... Gott að vera dómari Mörgum lögmönnum finnst vera orðið heldur þröngt í harkinu á einkamarkaðnum og líta þvi hýru auga til hvers dómaraembættis sem losnar, enda kjör dómara orðin all- bærileg í seinni tíð, eftir að dómarar átt- uðu sig á því að þeir gætu fengiö sjálfa sig dæmda til þess að þola kjarabætur. Meðal lögmanna gengur sú gamansaga að dómari nokkur hefði orðið bráð- kvaddur. Lögmaður nokkur á að hafa fregnað látið á laugardags- kvöldi og strax hringt í Þorstein Pálsson dómsmálaráöherra og boðið sig fram til embættisins og spurt hvort hann ætti ekki bara að taka viö strax á mánudagsmorgninum. - Jú, ætli það ekki, ef útfararstjórinn leyfir, á Þorsteinn að hafa svarað. Eftiröpun Á eftir snillingunum koma oft síðri sporgöngumenn og er það eins í hlátursmálum sem annars staðar. Á X-inu, útvarpsstöðinni sem eitt sinn var fersk, hafa tveir ungir drengir ákveðið að ganga í fótspor Tvi- höfðans góða. Það er mál manna að þáttur Mikaels Torfason- ar og Jóns Atla Jónassonar, Fimmti janúar, geti með sanni talist ein pínlegasta eft- iröpun sem gerð hefur islenskum fjölmiðli en svo langt er gengið að Mikael virðist leggja sig í líma við að ná rödd og áherslum Jóns Gnarr... verið Slysavarnir Slysavamafélagið var með stórfund i Reykjavík um síðustu helgi. Þetta jsætir ekki tíðindum að öðru leyti en því að þama er unniö að því að efla slysavamir á landsvísu öllum til góðs. Nýskipaður varaum- dæmisstjóri SFVÍ á norðanverðum Vest- fjörðum er frú Gígja Tómasdóttir á ísa- firði. Hún kom til síns fyrsta fúndar um slysavarnir um heigina en ekki er svo að sjá að hún hafi ekki meðtekið boðskapinn ;því hún féll niöur stiga og hún fót- brotnaði meðan á slysavarnanám- I skeiðinu stóð. Umdæmisstjórinn j óheppni flaug svo fótbrotinn heim af : slysavarnaþinginu og þótti fórin tíð- I indum sæta í héraði... Umsjón: Reynir Traustason Netfang: sandkorn @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.