Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 5 Fréttir Fyrrum veitingamaður Tunglsins sem fékk á sig sektardóm árið 1993: Handtekinn nú og fer í 11 mánaða fangelsi - er að stefna ríkinu fyrir dóm til að fá afplánun hnekkt - segir málið fyrnt Lögreglan handtók þann 14. apríl fimmtugan veitingamann í Reykja- vík og færði hann í Hegningarhúsið við Skólavörðustíg. Hann á nú að af- plána 11 mánaða vararefsingu vegna 5,5 milljóna króna sektar sem hann var dæmdur til að greiða í mars árið 1993. Þegar maðurinn var settur inn krafðist hann þess að dómsmálaráðuneytið legði fyrir lög- reglustjórann i Reykjavík að láta sig tafarlaust lausan úr afþlánun - sekt- in sem hann hlaut væri fymd (5 ár). Ráðuneytið hefur nú kveðið upp Veitingamaðurinn: Ég er reiður „Ég er reiöur og ósáttur viö að þetta skuli viögangast i lýöræðis- og menningarríki. Ég hef ekki trú á aö dómsmálaráðherra viti um úrskurö þann er kom úr ráðuneytinu 18. apríl,“ sagði veitingamaðurinn við DV í gær. Hann er nú að afþlána 11 mán- aða fangelsi í stað sektar sem hann var dæmdur til að greiða árið 1993. -Ótt úrskurð - málið er ekki fymt - það munar 2 dögum. Veitingamaðurinn á að sitja inni næstu tæpa 11 mán- uðina. Hann hefur nú óskað eftir að lögmaður sinn reki mál fyrir hér- aðsdómi þar sem ákvörðun ráðu- neytisins um afþlánun skuli hnekkt. Fjárdráttur og skattabrot Þann 19. mars árið 1993 dæmdi Hæstiréttur manninn í 9 mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt og brot á lög- um um söluskatt á þeim tíma sem hann rak Tunglið og fleiri veitinga- staði í Reykjavík. 6 mánuðir af dómnum voru skilorðsbundnir. Maðurinn var jafhfþamt dæmdur til að greiða 5,5 milljónir króna í sekt tU ríkissjóðs. Sektin átti að greiðast innan fjögurra vikna frá upþkvaðn- ingu dóms - eUa kæmi 11 mánaða vararefsing í staðinn. Veitingamaðurinn sat af sér þriggja mánaða óskilorðsbundinn hluta aðalrefsingarinnar þegar árið 1993. Lögreglunni i Reykjavík var síðan falið að innheimta sektina. Maðurinn samdi og greiddi inn á skuldina en náði síðan ekki að greiða umrædda fjármuni á tUsett- um tíma. Umsamin trygging var ekki látin í té og féU samningur því niður af hálfu lögreglunnar vegna vanefnda dómþolans. í úrskurði ráðuneytisins kemur fram að bæði 16. febrúar og 14. apr- U sl. var sótt um vistun mannsins til afplánunar vararefsingunni. Þá voru eftirstöðvar sektarinnar 4,3 milljónir. Fangelsismálastofnun féUst á að maðurinn hæfi afplánun þann 14. aprU. Sama dag var hann handtekinn og settur inn. Maðurinn lagði fram stjómsýslukæru 2 dögum síðar. Þar segir m.a. að refsingin sé fyrnd þar sem við handtöku voru liðin meira en 5 ár frá því að unnt var að fúUnægja dómnum. Ráöuneytiö segir 2 daga vanta á fyrningu Ráðuneytið segir m.a. í niður- stöðu sinni að ljóst megi vera að ekki sé unnt að fuUnægja fésekt- arrefsingu fyrr en liðinn er sá frest- ur sem ákveðinn er í dómi - hvorki með aðgerðum né með beitingu vararefsingar. Framangreindur dómur mannsins sé kveðinn upp 19. mars 1993. Ef 4ra vikna fresturinn sé miðaður við uppkvaðningu hafi hann rannið út 16. aprU 1993. Miðist 5 ára fyrningartími við þann dag liggur fyrir að fymingarfrestur sektarrefsingarinnar, og þar með 11 mánaöa vararefsingarinnar sem maðurinn á nú að taka út, hafi runniö út 16, aprU. Með öðrum orðum - sé miöað við rök ráðuneytisins segir það að fyrn- ingarfresturinn hafi runniö út tveimur dögum eftir að maðurinn var handtekinn og settur inn. Að þessu virtu staðfestir ráðuneytið ákvörðun lögreglunnar í Reykjavík. Málið er nú í höndum dómstjórans í Reykjavík. -Ótt LAUREflCE SAM KATHLEEfl JOELY FISHBURnE • flEILL GjUin LAFl - RICHARDSQfl HORIZPn jjfe. JlL i’. □ EnDAflLEGT RÝM I OEnDAHLEGUR ÓHUGnAÐUR mt. mk " ■: . Skugga- legur vísinda- tryllir sem fœr hárin til að rísa. Lágmúla 7 sími 568 5333 Opið til 1 virka daga og til 3 um helgar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.