Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1998, Blaðsíða 37
MÁNUDAGUR 23. MARS 1998
45
Verk eftir Marlene Dumas f Ný-
listasafninu.
Þrjár
sýningar
Um þessar mundir standa yfir
þqá sýningar í Nýlistasafninu. í
neðri sölum sýnir málarinn Mar-
lene Dumas. Hún er talin í
fremstu röð samtímamálara og
þykir ögrandi, bæði í tali og
myndmáli. Sem dæmi um þetta
er staðhæfmg hennar að hún
máli vegna þess að hún sé kona.
„Ef málverkið tilheyrir konunni
likt og geðveilan, þá eru allar
konur sem mála brjálaðar og all-
ir karlkyns málarar konur,“ seg-
ir Dumas.
Sýningar
í Bjarta sal og Svarta sal er
samsýning þeirra Gary Hume,
Georgie Hopton, Tuma Magnús-
sonar og Ráðhildar Ingadóttur.
Samsýning þessara málarahjóna
kom þannig til að Nýlistasafnið
bauð Gary að sýna í safninu.
Hann bauð Georgie, sem aftur
bauð Ráðhildi og að lokum bauð
Ráðhildur Tuma að taka þátt.
í Súm-sal sýnir síðan Þór Vig-
fússon ný verk þar sem hann rað-
ar saman á einfaldan hátt mislit-
um einingum hálfgegnsærra plex-
iglerplatna.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans:
Söngperlur úr Disney-
teiknimyndum
Það er við hæfi á óskarsverð-
launakvöldi að Listaklúbbur Leik-
húskjallarans verði með dagskrá
með lögum úr Walt Disney- kvik-
myndum því þau eru ófá óskars-
verðlaunin sem tónlistin við hinar
frábæru teiknimyndir Walt Dis-
neys hafa fengið.
Þau sem sjá um flutninginn eru
söngkonurnar Guðrún Gunnars-
dóttir og Berglind Björk Jónasdótt-
ir, öðru nafni Doris-dúettinn. Þeim
til aðstoðar eru tónlistarmennimir
Pálmi Sigurhjartarson, pianó,
Þórður Högnason, kontrabassi,
Karl Olgeirsson, harmonika, meló-
dikka og fleira og Björgvin Ploder,
trommur.
Guðrún og Berglind ætla að
syngja uppáhaldslögin sín úr
teiknimyndunum og fá allir úr
hljómsveitinni einnig að syngja sín
Skemmtanir
uppáhaldslög. Meðal laga sem
koma til með að heyrast era He’s a
Tramp, Under the Sea, Everybody
Wants to be Cat, When you wish
upon a star og mörg fleiri.
Lögin era flutt í útsetningum
hópsins, haldið er þó tryggð við
upprunalegu útgáfurnar og sungið
er á ensku. Stúlkumar segja að
söngdagskráin verði væmin, ýkt,
sorgleg, gleðileg og jafnvel svolítið
undarleg á köflum. Sérstakur
gestasöngvari verður Stefán Hilm-
arsson en hann á sér uppáhaldslag
úr Disney-teiknimynd. Mælt er
með að gestir taki með sér góða
skapið, gömlu minningamar og
kannsi einn vasaklút.
Leikhúskjallarinn opnar fyrir
gesti kl. 20 og söngskemmtunin
byrjar kl. 20.30.
4 ' w/ J
L
Þau koma fram í Leikhúskjallaranum í kvöld: Talið frá vinstri: Stefán Hilmarsson, Páimi Sigurhjartarson, Þórður
Högnason, Guðrún Gunnarsdóttir, Björgvin Ploder og Berglind Björk Jónasdóttir. DV-mynd Pjetur
É1 sunnanlands og vestan
Vaxandi 990 mb lægð um 800 km suð-
vestur af Reykjanesi hreyfist allhratt
norðaustur. 995 mb lægð fyrir norðaust-
an land fjarlægist. Víðáttumikil en held-
ur minnkandi 1039 mb hæð er yfir Bret-
landseyjum.
Veðríð í dag
í dag verður sunnan og suðaustan
stinningskaldi eða allhvasst og rigning í
kvöld en slydda norðvestan til. Hvöss
suðvestanátt og él sunnanlands og vestan
í nótt. Á morgun snýst vindur til norð-
lægrar áttar með snjókomu eða éljum,
fyrst norðvestan til. Kólnandi veður.
Á höfuðborgarsvæðinu verður vax-
andi suðaustanátt og slydda en síðar
rigning. Allhvasst í kvöld en hvöss suð-
vestanátt og él í nótt.
Sólarlag í Reykjavík: 19.52
Sólarupprás á morgun: 07.15
Sfðdegisflóð í Reykjavík: 14.35
Árdegisflóð á morgun: 03.15
Veðrið kl. 12 á hádegi í gær:
Akureyri rigning 8
Akurnes alskýjaö 8
Bergstaöir alskýjaö 4
Bolungarvík snjókoma 1
Egilsstaöir skýjaö 14
Keflavíkurflugv. skýjaö 3
Kirkjubkl. rigning 8
Raufarhöfn skýjaö 7
Reykjavík úrkoma í grennd ' 2
Stórhöföi rigning 3
Helsinki léttskýjaö 2
Kaupmannah. alskýjað 4
Osló skýjaó 7
Stokkhólmur 3
Þórshöfn alskýjaö 9
Faro/Algarve skýjaö 18
Amsterdam alskýjaö 9
Barcelona skýjaó 15
Chicago hálfskýjaö -3
Dublin þokumóöa 9
Frankfurt skýjaö 8
Glasgow skýjaö 8
Halifax ískorn -2
Hamborg skýjaó 8
Jan Mayen skýjaó 1
London skýjaó 10
Lúxemborg skýjaö 8
Malaga mistur 18
Mallorca léttskýjaö 19
Montreal þoka -4
París léttskýjaö 10
New York snjókoma -1
Orlando skýjaö 8
Nuuk léttskýjaö -12
Róm heiöskírt 10
Vín snjóél á síó.kls. 3
Washington alskýjaö 2
Winnipeg skýjaó -5
Arnór
Myndarlegi drengurinn
á myndinni, sem hlotiö
hefúr nafhið Amór Breki,
fæddist 8. febrúar, kl.
Barn dagsins
Breki
22.02. Viö fæðingu var
hann 3580 grömm og
mældist 50,5 sentímetra
langur. Foreldrar hans
era Heiða B. Knútsdóttir
og Ásþór Sigurðsson og er
hann fyrsta bam þeirra.
Jack Nicholson brosir breitt og sjálf-
sagt helst brosið ef hann fær óskarinn
í nótt.
Það gerist ekki betra
Stjömubíó og Laugarásbíó sýna um
þessar mundir As Good as It Gets sem
tilnefnd er til sjö óskarsverðlauna en
óskarsverðlaunahátíðin er í nótt. All-
ir þrir aðalleikaramir fá tilnefningar:
Jack Nicholson, Helen Hunt í flokki
aðalleikara og Greg Kinnear í flokki
aukaleikara. Jack Nicholson leikur
Melvin Udall, frægan rithöfund sem
er að ljúka við bók númer 62 þegar
myndin hefst. Hann lifir í eigin heimi
og vill ekkert með annað fólk hafa og
ekki er hægt að segja að aðrir reyni
að nálgast hann því þá fá þeir
hinir sömu aðeins að .n
kynnast dónaskap frá ^0'
Kvikmyndir
honum. Melvin er líka
duglegur viö að gera
nábúanum Simon Nye, sem er hommi,
lífið leitt og hann fullkomnar það verk
þegar hann lætur hund Simons hverfa
niður um ruslalúguna. Húsvörðurinn
bjargar hundinum og sú spuming
vaknar hver sé svo ófyrirleitinn að
vilja farga litlum hundi.
Nýjar myndir:
Háskólabió: The Boxer
Laugarásbíó: Djarfar nœtur
Kringlubíó: Midnight in the Garden of
Good and Evil
Saga-bíó: Rocket Man'
Bíóhöllin: Litla hafmeyjan
Bíóborgin: Desperate Measure
Regnboginn: She's so Lovely
Stjörnubíó: Betra gerist það ekki
Krossgátan
Lárétt: 1 grín, 6 mynni, 8 hlífa, 9
púki, 10 starf, 12 högg, 13 óstöðugu,
16 snemma, 17 vegna, 19 mála, 21
þjóta, 23 fóðraður, 24 flökt.
Lóðrétt: 1 spjót, 2 hjálp, 3 þegar, 4
glögga, 5 anda, 6 hugarburð, 7 vinn-
ingur, 11 skartgripur, 14 flakk, 15
hópi, 16 spíra, 18 slóttug, 20 bráð-
ræði, 22 til.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 hnýsni, 8 verka, 9 lá, 10 et-
ir, 11 ull, 12 linast, 15 óð, 16 aftra, 17
sefar, 20 úr, 21 Arna, 22 óði.
Lóðrétt: 1 hvel, 2 netið, 3 ýra, 4
skrafa, 5 naust, 6 ill, 7 fálmar, 13
nafn, 14 trúð, 15 ósa, 18 er, 19 ró.
Gengið
Almennt gengi LÍ 20. 03. 1998 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollpenqi
Dollar 72,420 72,790 72,040
Pund 120,420 121,040 119,090
Kan. dollar 51,070 51,390 50,470
Dönsk kr. 10,3700 10,4250 10,4750
Norsk kr 9,5210 9,5730 9,5700
Sænsk kr. 9,0850 9,1350 9,0620
Fi. mark 13,0410 13,1180 13,1480
Fra. franki 11,7920 11,8600 11,9070
Belg. franki 1,9158 1,9273 1,9352
Sviss. franki 48,4400 48,7000 49,3600
Holl. gyllini 35,0700 35,2700 35,4400
Þýskt mark 39,5400 39,7400 39,9200
it lira 0,040250 0,04050 0,040540
Aust. sch. 5,6180 5,6520 5,6790
Port. escudo 0,3862 0,3886 0,3901
Spá. peseti 0,4663 0,4691 0,4712
Jap. yen 0,557000 0,56040 0,575700
írskt pund 99,230 99,850 99,000
SDR 96,230000 96,80000 97,600000
ECU 78,4800 78,9600 78,9600
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270