Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 21. MARS 1998
49 *
iðsljós
Sumarið '37
frumsýnt
Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi Sumarið ‘37 eftir Jökul
Jakobsson á Stóra sviði Borgarleikhússins á
fimmtudagskvöldið. Leikritið var fyrst sýnt fyrir 30 árum og
þá í gamla Iðnó. Það er fjórða leikrit Jökuls Jakobssonar og
hefur notið mikilla vinsœlda. Nú fœr sýning LR mjög góðar
viótökur og virðist sem Kristínu Jóhannesdóttur hafi tekist
vel upp í leikstjórn sinni. Leikendur verksins eru Ari
Matthíasson, Eggert Þorleifsson, Guðlaug Elísabet
Ólafsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Pétur Einarsson og
Sóley Elíasdóttir. Stígur Steinþórsson sér um leikmynd og
búninga. Lýsing er í höndum Ögmundar Þórs
Jóhannessonar. Ólafur Örn Thoroddsen sér um hljóð.
Pétur Einarsson leikur „gamla“ manninn í Sumrinu, Davíð forstjóra. Hér
tekur hann á móti hamingjuóskum Þórhildar Þorleifsdóttur, leikhússtjóra
Borgarleikhússins, aö lokinni frumsýningu. Það þótti líka ærin ástæða til
að óska Pétri til hamingju því hann fór hreinlega á kostum líkt og aðrir
leikarar í sýningunni. DV-myndir Pjetur
Hilmar Jónsson úr Hafnarfjarðarleikhúsinu kom baksviös til að heilsa upp
á sveitunga sinn úr Hafnarfirðinum og fyrrum kollega, Guölaugu Elísabetu
Ólafsdóttur sem leikur Sigrúnu í Sumrinu. Hilmar á líka taugar til stykkisins
því kona hans, Sóley Elíasdóttir, leikur þar eitt hlutverkanna.
Illugi Jökulsson Jakobssonar var
ánægður með uppfærsluna á
Sumrinu og óskar Hönnu Maríu
Karlsdóttur til hamingju með
frammistöðu sína. Hanna þótti fara
á kostum í hlutverki
vinnukonunnar Önnu sem er á
níræðisaldri.
Það fór vel á með þeim Ara
Matthíassyni, sem leikur Jón,
tengdason Davíðs, og Þorsteini
Gunnarssyni leikara sem lék sama
hlutverk í Iðnó fyrir 30 árum.
Hilmar gefur Kristínu Jóhannes-
dóttur rembingskoss að frumsýn-
ingu lokinni. Kristín er ekki ókunn
verkum Jökuls Jakobssonar. Allir
muna eftir Dómínó.
HUSGOGN
UJL
TATUINIG
• » • • i______
• i
:3=-::iaWg§S&s90ksa;m
" - • | - í
■
Verð frá kr.
dljjJooJ
fyáraákyrtf
TÆKNIBUNAÐUR
Suðurlandsbraat 6 ■ 105 Reykjavlt
Sími 553 0600 • Fax 581 3035