Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Blaðsíða 40
'imm
4 48
LAUGARDAGUR 21. MARS 1998 DV
Keiluíþróttin á sár ekki ianga sögu hér á landi:
*
>
ur snúið. Eg var búin að fá bakter-
íuna eins og svo margir aðrir.
Sumir segja að þetta sé eins og
hver önnur fikn, maður ánetj-
ast keilunni. En það er auðvit-
að
fyrst og fremst
félagsskapur-
inn sem maður
sækir í og
spennan sem
fylgir hverri
keppni," seg-
ir Ragna.
„Liðs-
menn í Aft-
urgöngunum
eru auk mín
Heiðrún Þor-
björnsdóttir,
Jóna Gunnars-
dóttir,
Ágústa
Þor-
steinsdótt-
ir og
Ragnheið-
ur Þorgils-
dóttir. Við erum mjög sam-
heldinn hópur. Fyrir utan
keiluíþróttina sjálfa förum
við oft út að borða saman eða
hittumst heima hjá einhverri
okkar. Einnig höfum við ferðast
töluvert saman, farið á mót er-
lendis, bæði á vegum landsliðsins
og líka á eigin vegum, til dæmis til
Englands og Möltu.
Keilan er upplögð íþrótt fyrir
alla. Hún er til dæmis tilvalin fyrir
vinnufélaga sem vilja gera eitthvað
skemmtilegt fyrir utan vinnuna og
einnig er tilvalið fyrir fjölskylduna
að spila saman. Einn stærsti kostur-
inn við keiluna sem íþrótt er að
hana er hægt að stunda mestalla
lífsleiðina. Við stelpumar í Aftur-
göngunum erum á öllum aldri, sú
yngsta er 28 ára og sú elsta 55 ára.
Hins vegar er áberandi að karlar
eru mun fleiri en konur í keilu,
enda keppt í fjórum karladeildum
en aðeins einni kvennadeild. Við
skorum hér með á konur á öllum
aldri að drífa sig
af stað í keilu
og sann-
reyna hvað
þetta er
skemmtileg
íþrótt.
Það er verst hve margir vita ekk-
ert eða lítið um þessa íþrótt. Þar er
sennilega um að kenna að erfiðlega
gengur að fá umljöllun um hana í
fjölmiðlum. Keila er mjög ung
keppnisíþrótt sem hefur verið að
byggjast upp á síðustu árum og von-
andi stendur þetta til bóta með sí-
vaxandi áhuga almennings.
Tilsögn í keilu var mjög takmörk-
uð á þeim árum þegar ég var að
byrja. Fólk reyndi að hjálpa hvað
öðru án þess að hafa mikla þekk-
ingu aðra en eigin reynslu. í dag
hefur þetta breyst mikið. Eftir að
Keilufélag Reykjavíkur, sem er elsta
keilufélagið, var stofnað árið 1985
var lögð meiri áhersla á að fá þjálf-
ara erlendis frá. Einnig var ung-
lingastarfið eflt mjög þó að það hafi
farið rólega af stað. Það sem aðal-
lega háir unglingastarfinu i dag er
aðstöðuleysi. Félagið þyrfti helst að
reka eigin keilusal ef vel ætti að
vera.“
Á íslandi eru nú 4 salir þar sem
hægt er að spila keilu. Tveir þeirra
eru í Reykjavík, Keilusalurinn á
Öskjuhlíð og Keilusalurinn í Mjódd.
Einn keilusalur er í Reykjanesbæ
(Keflavík) og sá fjórði á svæði varn-
arliðsmanna við Keflavíkurflugvöll.
Iðkendurnir hafa því fram að þessu
mestmegnis verið bundnir við þau
svæði. Þó er eitt keilufélag á Akra-
nesi en á landinu eru starfrækt 11
keilufélög. Keilusamband íslands
var stofnað 29. júní árið 1992.
Mót erlendis
„Við reynum að æfa reglulega
eins og kostur er. Æfingar hjá okk-
ur í Afturgöngunum eru einu sinni
i viku og þar fyrir utan reynum við
að æfa og/eða keppa hver fyrir sig.
Við höfum óskaplega gaman af
þessu, enda eru margir sætir sigrar
að baki. Sætastir eru sigramir sem
unnist hafa með litlum mun og ekki
ráðist úrslit fyrr en síðasta skot er
búið.
Um þessar mundir er fram undan
úrslitakeppni fjögurra efstu liðanna
í kvennadeildinni en við enduðum
reyndar í öðru sæti í liðakeppninni.
Meðalskor liðsins er rúmlega 171
keila í leik og erum við ekki nægi-
lega ánægðar með það. í fyrra þegar
við urðum íslandsmeistarcLr var
meðalskorið á milli 174 og 175,“ seg-
ir Ragna.
Ú&k TM - HÚSGÖGN
Síöumúla 30 - Sími 568 6822
í myndarlegu verðlaunagripasafni
Afturgangnanna eru um 60 gripir
sem unnist hafa á siöasta áratug.
| Dýnur eftir máli, margar gerðir og útfœrslur
Sumir segja að keila sé eins og hver önnur fíkn, auðvelt sé að ánetjast henni.
DV-myndir Pjetur
3000 m! sýningarsalur
Opið:
Virka daga: 9-18
Laugardaga: 10 - 16
Sunnudaga: 14 - 16
Ein er sú íþrótt hér á landi sem á
sér ekki nema rúmlega áratugs
langa sögu en það er keilan („bow-
ling“). Iðkendur og keppendur í
keilu eru orðnir fjölmargir hérlend-
is og hefur íþróttin átt vaxandi fylgi
að fagna. í dag er keppt reglulega í
viku hverri í 4 karladeildum með 48
liðum og i einni kvennadeild með 10
liðum og lætur nærri að keppendur
séu um 500 talsins. Iðkendur keilu
hér á landi skipta hins vegar þús-
undum ef einnig eru taldir með þeir
sem gripa i keilu sér til skemmtun-
ar án þess að taka þátt i liðakeppni.
Fjölmargir hafa náð töluverðum
tökum á íþróttinni og hafa verið sig-
ursælir undanfarin ár. Sennilega er
þó á fáa hallað þegar því er haldið
fram að sigursælasta lið landsins í
keilu sé hópur kvenna sem kallar
sig Afturgöngurnar. Þær byrjuðu að
keppa sem lið veturinn 1987-88 og
hafa verið með í deildakeppni
kvenna á hverju ári síðan.
Á þeim 10 árum sem Afturgöng-
urnar hafa keppt í kvennadeildinni
hafa þær 9 sinnum orðið íslands-
meistarar, 9 sinnum bikarmeistar-
ar, 7 sinnum hampað sigri í meist-
arakeppni og fjórum sinnum hafa
einstaklingar úr hópnum orðið ís-
landsmeistarar einstak-
linga. Afturgöngurnar
eiga einnig íslandsmet
14x1, 4x2 og 4x3
leikjum. Verðlauna-
safn liðsins er orðið ansi
myndarlegt, í því eru 60
verðlaunagripir fyrir utan
alla verðlaunapening-
ana. Hið myndarlega
verðlaunasafn liðsins
getur að lita á
myndinni hér
neðar á siðunni.
Fljót að fá
bakteríuna
Ragna Matthí-
asdóttir, ritari hjá
ístaki, hefur verið
leikmaður í Aftur-
göngunum frá upp-
hafi. „Það var eigin-
lega hálfgerð tilviljun
að ég fór að spila keilu
Kunningi minn plataði
mig einu sinni með
sér að prófa og eftir að
hafa farið tvisvar með
honum varð ekki aft-
Fram undan...
28. mars:
Marsmaraþon
Hlaupið hefst klukkan 11.00 á
Seltjarnamesi. Upplýsingar um
hlaupið gefur Pétur Frantzson í
síma 551 4096.
23. apríl:
Víðavangshlaup ÍR
Hlaupið hefst Wukkan 13.00
við Ráðhús Reykjavíkur. Vega-
■ lengd er 5 km með tímatöku.
/ Fiokkaskipting eftir kynjum.
Keppnisflokkar í sveitakeppni
eru íþróttafélög, skokkklúbbar
og opinn flokkur. Allir sem
Ijúka keppni fá verðlaunapen-
I ing. Verðlaun fyrir fyrsta sæti í
hverjum aldursflokki. Boðið
verður upp á kaffihlaðborð eftir
| hlaup. Skráning í Ráðhúsinu
: frá klukkan 11.00. Upplýsingar
gefa Kjartan Árnason í síma
| 587 2361, Hafsteinn Óskarsson í
s. 557 2373 og Gunnar Páll
Jóakimsson í s. 565 6228.
23. apríl:
Víðavangshlaup
Hafnarfjarðar
Hlaupið hefst á Víðistaðatúni
| í Hafnarfirði. Vegalengdir eru 1
km, 1,4 km og 2 km með tíma-
1 töku og flokkaskiptingu bæði
kyn. Sigurvegari í hverjum
flokki fær farandbikar. Upplýs-
ingar gefur Sigurður Haralds-
son í síma 565 1114.
23. apnl:
Víðavangshlaup Vöku
Upplýsingar um hlaupið gef-
ur Aðalsteinn Sveinsson í síma
486 3304.
26. apríl:
ísfuglshlaup UMFA
Hlaupið hefst við íþróttahús-
| ið að Varmá, Mosfellsbæ.
: Skráning og búningsaðstaða
við sundlaug Varmár frá kl.
9.30. Vegalengdir 3 km án tíma-
töku (hefst klukkan 13.00) og 8
km með tímatöku og sveita-
keppni (hefst kl. 12.45). Sveita-
1 keppni: opinn flokkur, 3 eða 5 í
I hverri sveit. Allir sem ljúka
keppni fá verðlaunapening. Út-
dráttarverðlaun. Upplýsingar
I gefur Kristín Egilsdóttir í síma
566 7261.
Marsmaraþonið er í næstu viku:
Spennandi
fyrir áhorfendur
Næsta laugardag fer fram fyrsta
heilmaraþonkeppnin hér á landi
sem haldin hefur verið að vetr-
arlagi, Marsmaraþonið 28. mars.
Búist er við fjölmörgum þátttakend-
um í hlaupið en skipuleggjendur
þess telja að keppendur verði eitt-
hvað yfir annan tuginn. Það verður
að teljast verulega góð þátttaka að
svo margir skuli treysta sér í svo
erfitt hlaup á þessum tíma ársins.
Eflaust verður mjög spennandi
fyrir áhorfendur að fylgjast með
hlaupinu. Það verður ræst klukkan
11 á Seltjarnarnesi og hægt er að
fylgjast með keppendum á mörgum
stöðum. Við Ægisíðu verður upplýs-
ingarúta þar sem fylgst verður með
stöðunni en á hverri drykkjarstöð
eru farsímar og gefnar þaðan upp-
lýsingar um innbyrðis stöðu kepp-
enda. Upplagt er einnig að fylgjast
með hlaupinu frá einhverri drykkj-
arstöðvanna á leiðinni, til dæmis
við Gullinbrú eða veitingastaðinn
Sprengisand. Hlaupurunum er það
mikils virði að fá hvatningu frá
áhorfendum á leiðinni.
Umsjón
ísak Öm Sigurðsson