Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1998, Síða 26
26
(unglingar
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
I
Kjartan
Hljómsveit-
in Sigur
Rós gaf á
síðasta ári út fyrstu plötu sína Von
og var fyrir hana útnefnd Bjartasta
von íslenskrar tónlistar.
Liðsmenn sveitarinnar eru fjórir:
Ágúst Ævar Gunnarsson, Georg
Holm, Jón Þór Birgisson og Kjartan
Sveinsson.
Það er mikið að gerast hjá sveit-
inni þessa dagana en á næstunni
kemur út plata með endurhljóðblönd-
un á Von, þeir taka þátt í hátíðinni
Popp í Reykjavík og von er á nýrri
plötu fyrir næstu jól.
að einhverju^
leyti frábrugðin^
fyrri verkum. „Þaö’
er samt ágætt að vera ekki með nein-
ar yfirlýsingar því maður veit ekkert
hvemig þetta kemur út á endanum.
Það var kannski meira kæruleysi á
Von,“ segir Jón Þór.
okkur þegar við spil-’
um þá gætum við ekki spilaöN
oftar. Það myndi alveg drepa
okkur.“
„Maður sér oft úrbrædda tónlist-
argæja á einhverjum pöbbum sem
eru að drepast úr leiðindum og spila
fyrir peninga," segir Jón Þór og
Kjartan bætir við: „Ég held að maður
sé ekki lengi að brenna út.“
Popp í Reykjavík
Sveitarmenn em ánægðir með há-
tíðina Popp í Reykjavík og segja að
það sé mjög fagmannlega staðið að
henni. „Þeir em ekki að þessu til áð
græða heldur til að skilja eitthvað
eftir sig. Þetta er uppsveifla fyrir ís-
lenskt tónlistarlíf og góð kynning á
Þótt Sigur Rós hafi
hlotið mikið lof hefur
sveitin, að mati margra, ekki komið
oft ffam. „Okkur finnst við spila al-
veg þrælmikið," segir Ágúst. „Við
spilum ekki oft,“ segir Georg, „en við
spilum því betur í hvert skipti. Af því
að við gefum svo mikið af sjáifum
Framtíðarpoppsveitin Sigur Rós:
Gætum verið tennisklúbbur
Sigur Rós hefúr ekki farið troðnar
slóðir i tónlistinni sem er allt að því
þunglyndisleg og lögin mjög löng.
Lengsta lagið á Von er 13 mínútur.
Platan sem kemur út fyrir jólin verð-
ur með styttri lögum, 5-8 mínútna
löngum. „Nýju lögin era heilsteypt-
ari og það er allt önnur pæling á bak
við þau,“ segir Georg. „Við verðum
líklega með strengjasveit á næstu
plötu," segir Jón Þór, „ætli það sé
ekki það næsta sem við komumst
Eurovision."
Tímamótaverk
Lögin verða yfirleitt til á æfingum
fyrir tilviljun eða galdra. Þeir era
nokkum veginn búnir með lögin en
textamir era að mestu eftir. „Næsta
plata verður „breakthrough 1 ís-
Lenskri tónlistarsögu," segir Jón Þór.
„Þegar tónlist er öðravisi tekur það
smátíma fyrir fólk að venjast henni
en þegar hún er komin upp í vana þá
hættir það ekki,“ segir Ágúst og Jón
Þór bætir við: „Ég held líka að unga
kynslóðin sé búin að fá sig fúllsadda
af síbyljunni og þessari mötun og fari
að sækja í eitthvað spennandi."
Tónlistin á nýju plötunni verður
hin hliðin
* 4- -é-
„Þegar tónlist er öðruvísi tekur það smátíma fyrir fólk að venjast henni en þegar hún er komin upp í vana þá hættir það ekki.“
DV-myndir ÞÖK
því. Þetta hjálpar okk-
ur kannski að komast
áffam," segir Jón Þór.
„Við gerum tón-
list"
Þeir félagar segjast
vera tónlistarmenn.
„Við gerum tónlist. Við
erum ógeðslega lélegir í
viðtölum en við kunn-
um að búa til tónlist og
finnst það gaman. Það
viljum við að fólk sjái
við okkur,“ segir Kjart-
an Sveinsson.
„Ég held samt að Sig-
ur Rós sé ekki bara tón-
listin," segir Ágúst
Ævar. „Við gætum al-
veg eins verið tennis-
klúbbur. Við gerum
það sem við höfum
áhuga á en vináttan er
ótrúlega sterk. Sigur
Rós helst miklu meira
saman á vináttunni
heldur en nokkum
tíma tónlistinni, þó að
tónlistin sé það sem við
einbeitum okkur að.“
-sm
Ólafur Grátar Ragnarsson af Diskólista komst í bæjarstjórn Árborgar:
Vill hitta Hómer og Jón Gnarr
„Það var að sjálfsögðu frábært
hjá okkur að ná inn manni. Unga
fólkið þarf að eiga sína fulltrúa í
sveitarstjómum þegar ákvarðanir
eru teknar um framtíð þess,“ segir
Ólafur Grétar Ragnarsson, oddviti
Diskóhstans og starfsmaður Foss-
nestis á Selfossi. Hann komst inn í
bæjarstjóm Árborgar í kosningun-
um um síðustu helgi, einn yngsti
frambjóðandi landsins, aöeins 19
ára. Hann hlakkar til að taka sæti í
bæjarstjóm en þar verður hann að
öllum líkindum í minnihluta ásamt
sameinuðum vinstrimönnum á Ár-
borgarlistanum. Viö fáum hér að
fræðast um hina hlið stjómmála-
mannsins unga. -bjb
Fullt nafn: Ólafúr Grétar Ragn-
arsson.
Fæðingardagur og ár: 24. febr-
úar 1979.
Maki: Sigrún Bragadóttir.
Börn: Engin enn þá!
Bifreið: MMC Eclipse, svartur
sjarmör.
Starf: Vaktstjóri hjá ESSO.
Laun: Alltof lág.
Hefur þú unnið í happdrætti
eða lottói? Jahá, 5000 krónur í
Happaþrennu Háskóla íslands.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera?Það er ekki hægt að
segja frá þvi hér.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Vakna snemma þegar ég
er ekki útsofinn.
Uppáhaldsmatur: Gott vínar-
snitsel með frönskum kartöflum.
Uppáhaldsdrykkur: Kalt öl.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Prins Nazeem
Hamed, boxarinn knái.
Uppáhaldstímarit: Bleikt og
blátt og Séð og heyrt.
Hver er fallegasta kona sem
þú hefur séð, fyrir utan maka?
Sólveig Lilja Guðmundsdóttir.
Ertu hlynntur eða andvígur
rlkisstjóminni? Hlutlaus.
Hvaða persónu langar þig
mest til að hitta? Hómer J. Simp-
son (en það er víst ekki hægt) og
Jón Gnarr.
Uppáhaldsleikari: Jón Gnarr
og Nicolas Cage. Þeir eru líka svo
líkir!
Uppáhaldsleikkona: Cameron
Diaz.
Uppáhaldssöngvari: Páll Óskar.
Uppáhaldsstjómmálamaður:
Ætli það sé ekki bara ég sjálfur!
Uppáhaldsteiknimyndaper-
sóna: Hómer J. Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Grín
og glens eins og Fóstbræður,
Simpsons og Radíus-bræður.
Uppáhaldsmatsölustað-
ur/veitingahús: Perlan er það
langbesta sem ég hef prófað.
Hvaða bók langar þig mest til
að lesa? Mig langar að fara að
klára 101 Reykjavík.
Hver útvarpsrásanna flnnst
þér best? FM 95.7 þegar það era
ekki auglýsingar.
Uppáhaldsútvarpsmaður:
Valdimar Bragason plötusnúður.
Hverja sjónvarpsstöðina horf-
ir þú mest á? Hef ekki haft mik-
inn tíma fyrir sjónvarp en annars
er þaö Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Bingó-Bjössi.
Uppáhaldsskemmtistaður: LA
Café.
Ólafur Grétar Ragnarsson, einn yngsti frambjóöandinn sem náöi kjöri um
síöustu helgi, aö störfum hjá Fossnesti á Selfossi. Tilbúinn í bæjarstjórn
Árborgar sem fulltrúi Diskólistans. DV-mynd Kristján Einarsson
Uppáhaldsfélag í íþróttum: betri bU, gifta mig, eignast börn og
UMF Selfoss og Tottenham. lifa hamingjusömu lífi.
Stefnir þú að einhverju sér- Hvað ætlar þú að gera i sum-
stöku í framtíðinni? Eignast hús, arfríinu? Hvaða sumarfríi?