Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Qupperneq 17
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998
17
Auöur Svanhvít læröi hattageröarlist af konunni sem hannar og saumar hatta á sjálfa drottningarmóöurina.
DV-mynd E.ÓI.
attagerö er iðn sem hefur
verið lítt áberandi hér á
landi síðustu áratugi. Þó
hafa nokkrir íslendingar lagt stund
á hattagerð og þeirra á meðal er
Auður Svanhvít Sigurðardóttir fata-
hönnuður. Hún var við nám í fata-
hönnun í London þegar hún rakst á
auglýsingu um námskeið í hatta-
gerð.
„Mér fannst þetta mjög freistandi
og ákvað að slá til. Kennarinn á
þessu námskeiði var Rose nokkur
Cory en hún hefur verið hattameist-
ari drottningarmóðurinnar um
nokkurra áratuga skeið. Ég var í
læri hjá Cory í eitt og hálft ár og
lærði afskaplega mikið af henni
enda þykir hún í heimsklassa."
Auður Svanhvít vinnur að hatta-
gerðinni heima og segir alltaf nóg
að gera. „Það hefur verið mjög gam-
an að vinna við þetta enda er mað-
ur alltaf að gera eitthvað nýtt. Það
er svo mismunandi sem konur vilja.
Ég geri mikið af höfuðfótum fyrir
brúðkaup en einnig sauma ég oft
fatnað og hatt í stíl fyrir konur. Það
skiptir gríðarlegu máli að hattur og
föt passi vel saman og það getur ver-
ið faliegt aö hafa sama efni í fótun-
um og hattinum þótt það sé ekki
nauðsynlegt," segir Auður Svan-
hvít.
íslensk veðrátta ekki í
veginum
Auður Svanvít segir alrangt að ís-
land sé ekki hattaland þegar horft
er til veðráttunnar. „Það er alltaf
hægt að vera með hatt þótt sumir
hattar séu þannig gerðir að þeir
þola illa mikla bleytu. Það vita nátt-
úrlega allir að barðastórir hattar
henta illa í miklu roki á meðan
flókahattar eru hlýir og skýla vel.“
Hattanotkun hefur aukist og segir
Auður Svanhvít fatatískuna hafa
þar nokkur áhrif. „Við munum sjálf-
sagt ekki upplifa þá tíma aftur þeg-
ar kona þótti ekki klædd nema hún
væri með hatt og hanska. En ég held
að margar konur séu famar að sjá
að fallegur hattur getur gert mikið
fyrir útlitið og er í raun punkturinn
yfir i-ið. Ég fyllist alltaf gleði þegar
ég sé á eftir konu með hatt sem ég
hef saumað og veit í raun ekkert
leiðinlegra en að vita af höttum
uppi í skáp. Konur eiga að vera dug-
legar að nota hattana sina við hin
ólíklegustu tækifæri,“ segir Auður
Svanhvít að lokum.
-aþ
Ég myndi vilja sjá fleiri konur
á íslandi nota hatta," segir
Anna Gunnarsdóttir, betur
þekkt sem Anna og útlitið. Hún tel-
ur veðráthma eiga mikinn þátt í lít-
illi hattanotkun kvenna á íslandi og
kennir um vankunnáttu i meðferð
hattprjóna.
„Hér á árum áður notuðu konur
hattprjóna til að halda höttunum á
höfðinu. Þá voru hattamir festir í
hárið með prjónunum sem reyndar
var greitt öðmvísi en í dag þannig
að auðvelt var að festa hattana. Ég
vii líka meina að nú þurfi kjark til
að setja upp hatt og hann hafa því
miður ekki allir,“ segir hún.
Paddington-hattar vin-
sælir
Hattanotkun íslenskra kvenna
hefur þó aukist að einhverju leyti
undanfarin ár og Anna fagnar þeirri
þróun. Hún segir þennan aukna
áhuga á höttum vera helst tilkom-
inn vegna paddington-hattanna
svokölluðu. Þeir haldast vel á höfð-
inu og passa vel við gervipelsa og
ffjálslegan klæðnað. Anna segir þá
líka mynda ákveðinn karakter.
„Það er mikilvægt að velja sér
AS velja sér hatt
- Anna og útlitið með nokkur góð ráð
hatt í stíl við þau fót sem ætlunin er
að klæðast. Aukahlutir, eins og
belti, skór og taska, eiga til dæmis
að vera í sama stíl og hatturinn.
Hattar fara vel við ullarkápur og
dragtir og eiga vel við tækifæri á
borð við opinberar heimsóknir og
brúðkaup. Þá geta þeir einnig gegnt
því hlutverki að halda fallegri hár-
greiðslu sé gert ráð fyrir þeim þegar
hárið er sett upp,“ segir Anna.
Góð hattaráð
Það er ekki sama hvemig hatt
kona kaupir sér. Anna segir mjög
mikilvægt að huga að andlitsfalli og
beinabyggingu við val á hatti og hér
koma nokkur góð ráð:
- Stórbeinótt kona skal velja sér
hatt með stórum börðum.
- Fíngerð kona ætti að bera lítinn
hatt.
- Búlduleit kona á að hafa hattinn
á ská og láta hann halla fram. Ef
hann hallar aftur þá leggur hann
áherslu á breiddina í andlitinu.
- Köntuð kona ætti að halla hatt-
inum ciftur því hún þarf á lenging-
unni að halda.
- Langleit kona myndi þá hafa
hattinn beint ffarn til að stytta and-
litslengdina.
Anna segir paddington-hattana eiga stóran þátt I aukinni hattanotkun á (s-
landi.
DV-mynd ÞÖK
- Egglaga andlitsfall býður upp á
hvemig hatt sem er.
- Ef kona er með stuttan háls ætti
hún að gæta þess að börð hattsins
nái ekki langt niður.
- Dökkir hattar draga Ijóst fólk
niður og elda það. Þegar dökkur
hattur er borinn skal huga vel að
forðuninni og láta hana lífga upp á.
- Skrauthatta og aðra litla hatta
skal taka ofan og halda á í kjöltunni
við matarboð og í leikhúsum. Stærri
hatta skal ekki taka niður, það er
klaufalegt.
-ilk
Þýskar álfeigur á
bíla.
Elísabet Englandsdrottning er
alltaf meö hatt eöa kórónu. Hér
er hún meö einn sumarlegan og
sætan.
Madonnu finnst gaman aö láta
taka eftir sér. Þess vegna þorir
hún aö setja hvað sem er á höf-
uö sitt.
Þaö er sama hvaöa hatt Gubrún
Katrín Þorbergsdóttir setur
upp, alltaf er hún jafn viröuleg
og tíguleg.
naust
Sími
535 9000