Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998
9
Utlönd
Færeyingar stefna í bankamálinu:
Krefjast 15
milljarða
Færeyska landstjómin lagöi í gær
fram stefnu á hendur dönsku ríkis-
stjóminni og Den Danske Bank þar
sem krafíst er um fimmtán millj-
arða islenskra króna í skaðabætur
vegna færeyska bankamálsins.
Fjármögnunarsjóðnum frá 1992,
sem er í eigu landstjórnarinnar og
annast þau milljarðalán sem voru
tekin til að bjarga færeyska banka-
kerfinu, verður ekki stefnt að sinni
þar sem málsaðilar hafa komist að
samkomulagi.
Danska blaðið Jyllands-Posten
skýrði frá því í gær að færeyska
landstjórnin ætlaði að kæra stjóm
Pouls Nyrups Rasmussens í Dan-
mörku fyrir að brjóta færeysku
heimastjórnarlögin í tengslum við
bankamálið árið 1993. Mál þetta
gæti því orðið að grundvallarmáli
um leikreglur ríkjasambandsins.
Lögfræðingar Færeyinga segja að
danska stjómin hafi virt allar leik-
reglur í samskiptum landanna að
vettugi þegar Danir þvinguðu Fær-
eyinga til að taka ábyrgð á Færeyja-
banka, dótturfyrirtæki Den Danske
Bank, með stuttmn fyrirvara árið
1993. Samkvæmt heimastjórnarlög-
unum geta Færeyingar krafist þess
að hafa raunveruleg áhrif á allar
ákvarðanir sem varða þá sjálfa.
í fréttatilkynningu sem færeyska
landstjómin sendi frá sér í gær
bendir hún á að best hefði verið að
leysa málið við samningaborðið.
Landstjórnin hefði gert dönsku
stjórninni það ljóst 6. febrúar í vet-
ur að beðið væri eftir því að dönsk
stjómvöld tækju af skarið og boð-
uðu til samningaviðræðna.
Danir vildu ekki semja og þvl
stefndu Færeyingar þeim.
Tíbeskur mótmæiandi í Nýju Delhi á Indlandi kveikti f sér í gær eftir að um
400 lögreglumenn gerðu atlögu að tjaldi þar sem 6 Tíbetar voru f
hungurverkfalli. Tfbetarnir voru að mótmæla yfirráðum Kínverja f Tfbet.
Sfmamynd Reuter
Grænmeti fyrir-
byggir alzheimer
Bílasprengja
Bjóöum þessa bíla meö föstum 5% vöxtum, óverötryggö til 36 mánaöa.
Subaru Legacy '90. Þú
greiðir 29.900 á
mánuði.Kr. 1.076.400
eða 920.000 stgr.
Peugeot 205 '87.
Þú greiðir 5.900 á
mánuði.Kr. 212.400 eða
150.000 stgr.
Skoda Favorit '92. Þú
greiðir 8.900 á
mánuði.Kr. 320.400
eða 250.000 stgr.
MMC Colt '87. Þú greiðir
6.900 á mánuði.
Kr. 248.400 eða
190.000 stgr.
Daihatsu Rocy '90. Þú
greiðir 23.900 á
mánuði.Kr. 860.400
eða 740.000 stgr.
Jeep Cherokee '87. Þú
greiðir 22.900 á
mánuði.Kr. 824.400
eða 730.000 stgr.
Chrysler Saratoga '91
Þú greiðir 26.900 á
mánuði. Kr. 968.400
eða 900.000 stgr.
VW Golf '87. Þú greiðir
7.900 á mánuði.
Kr. 284.400 eða
220.000 stgr.
Mercedes Benz '84.
Þú greiðir 10.900 á
mánuði.Kr. 392.400 eða
330.000 stgr.
Lada Samara '96. Þú
greiðir 10.900 á
mánuði.Kr. 392.400 eða
stgr.
Volvo 240 '86. Þú greiðir
8.900 á mánuði.Kr.
320.400 eða 290.000
stgr.
Renault Nevada '91. Þú
greiðir 16.900 á
mánuði.Kr. 608.400 eða
530.000
Aðeins 5% vextir,
Volvo 740 '87. Þú greiðir
16.900 á mánuði.
Kr. 608.400 eða
500.000 stgr.
Peugeot 505 stw. '91.
Þú greiðir 23.700 á
mánuði.Kr. 853.200
eða 770.000 stgr.
Mazda 626 '91. Þú
greiðir 22.900 á mánuði.
Kr. 824.000
eða 750.000 stgr.
Skodi Feiicia Combi '96
Þú greiðir 19.900 á
mánuði.Kr. 716.400
eða 620.000 stgr.
Toyota Crown '85. Þú
greiðir 13.600 á
mánuði.Kr. 489.600
eða 390.000 stgr.
Plymouth Voyager '90
Þú greiðir 25.900 á
mánuði.Kr.932.400
eða 830.000 stgr.
19 9 6
554 2600
Engin útborgun.
Þú finnur ekki hagstæöari lán.
SÍMI: 554 2600
Neysla grænmetis getnr komið í
veg fyrir heilahrömunarsjúkdóm-
inn alzheimer. Þetta er álit breskra
og norskra visindamanna sem rann-
sakað hafa hundruð sjúklinga. Vís-
indamennimir segja þó að frekari
rannsóknir séu nauðsynlegar.
Að mati vísindamannanna, sem
starfa í Oxford í Englandi og Bergen
i Noregi, er samband á milli
vítamínanna fólínsýra og B12 ann-
ars vegar og alzheimersjúkdómsins
hins vegar. Samkvæmt rannsókn-
inni hafa alzheimersjúklingar lítið
af fólínsýru og B12 í líkamanum en
mikið af ákveðinni tegund af amínó-
sýra sem talin er geta valdið heila-
hrörnunarsj úkdómnum alzheimer.
Telja vísindamennirnir að þeim,
sem líða af skorti á fólínsýra og B12,
sé hættara á að fá alzheimer. Með
þvi að taka blóðprufur verði auð-
veldara að finna þá sem eru í mestri
hættu á að fá sjúkdóminn.
Vísindamennirnir hafa undanfar-
in 10 ár rannsakað breytingar sem
verða í heilanum við öldran. Þeir
munu kynna rannsókn sína á ráð-
stefnu í sumar.
Talið er að um tugir milljóna
manna víðs vegar um heiminn þjá-
ist af alzheimir. Engin lækning hef-
ur fundist við sjúkdómnum en lyf
geta dregið úr sumum áhrifa hans.
Neysla fæðu, sem inniheldur
fólínsýra og B12, er nú hins vegar
talin fyrirbyggja alzheimer.
Reuter
Óverðtryggð lán 5% vextir Óverðtryggð lán 5% vextir Óverðtryggð lán 5% vextir Óverðtryggð