Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998
Neytendur
Blettur á lofti
Smáblettur eða rispa geta ver-
ið til leiðinda á hvítu lofti.
Strjúkið svolitlu tannkremi yfir
skemmdina með fingurgómi.
Nuddið það niður og eftir smá-
stund sést enginn blettur lengur.
Sléttar silkislæður
Falleg silkibindi eða slæður
geta farið illa á ferðalögum ef
illa er búið um þau. Auðveld leið
til að halda þeim sléttum er aö
vefja þeim utan um tóma kló-
settrúllu.
Ilmur (eldhúsi
í stórmörkuöunum má fá alls
kyns eftii sem gefa eiga góöa lykt
frá sér i hibýlum okkar.
Einfalt ráð tU aö fá góöa lykt,
t.d. í eldhúsiö, er að blanda sam-
an þremur boUum af vatni, app-
elsínu-, sítrónu- eða eplahýði og
sjóða saman. Við það fyUist eld-
húsiö af ferskum ávaxtailmi.
Rlspuö húsgögn
Rispur í dökkum viöarhús-
gögnum geta verið mikiö lýti.
Ráð tU að hylja rispumar er
að blanda saman skyndikaffi og
örlitlu af vatni og nudda því í
rispumar.
Málningardósir á hvolfi
Áteknar málningardósir á að
geyma á hvolfi. Þá myndast eng-
in skán eða börkur á málning-
unni. Gætiö þess þó vel að dósin
sé vel lokuð.
Ódýrt farsímahylki
Ef þú átt lítinn farsíma sem
venjulega er geymdur í hand-
töskunni er óþarfi að kaupa sér-
staka farsímahirslu utan um
hann. Ódýrt gleraugnahylki ger-
ir sama gagn.
Hreinir fingur
Málning festist ekki á fingmm
ef terpentínu er strokið á þá
áöur en farið er að mála.
Málningarkám sem sest hefur
á hendur er íljótstrokiö af með
terpentínu aö loknu verki.
Svampbursti
Ekki er hægt að fá betri fata-
bursta en gúmmísvamp sem dýft
er í vatn og undinn vandlega.
Hann strýkur burt ryk, hár og
sitthvað fleira.
Fúavörn á höndum
Það getur veriö seinlegt að
hreinsa fúavörn af höndum.
Hægt er að nota tannkrem á
hendumar í staöinn fyrir dýr
hreinsiefni og síðan sápu og
vatn. -glm
Spínatsalat með beikoni
Frá og með 1. maí næstkomandi
verður íslenskum innflytjendum
gert skylt að framfylgja reglugerð
EES um merkingar matvæla. í
stuttu máli þýðir það að merkingum
matvæla sem framleidd eru utan
Evrópska efnahagssvæðisins þarf
að breyta í samræmi við EES-reglu-
gerðina.
EES-reglugerðin felur m.a. í sér
að allar vörur þurfa nú að vera
geymsluþolsmerktar, pökkunardag-
ur þarf að koma Mm á kælivörum
með þriggja mánaða geymsluþol eða
minna, nota skal metrakerfið þegar
gefin er upp þyngd eða rúmmál
vöru í stað t.d. amerlskra mæliein-
inga og næringargildi vöru skal
miðað viö 100 grömm af vörunni.
Bandarískar vörur hækka
Þessi breyting mun aö öllum Uk-
indum helst koma niður á innflytj-
endum bandarfskra vara því merk-
ingar margra þeirra vara sem hing-
að eru fluttar eru ekki í samræmi
við reglugerð EES.
Frá og með 1. maí verður því
bannað að dreifa innfluttum vörum
sem ekki uppfylla kröfur EES í
heildsölu og frá og með 1. september
verða þær að vera horfnar alveg af
markaðnum ef þær uppfylla ekki
enn reglugerð EES.
Dýrar breytingar
Forsvarsmenn Samtaka verslun-
arinnar áætla að kostnaður fylgj-
andi því að breyta merkingum mat-
vara sem ekki uppfylla EES-reglu-
gerðina muni nema um 120 milljón-
um á ári, eða um 10% neysluverös
þessara matvæla. Þessar breytingar
geti einnig haft það í for meö sér að
Pilsbury-hveiti og River-hrísgrjón eru I hópi þeirra bandarísku vara sem uppfylla ekki kröfur EES um umbúöamerk-
ingar.
vinsælar vörur, sérstaklega frá
Bandaríkjunum, sem verið hafa
lengi á markaði hér, muni einfald-
lega hverfa af markaði.
Ekki háö EES-samningnum
Að sögn Baldvins Hafsteinssonar,
lögfræðings Samtaka verslunarinn-
ar, hafa samtökin skorað á íslensk
stjómvöld að innleiða íslenska mat-
vælalöggjöf um umbúðamerkingar
matvæla sem tekur tillit til umbúða-
reglna á markaðssvæðum utan Evr-
ópska efnahagssvæðisins.
Rök samtakanna eru m.a. þau að
með inngöngu íslands í EES hafi
ekki átt sér stað framsal á sjálfsá-
kvöröunarrétti ríkisins eins og á
sér stað er ríki ganga í ESB. Sem
eitt af EFTA-ríkjunum hafi Island
leyfi til að gera samninga við ríki
utan EES, óháð EES-samningnum.
Stuöningur stjórnvalda
Samtök verslunarinnar telja því
að einungis vörur sem fluttar eru
hingað frá Evrópska efnahagssvæð-
inu og vörur, fluttar frá íslandi til
Evrópska efnahagssvæðisins, þurfi
að lúta reglum EES um umbúða-
merkingar. Aðrar vömr, t.d. frá
Bandaríkjunum, þurfl því sam-
kvæmt áliti samtakanna ekki að
lúta reglum EES.
Að sögn Jóns Ásbjömssonar, for-
manns Samtaka verslunarinnar,
hafa þessi mál þegar verið rædd við
Davíð Oddsson forsætisráðherra og
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra og taka þeir jákvætt í tillögur
samtakanna.
-glm
Þetta einfalda salat væri
teiknimyndapersónunni
Stjána bláa að skapi því
uppistaðan í því er spínat.
Efni í salatið:
450 g spínat
60 ml hvitvínsedik
60 ml vatn
4 msk. sykur
1 tsk. sinnep
11/2 tsk sólblómaolía
225 g beikonstrimlar
8 þunnt skomir
vorlaukar,
6 þunnt skornar radísur
(má sleppa)
2 harðsoöin egg, skorin
í bita
salt og svartur pipar
Byrjið á að harðsjóða egg í
um tíu mínútur. Á meðan
setjið þið spínatið í stóra sal-
atskál. Hrærið edikið, vatn-
ið, sykurinn og sinnepið
saman í annarri skál. Bætið
síðan við svolitlu af salti og
svörtum pipar.
Steikið beikonið á pönnu
þar til það er orðið stökkt.
Setjið það á eldhúspappír
sem sýgur fituna úr beikon-
inu.
Hellið ediksblöndunni á pönnuna
þar sem beikonið var steikt og
blandið henni saman við beikonfit-
una á pönnunni. Látið þetta sjóða
saman og hellið blöndunni síðan
heitri yfir spínatið. Þetta girnilega spínatsalat er matarmikiö og einfalt.
Skerið beikonið í bita og
bætið út í salatið. Bætið síðan vor- og hrærið öllu saman. Skerið Salatið skal borið fram strax á
laukunum (i þunnum sneiðum) og harðsoðnu eggin siðan i litla bita og meðan það er heitt.
radísunum (í þunnum sneiðum) út í dreifið þeim yfir salatið. -glm
Nýjar umbúðamerkingar hjá EES:
Kostnaöur 120
milljónir á ári
- segja forsvarsmenn Samtaka iðnaðarins