Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998
Fréttir
Endurgreiðsluloforð heilbrigðisráðherra:
Þetta verður eins og
þegar stífla brestur
- segir afgreiðslufólk Tryggingastofnunar
Starfsfólk endurgreiðsludeildar
Tryggingastofnunar í Tryggvagötu
býst við gríðarlegu álagi þegar frum-
varp heilbrigðisráðherra um endur-
greiðslu sérfræðikostnaðar sjúklinga
verður loks samþykkt. Búist er við að
það verði afgreitt fyrir þinglok.
Talsvert álag hefur verið á af-
greiðslufólkið að undanfórnu vegna
þess að sjúklingar sem leita þurftu til
sérfræðilækna í haust og vetur, með-
an engir samningar milli læknanna
og Tryggingarstofnunar voru í gildi,
urðu að greiða læknisþjónustuna að
fullu sjálfir. Þetta fólk hefur streymt
til Tryggingastofnunar að undanförnu
og er orðið mjög óþolinmótt vegna
þess að það hefur ekki getað fengið al-
mannatryggingahluta kostnaðarins
endurgreiddan, eins og heilbrigðisráð-
herra lofaði fyrr í vetur.
Kristján Guðjónsson, deildarstjóri í
Tryggingastofnun, segir að ekki sé vit-
að um hve marga um er að ræða sem
fá muni endurgreitt, né hversu mikla
upphæð er um að ræða í heildina.
Afgreiöslustjóri endurgreiöslu-
deildarinar segir að það sé ljóst að
álagið verði gríðarlegt þegar frum-
varpið um endurgreiðslu þessara
reikninga verður loks að lögum. Fólk-
ið sé að vonum orðið afar óþolinmótt
og langeygt eftir aurunum. Hjá sum-
um sé um verulegar fjárhæðir að
ræða, jafnvel hátt á annað hundrað
þúsund krónur. Á áttunda hundrað
manns hafi þegar lagt læknareikning-
ana inn hjá afgreiðslunni í Tryggva-
götu, en ljóst sé af heimsóknum og
símhringingum að um mun stærri
hóp sé að ræða, þannig að búast megi
við gríðarlegu álagi þegar stíflan loks
brestur.
-SÁ
Sjúklingar sérfræðilækna fá ekki enn endurgreitt:
Frumvarp um endur-
greiðslu enn óafgreitt
- aðstoðarmaður ráðherra undrast hve langan tíma tekur að afgreiða frumvarpið
Frumvarp um endurgreiöslu sér-
fræðikostnaðar sjúklinga sem leituðu
aðstoðar sérfræðinga meðan samning-
ar sérfræðinganna og Tryggingastofn-
unar voru enn lausir er enn óafgreitt
á Alþingi. Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra lagði frumvarpið
fram þann 20. janúar í kjölfar fyrir-
heits sem hún gaf um að sjúklingar,
sem neyðst hefðu til þess að leita til
sérfræðilækna og greiða þjónustu
þeirra til fulls sjálfir, myndu fá hlut
Tryggingastofnunar í kostnaðinum
endurgreiddan þegar búið yrði að
semja við læknana.
Þótt samningar hafi nú fyrir
nokkru tekist milli sérfræðilækna og
Tryggingastofnunar, er hlutur þeirra
sjúklinga sem neyddust til þess að
leggja að fullu út fýrir þjónustu lækn-
anna meðan á deilunni stóð, enn þá
óbættur. Ein umræða hefur farið fram
um frumvarpið og heilbrigðisnefnd
hefur fjallað um það og frá nefndinni
kom það fyrir tæpum tveimur vikum
og bíður þess að verða tekið á dag-
skrá. „Við erum að þrýsta á að málið
verði keyrt í gegn. Það er tilbúið til af-
greiðslu og hefur raunar að okkar
mati verið það síðan það var lagt fram
í þinginu," sagði Þórir Haraldsson,
aðstoðarmaður heilbrigöisráðherra, í
samtali við DV í gær.
Þórir undirstrikar að til að endur-
greiðsla geti farið fram verði að af-
greiða frumvarpið um það sem lög frá
Alþingi. Hann undrast þann drátt sem
orðið hefur á afgreiðslu frumvarpsins,
ekki síst í ljósi þess að þingheimur
hefði talið það sjálfsagt réttlætismál.
„Síðan það var lagt fram eru liðnir
þrír mánuðir og ég veit ekki til þess
að neitt hafi breyst á þeim tíma,“
sagði Þórir enn fremur.
Frumvarpið snýst um breytingu á
almannatryggingalögum. í því er gert
ráð fyrir að sjúklingum sem um er að
ræða verði endurgreiddur sérfræði-
lækniskostnaður samkvæmt þeim
samningum sem giltu milli læknanna
og Tryggingastofnunar áður en nýju
samningarnir tóku gildi.
Eins og DV greindi frá í vetur
komu fjölmargir sérfræðingar sér upp
mjög háum heimagerðum töxtum
meðan samningar voru lausir og
kröfðu sjúklinga sína um greiðslu
samkvæmt þeim. Þórir Haraldsson
segir að ekkert verði endurgreitt um-
fram þann taxta sem í gildi var áður
en læknar sögðu samningunum við
Tryggingastofnun upp. Um mismun-
inn verði sjúklingamir að eiga við
læknana. -SÁ
Hallbjörn og Finnarnir sem komu til að stjórna uppsetningu hússins.
DV-mynd Þórhallur
Skagaströnd:
Nýr kántríbær vígður í júní
DV Sauðárkróki:
„Það gengur afskaplega vel að reisa
húsið. Ég er bjartsýnn á að geta opn-
að í júní, í þann mund sem ferða-
mannastraumurinn byrjar. Draumur-
inn er að Kántríbær verði vígður á
sjómannadaginn í vor. Það er mesti
hátíðisdagur hér á Ströndinni, næstur
jólunum," sagði Hallbjörn Hjartarson,
kántríkóngur á Skagaströnd.
í síðustu viku var byrjað að reisa
nýjan Kántríbæ á Skagaströnd,
finnskt bjálkahús i stað Kántríbæjar I
sem brann í vetur. Þá veröur Kántrí-
bær II endurbættur og klæddur að
utan í stíl við bjálkahúsið. Nýi Kántrí-
bær er heldur stærri að grunnfleti en
sá gamli og einnig nýtist betur rými á
efri hæð því þar veröur full lofthæð.
Kántríútvarpið verður til húsa á efri
hæðinni og útsendingar hefjast strax
og Kántríbær verður vígður í vor.
Húsið er framleitt í vinabæ Skaga-
strandar í Finnlandi, Lohja, og tveir
finnskir iðnaðarmenn vinna að upp-
setningu þess ásamt smiðum á Skaga-
strönd.
„Ég hef fengið ákaflega góð við-
brögð frá fólki sem ætlar að styðja
mig í því að koma þessu upp. Gíró-
seðlarnir, sem sendir hafa veriö út,
eru líka um leið ávísun á hlutafjár-
eign í fyrirtækinu. Þetta er reyndar
bara byijunin á stærra dæmi. Hér er
áætlað að í framtíðinni geti risið þrjú
hús til viðbótar á svæðinu," segir
Hallbjöm, sem fylgist af áhuga með
framkvæmdunum. Var hann á bygg-
ingarstað með hattinn sinn góða þeg-
ar fréttamaður DV var á ferð á Skaga-
strönd 24. apríl. Þá var búið að raða
húseiningunum saman upp að glugg-
um á efri hæð. -ÞÁ
Stuttar fréttir dv
Formannsslagur í VSI
Iðnaðurinn gerir tilkall til for-
mennsku í
Vinnuveitenda-
sambandinu.
Komin eru fram
tvö framboð,
annað frá Ólafi
Baldri Ólafs-
syni, sitjandi
formanni, og
Víglundi Þor-
steinssyni, varaformanni VSÍ, sem
myndin er af. Undanfamir þrir for-
menn að Ólafi meðtöldum hafa allir
verið frá sjávarútveginum. Morgun-
blaöið sagði frá.
Styðja Jóhann
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
og óháðra hefur samþykkt traustsyf-
irlýsingu á störf Jóhanns Ársælsson-
ar í bankaráði Landsbankans. Jó-
hann sagði sig úr ráðinu fyrir helgi
og telur þingflokkurinn hann hafa
sýnt mikOvægt frumkvæði með því.
Eitur leyft
Hollustuvernd ríkisins hefur lagt
tU við umhverfisráðherra að hann
gefi æðarbændum leyfi tU að eitra
fyrir vargfugl í æðarvarpi með efn-
inu Phenamal í eitt ár. Strangar
reglur skal þó setja um notkunina.
Ákvöröunin stendur
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir að ákvörð-
unin um að
hefja ekki hval-
veiðar í ár
standi þótt búið
sé að hanna fuU-
kominn hval-
skutul og Norð-
menn séu ekki
að hanna nýja og enn betri. Fleira
en ófullkomnir hvalskutlar komi
við sögu málsins. Stöð 2 sagði frá.
Frestun í lagi
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði i RÚV að hann væri sáttur við
frestun gagnagrunnsfrumvarpsins.
Vegna andstöðu við það væri skyn-
samlegt að bíða með afgreiðslu
málsins.
Arnarfell lægst
Verktakafyrirtækið ArnarfeU
bauð lægst í lagningu Borgarbraut-
ar á Akureyri, 125 mUljónir króna
sem er 75% af kostnaðaráætlun.
Innifalið í verkinu er brúarsmíði
yfir Glerá. Bylgjan sagði frá.
Þúsundkall
Það mun kosta þúsundkaU að
aka um Hvalfjarðargöngin á venju-
legum fólksbU. Gjaldskráin var
kynnt í gær. Þrír verðflokkar verða
fyrir hverja tegund ökutækja eftir
lengd þeirra. Ódýrast verður að
kaupa 40 feröa pakka. Þá kostar
rennslið 600 kaU.
Bretar í Lindasmára
Breska stórfyrirtækið Depen-
hamls hefur ákveðið að reisa risa-
verslun í Lindasmára í Kópavogi.
Verslunin verður 4.000 fermetrar
þar sem seld verða föt og heimUis-
vörur. Stöð 2 sagði frá.
Aðstoð í uppnámi
Engir bosnískir heUbrigðisstarfs-
menn hafa enn komið hingað tU
lands tU þjálfunar og starfsmennt-
unar eins og tU stóð. Ástæðan er sú
að ekki náöust samningar um
greiðslur miUi lækna og utanríkis-
ráðuneytisins. MikU undirbúnings-
vinna hefur farið fram. Sjónvarpið
sagði frá.
Halldór áminnir
HaUdór Ásgrímsson áminnti
kanadískan
starfsbróður
sinn, Sergio
Marchi, á fundi
þeirra í París.
Kanadamenn
yrðu aö liðka
fyrir veitingu at-
vinnu- og bú-
setuleyfa íslendinga í Kanada. Við-
ræður um fríverslunarsamning ís-
lands og Kanada hefjast 26. maí í
Reykjavík. Vísir sagði frá. -SÁ