Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Blaðsíða 28
32 ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 Sviðsljós DV átt von a go >um Degi Austur í Búlgaríu er líka hugsaö um tískuna. Þar í landi hefur rauöur litur alltaf veriö í miklu uppáhaldi, kannski þvinguöu hjá sumum. Búlgarski hönn- uðurinn Milena Veliova telur litinn hins vegar hæfa þessum kvöldkjól. Cliff Richard: Raddböndin lögð á hilluna Já, mál er að linni. Breski guliald- arpopparinn ClifF Richard hefur ákveðið að hætta að syngja. Cliff hefur líka verið að í fjörutíu ár. Á þeim tima hefur hann átt þrettán lög í fyrsta sæti vinsældalistans breska og selt 250 milljón eintök af plötum sínum. Talandi um plötur, þá eru breiðskifumar orðnar 57 og sú 58. bætist í hópinn í haust. Það á að verða sú síðasta. Cliff ætlar þó ekki að leggjast í leti, þótt hann hafi efni á því, held- ur leita að ungu hæfileikafólki. Meðal að alvinninga er fartölva frá Nýmark. Lestu bladid og taktuþátt í íeiknum! Wo 00.00 'y' Þú greiðir ekkert umfram vcnjulegt slmul Madonna með Kynþokka- og poppdísin Madonna skartar forkunnar- fógru glóðar- auga þessa dagana. Ekki er það nú svo gott að hún hafi fengið það í slagsmálum á einhverj- um sudda- barnum, aldeilis ekki. Stúlkan meiddist þegar hún var að leika sér við átján mánaða gamla dótt- ur sína, Lourdes. Já, þannig var að Madonna var að hossa Lour- des litlu á hnjám sér þegar haus- ar þeirra rákust saman með fyrr- greindum afleiðingum. Ekki fylgir sögunni hvort sjái á barn- inu. Cruise og Kid- man ívinnu Hjónakomin Tom Cruise og Nicole Kidman héldu áreiðan- lega að þau væm endanlega laus við leik- stjórann Stanley Kubrick, sem hélt þeim nánast í gislingu í Englandi í eitt ár eða meira. Á meðan máttu þau ekki og gátu ekki unnið fyrir aðra leikstjóra. Fregnir herma nú að Kubrick vilji fá leikarana aftur til sín til frekari myndatöku. Ekki er vit- að hversu lengi Kubrick vill halda hjónunum í þetta sinn. Tom er á lausu en Nicole ekki. Kryddpíurnar: Þénuðu 7 milljarða Kryddpíurnar fengu í fyrra 7 milljarða íslenskra króna í tekjur fyrir plötusölu, tónleikahald og þátttöku í ýmsum auglýsingum. Það þýðir að hver Kryddpíanna hefur fengið rúman milljarð í vasann á síðasta ári. Oftast hafa það verið gamal- reyndir menn eins og Paul McCartney og Mick Jagger sem hafa verið efstir á listanum yfir tekjuhæstu bresku listamennina. En í fyrra urðu þeir sem sé að sætta sig við að Kryddpíumar yrðu fyrir ofan þá. Það virðist sem vinsældir stelpnanna séu ekkert að dvína þessa dagana. Miðar á fyrstu tónleika þeirra í Bandaríkjunum seldust til dæmis upp á 12 mínútum. Gert er ráð fyrir að Kryddpíumar græði jafnvel enn meira í ár en í Kryddpíurnar voru tekjuhærri en Paul McCartney og Mick Jagger í fyrra. fyrra því á miðju síðasta ári ráku þær umboðsmann sinn, Simon Fuller, og sjá nú sjálfar um reksturinn samkvæmt frásögnum breskra blaða. Þær hafa sett á laggirnar fjögur aðskilin fyrirtæki undir nöfnunum Spice Girls Touring, Spice Girls Productions, Spice Girls Merch- andising og Spice Girls Perfumes. Ævintýrið byrjaði í mars fyrir þremur ámm þegar þær Emma Bunton, Mel C, Mel B, Geri Halliwell og Victoria Adams Posh svöruðu auglýsingu þar sem óskað var eftir hljómsveit. Reyndar var Victoria þá þegar í góðum efnum þvi hún er af ríku fólki komin. En hinar Kryddpíurnar höfðu haft lítil kynni af peningum áður en þær fóra að raka þeim inn. Marla í öðruvísi innkaupaferð Þegar Marla Maples var eigin- kona auðjöfúrsins Donalds Tramps fór hún varla í aðra verslunarleið- angra en í búðir frægra tískuhönn- uða í New York. Eftir að þau hjóna- komin skildu virðist Marla jafn- ánægð í venjulegum stórmörkuðum og í fínu tískuverslununum forðum. Nýlega sást Marla, sem er fyrr- verandi fegurðardrottning, klædd í æfingagalla í stórmarkaði. Hún gekk þar um með innkaupakörfu eins og hver annar viðskiptavinur. Sagan segir að Marla og dóttir hennar, Tiffany, sem hún átti með Donald, hafi flutt til Los Angeles eftir að hafa yfirgefið heimili fjölskyldunnar í Flórída. Marla og Donald, sem skildu í júní i fyrra, hafa enn ekki gengið frá skilnaðarsamkomulaginu. i I ( I ( ( ( ( ( ( ( ( ( i ( i (

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.