Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Blaðsíða 19
18 ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 23 íþróttir íþróttir Manchester Vnited og PSV hafa komist að samkomulagi um kaup United á varnarmanninum Jaap Stam en United greiðir 10 milljónir punda fyrir leikmanninn eöa um 1,2 milljarða króna. Stam verður þar með dýrasti vam- armaður heims en hann skrifar und- ir hjá Manchester United nú í vik- imni. Alex Ferguson, stjóri United, er mjög ánægður með að þessi mál skulu vera komin á hreint. „Stam er heimsklassavamarmaður. Ég held að enginn efist um það. Þetta er leik- maöur sem okkur vantar. Hann er fljótur, meö góöa knattmeðferð og ég er viss um að hann á eftir að gera góða hluti fyrir okkur,“ sagði Fergu- son. Aston Villa er að undirbúa tilboð í ítalana Luigi Sartor, varnarmann AC Milan, og Marco Negri, framherja Rangers, og er reiðbúið að borga 9 milljónir pimda fyrir þá. David Ginola, leikmaðurinn snjalli hjá Newcastle, segir að Alan Shearer, framherji Newcastle, hafi ítrekað reynt að sparka í sig i leik Tottenham og Newcastle um helgina. Ginola segir að Shearer hafi verið æstur og pirraður vegna gengi sinna manna í leiknum og hann hafi látið skapið hlaupa með sig í gönur. Ég sagði við hann eftir eitt brotið að hann væri það góður knattspymu- maður að hann ætti ekki að vera að standa í svona löguðu. Jackie McNmara, leikmaður Céltic, var á sunnudaginn útnefndur besti leikmaöur skosku úrvalsdeildarinnar af leikmönnum deildarinnar. í næstu sætum á eftir uröu Marco Negri, Rangers, Steve Fulton, Hearts, og Craig Burley, Celtic. Arsenal er að undirbúa tilboð i franska landsliðsmanninn Robert Pires sem ieikur með Metz. Fleiri fé- lög eru á höttunum eftir þessum sterka miðjumanni, svo sem Paris SG og Marseiile. Teddy Sheringham hjá Manchester United neitar þeim fréttum sem birt- ust í nokkrum enskum blöðum í gær að hann sé á förum frá félaginu til Middlesbrough. Sheringham segist koma af fjöllum og hafi fyrst heyrt af þessu þegar hann las blöðin. „Ég er mjög ánægð- ur hjá United og ætla að vera hér áfram," segir Sheringham. Sheringham, sem er 32 ára gamail og var keyptur frá Tottenham á 5,8 millj- ónir punda fyrir tímabiliö, hefur valdið stuðningsmönnum United miklum vonbrigðum. Hann hefur ekki náð sér á strik og ekki skorað eitt einasta mark á þessu ári. Nigel Martyn, markvöröur Leeds United og enskur landsliðsmaður, hefur gengið í gegnum marga eldraunina undanfarin ár. Ekki er langt um lióiö síðan Martyn lenti í miklu ævintýri með liði sínu er flugvél liðsins nauðlenti en allt fór þó vel að lokum. Færri vita að eigin- kona hans hefur fjórum sinnum misst fóstur undanfarin sjö ár. Chris Sutton hjá Blackbum er markahæstur í úrvalsdeildinni meö 17 mörk. Michael Owen, Liverpool, og Dion Dublin, Coventry, koma næstir meö 16 mörk. -GH/SK/JKS WIEN PARI Halldór Jóhannsson leikur listir sínar í þolfimi en hann var hársbreidd frá því aö vinna til verölauna á sterku móti í Tokyo á dögunum. Heimsbikarmót í þolfimi: Halldór nálægt bronsi í Japan Halldór Jóhannsson var hárs- breidd frá verðlaunasæti á heims- bikarmóti í þolfimi sem fram fór í Japan fyrir skömmu. Hann hafnaði í fiórða sæti af 20 keppendum. „Ég var sjötti eftir undanúrslitin og náði að laga ákveðin atriði fyrir síðari daginn og vinna mig upp um tvö sæti. Það hefði ekki þurft mikið í viðbót til að komast á verðlauna- pallinn," sagði Halldór í samtali við DV. Pwangsoo, tvöfaldur heimsmeist- ari frá Suður-Kóreu, sigraði á mót- inu með 18,75 stig. Ken-ichiro frá Japan varð annar með 18,35 stig, Kaloian frá Búlgaríu þriðji með 18,30 stig og síðan kom Halldór með 18,00 stig. „Þetta er mikil framfor frá því á heimsmeistaramótinu í fyrra þegar ég var heilum þremur stigum á eft- ir Búlgaranum. Ég er að nálgast þessa menn og er mjög ánægður með það,“ sagði Halldór. Hann tekur þátt í heimsmeistara- mótinu á Ítalíu um miðjan maí. „Ég stefni í að komast í úrslitakeppni átta efstu þar. Það er raunhæft markmið að mínu mati en verður samt mjög erfitt," sagöi Halldór Jó- hannsson. -VS Jón Arnar Magnússon í 2. sæti á tugþrautarmóti: Yfir 8 þúsund stig í 10. þrautinni í röð Jón Amar Magnússon frjálsíþróttakappi hafnaði í 2. sæti á tugþrautarmóti sem fram fór í Kaliforníu í Bandaríkjunum um helgina. Jón hlaut samtals 8.115 stig sem er nokkuð frá hans besta en sigurvegari varð óympíumeistarinn Chris Huffins frá Bandaríkjunum með 8.315 stig. Jón var í 5. sæti eftir fyrri keppnisdaginn en náði að hífa sig upp í annað sæti á síðari keppnisdeginum. Fyrri daginn hljóp Jón Arnar 100 metra á 10,91 sek., stökk 7,28 metra í langstökki, varpaði kúlu 14,99 metra og stökk 1,92 metra í hástökki. Síðari keppnisdaginn gekk Jóni Amari betur. Þá hljóp hann 400 metra á 49,05 sek., 110 metra grindahlaup á 14,55 sek., kastaði kringlu 46,80 metra, stökk 4,91 metra i stangarstökki, kastaði spjóti 60,28 metra og hljóp 1500 metrana á 4:46,46 mínútum. Jón Arnar virðist orðinn mjög öraggur með 8 þúsund stig í tugþrautinni en þetta var í 10. skipti í jafnmörgum þrautum sem hann nær 8 þúsund stigum eða meira. Ef tekið er tillit til þess að hann hefur undanfarið dvalið í æfingabúðum á Spáni er árangur hans í þrautinni um liðna helgi mjög frambærilegur. Greinilegt er þó að hann er fiarri sínum besta árangri í mörgum greinum. -SK/-GH Stöllurnar Margrét Egilsdóttir, GR, og Kristín Guðjónsdóttir, GR, röðuðu sér í tvö efstu sætin á golfmóti íslend- inga sem fram fór á Kanaríeyjum á vegum SL. Margrét lék á 74 höggmn með for- gjöf og Kristín á 82 höggum. Anna Agnarsdóttir, GR, og Ragnheiður Margeirsdóttir, GS, urðu jafnar i 3.-4. sæti á 83 höggum. Vilhjálmur Árnason, GR, sigraði í karlaflokki, lék á 67 höggum nettó. Guðjón Stefánsson, GS, og Jón Grétar Guðgeirsson, GN, urðu jafnir i 2. sæti á 70 höggum. Jafnir i 3.-4. sæti urðu þeir Ámi Guðjónsson, GN, og Óli Viðar Thorst- ensen, GR, á 76 höggum. Óskar Jóns- son, GR, sigraði i öldungaflokki á 59 höggum. Fátt vakti meiri athygli á nýaf- stöðnu Evrópumóti í fimleikum en rússnesk útgáfa af þvi merka riti Playboy en blað þetta er jafnan ætlað karlmönnum og öðrum þeim er yndi hafa af fáklæddum konum. Sú kona sem mesta athygli vakti á síðum blaðsins var engin önnur en Svetlana Khoskina, heimsmeistari i fimleikum. Rak marga í rogastans er uppátæki heimsmeistarans varð op- inbert. Ástœóan fyrir því að meistarinn af- hjúpaði nekt sína var einföld er eftir henni var gengið; Hún vildi sýna það og sanna í eitt skipti fyrir öll að það væru ekki bara smástelpur sem iðk- uðu fimleika. Guörún Birna Skúladóttir, Umf. Laugdæla, tvibætti HSK-metið í 1500 m hlaupi á móti í Bandaríkjunum á dögunum. í undanrásum hljóp hún á 4:42,48 mín. en i úrslitum á 4:41,84 mín. Sigurbjörn Árni Amgrímsson, Umf. Selfoss, setti einnig HSK-met. Hann hljóp 3000 m hindrunarhlaup á 9:24,70 og bætti sex ára gamalt met Más Her- mannssonar um 10 sekúndur. Kristinn Ingi Valsson, skíðakappi frá Dalvik, var ranglega nefndur Héð- inn á einum stað i umfjöllun DV um Andrésar Andar-leikana í gær. Hann er beðinn velvirðingar á ruglingnum. Genk tapaói sínum fyrsta leik á heimaveili í vetur þegar Lierse kom i heimsókn um helgina. Þóróur Guöjónsson skilaði sínu að venju hjá Genk og var með betri mönnum liðsins. Club Brugge innsiglaði endanlega sigur sinn í belgísku knattspymunni. -SK/JKS Miöherji og lykilmaöur í liöi San Antonio, David Robinson, sækir aö körfu Phoenix Suns en til varnar eru þeir Antonio McDyess og Cliff Robinson. Símamynd-Reuter Úrslitakeppni NBA: SA Spurs komið yfir - eftir sigur á Phoenix í nótt Urslitakeppni NBA-deildanna í körfuknattleik hélt áfram í nótt. Úr- slitin urðu þessi: Cleveland-Indiana........ 86-77 (1-2) Kemp 31, Dgauskas 13, Anderson 11 - Smits 26, Miller 18, D.Davis 11. SA Spurs-Phoenix ....... 100-88 (2-1) Duncan 22, Jackson 18, Del Negro 18 - Mcdyess 26, Mccloud 18, Kidd 16. Stórleikur Shawns Kemp tryggði Cleveland sigurinn á Indiana en tap hefði þýtt að liðið hefði fallið úr leik. Aö duga eöa drepast „Það var að duga eða drepast fyrir okkur. Ég er ekki neinn súpermaður. Ég hef leikið oft áður í úrslitakeppn- inni og spilað vel,“ sagði Kemp eftir sigurinn í nótt. Indiana náði að minnka muninn niður í 3 stig þegar ein mínúta var eft- ir en Cleveland átti góðan endasprett og skoraði sex síðustu stig leiksins. Nýliöi ársins var í aðalhlutverkinu Nýliði ársins, Tim Duncan, var í að- alhlutverki í liði SA Spurs sem lagði Phoeniox að velli og náði þar með 2-1 forystu í einvígi liðanna. Duncan skoraði 22 stig og tók 14 fráköst. Spurs gerði út um leikinn í þriðja leikhluta. Staðan var jöfn í hálfleik, 44-44, en Spurs náði undirtökunum og hafði 12 stiga forskot þegar kom að fiórða leik- hlutanum. „Við tókum þetta á vöminni og vor- um ekki að gefa þeim auðvelt skot eins og í síðasta leik,“ sagði David Robinson, miðherji Spurs, sem skor- aði 17 stig í leiknum. Fjórir leikir vora í úrslitakeppn- inni í fyrrinótt og urðu úrslitin þessi: Miaml-New York .......... 86-96 (1-1) Mourning 30, Lenard 25, Hardaway 15 - Starks 25, Houston 24, Johnson 22. Chicago-New Jersey........96-91 (2-0) Jordan 32, Kukoc 19, Pippen 17 - Kittles 23, Douglas 20, Gill 12. LA Lakers-Portland..... 108-99 (2-0) Fox 24, Jones 21, Shaq 19 - Rider 24, Stoudamire 17, Grant 15. Seattle-Minnesota............. 93-98 (1-1) Payton 32, Schrempf 15, Anthony 13 - Mar- bury 25, Porter 21, Mitchell 18. -GH Lilleström af botninum Lilleström fékk sín fyrstu stig í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld með 3-2 sigri á Válerenga. Heiöar Helgu- son lék allan leikinn með Lilleström en Rúnar Kristinsson er enn ekki leikfær. Brynjar Gunnarsson lék ekki með Váler- enga og varð að láta sér nægja að spila með varaliöi félagsins um helgina. -VS Einar byrjar vel Einar Örn Birgisson, helsti markaskorari Þróttcir R. í fyrra, byrjar vel með Lyn í norsku knattspymunni. Einar gerði tvö mörk í bikarleik í síðustu viku og er þegar orðinn vinsæll hjá stuðningsmönnum liðsins, að sögn norskra blaða. -VS Örebro missti af fyrsta sigrinum Örebro missti af fyrsta sigri sínum i ár í sænsku úrvalsdeildinni í knattspymu í gærkvöld. Örgryte jafnaði, 1-1, á lokamínútunni i leik liðanna sem fram fór í Örebro. Arnór Guðjohnsen lék allan leikinn með Örebro en Hlynur Birgisson og Gunnlaugur Jónsson voru ekki með. Gautaborg og Norrköping gerðu 0-0 jafntefli. Birkir Kristinsson var ekki í marki Norrköping og keppinautur hans um stöðuna, Eddie Gust- afsson, varði vítaspymu. Elfsborg og Trelleborg gerðu jafntefli, 1-1. Har- aldur Ingólfsson lék ekki með Elfsborg. -VS/EH Eiríkur Önundarson gekk í gær í raöir úr- valsdeildarliðs KR í körfúknattleik en hann hefur frá 16 ára aldri leikið með meistara- flokki ÍR. Eiríkur hefur undanfarin ár veriö einn af lykilmönnum ÍR og í hópi bestu bakvarða landsins. ÍR féll sem kunnugt er í 1. deild og í kjölfarið ákvað Eiríkur að breyta til. „Mér líst mjög vel á það að ganga til KR- inga. Fyrir mig sem körfuboltamann var nauðsynlegt á þess- um tímapunkti að breyta til og prufa að leika með öðra félagi. Þaö er mikill metnaö- ur hjá KR og liðið hefur alla möguleika á að verða áfram topplið í körfuknatt- leik. Það er samt erfitt að yfirgefa ÍR- inga,“ sagði Eiríkur í samtali við DV í gær- Eiríkur Onundarson. kvöld. -JKS Palace fell 11. deild Crystal Palace féll úr ensku úr- valsdeildinni í gærkvöld eftir að- eins vetursetu í deildinni þegar lið- ið beið 0-3 ósigur gegn Manchester United á heimavelli í London. Það vora þeir Paul Scholes, Nicky Butt og Andy Cole sem skoruðu fyr- ir United í leiknum. Hermann Hreiðarsson lék með Palace síðustu fimm mínúturnar. Arsenal er í efsta sæti með 72 stig eftir 34 leiki en United hefur 71 stig eftir 36 leiki og er í öðru sæti. -JKS Erum við að missa af lestinni? - ráöstefna í Laugardal í kvöld Ólympíuakademía ÍSÍ og Samtök íþróttafréttamanna efna til ráðstefnu í fundarsal ÍSÍ á 3. hæð íþróttamiðstöðvarinnar kl. 20 í kvöld undir yfirskriftinni: Eram við að missa af lestinni? Það verður fiallað um æfingatíma íslensks afreksfólks, hann borinn saman við það sem gerist hjá erlendum afreksmönnum og leitað svara við ýmsum spurningum sem þessu tengjast. Frammælendur verða Kristján Arason, handknattleiksþjálfari hjá FH, Brian Marshall, sundþjálfari SH, Vanda Sigurgeirsdóttir, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, og Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari. Þau flytja 10 mín. erindi hvert og einnig segir Kristinn Bjömsson skíðamaður (á myndbandi) frá æfingaáætlun sinni. Loks verða pallborðsumræður undir stjóm Ingólfs Hannessonar, formanns Ólympiuakademíunnar og íþróttastjóra RÚV. Gera má ráð fyrir að margt forvitnilegt beri á góma þar sem saman koma margir helstu afreksíþróttamenn og þjálfarar landsins. Örvar Guömundsson tryggði sér um helgina íslandsmeistaratitilinn í snóker í flokki 21 árs og yngri þegar hann bar sigurorð af knattspyrnu- kappanum Þorbirni Atla Sveinssyni í úrslitaleik, 5-3. Örvar lagði Jakob Hrafnsson í und- anúrslitunum, 4-3, og Þorbjörn Atli sigraði Davíö Má Gunnarsson, 4-0. Guóni Magnússon varð íslands- meistari i öidungafiokki en hann sigraði Jðnas P. Erlingsson i spenn- andi úrslitaleik, 4-3 Lokahóf HSÍ verður haldið á Hótel Sögu á fimmtudagskvöldið. Miða- kaup og pantanir skulu fara fram á Hótel Sögu (söludeiid) og hófst miða- salan í dag. Fram og Valur mætast i úrslitaleik Reykjavíkurmóts karla í knattspymu þann 9. mai. Fram hlaut 8 stig í A- deildinni, Valur 7, Víkingur 7, KR 6, og Þróttur 6 en Fylkir rak lestina með 2 stig og féll i B-deild. ÍR og Léttir leika til úrslita um sæti i A-deild þann 10. mai. ÍR vann Létti, 2- 0, í lokaumferð B-deildar um helg- ina. ÍR fékk 12 stig, Léttir 9, Leiknir 6, Fjölnir 3 en Ármann ekkert. ÍBV sigraði Hauka, 7-4, í deildabik- ar kvenna i knattspyrnu um helgina. Sindri vann Þrótt í Neskaupstað, 3- 0, í lokaleik riðlakeppninnar í deildabikar karla. HK varö síðasta liðið til að komast í 16-liöa úrslit deildabikars karla. Það réðst þegar Þór tapaði fyrir Leiftri, O-l, í síðasta leik C-riðils. ÍBV og HK mætast í fyrsta leik 16- liöa úrslitanna i kvöld. Leikið er á grasvellinum á Tungubökkum í Mos- feilsbæ kl. 19. Hinir sjö leikirnir verða allir annað kvöld. Tveir aðrir leikir verða á grasi. Fram og Valur leika á Tungubökkum og Keflavík-ÍA á Garðskagavelli. Á gervigrasinu á Ásvöllum leika FH-Fylkir og Stjarnan-Haukar. Leift- ur og Þróttur R. leika á gervigrasvelli Leiknis í Breiðholti. Loks verða tveir malarleikir, Tindastóll-KR á KR-velli og Breiðablik-ÍR á Vallargerðisvelli i Kópavogi. Pétur Marteinsson lék i 26 mínútur gegn Öster á sunnudag en fékk engu að síður 3 í einkunn af 5 mögulegum. Pétmr fór meiddur af velli. Stefán Þóröarson hjá Öster fékk 2 i einkunn í umræddum leik. Hann fiskaöi vítaspymu sem Öster nýtti síðan ekki. Tim Duncan hjá San Antonio Spurs var útnefndur nýliði ársins í NBA-deildinni í körfubolta í gærkvöld. Hann fékk 113 atkvæði af 116 mögulegum. Helena Ólafsdóttir skoraði 2 mörk í gærkvöld þegar KR vann Val, 4-2, í fyrsta leik Reykjavíkurmóts kvenna í knattspymu. Olga Færseth og Hrefna Jóhannesdóttir skoruðu hin mörk KR. Erla Sigurbjartsdóttir og Ásgerð- ur Ingibergsdóttir skoruöu fyrir Val. Fjölnir er þriðja liðið i mótinu. -GH/VS/ JKS/EH Coulthard hélt uppi heiðri McLarens - fyrsti sigur Skotans á árinu - Hakkinen enn í efsta sæti David Coulthard hélt uppi heiðri McLaren-liðsins og sigraði örugglega á Imola kappakstursbrautinni í San Marino á sunnudag. Þetta er þriðji sigur liðsins í fiórum mótum ársins og fyrsti sigur Skotans á árinu og sá fiórði á ferlinum. Michael Schumacher kom annar í mark á Ferrari bíl sínum 4,5 sek. á eftir Coulthard. Eddie Irvine kom þriðji yfir marklínuna til að staðfesta árangur Ferrari-liðsins í kapphlaup- inu við McLaren-liðið sem hefur enn talsverða yfirburði yfir önnur lið og 19. stiga forystu á Ferrari í stiga- keppni liða. Hakkinen heldur enn for- ystu í stigakeppni ökumanna og kem- ur félagi hans Coulthard næstur. Hakkinen hætti „Ég fékk aukið sjálfstraust í dag og sigurinn þýðir að nú er ég aftur kom- inn í baráttuna um heimsmeistara- titilinn, það bætir mér upp vonbrigð- in frá því í Argentínu," sagði hinn 27 ára Coulthard. Hann byrjaði keppn- ina á fremsta rásstað við hlið félaga síns Hakkinen og náðu þeir að kom- ast undan og byggja upp verulegt for- skot á Schumacher sem var sá eini af „hinum“ ökumönnunum sem hélt eitthvað í við McLaren. Á 17. hring komu svo fyrstu stóru vonbrigði McL- aren-liðsins í ár þegar Hakkinen varð að hætta keppni vegna bilunar í gír- kassa og það skildi eftir annað sætið fyrir Schumacher. „Við gerðum okkar besta og gerð- um ekkert vitlaust í dag. í hreinskilni sagt hefði ég lent í þriðja sæti við venjulegar kringumstæður." Drasl í olíukæli Eftir seinna viðgerðarhlé Coult- hards hafði hann 24 sek. forskot á Þjóðverjann á rauða Ferrari-bílnum sem fór að sækja fast á hæla Skotans, sem virtst vera að fatast flugið, og minnkaði bilið milli þeirra jafnt og þétt. „Það hafði safnast saman drasl í olíu- kælinum sem við náðum ekki að fiar- lægja í viðgerðarhléum. Þess vegna lækkuðum við snúningshraða vélar- innar til að halda hita í lágmarki,“ sagði Ron Dennis, keppnisstjóri McL- aren, um vandræði Coulthards á lokahringjunum. „Við höfðum fullkomna stjóm á ástandinu en ég held að það hafi verið mjög spennandi að fylgjast með lokamínútunum, alla vega fyrir okkur“. Villeneuve óánægður Baráttan um þriðja sætið var hörð og voru það erkifjendurnir Villeneu- ve og Irvine sem háðu baráttuna alla keppnina en Villeneuve hafði rænt stöðunni af Irvine með feikigóðri ræs- ingu í upphafi keppninnar. Það var snöggt viðgerðarhlé Ferraris sem gaf Irvine nægilegt forskot til að komast út á undan Kanadamanninum en við- gerðarmenn Williams voru í vand- ræðum með að loka bensínlokinu eft- ir áfyllingu. Og það kostaði heims- meistarann dýrmætan tíma. „Ég var svolítið fljótari en Eddie á brautinni en við voram að missa tíma í viðgerðarhléum," sagði Villeneuve sem náði sínum besta árangri á þessu ári. „Það er gott að geta klárað en þrjú stig era ekki nóg.“ Villeneuve endaði í 4. sæti á undan félaga sínum Hanz H Frentzen sem náði að troða sér fram fyrir Jean Al- esi í seinna viðgerðarhléinu. Alesi kom sjötti í mark, heilum hring á eft- ir David Coulthard sem ók 62 hringi (305,6km) á 1:34:24 klst. Stigakeppnni ökumanna: 1. Hakkinen....................26 2. Coulthard ..................23 3. Schumacher..................20 4. Irvine ......................10 5. Frenzten.....................8 6. Wur .........................6 7. Villeneuve ..................5 8. Alesi........................3 9. Herbert......................1 9. Fisichella ..................1 Stigatafla keppnisliða: 1. McLaren ....................49 2. Ferrari.....................30 3. Williams ...................13 4. Benetton ....................8 5. Sauber.......................4 -ÓSG Þjóðverjinn Michael Schumacher á Ferrari kom annar í mark í San Marínó kappakstrinum um helgina. Símamynd-Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.