Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1998, Page 6
6
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 JDV
útlönd
Stuttar fréttir
Meira lýöræði í ESB
Poul Nyrup Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, segir
Dani stefiia að auknu lýðræði
innan Evrópusambandsins, ESB.
Rekinn af Jeltsín
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
rak í gær yfirmann skattamála
landsins, Alex-
ander Potsjin-
ok. Fyrrver-
andi fjármála-
ráðherra Rúss-
lands, Borís
Fyodorov, tók
við starfi
Potsjinoks.
Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins, sem hafa hvatt til strangari
skattheimtu, tilkynntu í gær að
Rússar gætu brátt fengið 670
milljóna dollara lán.
Barry Goldwater látinn
Barry Goldwater, fyrrum for-
setaframbjóðandi repúblikana í
Bandaríkjunum, lést í gær, 89 ára
að aldri. Goldwater bauð sig fram
1964 gegn Lyndon Johnson en
tapaði.
Ættingjarnir víkja
Sonur og tengdasonur
Suhartos, fyrrverandi Indónesíu-
forseta, misstu embætti sín í gær.
Þar með hafa allir ættingjar for-
setans verið látnir taka pokann
sinn.
Berlusconi ákæröur
ítalski stjórnarandstööuleiö-
toginn Silvio Berlusconi var í
gær ákærður fyrir að hafa falsaö
reikninga til að leyna ólöglegum
greiðslum. Múturnar áttu að
tryggja að fótboltamaður skipti
um félag.
Þúsundir strandaglópar
Öngþveiti rikti á flugvöllum á
Spáni í gær eftir að um 200 flug-
ferðum hafði verið aflýst. Flug-
umsjónarmenn eiga í deilu um
1 samninga og höfðu hægt á vinnu
| sinni.
Lögga fundin sek
Tyrkneskur dómstóll fann í
gær sex lögreglumenn seka um
að hafa valdið dauða háskóla-
stúdents með barsmíðum.
Louise fleygt út
Bresk blöð greindu frá þvi í
gær að lögmaður bresku barn-
fóstrunnar
Louise Wood-
ward, Elaine
Whit-field
Sharp, hefði
rekið hana af
heimili sinu.
Blaðið Mirror
vitnaði í segul-
bandsupptöku af samtali Sharp
og vinar hennar þar sem lögmað-
urinn lýsti Louise sem tvöfóldu
skrímsli. Sharp, sem var hand-
tekin fyrir ölvunarakstur fyrr í
vikunni, neitar að hafa sagt við
lögreglumann að hún teldi Lou-
ise hafa myrt Matthew Eappen.
Kauphallir erlendis:
Sveiflur í
Frankfurt
Þau tíðindi gerðust helst í er-
lendum kauphöllum í vikunni að
hlutabréfavísitalan í Frankfurt
náði hámarki á þessu ári síðastlið-
inn þriðjudag, eða 5639 stigum.
Daginn eftir féll hlutabréfaverð á
ný þar sem ótti greip um sig á
meðal fjárfesta vegna fjármála-
óvissunnar í Rússlandi og Asíu.
Á olíumarkaðnum hélst verðið
áfram í lægri kantinum. Helstu
framleiðsluríki heims halda áfram
að dæla eldsneyti inn á markaðinn
og finnst mörgum orðið nóg um.
Ef fram heldur sem horfir fer að
verða grundvöllur fyrir íslensku
olíufélögin að lækka bensínverð til
neytenda.
Indlandssérfræöingur:
Pakistanar gengu
í gildru Indverja
Pakistanar gengu í gildru Ind-
verja. Enginn gleðst meir yfir til-
raunasprengingum Pakistana með
kjarnorkuvopn en Indverjar. Þetta
er mat dansks sérfræðings í málefn-
um Indlands, Jergens Dige Peder-
sen, við Árósaháskóla. Samkvæmt
frétt netútgáfú danska blaðsins
Aktuelt er Pedersen sammála Bill
Clinton Bandaríkjaforseta um að
Pakistanar hafi með tilraunaspreng-
ingum sínum misst af einstæöu
tækifæri til að afla sér alþjóðlegs
stuðnings og viðurkenningar. Það
sé ekki einkennilegt að forsætisráð-
herra Indlands, Atal Behari Vajpa-
yee, hafi með ánægjusvip lýst því
yfir að aðgerðir Pakistana réttlættu
ákvörðun Indlands. Allt gangi sam-
kvæmt áætlun Indlands.
Bæði löndin verða nú beitt refsi-
aðgerðum Bandaríkjanna og ann-
arra Vesturlanda.
Efnahagur Pakistans er hins veg-
ar ekki jafn sveigjanlegur og efna-
hagur Indlands. Þess vegna koma
refsiaðgerðir harðar niður á Paki-
stönum en Indverjum. Pakistanar
eru mjög háðir lánum frá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum.
Pedersen telur að Vesturlöndum
muni á einn eða annan hátt takast
að fá Pakistan og Indland til að ger-
ast aðilar að samningum um bann
við tilraunum með kjamorkuvopn
og dreifingu þeirra. Þar með helst
það ójafnvægi sem ríkir milli
Pakistans og Indlands á sviði kjam-
orkuvopna. Indland hefur gífurlegt
forskot á Pakistan. Eru Indverjar
taldir geta framleitt 100 kjarnorku-
sprengjur en Pakistanar 10.
Forsætisráðherra Indlands sagði
á þingi í gær að Indverjar litu ekki
á tilraunasprengingar Pakistana
sem ógnun við öryggi þjóðarinnar.
„Við ætlum ekki að taka þátt í
vopnakapphlaupi," sagði forsætis-
ráðherrann.
í yfirlýsingu ríkisstjómar Pakist-
ans, sem gefin var út í gær, sagði að
Pakistanar myndu aldrei nota
kjarnorkuvopn í árásarskyni. Þau
væru aðeins til vamar landinu.
Hvatti utanríkisráðherra Pakistans,
Shamshad Ahmad, öll ríki heims til
að sameinast í að tryggja frið í Suð-
ur-Asíu í kjölfar tilraunasprenging-
anna með kjamorkuvopn.
Moskvubúi kaupir vodkaflösku af götusala. Fjöldi Rússa reynir að auka tekjur sínar meö því aö selja áfengi og
sígarettur á götum úti. Símamynd Reuter
200 þúsund aukatonn
DV, Ósló:
Þorskafli ársins í Noregi verður
200 þúsund tonnum meiri en
fiskifræðingar telja ráðlegt. Peter
Angelsen sjávarútvegsráðherra
ætlar ekki að skerða kvóta ársins
þrátt fyrir alvarlegar viðvaranir
fiskifræðinga sem segja að
þorskkvóti ársins eigi að réttu lagi
að vera 450 þúsund tonn en ekki 654
þúsund tonn.
Ákvörðun Angelsens kemur ekki
á óvart. Ef hann hefði fariö að
ráðum fiskifræðinga hefði lítill sem
enginn þorskur borist á land það
sem eftir er árs. Það hefði þýtt
fjöldaatvinnuleysi í byggðum
Norður-Noregs og bátur Angelsens
sjálfs og sona hans hefði verið
bundinn við bryggju til áramóta.
Ákvörðun Angelsens hefur verið
tekið með fógnuði af útgerðar- og
sjómönnum en meðal fiskifræðinga
er því haldið fram að aðeins sé
verið að fresta vandanum til næsta
árs og gera hann enn stærri.
Tvær minningar-
athafnir
um Díönu
neitaði í gær fréttum um að
ágreiningur ríkti milli ættingja
Díönu
prinsessu og
konungsfiöl-
skyldunnar
vegna minn-
ingarathafnar
um hana á
dánardægri
hennar í
ágúst. Konungsfiölskyldan mun
halda minningarathöfn um
Díönu við Balmoralkastala en
systkini Díönu halda minningar-
athöfn á ættarsetri fiölskyldunn-
ar þar sem prinsessan var jarð-
sett. Ákvörðunin var tekin eftir
nánar viðræður við syni Díönu,
Vilhjálm og Harry. Að sögn
breskra fiölmiðla afþökkuðu
prinsamir boð um að vera við
minningarathöfnina hjá systkin-
um Díönu.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, og Cherie kona hans
munu verða viðstödd athöfnina
við Balmoral.
tV
Viðræðum
Færeyinga og
Dana frestað
Viðræðunum milli danskra og
I færeyskra yfirvalda hefur verið
| frestað þar til í þar næstu viku
; og verður fundurinn haldinn í
í Kaupmannahöfn. Landstjórnin í
J Færeyjum hafði óskað eftir því
i að viðræðurnar mn skuldir Fær-
j eyinga við Dani og kröfurnar
; vegna bankamálsins yrðu haldn-
j ar í Þórshöfn. Poul Nyrup
i Rasmussen, fbrsætisráðherra
Danmerkur, hefur hins vegar
ekki tíma til að fara til Færeyja.
Færeysk yfirvöld hafa krafist
1,5 milljarða danskra króna í
bætur vegna tapsins sem þjóðin
| varð fyrir við yfirtöku Færeyja-
banka frá Den Danske Bank.
I Samkvæmt fréttum færeyska
j sjónvarpsins bauð Mogens
I Lykketoft, fiármálaráðherra Dan-
merkur, Færeyingum aðeins
: hálfan milljarð þegar hann var í
; Færeyjum í vikunni. Hann
: hækkaði síðan boðið í 800 millj-
ónir danskra króna.
Synir Palme
vildu ný
réttarhöld
Bræðuniir Márten og Joakim
í Palme eru vonsviknir yfir úr-
j skurði Hæstaréttar um að málið
; gegn Christer Pettersson verði
j ekki tekið upp á ný. í viðtali við
sænska blaðið Aftonbladet segja
bræðumir það álit sitt að ný
sönnunargögn gegn Pettersson
; hefðu verið næg til endurupp-
töku málsins. Segja þeir að móð-
ir þeirra, Lisbet Palme, hafi
strax í upphafi bent á Christer
Pettersson sem morðingja föður
þeirra, Olofs Palme, fyrrverandi
forsætisráðherra Svíþjóðar. Telja
bræðm’nir að ef fórnarlambið
hefði verið einhver annar hefðu
sönnunargögnin, sem þegar lágu
fyrir 1989, átt að nægja til sakfell-
j ingar.
Hrapaði af
fjórðu hæð á
vegfaranda
Tveggja ára telpa í New York,
g Heydi Chica, fell út um glugga á
I fiórðu hæð og lenti á fæti konu á
1 gangstétt fyrir neðan. Telpan
1 slapp með fótbrot og skrámur og
j fótur konunnar, Alis Lopez,
I bólgnaði. „Það var algjört krafta-
j verk að hún skyldi lifa af faUið.
1 Ef þessi kona hefði ekki átt leið
: fram hjá væri dóttir mín dáin,“
I sagði faðir Heydi.