Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1998, Page 36
FRÉTTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
■=>
<
oo o
h LÍ3
m
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998
Iwissaw
30%
Verölækku n
á Nissan
varahlutum
•r-'Y/; Ingvar
j g-g Helgason hf.
= = = Sævarhöfda 2
Hálendiö:
Hitamál til
umræðu
Öll frumvörp um lögsögu, eignar-
hald og auðlindanýtingu á hálendinu
verða á dagskrá Alþingis í dag, þ.e.a.s.
þjóðlendufrumvarp forsætisráðherra,
frumvarp félagsmálaráðherra um
framlengingu sveitarfélaga inn á há-
lendið og loks frumvarp um nýtingu
náttúruauðlinda.
Búist er við miklum umræðum um
þau öll en þó trúlega mestum um nýt-
ingu náttúruauðlinda í jörðu, enda
um mikið hitamál að ræða. Verulegur
ágreiningur hefur verið um hverjir
skuli fara með stjórnsýslu á hálend-
inu. Stjómarþingmennirnir Siv Frið-
leifsdóttir og Pétur Blöndal hafa gert
fyrirvara um það mál i félagsmála-
nefnd. Að sögn Sivjar Friðleifsdóttur
nú í morgun eru þau Pétur tilbúin að
falla frá fyrirvaranum nái stjómar-
flokkarnir samstöðu um heildstætt
skipulag hálendisins með aðkomu
helstu þéttbýlissvæða landsins,
Reykjavíkur og Reykjaness, sem og
Vestfjarða, áður en umræan hefst í
þinginu í dag. -SÁ
Villifé skotið
Átta útigangskindur voru skotnar
í Tálknafirði um helgina.
Kindumar voru komnar inn und-
ir Sveinsfjörð þegar þær voru skotn-
ar. Yfirdýralæknir krafðist þess að
kindunum yrði fargað þar sem álit-
ið var að riða væri í þeim. Sýni
verða tekin úr hræjunum. -RR
Bruggverksmiðja
Lögregla fann 525 lítra af landa
og rúma 300 lítra af gambra í lag-
erhúsnæði verslunar í austurborg-
inni sl. fimmtudagskvöld.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu leikur sterkur grunur á
hverjir stóðu að baki þessari ólög-
legu framleiðslu. Engir hafa verið
handteknir samkvæmt upplýsing-
um lögreglu en þrír menn verið yf-
irheyrðir vegna málsins.
-RR
Bílþjófar teknir
Lögreglan stöðvaði tvo bílþjófa eft-
ir snarpa eftirfor í gærdag.
Mennimir óku Saab-bifreið sem
þeir höfðu stolið úr Breiðholti fyrir
helgi. Lögregla náði að stöðva for
þeirra í Hlíðunum. Báðir mennimir
voru færðir í fangaeymslur og bíða yf-
irheyrslna. -RR
Það var vorfiðringur í þeim Arna og Eyjólfi þar sem þeir voru að smíða sér kofa í blíðunni í Grafarvogi í gær. Drengirnir voru ánægðir með lífið og tilveruna
og unnu af kappi við smíðarnar þegar Ijósmyndara DV bar að garði.
DV-mynd Hilmar Þór
Veðrið á morgun:
Hlýjast
sunnan-
lands
Á morgun verður fremur hæg,
norðaustlæg átt og dálítil él sums
staðar norðan til en annars hæg
breytileg átt og smáskúrir. Hiti
verður á bilinu 0 til 10 stig, hlýj-
ast sunnanlands yfir daginn.
Veðrið í dag er á bls. 37.
Með fíkniefni
Tvennt var handtekið á bifreið í
Kópavogi í nótt.
í bílnum fundust fíkniefni og
hlutir sem granur leikur á að sé
þýfi. Fólkið er í haldi og verður yf-
irheyrt síðar í dag. -RR
VILL HUN EIN-
ANGRA KOMMA-
GENIÐ?
Engin sátt um tímasetningu á afgreiðslu gagnagrunnsmálsins:
Rí kisendu rskoðu n
fari ofan í málið
- óbreytt frumvarp útilokað, segir Margrét Frímannsdóttir
„Það var ekki samið um neitt ann-
að en að við féllumst á að fresta mál-
inu enda engin skynsemi í öðru. Að
það hafi verið samið við okkur um að
afgreiða málið fyrh 20. október er
ekki rétt,“ segir Margrét Frimanns-
dóttir, formaður Alþýðubandalagsins,
um þá frestun sem samþykkt var á Al-
þingi um afgreiðslu mndeilds frum-
varps um gagnagrunn. Hún segir að
fulltrúi Alþýðubandalagsins í heil-
brigðis- og trygginganefnd hafi fallist
á það eitt að framvarpið yrði lagt
fram í haust en í því fælist engin af-
staða með eða á móti efnisatriðum.
„Ríkisstjómin hefur nú ekki hing-
að til þurft að semja við okkur um
hvenær hún leggur framvörp fram.
Það þurfti því ekki
stórar samningavið-
ræður um þetta,“
segir hún.
Margrét segir að ef
miðað sé við þau við-
brögð sem orðið hafa
við gagnagrunnsmál-
inu telji hún útilokað
að málið fari óbreytt
í gegnum þingið.
„Það mun ekki
verða neitt meiri sátt um óbreytt mál
í haust miðað við það sem á undan er
gengið. Það verður að nota sumarið til
að ná sátt um málið með því að breyta
því. Það verður síðan að leggja nýtt
framvarp fram þegar sú sátt er fund-
Margrét Frí-
mannsdóttir.
in. Það er fráleitt að stjómmálaflokk-
ur fari að semja um afgreiðslu á máli
sem ekki er vitað um hvað inniheld-
ur,“ segir Margrét.
DV sagði í gær frá því að íslensk
erfðagreining teldi kostnað við gerð
gagnagrunnsins vera á bilinu 13 til 14
milljarða króna. Samkvæmt útreikn-
ingum Ríkisspítalanna nemur þessi
kostnaður aðeins á bilinu einum til
fjögurra milljarða. Margrét segir að
nota verði sumarið til að fara ofan í
einstaka liði gagnagrannsmálsins og
taka ítarlega út hvað felst í því.
„Mér finnst alveg sjálfsagt að heil-
brigðis- og trygginganefnd láti skoða í
sumar þennan mismun sem er þama
á útreikningum og biðji Ríkisendur-
skoðun að fara sérstaklega ofan í
þetta mál. Þar þarf að skoða bæði
þann kostnað sem er við að koma
gagnagrunninum á og þá þarf ekki
síður að meta hvers virði þessi auð-
lind sem afhenda á einkaaðilum er,“
segir Margrét.
Hún segist heyra þær raddir, m.a.
erlendis frá, að vafasamt sé að frum-
varpið standist alþjóðasamninga og
fara þurfi ofan í málið út frá þeim for-
sendum.
„Loks hafa komið fram miklar efa-
semdir um að framvarpið, eins og það
er lagt upp, standist alþjóðlega samn-
inga og það þarf auðvitað að skoða
sérstaklega," segir Margrét.
-rt
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i