Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Blaðsíða 30
34 ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 Afmæli Angantýr Einarsson Angantýr Einarsson, skólastjóri Litlulaugaskóla í Reykjadal í Suður- Þingeyjarsýslu, til heimilis að Gerði á Laugum, er sextugur í dag. Starfsferill Angantýr fæddist á Hermundar- felli í Þistilfirði og ólst þar upp til átta ára aldurs en flutti þá til Akur- eyrar. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1958 og var við nám í íslenskum fræðum við HÍ 1958-61 og tók kenn- arapróf frá KÍ 1962. Angantýr var kennari á Þórshöfn 1960-61, 1962-63 og 1964-67, skóla- stjóri í Skúlagarði í Kelduneshreppi 1963-64 og við Grunnskólann á Raufarhöfn 1968-78, kennari þar 1979-94 en síðan skólastjóri við Litlulaugaskóla. Hann var ritari Fjárveitinganefndar Alþingis 1958-59, erindreki hjá Alþýðusam- bandi Norðurlands 1967-68 og tölvu- forritcU'i hjá ACO 1978-79. Auk þess hefur Angantýr stundað margvísleg störf á sumrin, m.a. handfæraveiðar og grenjavinnslu á Langanesi frá 1980. Angantýr sat í hreppsnefnd Rauf- arhafnarhrepps 1970-78 og 1990-94 og var þá oddviti og formaöur stjórnar Fiskiðju Raufarhafnar, sat í sýslunefnd 1966-70, hefúr gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Al- þýðubandalagið í Norður- landskjördæmi eystra og sinnt fjölmörgum öðrum félagsstörfum. Fjölskylda Angantýr kvæntist 19.1. 1964 Auði, f. 15.1. 1946. Hún er dóttir Ás- gríms Hólm Kristjánsson- ar, f. 25.3. 1913, d. 7.7. Angantýr 1987, sjómanns á Þórs- höfn, og k.h., Helgu Har- aldsdóttur, f. 26.6. 1926, húsmóður. Börn Angantýs og Auðar eru Halla, f. 8.11.1964, húsmóðir á Akur- eyri, gift Ásgeiri Þórhallssyni vöru- bifreiðarstjóra og eru böm þeirra Þórhalla, f. 26.12. 1987 og Angantýr Ómar, f. 6.12. 1990, en sonur Höllu og Guömundar Bjömssonar er Ein- ar, f. 30.11. 1984; Hlynur, f. 7.6. 1967, stýrimaður á Húsavík, í sambúð með Elínu Guðrúnu Björnsdóttur og er dóttir þeirra Margrét Bylgja, f. 25.8. 1997 en dóttir Hlyns og Krist- bjargar Jónsdóttur er Auður Tinna, f. 8.9. 1987, og dóttir Hlyns og Höllu Hallsdóttur er íris Ösp, f. 4.6. 1990; Ásgrímur, f. 3.8. 1972, íslenskunemi viö HÍ, kvæntur Berglindi Rós Magnúsdóttur kennaranema og er dóttir þeirra Auður, f. 2.6.1994; Ein- Einarsson. ar, f. 21.9. 1974, d. 29.5. 1979. Systkini Angantýs em Óttar, f. 3.10. 1940, skóla- stjóri á Svalbarði í Þistil- firði, kvæntur Jóhönnu Þorsteinsdóttur; Berg- þóra, f. 21.3. 1944, starfs- maður Marel, gift Eyjólfi Friðgeirssyni; Hildigunn- ur, f. 17.6. 1947, d. 27.5. 1987, læknaritari, var gift Steinari Þorsteinssyni tannlækni; Einar Krist- ján, f. 12.11. 1956, gítar- leikari i Reykjavík. Foreldrar Angantýs: Einar Krist- jánsson, f. 26.10.1911, d. 7.7.1996, rit- höfundur frá Hermundarfelli, og k.h., Guðrún Kristjánsdóttir, f. 16.8. 1917, húsmóðir. Ætt Einar var bróðir Lilju, móður Ás- kels Mássonar tónskálds. Einar var sonur Kristjáns, b. á Hermundar- felli Einarssonar, b. í Garði í Þistil- firði Kristjánssonar, b. á Hallgils- stöðum Sigurðssonar. Móðir Kristjáns á Hermundarfelli var Jámbrá ljósmóðir Einarsdóttir, b. í Garði Guðmundssonar, á Efri- hólum Sölvasonar, Hrólfssonar, i Hafrafellstungu Runólfssonar, Ein- arsonar galdramanns Nikulássonar. Móðir Einars var Guðrún Páls- dóttir, b. á Hermundarfelli Þor- steinssonar, b. á Brimnesi Jónatans- sonar. Móðir Guðrúnar var Stein- unn Jónsdóttir, b. á Múla í Öxar- firði Jónssonar, b. á Snartarstöðum Jónssonar. Meðal systkina Guðrúnar er Þór- halla, móðir Áma Harðarsonar söngstjóra. Guðrún er dóttir Krist- jáns, b. í Holti í Þistilfirði Þórarins- sonar, b. á Efrihólum og Laxárdal, Benjamínssonar, b. í Akurseli Þor- steinssonar, b. í Hafrafellstungu Þorsteinssonar, b. á Staðarlóni Þor- steinssonar, bróður Skíða-Gunnars, langafa Gunnars á Ljótsstöðum, föð- ur Gunnars rithöfundar. Móðir Kristjáns var Vilborg Sigurðardótt- ir, hálfsystir Ingveldar, móður Am- ar Amarsonar skálds. Móðir Guðrúnar var Ingiríður, systir Jóhannesar á Gunnarsstöð- um, afa Steingríms Sigfússonar alþm. Önnur systir Ingiríðar var Sigríður, amma Björns Teitssonar, skólameistara á Isafirði. Ingiríður var dóttir, Áma b. á Gunnarsstöð- um Davíðssonar, b. á Heiði á Langa- nesi Jónssonar. Móðir Ingiriðar var Ambjörg Jóhannesdóttir, b. á Ytra- Álandi Ámasonar, b. á Staðarlóni í Öxarfirði, Ámasonar. Angantýr er að heiman. Auður Hildur Hákonardóttir Auður Hildur Hákonar- dóttir, forstöðumaður Listasafns Árnesinga á Selfossi, til heimilis að Straumum í Ölfusi, er sex- tug í dag. Starfsferill Auður Hildur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp við Bústaðaveginn. Hún lauk námi sem myndvef- ari frá Myndlista- og hand- íðaskóla íslands 1968, stxmdaði nám í sömu grein inburgh College of Art 1969 vefnaðarkennaraprófi frá lista- og handíðaskól- anum 1980. Auður Hildur var kennari við Myndlista- og handíðaskóla ís- lands 1969-75, skóla- stjóri þar 1975-78 og kennari þar til 1981, var forstöðumaður Byggða- og listasafns Ámesinga á Selfossi 1986-93 er hún dró sig í hlé vegna veikinda en hefur svo aftur ver- ið forstöðumaður þar við Ed- frá 1.3. 1998. oglauk Auður Hildur vann að mynd- Mynd- vefnaði 1969-90 og tók þá þátt í Auöur Hildur Hákonardóttir. flölda samsýninga og hélt þrjár einkasýningar. Hún hefur látið ým- is félagsmál til sín taka, m.a. unnið að uppbyggingu Ullarvinnslunnar í Þingborg og stuðlað á annan hátt að eflingu handverka. Þá hefur hún skrifað greinar af ýmsu tilefni i blöð og tímarit. Fjölskylda Auður Hildur giftist 31.12. 1976 Þór Vigfússyni, f. 2.4.1936, kennara og skólastjóra. Hann er sonur Vig- fúsar Guðmundssonar, bifreiða- stjóra á Selfossi, og Guðrúnar Jóns- dóttur húsmóður. Börn Auðar Hildar em Kolbrún Oddsdóttir, f. 8.6. 1956, landslags- arkitekt og garðyrkjustjóri í Hvera- gerði; Hákon Már Oddsson, f. 1.12. 1958, kvikmyndagerðarmaður í Reykjavík. Systur Auðar Hildar em Inga Huld Hákonardóttir, f. 15.3. 1936, rithöfundur í Reykjavik; Hjördís Björk Hákonardóttir, f. 28.8. 1944, héraðsdómari í Reykjavík. Foreldrar Auðar Hildar voru Há- kon Guðmundsson, f. 16.10. 1904, d. 6.1. 1980, hæstaréttarritari og yfir- borgardómari í Reykjavík, og Ólöf Dagmar Árnadóttir, f. 14.10.1909, d. 7.7. 1993, rithöfundur. Auður Hildur er að heiman. Halldór Fannar Halldór Fannar tannlæknir, Funafold 58, Reykjavík, er fimmtug- ur í dag. Starfsferill Halldór fæddist í Reykjavík og ólst þar upp til níu ára aldurs en síðan í Kópavogi. Hann var í Mela- skóla, Kársnesskóla og Gagnfræða- skóla Kópavogs, stundaði nám við VÍ og lauk þaðan stúdentsprófi 1969 og lauk kandídatsprófi í tannlækn- ingum frá Tannlæknadeild HÍ 1977. Halldór var aðstoðartannlæknir hjá Heröi Sævaldssyni í Reykjavík 1977-78 en hefur síðan rekið eigin tannlæknastofú. Þá er hann stunda- kennari við Tannlæknadeild HÍ frá 1978 og var enn fremur stundakenn- ari við Tannsmíðaskóla íslands 1988-96. Á stúdentsámnum stofnaði Hall- dór og landsþekktir vinir hans hið vinsæla Ríó tríó. Hann var ritari í stjóm Félags íslenskra tannlækna- nema 1972-73, ritstjóri Harðjaxls 1973, ritari í stjóm Tannlæknafélags íslands 1981-83 og sat í skólanefhd Tannsmíðaskóla íslands 1981-82. Fjölskylda Fyrri eiginkona Halldórs var Kristrún O. Stephensen, f. 18.2.1949. Þau skildu 1983. Dætur Halldórs og Kristrúnar em Soffia Dögg, f. 5.12.1969, tannsmiður en maður hennar er Daði Friðriksson og son- ur þeirra Goði Már, f. 2.1. 1995; Halla Dóra, f. 4.12.1973, læknanemi en sambýlismaður hennar er Bjami Adolfsson. Seinni kona Halldórs er Guðrún Fríður Garð- arsdóttir, f. 23.10. 1950, sjúkraliði. Synir Halldórs og Fríðar era Halldór Fann- ar, f. 1.3. 1984; Róbert Fannar, f. 24.8. 1985. Synir Fríðar em Tómas Bents- son, f. 16.8.1971, bílstjóri en sambýl- iskona hans er Hjördís Berglind Zebitz og sonur þeirra Björgvin Dagur, f. 16.8. 1997; Ólafur Þorsteinsson, f. 13.9. 1977, nemi í húsasmíði. Systkini Halldórs: Þór Fannar, verslunarmaður í Reykjavík; Heimir Fann- ar, verkfræðingur i Amer- íku; Valur Fannar, byssu- smiður í Bandaríkjunum; Hanna Mjöll, sjúkraliði í Reykjavík. Foreldrar Halldórs: Valur Fannar, gullsmiður í Kópavogi, og Hanna Aðal- steinsdóttir, deildarritari við Landsspítalann. Halldór tekur á móti gestum í fé- lagsheimili TFÍ að Síðumúla 35, Reykjavík, í dag kl. 17.00-20.00. Halldór Fannar. Oliver Hinrik Oliversson Oliver Hinrik Oli- versson kranamaður, til heimlis að Lauga- bóli á Laugabakka í Hrútafirði, er fertugur í dag. Starfsferill Oliver Hinrik fædd- ist í Reykjavík en ólst upp í Mosfellssveit og á Gjögri á Ströndum. Hann var í Varmárskóla í Mosfell- Oliver H. Oliversson. sveit og stundaði nám við MH um skeið. Oliver og kona hans bjuggu á Skagaströnd í nokkur ár þar sem hann starfaði hjá Mánavör hf. Þau vora síðan með kúabúskap í Lækjar- hvammi skamma hríð en fluttu þaðan í Grindavík. Þau stunduöu svínarækt að Laufási í Víðidal í nokkur ár en fluttu síðan á Lauga- bakka þar sem þau búa nú. Oliver hefur stundað fiskvinnslu frá því þau fluttu á Laugabakka auk þess sem hann er kranamaður og grípur í ýmis önnur störf þegar á þarf að halda. Fjölskylda Oliver kvæntist 24.10. 1981 Jó- hönnu Bára Jónsdóttur, f. 1.5. 1958, fiskverkakonu, dóttur Jóns Kon- ráðssonar og Dýrfinnu Högnadótt- ur, nú á Hvammstanga. Fósturdóttir Olivers er Díanna Rut, f. 6.3. 1976, búsett í Reykjavík en unnusti hennar er Hilmar Sím- onarson. Synir Olivers og Jóhönnu era Hinrik Þór, f. 31.3. 1981; Oliver, f. 12.9. 1987. Systkini Olivers: Jóhanna Hlöðversdóttir, búsett í Mosfellsbæ; Kristín C. Chadwick, að Hömrum í Grímsnesi; Hinrik Chadwick, í Simbabwe. Foreldrar: Oliver Bárðarson, f. 21.7. 1922, vélstjóri í Reykjavík, og Auður Jónsdóttir, f. 16.6. 1919, húsmóðir. Til hamingju með afmælið 28. apríl 95 ára Ingibjörg Halldórsdóttir, Furugeröi 1, Reykjavík. 85 ára Þóra Kristjánsdóttir, Litluhlíð 2 G, Akureyri. 80 ára Hallgrímur Jónasson, Ásgerði 5, Reyðarfirði 75 ára Jón Stefánsson, Hólavegi 26, Sauðárkróki. Jón Valdimar Sævaldsson, Álfaskeiði 100, Hafnarfirði. Rósinberg Gíslason, Nesvegi 44, Reykjavík. 70 ára Branddís Guðmunds- dóttir, Erluhrauni 3. Hafnarfirði. Hún er að heiman. Alda Andrésdóttir, Hveramörk 17, Hveragerði. Erlingur Vigfússon, Háeyrarv. 12, Eyrarbakka. Jóhannes Guðmundsson, Túngötu 3, Húsavík. Kristján Finnbogason, Staðarhrauni 9, Grindavik. Þórarinn Hallgrimsson, Bláskógum 15, Egilsstöðum. 60 ára Bryndís Eðvarðsdóttir, Túngötu 2, Sandgerði. Guðmundur Jóhannesson, Þrúðvangi 18, Hafnarfirði. Sesselja Ásta Jónsdóttir, Asparfelli 12, Reykjavík. Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir, Hverfisgötu 99 A, Reykjavík. Sævar Sigiu-ðsson, Lækjarsmára 100, Kópavogi. 50 ára Arnór Þorgeirsson, Smárahlíð 5 E, Akureyri. Charlotta M. Traustadóttir, Engimýri 2, Garðabæ. Guðmundur Þór Þormóðsson, Miklubraut 58, Reykjavík. Halldóra Ólafsdóttir, Stelkshólum 12, Reykjavík. Jóhanna Magnúsdóttir, Víðivangi 9, Hafnarfirði. Jóhannes Óli Kjartansson, Smáratúni 20 B, Selfossi. Sigrún Árnadóttir, Brekkutanga 28, Mosfellsbæ. Örn Þorsteinsson, Tjamarseli 4, Reykjavík. 40 ára Alfreð Svavar Erlingsson, Bergholti 6, Mosfellsbæ. Elín Katla Eliasdóttir, Krosshömrum 16, Reykjavik. Emilía Marta Stefánsdóttir, Logafold 147, Reykjavík. Guðrún J. Steinþórsdóttir, Langholtsvegi 4, Reykjavík. Ingibjörg Halldórsdóttir, Kirkjustíg 9, Siglufirði. Kristjana Amardóttir, Hlíðarhjalla 59, Kópavogi. Ómar Ingvarsson, Suðurhvammi 13, Hafnarfirði. Páll Albert Kristjánsson, Garðhúsum, Vogum. Pétur Aðalsteinn Einarsson, Vesturási 17, Reykjavík. Soffia Ragna Pálsdóttir, Klukkurima 1, Reykjavík. Svanhildur Steingrímsdóttir, Leiðhömrum 14, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.