Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Blaðsíða 55
I>V LAUGARDAGUR 21. MARS 1998
63
Hinrik Guðmundsson
Hinrik Guðmundsson bruggunar-
verkfræðingur, Heiðargerði 13,
Reykjavík, er áttræður í dag.
Starfsferill
Hinrik fæddist á Þórarinsstöðum
í Hrunamannahreppi. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR 1938 og próf-
um í bruggunarverkfræði frá TH í
Múnchen 1942.
Hinrik var verkfræðingur hjá
Stralsundische Vereinsbrauerei í
Stralsund í Þýskalandi 1942^43, hjá
De Forenede Bryggerier A/S í
Kaupmannahöfn 1943^45, verk-
smiðjustjóri hjá Ölgerðinni Agli
Skallagrimssyni hf. í Reykjavík
1946-53, var framkvæmdastjóri
Verkfræðingafélags Islands frá 1953
og annaðist jafnframt daglegan
rekstur Stéttarfélags verkfræðinga,
lifeyrissjóðs Verkfræðingafélags Is-
lands til 1980 og tímarits Verkfræð-
ingafélagsins.
Hinrik sat í stjóm líf-
eyrissjóðs VFÍ 1954-79, er
félagi í Club ausland-
ischer Weihenstephaner,
félagi erlendra stúdenta í
bruggunarverkfræði við
TH um allan heim og var
formaður félagsins
1941^42. Hann gerði stofn-
kostnaðar- og reksturs-
áætlanir fyrir sykur-
hreinsunarstöð á íslandi
með hagnýtingu jarð-
varma fyrir augum
1962-75 og beitti sér fyrir
nánari athugun þessa möguleika
1975-78. Þá stofnaði hann, ásamt
öðrum, Áhugafélag um sykuriðnað
hf. 1978 til þess að vinna að fullnað-
arathugun þessa máls í samvinnu
við Finnska Socker AB. Hann var
formaður Áhugafélags um sykur-
iðnað hf. frá 1978.
Hinrik er heiðursfélagi
Verkfræðingafélags ís-
lands frá 1992 og heiðurs-
félagi Stéttarfélags verk-
fræðinga frá 1994.
Fjölskylda
Hinrik kvæntist 19.2.
1944 Judith A. Guð-
mundsson, f. á Skipanesi
í. Færeyjum 12.6. 1917,
húsmóður. Hún er dóttir
Joen Frederik Skibenæs,
f. 13.7. 1883, d. 3.3. 1955,
kaupmanns á Skipanesi í
Færeyjum, og k.h., Jóhönnu Jacob-
sen Skibenæs, f. 3.10. 1878, d. 14.5.
1976, húsmóður.
Börn Hinriks og Judith eru Guð-
mundur, f. 14.6. 1944, listmálari; Jó-
hann, f. 28.11. 1945, bókasafnsfræð-
ingur á ísafirði, kvæntur Sigríði
Steinunni Axelsdóttur kennara.
Foreldrar Hinriks voru Guð-
mundur Kristinn Ögmundsson, f.
29.7. 1888, d. 20.5. 1952, bóndi á Hofi
á Skagaströnd og víðar, síðar mál-
ari í Reykjavík og gipssteypumaður
hjá Einari Jónssyni myndhöggvara
og kona Guðmundar, Margrét Hin-
riksdóttir, f. 6.10. 1892, d. 19.3. 1963,
húsmóðir.
Ætt
Guðmundur var sonur Ögmundar
Sveinbjömssonar, bónda á Þórar-
insstöðum í Hrunamannahreppi, og
k.h., Jóhanna Guðmundsdóttir frá
Stóra-Fljóti í Biskupstungum.
Margrét var dóttir Hinriks Magn-
ússonar, að Orrastöðum í Ásum í
Austur-Húnavatnssýslu, síðar að
Tindum í Svínavatnshreppi og loks
að Hofi á Skagaströnd, og k.h., Sól-
veigar Eysteinsdóttur.
Hinrik
Guömundsson.
Aðalsteinn D. Stefánsson
Aðalsteinn Dalmann Stefánsson,
starfsmaður Reykjavíkurborgar,
Kóngsbakka 6, Reykjavík, verður
fertugur á morgun.
Starfsferill
Aðalsteinn fæddist á Akureyri og
ólst þar upp til sex ára aldurs en
síðan í Sandvík í Bárðardal til
fimmtán ára aldurs. Hann var í
Barnaskólanum í Bárðardal og síð-
an í unglingaskólanum í Ljósa-
vatnshreppi.
Aðalsteinn flutti með móður
sinni og fósturfóður í Garðabæinn
er hann var fimmtán ára. Þar gekk
hann í Gagnfræðaskóla Garðabæj-
ar, stundaði síðan nám við Iðnskól-
ann í Hafnarfirði og lauk prófum
þaðan, lærði húsgagnasmíði hjá
Ingvari og Gylfa og lauk sveinsprófi
í þeirri grein.
Aðalsteinn starfaði í Trésmiöj-
unni Víði í sjö ár, vann hjá Ingvari
og Gylfa í þrjú ár, starfaði síðan hjá
Húsasmiðjunni í fimm og hálft ár
en hefur verið starfsmaður Reykja-
víkurborgar sl. þrjú ár.
Fjölskylda
Aðalsteinn kvæntist 7.7. 1984 Þór-
dísi Másdóttur, f. 30.7. 1958, sjúkra-
liða. Hún er dóttir Más Ársælsson-
ar, kennara við Tækniskóla íslands,
og k.h., Lilju Kristjánsdóttur, rann-
sóknarmanns við Lyfjaverslun rík-
isins.
Börn Aðalsteins og
Þórdísar eru Hildur Að-
alsteinsdóttir, f. 15.11.
1983, nemi; Valný Aðal-
steinsdóttir, f. 2.6. 1985,
nemi; Ottó Freyr Aðal-
steinsson, f. 14.9. 1989;
óskírð Aðalsteinsdóttir,
f. 7.3. 1998
Hálfbróðir Aðalsteins
er Gunnar Hrafn Gunn-
arsson, sölumaður hjá
Póstdreifingu, búsettur í
Reykjavík.
Hálfsystkini Aðal-
steins, sammæðra, eru Inga Hildur
Yngvadóttir, f. 28.2. 1964, snyrtisér-
fræðingur, búsett í Garðabæ; Gunn-
ar Jón Yngvason, f. 20.6. 1965, fyrir-
tækjasali, búsettur í Reykjavík;
Þóra Valný Yngvadóttir, f. 7.11.
1966, markaðs- og ferða-
málafræðingur, búsett í
Englandi.
Foreldrar Aðalsteins:
Stefán Manasesson, f.
25.3. 1925, nú látinn,
verkamaður í Reykjavík,
og Ástheiður Guðmunds-
dóttir, f. 27.6. 1940, hús-
móðir.
Fósturfaðir Aðalsteins
var Yngvi M. Gunnars-
son, f. 23.6. 1915, nú
látinn, bóndi að Sandvík,
síðar verkamaður, búsett-
ur í Garðabæ.
Aðalsteinn og Þórdís halda upp á
afmælið síðar.
Aðalsteinn Dalmann
Stefánsson.
Bílakynning hjá B&L um helgina:
Fjölnotabílar
frá Kóreu
Bifreiðar og landúnaðarvélar
kynna um helgina tvo kóreska
Hyundai-fjölnotabíla, Atos, sem er
lítill en rúmgóður bíll, svipaðrar
stærðar og Mercedes Benz, gerð A,
og annan stærri, Hyundai H1 sem
er 7 manna fjölskyldu- og ferðabíll.
Atos-billinn er mjög rúmgóður
miðað við ytri mál og hannaður
með þarfir fjölskyldufólks og ann-
arra sem þurfa á bil að halda með
miklu alhliða notagildi.
H1 bíllinn er nokkru stærri og
innréttingu hans og stólaskipan má
breyta og raða upp á marga vegu
eftir þörfum. Minni bíllinn kostar
frá tæplega 940 þúsundum og upp
undir milljón. Sá stærri kostar frá
2.048 þús. krónum.
-SÁ
Nýjustu íþróttafréttir,
úrslit og spennandi
umfjöllun.
Alla mánudaga
segir allt sem segja þarf
0mæli
Hl hamingju með
afmælið 22. mars
95 ára
Ingibjörg
Kristmundsd.,
ljósmóðir frá
Drangsnesi,
nú til heimilis að
Skjólbraut la, Kópavogi.
Eiginmaður Ingibjargar var
Jón Guðmundsson sem lést
1971. Hún tekur á móti gestum
í Gjábakka, félagsheimili
aldraðra, Fannborg 8,
Kópavogi, sunnud. 22.3. kl.
15.00-19.00.
80 ára
Sofíía Jónsdóttir,
Sævangi 15, Hafnarfirði.
Eiginmaður hennar er Jón
Vignir Jónsson forstjóri.
Þau taka á móti gestum í
Skútunni í Hafnarfirði,
sunnud. 22.3. eftir kl. 15.00.
Ingvi Ámason,
Eyrarvegi 27a, Akureyri.
Laufey Guðlaugsdóttir,
Mýrargötu 18a, Neskaupstað.
75 ára
Guðlaug Helga
Meyvatnsdóttir,
Höfða, Akranesi.
Hún er að heiman
á afmælisdaginn.
Agnar Tómasson,
Laxagötu 8, Akureyri.
Torfi Þ. Guðbrandsson,
Bogahlíð 12, Reykjavík.
70 ára
Eiríkur Kúld Jóhannsson,
Brekkugötu 21, Akureyri.
Gerður Gunnlaugsdóttir,
Ljósheimum 12a, Reykjavík.
Guðmundur Sigjónsson,
Bröttugötu 3, Vestm.eyjum.
Gunnar Kristjánsson,
Baugholti 12, Keflavík.
Sigríður Böðvarsdóttir,
Árgötu 12, Húsavík.
Sigurður Eiríksson,
Garöafelli, Eyrarbakka.
60 ára
Arnbjörg Þórðardóttir,
Kirkjuvegi 33, Selfossi.
Eiginmaður hennar er
Guðmundur Jóhannsson.
Þau taka á móti gestum í
félagsheimili Karlakórs
Selfoss, Gagnheiði 3, sunnud.
22.3. eftir kl. 15.00.
Herta J. Ágústsdóttir,
Oddabraut 15, Þorlákshöfn.
Margrét S. Guðjónsdóttir,
Laugavegi 60, Reykjavík.
Örn Einarsson,
Einholti 3, Akureyi’i.
50 ára
Albert Sigtryggsson,
Barmahlíð 5, Reykjavík.
Ámi Sædal Geirsson,
Brautarholti 10, ísafirði.
Bjarni Magnússon,
Neðstaleiti 9, Reykjavík.
Guðríður Hannesdóttir,
Brekkustíg 7, Ólafsvík.
Helga Benediktsdóttir,
Þórufelli 6, Reykjavik.
Kristjana J.Ragnarsdóttir,
Breiöuvík 7, Reykjavík.
Ómar Jóhannsson,
Barónsstíg 51, Reykjavík.
Sigurbjörn Jóhannsson,
Lindargötu 12, Siglufirði.
40 ára
Stefán Ragnar
Jónsson,
Vesturbrún 17,
Reykjavík. Hann
tekur á móti gestum
að heimili sínu sunnud. 22.3.
milli kl 15 og 18.
Ámi Stefán Árnason,
Sandbakka 9, Höfn.
Flosi Guðmundsson,
Stóragerði 11, Reykjavík.
Jóhann Geirsson,
Bjarmastíg 1, Akureyri.