Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Blaðsíða 32
32 ffeelgarviðtalið
LAUGARDAGUR 21. MARS 1998
„Photo: Anna Palma“. Á þessi fáu og smáu orð rakst kunn-
ingi okkar nýlega er hann var að fletta hinu heimskunna
tímariti Newsweek. Eitthvað fannst okkur við kannast við
nafnið. Og þarna var ekki verið að merkja neina smámynd í
þessu víðlesna tímariti heldur sjálfa forsíðuna. Jú, við
komumst að því að þarna væri á ferðinni Ijósmyndarinn
Anna T. Pálmadóttir sem undanfarin ár hefur starfað í New
York. Á sínum tíma starfaði hún á Ijósmyndadeild DV og því
var okkur málið svolítið skylt. En það er langur og torsóttur
vegur frá myrkrakompu dagsblaðs á íslandi á forsiður tíma-
rita á borð við Newsweek. Til að forvitnast um hvernig hún
fór þessa leið slógum við á þráðinn til Önnu einn morguninn.
Sólin var þá komin upp á Manhattan og þegar Ánna fékk að
heyra frosttölurnar heima á íslandi fór um hana hrollur.
myndamöppu sem ég fór meö til
hinna ýmsu tímarita. Fljótlega fékk
ég vinnu fyrir eitt barnatímarit, sem
mér fannst reyndar þá ekkert rosa-
lega spennandi. En síðan kom þetta
eitt af öðru. Myndir mínar fóru að
spyrjast út og verkefnunum fjölg-
aði.“
Það skemmtilegasta við ljósmynd-
unina sagði Anna vera hvað verkefn-
in væru fjölbreytt. Hún væri að
mynda börn fyrir barnatímarit,
tískumyndir af jafnt börnum sem
fullorðnum og portrait-myndir fyrir
hin ýmsu tímarit.
„Ég veit í rauninni lítið hvað ger-
ist næstu tvær vikumar. Það eina
sem ég veit er að verkefnin eru ávallt
Fyrst vildum við vita hvenær hún
fór til New York og af hverju.
„Ég kom hingað fyrir sjö árum til
að læra ljósmyndun við skóla sem
nefnist School of Visual Arts. Ég
hafði ekki einsett mér að læra ljós-
myndun heldur langaði mig fyrst og
fremst að búa í New York. Ég hafði
oft komið hingað þar sem ég á skyld-
menni hér og þegar ég vann sem
flugfreyja flaug ég oft hingað en
stoppaði auðvitað stutt hverju
sinni,“ sagði Anna í upphafi spjalls
okkar.
Áhuginn kviknaði á DV
Hún sagði skólann hafa verið mjög
góðan, umhverfið afslappað og allt
annað en t.d. í MR, þaðan sem hún
útskrifaðist með hvíta kollinn, eða í
Háskólanum þar sem hún nam ís-
lensku og fjölmiðlafræði.
„Ég hélt reyndar að ég hefði meiri
áhuga á að skrifa en að taka myndir.
Síðan kviknaði ljósmyndaáhuginn
fyrir alvöru þegar ég vann á DV
fyrsta árið mitt eftir stúdentspróf. Ég
var aðallega i myrkraherberginu, var
kennt að stækka og fékk síðan leið-
sögn í að taka myndir. Þetta kom
smám saman," sagði Anna þegar hún
rifjaði upp upphaf ljósmyndaferilsins.
Forsíður og fræga fólkið
Eins og meðfylgjandi myndir bera
með sér hefur Anna tekið sér ýmis-
legt fyrir hendur á ljósmyndasvið-
inu. Myndir hennar hafa prýtt for-
síður tímarita eins og Newsweek,
Baby Talk, Parenting, Baby-Vouge,
Mademoiselle, Glamour og 17. Hún
hefur myndað poppstjömurnar Dav-
id Bowie og David Byme fyrir Mogg-
ann, leikkonumar Miu Farrow fyrir
Newsweek og Jennifer Tilly fyrir
Avenue.
„Síðan er ég nýlega byrjuð á aug-
lýsingaljósmyndun. Það er eilítið
stærra skref að stiga og um leið eru
meiri peningar í húfi,“ sagði Anna
og þá lá beint við að spyrja næst
hvort maður gæti orðið rikur sem
ljósmyndari í Bandaríkjunum. Hún
sagði engan vafa leika á þvi. Tæki-
færin væru óteljandi, þetta væri
fyrst og fremst spurning um að hafa
góðan umboðsmann. Væri hún sinn
eigin umboðsmaður væri lítið upp úr
krafsinu að hafa. Hún hefur því um-
boðsmann á sínum snærum sem sér
um að útvega henni verkefni. Og
hún hefur ekki þurft að kvarta und-
an verkefnaskorti að undanfornu,
eins og fram hefur komið.
Ekkert er öruggt
„Annars er ekkert öruggt í þessum
heimi. Sú trygging sem ég hef er að
hafa nokkra viðskiptavini reglulega,
eins og til dæmis þessi tímarit sem
Anna hefur tekið margar myndir af börnum. Hér er ein sem hún tók fyrir tíma-
ritið Seventeen.
fjölbreytileg," sagði Anna sem alla
tíð hefur starfað sjálfstætt. Hún próf-
aði um tíma að aðstoða annan og sér
reyndari Ijósmyndara en fannst lítið
varið í það. Hún vildi gera þetta sjáif.
„Hér er markaðurinn svo stór og
möguleikamir endalausir. Ef þú hef-
ur trú á sjálfum þér þá geturðu kom-
ist í alls konar vinnu og haldið þér
uppi.“
Eftir að nærri fjögurra ára námi í
skólanum í New York lauk sagðist
hún hafa séð fljótlega að ljósmyndun
gæti geflð eitthvað af sér. Hún nam
einnig listasögu og meðfram náminu
starfaði hún á veitingahúsi.
Kom eitt af öðru
„Ég var búin að setja saman ljós-
Leikkonan Jennifer Tilly hefur
setið fyrir hjá Önnu. Þessa mynd
tók hún fyrir tímaritið Avenue.
Margir muna eflaust eftir leikkon-
unni úr myndinni Liar, Liar með
Jim Carrey.
Dr.Searson
TsiUTflíiG Yl
mmm
wMUJfiy
AftertheBirth ,
o( Septuplets
in America,
a 1 Xfiate Aixxit
lærtilily Dru@>® ,
Hér getur að Ifta þrjár af þeim fjölmörgu tímaritaforsíðum sem myndir Önnu h
auðvitað þekktasta tímaritið, eitt hið víðlesnasta í heimi.
Frægasta fyrirsæta Onnu er án efa leikkonan góðkunna, Mia Farrow. Hér er eii
tímaritið Newsweek.
koma út mánaðarlega. Þannig hefur
mér tekist að skapa ákveðna festu.
Einn hængur getur verið á því að
starfa sjálfstætt. Það getur verið
erfltt að fara mikið í burtu. Ef þú
ferð til dæmis til annarra landa í
þrjár vikur hafa tíu manns reynt að
ráða þig í vinnu í millitíðinni. Það er
ekki öruggt að þeir hringi aftur því
nóg er af ljósmyndurum í boði.“
Það gefur augaleið að þegar ljós-
myndara tekst að fá mynd á forsíðu
tímarita eins og Newsweek þá berst
hróður hans víða. Anna sagði þetta
vitanlega hafa hjálpað sér við að fá
góð verkefni. Að minnsta kosti auð-
veldi þetta vinnu umboðsmannsins.
Hvemig skyldi svo vera að mynda