Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1998, Side 2
2
MÁNUDAGUR 23. MARS 1998
Fréttir
Heilbrigðisráðuneytið kannar upplýsingar um stöðu Gagnalindar hf.:
Átök um sjúkra-
skráaforrit
- lögfræðingur lagði á ráðin um að halda heilbrigðisráðuneytinu í herkví
Á fóstudag í síðustu viku bárust
heilbrigðisráðuneytinu óvænt út-
skriftir úr tölvupósti til og frá fram-
kvæmdastjóra hugbúnaðarfyrirtæk-
isins Gagnalindar hf. Fyrirtækið hef-
ur unnið að 110-120 milljóna króna
verkefni fyrir heilbrigðisráðuneytið,
sem varðar hugbúnað sem rúmar
sjúkraskrár og upplýsingar fyrir alla
heilsugæsluna í landinu.
í póstinum er lögfræðingur m.a.
að gefa framkvæmdastjóranum lög-
fræðilegar ráðleggingar um hvernig
félagið myndi standa gagnvart af-
notarétti af forritskóta upplýsinga-
kerfanna Saga og Medicus ef til
gjaldþrots Gagnalindar kæmi.
í einu bréfi fullyrðir lögfræðing-
urinn m.a. að forritskótinn sé
stjómarskrárvarin eign Gagnalind-
ar - heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytið hafi einungis takmarkaðan
afnotarétt á hugbúnaðinum fyrir
heilsugæsluna.
Ráðuneyti í herkví
Lögfræöingurinn segir síðan m.a.
að „Þrotabússtjóri Gagnalindar hf„
komi til þess, myndi gera sér aur úr
forritskótanum til þess að fá upp í
kröfur þrotabúsins". Hann segir sitt
mat síðan að Gagnalind geti notað
vörslusamning „til þess að halda
HTR (innsk. heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytinu) í algerri herkví og
lagt bann við öllu viðhaldi á Sögu
og Medicus".
Lárus Ásgeirsson, stjómarformað-
ur Gagnalindar hf., sagði við DV að
stjómin bæri ekki ábyrgð á umrædd-
um skrifum. „Stjómin hefur langt í
frá velt því fyrir sér hvemig ætti að
standa að því ef svo illa færi að fyr-
irtækið færi í þrot,“ sagði Lárus.
„Ekki ásetningur"
„Það hefur ekkert verið rætt og eng-
inn ásetningur eða hugrenningar í
þessa átt. Aðalatriðið er að enginn
ágreiningur er á milli stjómar og ráðu-
neytisins. Allt sem það hefúr beðið um
Seinagangur:
Milliríkja-
samningar
ógildir
Vilhjálmur Egilsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, upplýsti fyrir helgi á ráö-
stefhu um Evrópuþróun og Norðurlönd að
milliríkjasamningar, þ.á m. fríverslunar-
samningar, sem Alþingi hefúr samþykkt
frá árinu 1995 væru ekki í gildi. Ástæðan er
sú að milliríkjasamningar
sem jafnan eru gerðir af ut-
anriiósráðuneytinu og síð-
ari staðfestir af Alþingi öðl-
ast ekki gildi fyrr en þeir
eru birtir i C-hluta Stjóm-
artíðinda.
C-hluti Stjómartíðinda
hefur hins vegar ekki verið
gefinn út síðan 1995. Að
sögn Halldórs Ásgrímssonar hefúr verið
mikið álag á þeirri deild utanríkisráðu-
neytisins sem sér um þessi mál. „Það er
rétt að það hefur orðið mikill dráttur á
þessu máli í utanríkisráðuneytinu. Það var
ráöinn nýr starfsmaður sem hætti siðan.
Starfsmennimir hafa þurft að sinna ýms-
um öörum brýnum verkefrium og því ekki
annað þessu nógu vel. Það er hins vegar
verið aö bæta úr því.
Mér vitanlega hefúr ekki orðið neinn
skaði vegna þess máls en ég vil þó ekkert
fúllyrða um það.“ -glm
Halldór
Ásgrímsson.
Hin hornfirska dis, íris Heiður Jóhannsdóttir, var kosin fegurð-
ardrotting Austurlands á laugardagskvöldið.
hefur verið afhent," sagði Lárus.
Davíð Á. Gunnarsson ráðuneytis-
stjóri sagði við DV að fulltrúar
stjómar Gagnalindar hefðu gengið á
sinn fund á fóstudag. Þar var um-
ræddur tölvupóstur ræddur og síð-
ustu hlutar „heilsugæslukótans"
verið afhentir.
„Ég vona að þetta hafi ekki verið
ásetningur þeirra sem áttu hlut að
umræddum pósti. Niðurstaðan á
fundinum var sú að þarna var ekki
um að ræða ásetning stjórnar fyrir-
tækisins Gagnalindar. Það er því
ekki ágreiningur milli hennar og
ráðuneytisins um framhald þe§sa
máls,“ sagði Davíð. -Ott
Fegursta
stúlkan
frá Horna-
firði
Fegurðarsamkeppni Austur-
lands var haldin í Valaskjálf á Eg-
ilsstöðum á laugardagskvöldið.
íris Heiður Jóhannsdóttir, 22 ára
stúlka frá Hornafirði, var kjörin
feguröardrottning Austurlands. í
öðru sæti var Karólína Einars-
dóttir, 17 ára stúlka frá Neskaup-
stað. Karólína var líka valin ljós-
myndafyrirsæta ársins. í þriðja
sæti var María Fariney Leifsdótt-
ir, 17 ára stúlka frá Neskaupstað.
Þátttakendur í keppninni völdu
Auði Jónsdóttur frá Hornafirði
vinsælustu stúlkuna.
Þrjár efstu stúlkumar munu
keppa um titilinn ungfrú ísland.
Dómnefndina skipuðu: Elín
Gestsdóttir, Ágústa Jónsdóttir,
Dagmar fris Gylfadóttir, Sigurðiri
Mar Halldórsson og Egill Helgi
Árnason. -glm/SB
Hrossaræktarbúið Árbakki sækir um undanþágu til að flytja út hross:
Atvinnugreinin í veði
- ólíklegt að undanþága verði veitt að mati yfirdýralæknis
Anders Hansen á Árbakka, sem
er hrossaræktarbú í Landssveit,
hefur óskað eftir undanþágu frá
banni við útflutningi hrossa. í um-
sókninni segir hann að engin hita-
sótt hafi greinst i hrossum búsins
né í hrossum í nágrenninu og því
ætti ekkert að vera til fyrirstöðu að
senda hrossin beint frá Árbakka.
Anders sagði í samtali við DV að
milli 10 og 20 hross bíði hjá honum
eftir því að komast út, ýmist til Evr-
ópu eða Norður-Ameríku. „Sóttin
hefur verið að færast nær í 4-5 vik-
ur. Það geta enn þá liðið dagar, vik-
ur eða jafnvel mánuðir þangaö til
hún kemur hingað. Hún gæti jafn-
vel tekið upp á þvi aö koma alls
ekki,“ segir Anders.
Hann segir þetta eiga við um
aðra landshluta líka. „Ég er þeirr-
ar skoðunar að það eigi að vera
hægt að flytja út heilbrigð hross.
Atvinnugreinin þolir ekki að vera
í sóttkví meðan veikin er finnanleg
einhvers staðar í landinu. Þegar
samgangur er heftur það mikið
gæti veikin farið yfir landið á
heilu ári. Það segir sig sjálft að það
er ekki hægt að stöðva útflutning
allan þann tíma,“ segir Anders.
Hann segir ekki einungis út-
flutninginn í veði heldur at-
vinnugreinina í heild. „Það koma
um 10.000 ferðamenn á ári hingað
til lands til að ríða á íslenskum
hestum. Þessi iðnaðm- er talinn
velta í kringum þremrn- milljörð-
um króna sem er jafnmikið og ein
loðnuvertíð," segir Anders. Hann
vill að ákveðið verði sem fyrst að
flytja landsmót hestamanna á ein-
hvem stað þar sem hitasóttin hef-
ur gengið yfir.
Anders segist ekki detta í hug að
þessi umsókn verði tekin til
greina. „Ég vil aðeins vekja athygli
á málinu og það verður fróðlegt að
heyra rökin fyrir því að ekki sé
hægt að flytja þessi hross út,“ seg-
ir Anders.
Komin í Rangárvallahrepp
Halldór Runólfsson yfirdýra-
læknir sagði við DV í gærkvöldi að
búast mætti við því að sóttin
breiddist stöðugt út án þess að við
nokkuð yrði ráðið. Hann staðfesti
að sóttin hefði borist i Rangár-
vallahrepp en hafði hins vegar
ekki fengið staöfestingu á því að
sóttin hefði borist í Kjósina eins og
fram hefði komið í fjölmiðlum í
gær. Honum fannst reyndar ólík-
legt að það lægi fyrir að hrossið
sem drapst þar hefði drepist úr
umræddri sótt. „Við erum hins
vegar að vara við því að fólk sé að
keyra hrossatað frá Reykjavík út á
land. Menn hljóta að geta fengið
þetta á næstu bæjum.“
Halldór hafði ekki séð umsókn
Anders þegar DV talaði við hann.
Hann taldi ólíklegt að undanþága
yrði veitt frá reglunni á grundvelli
upplýsinga um útbreiðsluna. „Við
þurfum ekki að flytja út hross sem
minnsti möguleiki er á að veikist í
flutningi eða jafnvel þegar þau em
komin út,“ segir hann. -HI
Stuttar fréttir i>v
Hröð símsvörun
Símsvörun neyðarþjónustu á veg-
um Neyðarlinunnar er ein sú besta
sem um getur í heiminum, að sögn
Kjartans Briem, verkfræðings hjá
símstöðvardeild Landssímans. Morg-
unblaðið greindi frá.
Dregið til baka
Formaður
bankaráðs Lands-
bankans ákvað á
fúndi ráðsins í
gær að draga til
baka hugmyndir
um að selja hlut
bankans í Vá-
tryggingafélagi ís-
lands. RÚV sagði frá.
Átök í Noregi
Nokkur átök urðu á aðalfundi ís-
lenska safnaðarins í Noregi sem var
haldinn á sunnudaginn í síðustu
viku. Þrír stjórnarmenn hættu og
lýst var vantrausti á þá sem eftir
vom, auk þess sem fjárhagsáætlunin
var felld. RÚV sagði frá.
Hitinn lækkar
Hitaveita Egilsstaða og Fella hefur
ákveðið að lækka hitann úr 77 krón-
um í 74 krónur fyrir tonnið. Lækk-
unin nemur samtals 13-14%. RÚV
sagði frá.
Koltvísýringur bundinn
Félag skógarbænda á Vesturlandi
hefúr farið fram á samvinnu við
Norðurál um að binda koltvísýring
með skógrækt. RÚV sagði frá.
Landsíminn kaupir
Gengið hefur
verið frá samn-
ingi um kaup
Landssimans á
öllu hlutafé í
Skímu-Miðheim-
um. Kaupverð er
160 milljónir
króna. Þórarinn
V. Þórarinsson, stjórnarformaður
Landssímans, sagði Internetið
flarskiptamiðil framtíðarinnar.
Yfir 40 kæra ríkið
Fleiri en 40 fyrrverandi starfsmenn
Lyflaverslunar rikisins og Áburðar-
verksmiðju ríkisins hafa stefnt ríkinu
fyrir dóm og krafist biðlauna. Hæsti-
réttur hefur þegar dæmt í einu slíku
máli ríkisstarfsmanninum í hag. Rik-
ið gæti staðið frammi fyrir tugmillj-
óna króna útgjöldum vegna hlutafé-
lagavæðingar. Stöð 2 sagði frá.
Kæra fyrir húsbrot
í gær var lögð fram kæra á hend-
ur starfsmanni Húsnæðisstoftiunar
ríkisins fyrir húsbrot. Lögmaður
kæranda segir þjófhað og eignaspjöll
einnig koma til álita sem kærueftii.
Stöð 2 sagði frá.
Fiskvinnsla á Blönduósi
Bráðlega mun koma í ljós hvort
hægt verði að stofna hlutafélag um
fiskvmnslu á Blönduósi í stað fyrir-
tækisins Fisks 2000. Fundur með
starfsfólki verður í dag. Stöð 2 sagði
frá.
Kaupa í Ameríku
Fyrirtækið Útsjávarfang hefur
keypt 80% hlut í flskvinnslufyrir-
tæki á austurströnd Bandarikjanna.
Áætlað er að vinna þar fisk sem
veiddur er í bandarískri lögsögu.
Sjónvarpið sagði frá.
Sjóvá-Almennar hagnast
Sjóvá-Almenn-
ar skilaði 361
milljónar króna
hagnaði á síðasta
ári sem er nokkur
hækkun frá árinu
áður. Stjóm fé-
lagsins mun
leggja til á aðal-
fundi að hluthöfum veröi greiddur
10% arður.
12 keppa í stærðfiæði
12 menntaskólanemar munu taka
þátt í norrænni stærðfræðikeppni 2.
april. Að þeirri keppni lokinni verð-
ur valið landslið íslands sem keppir
á ólympíuleikunum í stærðfræði í
Taipei á Taívan.
Fjölgun hjá SVR
Farþegum Strætisvagna Reykja-
víkur fjölgaði um tæp 6% árið 1997
miðað við árið á undan. Fjölgunin er
5% ef farþegar í Mosfellsbæ eru ekki
taldir með. -HI