Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Side 26
26 fi&iglingar_______________________________________________ Unglingadeild Leikfélags Keflavíkur með skemmtilegt leikrit í Frumleikhúsinu LAUGARDAGUR 21. MARS 1998 . DV, Suðurnesjum:______________ „Þaö er alveg rosalega gaman að vera þátttakandi í leikritinu. Ég leik Evu, 14 ára, sem er góð stelpa fyrst um sinn. Þegar hún var pínulítil stúlka fékk hún mikla athygli frá foreldrunum en þegar hún eltist minnkaði athyglin. Þau vildu frekar vera að dást að nýja bílnum og hús- inu heldur en að veita henni at- hygli. Hún kynnist siðan gengi sem leiðir hana út í alls konar vitleysu, eiturlyf, drykkju og fleira. Þar fær hún athygli sem hana vantar. Hún kynnist síðan strák í genginu og verða þau kærustupar. Það er síðan kærastinn sem hjálpar henni og þau ákveða í sameiningu að hætta í ruglinu og lifa á ný eðlilegu lífi,“ sagði Anna Rut Ingvadóttir í sam- tali við helgarblaðið. Hún er meðal leikenda í nýju leikriti, Erum við á réttu róli? sem unglingadeild Leik- félags Keflavíkur sýnir þessa dag- ana í Frumleikhúsinu í Vesturbraut 17 í Keflavík. Leikritið er það fyrsta sem sett er á svið af unglingum unglingadeild- arinnar og eiga þau mikið hrós skil- ið fyrir framtak sitt. Leikverkið, sem unglingarnir sömdu, fjallar um vímuefnabölið. í sýningunni fléttast saman tónlist og dansar og skýr boðskapur um afleiðingar vímu- efnaneyslu. Sjá um alla verkstjórn Unglingarnir sjá alfarið um alla hjn hliðin Leikhópurinn saman kominn í Frumleikhúsinu, alls um 40 ungiingar. DV-myndir Ægir Már verkstjórn, þ.e. lýsingu, hljóð, förð- un, leikskrá, auglýsingar o.fl. í sýn- ingunni taka um 40 unglingar þátt og þar leynist örugglega innan um leikarar framtíðarinnar. Ungling- arnir hafa unnið að sýningunni sið- an í janúar undir leikstjóm Mörtu Eiríksdóttur sem á ekki minna hrós skilið fyrir framtak sitt. Leikritið hefur vakið mikla at- hygli þeirra sem hafa séð verkið. Það er því við hæfi að allir aldurs- hópar sjái leikritið. „Þetta er alveg rosalega gott leik- rit. Ég hef áður leikið í skólaleikrit- um frá því ég var yngri og farið á alls konar leiklistamámskeið. Þá á ég mjög auðvelt með að læra texta utan að. Það er frábær félagskapur við það að leika. Ég stefni hátt í leiklistinni og mig langar alveg rosalega mikið til að læra hana en ég held að það sé ekki hægt að lifa á því að vera leikari," sagði Anna Rut Ingvadóttir sem verður 16 ára í sumar en hún er í 10. bekk. Anna Rut fer með eitt aðalhlutverkið ásamt kærasta Evu, Oddi Inga Þórs- syni sem leikur gengi 1. „Mér leist mjög vel á Evu og fór að reyna við hana og það gekk. Hins vegar hafði einn í genginu áhuga á líkama hennar. En þetta endaði allt vel í Eins og sjá má eru gervin sem krakkarnir fara í æöi skrautleg. Hér er sjálfur kölski á ferð. lokinn," sagði Oddur Ingi, 14 ára. Rosalega gaman „Okkur krökkunum fannst ástæða til þess að búa til leikrit um fíkniefnavanda og samskipti ung- linga og foreldra. Ég hef leikið í skólaleikritum. Þá lék ég í Stígvéla- kettinum sem Leikfélag Keflavíkur sýndi. Ég hef ekkert spáð í það hvort ég fari út í leiklist þegar ég verð eldri. En það er allavega alveg rosalega gaman að leika og skemmtilegur félagskapur í kring- um þetta,“ sagði Oddur Ingi. „Það má með sanni segja að fram- tak unga fólksins í röðum unglinga- deildar Leikfélags Keflavíkur sé skært ljós í myrkrinu. Þessi glæsi- legi hópur vill verja tómstundum sínum til skapandi starfs. Ekki nóg með það, þau kusu að leggja sitt af mörkum til forvarnaátaksins með því að semja sitt eigið leikverk um sig sjálf og sýn þeirra á samfélagið. Ég tel þetta eitt skemmtilegasta frumkvæði unga fólksins í langan tíma. Leikhópurinn gefur okkur svo sannarlega ástæðu til að líta björt- um augum til framtíðar. Þau hafa sýnt hvers þau eru megnug sé þeim sköpuð til þess aðstaða og stuðning- ur,“ sagði Hjálmar Árnason, alþing- ismaður og formaður íþróttabanda- lags Reykjanesbæjar, í samtali við DV. -ÆMK ■ „Ég hef æft fimleika af kappi frá því að ég var átta ára gömul. Ég hafði svo gaman af þessu strax frá byrjun að ég vildi helst fá að sofa í íþróttahúsinu. Ég hlakkaði alltaf til að komast á æfingu. Ég hugsa að áhuginn og ástundunin séu ástæður þess hversu vel mér hefur gengið," segir Elva Rut Jónsdóttir, íslandsmeistari í fjölþraut í fim- leikum. Elva varð íslandsmeistari um síðustu helgi og var það annar titill hennar í röð. Aðspurð hvort hún hyggist mæta í keppnina að ári og taka bikarinn til eignar seg- ist hún stefna að því. Stelpumar séu sífellt að verða eldri í þessu og hún geti því alveg átt einhver ár eftir í þessu. Elva Rut sýnir á sér hina hliðina að þessu sinni. Fullt nafn: Elva Rut Jónsdóttir. Fæðingardagur og ár: 7. janú- ar 1979. Kærasti: Enginn. Börn: Engin. Bifreið: Engin. Ég er upp á náð foreldranna komin meö bd. ■BBBBMBRBBHESBHHmnnHMi Elva Rut Jónsdóttir, íslandsmeistari í fjölþraut í fimleikum: Vildi sofa í íþróttahúsinu V Starf: Ég er nemi á þriðja ári i Flensborg en æfi fimleika 4-5 klst. á dag, 6 daga vikunnar. Laun: Engin á vet- ____ uma. Hef- ur þú unn- ið í happdrætti eða lottói? Nei, ég spila nánast aldrei. Hvað finnst þér skemmtileg- ast að gera? Ég fer því miður alltof sjaldan í leikhús en finnst ofsalega gaman þegar ég fer. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Læra fyrir próf, á því er enginn vafi. Uppáhaldsmatur: Kjúklinga- bringurnar hennar mömmu. Uppáhaldsdrykkur: Grapetoppur. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Svetlana Khor- kína, heimsmeistari í fimleikum. Uppáhaldstímarit: Ég kaupi aðeins eitt tímarit, bandcirískt fimleikatímarit. & Hver er fallegasti karl sem þú hefur séð (fyrir utan pabba)? Brad Pitt er mjög myndarlegur. Ertu hlynnt eða and- víg ríkisstjórn- inni? Mér finnst pólitík leiðinleg og hef því enga skoðun á þessu. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Ég hef enga þörf fyrir að hitta frægt fólk, langar mest að hitta ættfólk mitt á Akur- eyri. Ég sé það svo sjaldan. Uppáhalds- leikari: Sigurður Sigurjónsson. Uppáhaldsleik- kona: Jodie Foster. Uppáhaldssöngvari: Mér er nokk sama hver syngur lag ef það er gott og ég hef gaman af því. Uppáhaldsstjómmálamaður: Enginn. Uppáhaldsteiknimyndaper- sóna: Grettir er aOtaf góður. Uppáhaldssjónvarpsefni: Vinir á Stöð 2. U ppáhaldsmatsölustað- ur/veitingahús: ítalia kemur sterklega til greina þótt ég fari sjaldan út að borða. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Ég læt skólabækurnar duga. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? FM en annars skipti ég mjög reglulega til þess að finna mtm gott lag eða eitthvað annað áhuga- vert. Uppáhaldsútvarpsmaður: Eng- inn. Hverja sjónvarpsstöðina horf- ir þú mest á? Stöð 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Samúel Öm er duglegastur að sýna frá frmleikum. Uppáhaldsskemmtistað- ur/krá: Ég fer aldrei út að skemmta mér og því hef ég ekki myndaö mér skoðun á því. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Björk, engin spuming. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtiðinni? Ég hugsa um að klára skólann og gera betur í fim- leikunum. Ég hugsa lítið um fram- tíðina aö öðru leyti. Þetta kemur allt í ljós. Hvað ætlar þú að gera í sum- arfríinu? Ég verð bara eitthvaö að vinna og vitaskuld að æfa fim- leika. Ég tek mér eflaust eitthvert frí en reikna ekki með að fara utan til þess ama. -sv 3H53

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.