Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998
Fréttir
Flaggskip Bolvíkinga selt í burtu:
A förum með kvót-
ann og atvinnuna
- segir Kristinn H. Gunnarsson alþingismaöur - Kristinn sá eini sem heldur þessu fram, segir Eiríkur Tómasson
Togarinn Hrafnseyri ÍS hefur verið seldur frá Bolungarvik. Skipið hét áöur Kolbeinsey ÞH 10.
„Á sínum tíma var Hrafnseyrin
keypt til að styrkja rækjuvinnsluna.
Nú er Snorrabúð stekkur þegar lítill
línubátur er oröinn flaggskip Bolvík-
inga,“ segir Kristinn H. Gunnarsson,
alþingismaður Vestflrðinga, um sölu
togarans Hrafnseyrar ÍS frá Bolung-
arvík til Patreksfjarðar. „Útgerð línu-
bátsins hentaði betur,“ segir Eiríkur
Tómasson, framkvæmdastjóri Þor-
bjamar, í samtali við DV.
Það er Þorbjöm hf. í Grindavík
sem selur skipið en þess er skemmst
að minnast að þaö fyrirtæki yflrtók
rekstur Bakka hf. í Bolungarvík og
fékk þannig forræði yfir stærstum
hluta veiðiheimilda Bolvíkinga, auk
hluta af veiðiheimildum ísflrðinga.
Nýlega lokaði Þorbjöm hf. rækju-
vinnslu Bakka í Hnífsdal og hætti
vinnslu bolfisks í Bolungarvík. Nú
óttast margir heimamanna að fyrir-
tækið muni einnig loka rækjuvinnsl-
unni í Bolungarvík þar sem skipið er
farið.
„Menn fógnuðu því mjög og vom
Kristinn H. Gunnarsson alþingis-
maður.
með hástemmdar yfirlýsingar þegar
Bakki sameinaðist Þorbimi hf. Síðan
hefur heldur dregið úr atvinnustarf-
semi og til marks um það flutti Þor-
björn 5 manns frá Bofungarvík um
daginn og borgaði undir þá ferðir og
uppihald. Það var afdrei tafað um að
flytja fófkið suður heldur var ætfun-
in, að eigin sögn, að efla atvinnu-
starfsemi Bofvíkinga," segir Krist-
inn.
„Það er mín skoðun að þetta endi
þannig að þeir fari með affan
kvótann og þar með atvinnuna. Ég
hefd að þeir geri þetta í áföngum tif
að friða fófk og minna beri á því,“
segir Kristinn.
Eiríkur Tómasson, framkvæmda-
stjóri Þorbjamar í Grindavík, vísar
því á bug að ætfunin sé aö draga stór-
fega úr umsvifum í Bofungarvík.
Hann sagði að útgerð línubáts hent-
aði betur en útgerð Hrafnseyrarinn-
ar frá Bofungarvík. Aðspurður um
hvort tif stæði að hætta vinnsfu bof-
fisks í Bofungarvík sagði Eiríkur að
það hefði ekkert verið rætt. „Eini
maðurinn sem hefur skrifað og sagt
að við séum að hætta í Bolungarvík
er Kristinn H. Gunnarsson. Hann er
búinn að gera það síðan við komum
þama upphaflega," sagði Eirikur
Tómasson. -SÁ
Þjóð veit þá þrír vita
Það hefur orðið hfé á
laxaumræðunni. Landsbank-
inn er ekki lengur á mifli
tannanna á fófki. íslendingar
hafa nefnifega fundið sér
nýtt máfefni tif að rífast um.
Nú er þaö gagnagrunnurinn.
Rikisstjórnin hefur flutt
frumvarp um gagnagmnna á
heifbrigðissviði sem gerir
ráð fyrir að ísfensk erfða-
greining fái einkafnot af
þessum upplýsingum næstu
tólf árin. Ástæðan er sú að
þetta fyrirtæki undir stjóm
Kára Stefánssonar hefúr gert
umfangsmikfa samninga við
erfenda samstarfsaðifa um
erfðarannsóknir á ísfending-
um og var skrifað undir þá
samninga við hátíðlegt tæki-
færi og forsætisráðherra við-
stöddum. Þar eru milfjarðar í
húfi, skifst manni, og Kári
var um tíma talinn einn af
bestu sonum íslands fyrr og
síðar fyrir að koma þessu
stóra máfi í höfn.
Nú hefúr sem sagt komið
babb í bátinn vegna þess að
þjóðkunnir samfandar Kára í
heilbrigðisgeiranum, í Há-
skólanum og víðar, hafa risið
upp á afturlappimar og mót-
mæft frumvarpinu. Tefja þaö
fletta ofan af persónuvemd
isfensku þjóðarinnar.
Þingmenn, sumir hverjir
að minnsta kosti, em veikir
fyrir þessum mótmæfum og
allt stefnir í að afgreiðslu
framvarpsins verði frestað
fram á haustið.
Þessi læti öll út af gagna-
grunnsfrumvarpinu er lítt
skiljanleg í ljósi þess að ís-
lendingar hafa hingað til
ekki legið á upplýsingum og
kjaftasögum um náungann.
Jafnskjótt og einhver landi
okkar veikist eða skilur eða
á bam í lausaleik eða pissar
utandyra berst sú fiskisaga
vitt og breitt um landið og
því persónulegri og mein-
legri sem sagan er, þvi glað-
beittari eru íslendingar að
segja frá henni. Þrír vita þá
tveir vita, þjóð veit þá þrir
vita.
Persónuvemd er engin hér
á landi og ef ekki vill betur,
þá er logið upp á aöra og það
er sama hvort sögur era
sannar eða lognar. Öllu er
trúað.
Það jaðrar við að það sé
þjóðleg skylda allra sannra
íslendinga að hafa sögur og
orðróm á takteinum þegar
hist er á mannamótum og í
rauninni er hvergi að finna
neina nafnleynd, nema helst
þegar menn eru boðnir í lax-
veiði. Um þær boðsferðir rík-
ir mikil þögn eins og dæmin
sanna.
Samt hafa þjóöræknir ís-
lendingar og hámenntaðir
bitið það í sig að ekki megi
fyrir nokkra muni afhenda
íslenskri erfðagreiningu hf.
Dagfarí
tölvutækar upplýsingar um
ættir og persónueinkenni
samlanda, af þeirri furðulegu
ástæðu að þeir vilja vernda
persónur og einkahagi hver
annars!
Ekki verður betur séð en
að þetta upphlaup gegn
gagnagrunninum endi með
því aö íslensk erfðagreining
verði að falla frá ætlun sinni
að erfðagreina islensku þjóð-
ina og lækkar þá heldur bet-
ur orðstír Kára Stefánssonar.
Loksins þegar glöggur maður
og menntaður í útlöndum
kemur heim til að
kapitalisera í almennum ís-
lenskum kjaftasögum og in-
vestera í frásagnargleði
landsmanna, ætlar allt vit-
laust að veröa. Þaö má sem
sagt ekki tölvukeyra al-
mannaróm og hina þjóðlægu
vitneskju um náungann! Það
má ekki virkja kjaftaganginn
og öll hin opinbera leyndar-
mál sem hvíslað er um.
Persónuvemdin er heilög í
tölvunum. En leikur lausum
hala i kjaftasögunum.
Dagfari
Rukkað um gæsluna
íslenskir sjómenn gagnrýna
Landhelgisgæsluna fyrir slæ-
lega gæslu land-
helginnar á viss-
um svæðum þar
sem erlend skip
eru að veiðum,
m.a við Reykjanes-
hrygginn. Hafsteinn Hafsteins-
son, forstjóri Gæslunnar, vísar
þessu á bug í fréttum RÚV.
Sinueldar
Miklir sinueldar kviknuðu
á Vatnsendahæð undir mið-
nætti á sunnudagskvöld. Mik-
inn reyk lagöi yfir nærliggj-
andi byggð. Slökkvistarf tókst
vel. Netmiðillinn Vísir sagði
frá.
Aukning hjá SÍF
Búist er við 43% veltuaukn-
ingu hjá Sölusambandi ísl.
fiskframleiöenda á þessu áiri
miðað við fyrra ár. Reiknað er
með að veltan verði 16,7 millj-
arðar sem er fimm milljörðum
meira en í fyrra. Viðskiptavef-
ur netmiðilsins Vísis sagði frá.
Fiskvinnsluhagnaður
39 milljóna hagnaður varð
af rekstri Fiskiðjusamlags
Húsavíkur á fyrstu sex mán-
uðum rekstrarársins sem
hófst 1. september. Hagnaður
fyrir afskriftir nam rúmum
170 milljónum króna. Við-
skiptavefúr netmiðilsins Vísis
sagði frá.
Vilja eyða gögnum
Heilsugæslulæknar fullyrða
að margir sjúklinga sinna hafi
óskað eftir því að
sjúkraskýrslum
um þá verði eytt,
verði gagna-
grunnsfrumvarp
heilbrigðisráð-
herra að lögum. Bylgjan sagði
frá.
NIB í heimsókn
Hér á landi er stödd 25
manna sendinefnd frá fjár-
málasviði Norræna fjárfest-
ingarbankans, NIB. Sendi-
nefndin heimsækir helstu
bankastofnanir og fylgist með
verkefnum hér á landi sem
njóta stuðnings bankans. Við-
skiptavefur netmiðOsins Vísis
sagiö frá.
140 milljóna veltutap
Veltutap Útgerðarfélags Ak-
ureyringa tapaði af 140 millj-
óna króna veltu vegna sjó-
mannaverkfaOsins og afkoma
ÚA versnaði um 40-50 mdljón-
ir króna af sömu ástæðum.
Viðskiptavefur netmiðOsins
Vísis greinir frá þessu.
ísland nr. 19
ísland er í 19. sæti í nýrri al-
þjóðlegri árlegri könnun um
samkeppnisstöðu ríkja. ísland
hefur hækkað um tvö sæti frá
í fyrra. í könnuninni er tekið
tillit til m.a. efnahags- og
stjórnmálaástands, alþjóða-
væðingar, fjármála, vísinda,
tækni og mannauðs. Bandarík-
in era í efsta sæti. Viðskipta-
vefur netmiðOsins Vísis sagði
frá.
Frystitogari seldur
Haraldur Böðvarsson hf. á
Akranesi hefur selt frysti-
togarann Ólaf Jónsson GK 404
úr landi. Engar aflaheimildir
fylgja togaranum og söluverð-
ið er jafnhátt bókfærðu verði
skipsins, 288,5 miOjónir. Afla-
heimildir skipsins verða
fluttar á önnur skip HB.
13,7 milljónir á mánuði
Samkvæmt frásögn Viö-
skiptavefjar Vísis fær Ólafur
Jóhann Ólafsson
minnst 165 mOlj-
ónir ÍsL króna í
árslaun í starfi
sínu sem fram-
kvæmdastjóri fjár-
málafyrirtækisins Advanta i
Bandaríkjunum. Það er
minnst 13,7 mdljónir króna í
mánaðarlaun. -SÁ