Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1998, Qupperneq 64
LAUGARDAGUR 21. MARS 1998
Sj ómannaverkfall:
Ríkisstjórnin
vili afboðun
Forystumenn sjómanna fóru af
•—fundi formanna stjórnarflokkanna í
gær með þau skilaboð að þeir þyrftu
að ná samkomulagi við útgerðar-
menn og aflýsa þyrfti verkfalli, fyrr
færu frumvörp þríhöfðanefndarinn-
ar ekki fyrir Alþingi. Atkvæða-
greiðsla deiluaðila um miðlunartil-
lögu sáttasemjara var í raun at-
kvæðagreiðsla um þessi frumvörp
um kvótaþing og verðlagsstofu
skiptaverðs. Miðlunartillagan þykir
heldur rýr i roðinu og er 1 raun ekki
ágreiningsefnið. Sjómenn og útgerð-
armenn hittast á fundi í Karphús-
inu í dag. Nánar á bls. 2 -phh
Brenndist
- illaáhöfði
Maður brenndist illa á höfði og
andliti við vinnu sína hjá fyrirtæk-
inu Sandblástur og málmhúðun hf.
á Akureyri í gær.
Maðurinn var að sinkhúöa járn-
handrið I keri þegar sprenging varð
með þeim afleiðingum að 450 gráðu
heitt sinkið þeyttist yfir höfuð hans
og andlit.
Að sögn lögreglu steig maðurinn
fram fvrir skjólhlíf við kerið en
talið erlað raki I kerinu hafi valdið
‘•sprengingunni. Hann var fluttur á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
og er líðan hans eftir atvikum. -aþ
Vanræksla á sauð-
fé rannsökuð
Lögregla og dýralæknir rannsaka
nú mál sem varfiar vanrækslu á
sauðfé á býli í Vescurbyggð.
Samkvæmt heimildum DV er sterk-
ur grunur um að heimilisfólk hafi
vanrækt sauðfé sitt í töluverðan tíma.
Þórólfur Halldórsson, sýslumaður á
Patreksfirði, staðfesti við DV að rann-
sókn stæði yfir. Hann sagði að niður-
stæður lægju ekki fyrir. -RR
MERKILEGA MERKIVELIN
brother PT-220 nv véi
íslenskir stafir
Taska fylgir
8 leturgerðir, 6 stærðir
6, 9, 12,18 mm borðar
Prentar í 4 línur
Aðeins kr. 10.925
m
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
Enn betra
bragð...
...enn meiri
angan
Nescafé
Formenn stjórnarflokkanna sendu í gær sjómenn aftur í Karphúsið til að freista þess að ná samkomulagi við útgerðarmenn. Ríkisstjórnin ákvað að deiluað-
ilar yrðu að afboða verkfallið, fyrr yrðu tillögur þríhöfðanefndarinnar ekki bornar upp á Alþingi og virtust forystumenn sjómanna nokkuð sáttir við þau mála-
lok, enda þykir víst að þeir hafi fengið vilyrði fyrir að frumvörpin verði þá borin upp. DV-mynd Pjetur
Norsk Hydro hætt við 150 milljarða fjárfestingu í Venesúela:
Island færist
upp óskalistann
- enn freista samt Trinidad og Katar Norðmanna meira
DV, Ósló:
Draumurinn um risaálver á Aust-
urlandi er nær því að rætast í dag
en í gær. ísland hefur færst upp um
eitt sæti á óskalista Norsk Hydro yf-
ir álitleg stóriðjulönd eftir að fyrir-
ætlanir um endurbyggingu tveggja
álvera í Venesúela runnu út í sand-
inn nú í vikunni.
Norsk Hydro og dótturfyrirtækið
Hydro aluminium ætla sér að auka
hlut sinn í álvinnslu í heiminum á
næstu árum. Fjárfest verður utan
Noregs fyrir hundruð milljarða ís-
lenskra króna og nú eru Trinidad
og Katar eftst á lista yfir álitleg
samstarfslönd.
í þriðja sætinu er nú ísland og
samkvæmt vinnuplöggum Hydro
aluminium gæti álver með 200.000
tonna vinnslugetu tekið til starfa á
íslandi árin 2004 til 2006. Áætlað er
að álverið, með tilheyrandi virkjun-
um, kosti um 100 milljarða ís-
lenskra króna.
Hydro aluminium er þegar búið
að tryggja sér lóð undir álver á
Trinidad og endanleg ákvörðun um
byggingu versins þar verður tekin í
haust. ísland mun bíða til næsta
árs, að sögn Hydro-manna.
í Venesúela verður hins vegar
ekki beðið lengur. Samstarf Hydro
og bandaríska fyrirtækisins
Reynolds er runnið út í sandinn og
ekkert verður af 150 milljarða fjár-
festingu í landinu. Heima í Noregi á
Hydro einnig í vanda vegna viðvar-
andi orkuskorts og það styrkir enn
stöðu íslands. -GK
Músin Marta:
í úrslit í
Munchen
íslenska bamamyndin Músin
Marta hefur veriö valin í úrslit á
kvikmyndahátlð I Múnchen í
Þýskalandi. Um er að ræða eina
stærstu kvikmyndahátíð fyrir
böm og unglinga í heiminum og
er hún haldin
annað hvert ár.
Tuttugu og ein
mynd er í úr-
slitum í aldurs-
flokki 7-12 ára
sem Músin
Marta tilheyrir.
„Ég er nýbú-
inn að frétta af
þessu en veit nú
ekki mikið um
þetta að öðru leyti. Þetta er mjög
áhugavert fyrir myndina sem ég
er mjög ánægður með. Þetta er
líka mikill heiður fyrir Sjónvarp-
ið,“ segir Egill Eðvarðsson, leik-
stjóri Músarinnar Mörtu, í spjalli
við DV í gær. -RR
Eðvarðs-
Sunnudagur
Veðrið á morgun:
Rigning sunnanlands
Veðurstofan spáir suðlægri átt, víða allhvassri. Rigning, einkum sunn-
anlands og fremur hlýtt.
Veðrið á mánudag:
Hvassviðri
Gert er ráð fyrir hvassri suðvestanátt og rigningu. Snýst í hvassa norð-
anátt með snjókomu norðvestan til.
Veörið í dag er á bls. 65.