Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Qupperneq 14
CVaN MAGENTA
i
D
>
14
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998
Þjóðhátíðarbúningar karla kynntir á
Hótel Borg fyrir þjóðhátíöina 1994.
Þar var margt sem gladdi augað og
búningarnir hver öðrum fallegri. Sá
sem valinn var bestur hefur vægast
sagt slegið í gegn, jafnvel höfundur
hans er forviða á vinsældunum.
Herramenn í
hátíðarfötum
Þjóðhátíðarárið 1994 var haldin keppni um hátíðarbúning íslenskra karl-
manna. Búninginn, sem bar sigur úr býtum, þekkja nú allir enda er hann
einkar glæsilegur og klæðir alla menn vel. Margir vilja meina að hann
sómi sér vel við hlið kvenþjóðbúningsins, þótt hann flokkist ekki sjálfur sem
þjóðbúningur, og það gerist æ algengara að menn kvænist í þessum virðulega
búningi. Sumum þykja vinsældir hans vera einum ofmiklar en aðrirfagna því
og segja að hann hafi aukið fjölbreytni íslenskrar herrafatatísku.
Tilveran fór ofan í saumana á þessum vinsælu herrafötum og talaði meðal
annars við höfund þeirra, Kristin Steinar Sigríðarson.
Vinsældirnar komu
skemmtilega á óvart
- segir Kristinn Steinar
Upprunalega næl-
an að gleymast?
stundum I að fullklára verkið. En
grunaði Kristin að fótin myndu slá í
gegn eins og raun ber vitni? „Ég hugs-
aði ekki mikið út í það á sínum tíma
hvort þetta væri efnilegt til vinsælda
eða ekki. Hins vegar hefur það komið
mér skemmtilega á óvart hversu vin-
sæl fótin eru,“ segir Kristinn.
Við hlið smókingsins
Nú er hátíðarbúningnum stillt upp
við hlið smókings en Kristinn segir
það ekki endilega hafa verið hug-
myndina. „Mig langaði til að hanna
fln fót sem mönnum liði fyrst og
fremst vel í. Ég hef heyrt að búning-
urinn sé almennt notaður við finni til-
efni og komi í stað smókings oft og
tíðum. Það er svo sem ekkert nema
gott um það að segja, ef það er það
sem menn vilja.“
Hógværðin uppmáluð
Síðustu ár hafa farið margar sögur
af góðu gengi Kristins í Bandaríkjun-
um. Hann hefur verið orðaður við
hönnun á fatnaði fyrir ekki ófrægari
konur en frú Hillary Clinton. Þegar
Kristinn er inntur eftir þessu er hann
hógværðin uppmáluð og fer að hlæja:
„Já, já, það eru alltaf einhverjar sög-
ur í gangi en ætli það megi ekki segja
að ég hafi hannað fót á nokkrar fræg-
ar frúr hér í Ameríku," segir fata-
hönnuðurinn Kristinn Steinar Sigríð-
arson að lokum.
Nælan i íslenska hátíðarbúningn-
um hefur valdið ófáum herra-
mönnum vandræðum þar sem
hún á það til að síga niður. Hent hefur
verið að því gaman að þegar karlakórar
klæðast hátíðarbúningnum líti brjóst
þeirra út eins og fjörug laglina þar sem
nælumar síga mismikið niður. Athygli
skal á því vakin hér að upprunalega
nælan sem hönnuð var á sínum tíma
fyrir samkeppnina um hátíðarbúning-
inn er af allt öðrum toga en sú sem al-
gengast er að menn noti. Sú uppruna-
lega var hönnuð af Ólafi G. Jósepssyni
og kostir hennar fram yfir þá fjölda-
framleiddu er lagið á henni sem gerir
það að verkum að hún helst á sínum
stað en sígur ekki niður.
Kristinn Steinar Sigriðarson
fatahönnuður kom, sá og
sigraði í keppninni um há-
tíðarbúning karla árið 1994. Krist-
inn, sem hefur verið búsettur í
Bandaríkjunum síðastliðin tólf ár,
sagði í samtali við Tilveruna að
hann fylgdist af og til með hátíðar-
búningnum hérlendis.
„Fötin hafa breyst dálítið frá þvi
sem ég lagði upp með í minni
hönnun. Ég skoðaði fötin dálítið
þegar ég var heima
fyrir síðustu jól
og verð að viður-
kenna að ég var
ekki alls kostar
ánægður. Mér
sýnast þau
ekki alltaf
nógu vel
saumuð og
jakkinn er að
mínu mati full
stuttur. En
þetta er
náttúrlega ekki lengur i mínum
höndum því það var eitt af skil-
yrðunum fyrir að taka þátt í
keppninni að höfundarrétturinn
yrði gefinn þjóðinni, ef svo má að
orði komast," segir Kristinn.
Tók fjóra tíma
Hátíðarbúningnum hefur stundum
verið líkt við færeyska þjóðbúninginn
eða jafnvel gamla íslenska embættis-
mannabúninga. Kristinn segir ekkert
slíkt hafa búið að baki hjá sér. „Ég hef
aldrei séð færeyska þjóðbúninga en ég
lét senda mér bækur með myndum af
íslenska kvenbúningnum þegar ég
ákvað að taka þátt í keppninni. Hug-
myndin hjá mér var að hanna fót sem
færu vel við þann búning. Ég er líka
á þeirri skoðun að þjóðbúningar eigi
vera þannig að fólki líði vel í þeim og
það vilji klæðast þeim sem oftast."
Kristinn segir hugmyndina að há-
tíðarbúningnum hafa komið
eldsnöggt og í raun hafi hann ekki
varið nema um fjórum klukku-
Kristinn Steinar
hefur unniö að
fatahönnun í
Bandaríkjunum
síöustu tólf árin og
hefur verið oröaöur
við hönnun á fatn-
aöi fyrir heims-
frægar konur.