Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1998, Side 17
MÁNUDAGUR 23. MARS 1998
17
imenning
Úr myndinni H.C. Andersen og skakki Skugginn. Klaufalega skáldiö frá
Odense flytur Collins-fjölskyldunni skáldskap sinn - en á meðan reynir
Skugginn viö heimasætuna Lovísu.
H.C. Andersen
fyrir fullorðna
Danir hafa gert teiknimynd um
sitt ástsælasta skáld, ævintýrahöf-
undinn Hans Christian Andersen.
H.C. Andersen og skakki Skugginn
heitir hún og er handritið eftir
Bent Haller en Jannik Hastrup
stjómar.
Bent Haller notar söguna um
Skuggann sem grunn að handriti
sínu. Hún fjallar um klofinn per-
sónuleika og í myndinni er bælt
tilfinningalíf Andersens tjáð með
skugganum hans. Myndin er alls
ekki ætluð börnum heldur nýta
höfundar söguna út í æsar til að
túlka persónu Andersens þannig
að börn fá heldur lítið út úr henni.
Gagnrýnendur í Danmörku hafa
hælt Haller og Hastrup fyrir að
víkka mörk teiknimyndarinnar og
búa til afbragðsgóða mynd.
Myndin hefst í Odense þegar
Hans Christian litli er sendur,
skjálfandi af hræðslu, inn á geð-
veikrahælið til að færa afa sínum
tóbak. Strax þá gerir skugginn vart
við sig og fylgir honum svo með hlé-
um ævina á enda - og myndin gefur
heildstæða mynd af lífi hans með
vissum ævintýralegum útúrdúrum
eins og sjálfsagt er þegar þessi höf-
undur á í hlut. Stígandin í mynd-
inni er þó harmræn; Skugginn ger-
ir samning við djöfulinn og fær lík-
ama fyrir sál og sá líkami fremur of-
beldisverk á stúlkunni sem þeir
elska báðir, Andersen og Skugginn,
sænska söngfuglinum Jenny Lind.
HONDA
4 tLy r a
1 . 4 S i ________________________________
9 0 h e s t ð f l
Traustur bíll fyrir ungt fólk á öllum aldri
Innifalið í verði bílsins
1400cc 16 ventta vél með tölvustýrðri innsprautun4
Loftpúðar fyrir ökumann og farþega4
Rafdrifnar rúður og speglar4
ABS bremsukerfi4
Samlæsingar 4
14" dekk4
Honda teppasett4
Ryðvörn og skráning4
Útvarp og kassettutæki4
E
Verð á qötuna: 1.455.000,-
Honda Civic 1.5 LSi VTEC
1.550.000,-
115 hestöft
Fjarstýrðar samlæsingar
4 hátalarar
Hæðarstillanlegt ökumannssæti
Sjálfskipting 100.000,-
HONDA
Sími: 520 1100
• Ljósabekkir • Gufubaö • Nudd • Snyrtifræðingur á
staðnum (ókeypis ráðgjöf) • Undirfatnaður á góðu verði
Opið virka daga 8-23, laugard. 10-22, sunnud. 12-20.
Stúdíósól Ármúla 17 a, sími 553 8282