Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Blaðsíða 16
LAUGARDAGUR 21. MARS 1998
i6 fyrir 15 árum
Tvisvar rekinn út af fyrir kjaftbrúk í blakleik - fáheyrðir atburðir í íþróttinni:
Eg fór yfir strikið
- viðurkennir Samúel Örn Erlingsson íþróttafréttamaður, 15 árum síðar!
„Sá fátíði atburður gerðist í Haga-
skóla í gærkvöld að leikmaður var
rekinn út af í blakleik."
Þannig hófst lítil frétt á íþrótta-
síðum DV þann 17. mars 1983 sem
þáverandi blaðamaður DV og nú-
verandi fréttamaður Stöðvar 2,
Kristján Már Unnarsson, skrifaði
um Samúel Örn Erlingsson, þáver-
andi leikmann og þjálfara HK í
blaki og núverandi íþróttafrétta-
mann Sjónvarps. í fréttinni kom
jafnframt fram að þetta hefði aðeins
verið fjórði brottreksturinn i sögu
blaks á Islandi.
Samúel var rekinn út af fyrir „að
brúka kjaft og vera sífellt með nöld-
ur allan leikinn" eins og haft var eft-
ir dómara leiksins í frétt Kristjáns.
Við heyrðum í köppunum í vik-
unni og fengum þá til að rifja þetta
upp. Samúel Öm sagðist geta hlegið
núna en þegar hann hefði
fyrst lesið fréttina
á sínum tíma
hefði honum
ekki verið
skemmt.
Hugsaði hann
Kristjáni Má
þegjandi þörfma
þar sem hann
hefði þá spilað
blak með erki-
fjendunum í Fram
í sama liði og um-
ræddur dómari! „Honum hefur
áreiðanlega ekki leiðst að skrifa
átttw'
Samuel Orn Erlingsson og Kristján Már Unnarsson voru samherjar í blaklandsliöinu á sín-
um tíma en mótherjar annars. Þeir brugðu á leik fyrir Ijósmyndara DV í vikunni og lyftu upp
rauða spjaldinu. DV-mynd Pjetur
fréttina. Á þessum tíma fannst mér
þetta ekki frétt en í dag er ég á öðru
máli. Kristján hafði nef fyrir góðum
fréttum og hefur enn.“
Samúel sagðist í dag viðurkenna
að hafa farið yfir
strikið í þessum
leik. Þetta var
reyndar ekki í
síðasta sinn
sem Samúel
fékk
reisupass-
ann í blak-
leik. Tveimur
eða þremur árum seinna
var hann aftur rekinn út af, og enn
fyrir kjaftbrúk við dómarann - og
enn skrifaði Kristján frétt!
Kristján Már sagði
fréttimar einfaldlega
bera með sér að um fá-
heyrða atburði hefði
verið að ræða. Engar
aðrar hvatir hefðu leg-
ið að baki. í blaki, ólíkt
öðrum boltaíþróttum,
fengju menn tvær
áminningar áður en til
brottreksturs kæmi,
fyrst gula spjaldið, síð-
an það rauða og loks
bæði í einu.
„Ég gætti fyllsta
hlutleysis sem blaða-
maður. í ljósi þess
hversu brottrekstur í
blaki er fátíður hefði
fréttin átt að vera upp-
sláttur íþróttasíðunn-
ar. Líklega má Samúel
bara þakka mér fyrir
að hún fór bara i ein-
dálk,“ sagði Kristján
Már og glotti en hann
lék lengi með Fram í
blaki og þeir Samúel
voru m.a.s. herbergis-
félagar í landsliðsferð
til Faereyja á sínum
tíma.
s - «.
i SamúelOm
, rekinn af ,
' leikvelli
. — fjóröi brottreksturínn í
I sögu blaks á íslandi
, Sá fátíM atburður gerðist í Hagaskóla i gaerkvöldi aft
lelkmaðor varrekínn 6t af í biaklcík. GerNat þetta f loka- i
hrina leiks HK og Þróttar i undanárslitum bikarkeppnlf
\karia.
Sá sem varö þessa vafasama beiöars aðnjótandi er ]
jSamóel örn Erlingssoa, fþróttaíréttamaöur útvarps og 1
jTímans, en bana er fyríriiöi og þjálfari HK-liðstns og aok|
'þess landsliðsmaöor i WafcL Samód var reklnn af ieík-
vdli ^yrír að brúka kjaft og vera sífellt mcð noidur allan £
'lelfcinn,” efna og dómarínn,Sígurftur Björasson, orftaöi
W
Það þyklr jafnan fréttiuemt þegar maður er refcínn út
af í blafcleik. SUkt gerist aíar sjaldan, sem sést beat á þvi
jaö Samnd örn er fjóröi leikmaðurinn sem t*r aö sjá btM
; gnla og ranfta spjaldiö á lofti i ehra f rá því bialdöknn bófst Á
Blakleiknnm Lauk annare meö öruggum sígrl Þróttar,
Í-9. Hrinnrnar fóru lS-g, 15-2 og 15-7. Þróttnr miettr
því ÍS i blkarúrslitaleik naatkomandi aunnudag. —KMU.
Úrklippan úr DV 17. mars 1983 þar
sem greint er frá brottrekstrinum ó
Samúel Erni.
Báðir í „öldungablaki"
I dag spila þeir „öldungablak"
þegar tími gefst til og munu líklega
mætast á „öldungamóti“ á Sigluíirði
innan skamms. Samúel lék með
þremur liðum í blakinu í 1. deild;
Laugdælingum, Þrótti og HK, á ár-
unum 1978-1996 að undanskildu
tímabilinu 1988-1992 að hann tók
sér frí. Hann varð 10 sinnum ís-
landsmeistari og nokkrum sinnum
bikarmeistari. Landsleikirnir urðu
hátt í 20.
Kristján Már lék með Fram á
árunum 1980-1990. Ekki náði hann
íslands- né bikarmeistaratitli enda
báru Þróttarar ægishjálm yfir önn-
ur lið á þessum árum. Best náðu
Framarar öðru sæti eftir úrslitaleik
við Þróttara. „Við höfum verið betri
í öldungablakinu og tökum þá á
Sigiufirði," sagði Kristján Már.
-bjb
METSÖLUBÆKUR
BRETLAND
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Patrlcia Cornwell: Hornet's Nest.
2. Helen Fieldlng: Bridget Jone's Diary.
3. John Grlsham: The Partner.
4. Catherine Cookson: Bondage of Love.
5. Mlnette Walters: The Echo.
6. Marlan Keyes: Rachel's Holiday.
7. Louls de Bernleres: Captain Corelli’s
Mandolin.
8. Lesley Pearse: Rosie.
9. Gerald Seymour: Killing Ground.
10. Josephine Cox: Miss You Forever.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Paul Wilson: The Little Book of Calm.
2. Frank McCourt: Angela's Ashes.
3. John Gray: Men Are from Mars, Women
Are from Venus.
4. Blll Bryson: Notes from a Small Island.
5. Brian J. Robb: The Leonardo DiCaprio
Album.
6. Ed Marsh & Douglas Kirkland: James
Cameron’s Titanic.
7. Ýmslr: The Little Book of Love.
8. Seymour Hersh: The Dark Side of
Camelot.
9. Grlff Rhys Jones: The Nation's
Favourite Poems.
10. Walter Lord: A Night to Remember.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Wllllam Boyd: Armadillo.
2. Joanna Trollope: Other People's
Children.
3. Cathertne Cookson: The Solace of Sin.
4. Kathy Reichs: Déja Dead.
5. Dorothy L. Sayers/Jill Paton Walsh:
Thrones Dominations.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Peter Ackroyd: The Life of Thomas
More.
2. Ted Hughes: Birthday Letters.
3. Blll Bryson: A Walk in the Woods
.4. Geoff Tiballs: Titanic: The
Extraordinary Story.
5. Dlckle Blrd: My Autobiography.
(Byggt á The Sunday Times)
BANDARÍKIN
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
bókaormurinn
Gerpla lettir lundina
- segir Guðrún Sederholm, námsráðgjafi í MS
„Ég les alltaf aftur og aftur sömu
bækurnar ög á mér eina sérstaka
uppáhaldsbók, Gerplu. Hún er alltaf
skemmtileg og góð til þess að lyfta
mér upp úr hvunndeginum þegar ég
er þreytt eða illa fyrir kölluð. Bókin
kitlar hláturtaugarnar og virkar á
mig eins og besta meðferð," segir
Guðrún Sederholm, námsráðgjafi í
Menntaskólanum við Sund, bóka-
ormur vikunnar.
Guðrún segist lesa allt eftir Lax-
ness þótt bækur eins og Salka
Valka og Gerpla séu í uppáhaldi.
Hún hefur dálæti á Einari Má Guð-
mundssyni og les einnig mikið eft-
ir Bjöm Th. Björnsson.
„Ég hef gaman af því að lesa
verk Böðvars Guðmundssonar og
las t.a.m. nýverið Híbýli vindanna
og Lífsins tré og hafði mjög gam-
an af. Ekki síður hef ég gaman af
því að lesa ljóð fóður hans, Guð-
mundar Böðvarssonar frá Kirkju-
bóli. Bók Silju Aðalsteinsdóttur um
Guðmund, Skáldið sem sólin kyssti,
er í miklu uppáhaldi hjá mér,“ seg-
ir Guðrún.
Bókaormur vikunnar segist
gjaman taka sig til og lesa svolitla
heimspeki og segir raunar að fólk
eigi að gera meira af því að glugga í
slíkar bókmenntir, sér til
hressingar og sáluhjálp
ar.
„Að auki finnst
mér nauðsynlegt að
líta í annað en það
sem ég geri almennt.
Fyrir jólin tók ég mig
til dæmis til og las bók
eftir ungan rithöf-
und til þess að
sjá hvað væri
að ger-
lega opinskáum kynlífslýsingum
þar sem Didda fer svolítið nýja leið
til þess að lýsa lífi ungrar stúlku.
Það heppnast að mínu mati.“
Aðspurð hvort hún lesi
bækur eftir erlenda höfunda
segist Guðrún gera það. Hún
velji sér þó aðallega sögur
þar sem verið sé að lýsa að-
stæðum fjölskyldna á
ákveðnum stöð-
um. Eina
bók
ast
hjá unga
fólkinu.
Bókin
heitir Erta
og er eftir
Diddu. Þetta
er bók með ákaf-
haldi nefnir hún, SugcU'street eftir
Naguib Mahfouz. Þetta segir hún
vera bók frá 1957 þar sem lýst sé lífi
egypskrar fjölskyldu. Af öðram er-
lendum höfundum nefnir hún Amy
Tan, Allende og Marquez sem höf-
unda sem hún sæki í.
„Hemingway er eitt af þeim
skáldum sem ég gríp alltaf í annað
slagið. Ég á fyrstu þýðingu Laxness
af Vopnin kvödd og finnst gott að
lesa hana aftur og aftur. Ég get les-
ið sömu bækurnar aftur og aftur ef
verkin eru þess eðlis að þau geti gef-
ið manni eitthvað í hvert sinn, vel
skrifuð og samin þannig að allt
gengur upp.“
Guðrún segist lesa margt tengt
starfi sínu sem námsráðgjafi og ljóð-
in reglulega í bland við annað. Hún
segist alltaf vera að lesa og vanda-
málið sé að allt sé að fyllast af
bókum hjá henni.
„Ég er alæta á bækur og les
allt nema vísindaskáldsögm'.
Þær finnst mér leiðinlegar," seg-
ir Guðrún Sederholm og skorar
um leið á Auði Guðjónsdóttur, ís-
lenskukennara í FB, að vera næsti
bókaormur.
1. John Grisham: The Partner.
2. Nicholas Sparks: The Notebook.
3. Robert B. Parker: Small Vices.
4. Patricia Cornwell: Hornet's Nest.
5. Mlchael Connelly: Trunk Music.
6. Alicla Hotfman: Here on Earth.
7. John Case: The Genesis Code.
8. LaVyrle Spencer: Small Town Girl.
9. Danlel Sllva: The Unlikely Spy.
10. Danlelle Steel: The Ranch.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Rlchard Carlson: Don't Sweat the
Small Stuff.
2. Grace Catalano: Leonardo: A Scrap-
book in Words & Pictures.
3. Walter Lord: A Night to Remember.
4. Robert Atkln: Dr. Atkins' New Diet
Revolution.
5. Grace Catalano: Leonardo DiCaprio:
Modern Day Romeo.
6. Frances Mayes: Underthe Tuscan Sun.
7. Ýmslr: Chicken Soup for the Teenage
Soul.
8. Rlc Edeiman: The Truth About Money.
9. Walter Urd: The Night Lives On.
10. James McBrlde: The Color of Water.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. John Grlsham: The Street Lawyer.
2. Tony Morrison: Paradise.
3. Charies Frazlen Cold Mountain.
4. Bebe Moore Campbell: Singing in the
Comeback Choir.
5. Arthur Golden: Memories of a Geisha.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. James Van Praagh: Talking to Heaven.
2. Sarah Ban Breathnach: Simple Abun-
dance.
3. Mltch Albom: Tuesdays with Morrie.
4. Ric Edelman: The New Rules of Money.
5. John Brendt: Midnight in the Garden og
Good and Evel.
(Byggt á Washington Post)