Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1998, Qupperneq 36
48
Dómkirkjan, Duomo, er ein merkasta og jafnframt tilkomumesta bygging
Mílanóborgar.
NMT
TS-400 --------------
- Handsími / Bílasími
- Sæti í mæiaborð med
innbyggðum handfrjálsum
búnadi (hendur á stýri)
-120 klst. rafhlada
- 250 númera minni m/nafni
- VatnS' og hdggvarinn
- Klukka/dagatal/minnisbók
- Vekjjari
- Gott valmyndakerft
- Isienskar leióbeiningar
sss
í sveit
Innifalið: Festing í bíl með 12V hleSslutæki, handfrjálsri
notkun og tengingu f. loftnet og loftnetskapli.
Hraðhleðslutaeki fyrir 230V.
120 klst./1200 mAh NiMH rafhlaða.
CSM
C9D+
P
- Eínfalt valmyndakerft
Klukka, dagsetning og vekjari
-100 númera minni m/nafni
- Þyngd 200 gr.
' Titrari í stað hringingar
- Tölvutengjanlegur
- SMS skilaboð
Innifalið: Boðtæki, beltisfesting
rafhlaða og keðja f beltí.
Símboðinn
PB-2219
- Geymir 15 númer
' Klukka, vekjari og dags.
- Titrari
* 20 mismunandi tónar
- 2 mismunandi númer
- Aðeins 55 gr. m/rafhlöðu
Innifalið: Hraðhleðslutæki og
30 klst NiMH rafhlaða.
mm
«3*
fi>
af
fi>
■t
nm
«=»OOKEX
BELL
S htel
Síðumúla 37
108 Reykjavik
$.588-2800
vX-j ■ - ’
Úrval-Útsýn með Italíuferðir:
Sælulíf á sólarströnd
og ítölsk hámenning
Yfirbyggöa verslunargatan Galleria Vittoria Em-
anuele er ein vinsælasta gata Mílanó. Hún liggur
frá Dómkirkjutorginu að Scalatorginu þar sem er
að finna mikinn fjölda verslana og veitingahúsa.
DV-myndir Brynjar
Ferðaskrifstofan
Úrval-Útsýn hefur
bráðum sumarferðir
til Ítalíu. Reglulegt
flug verður til Mílanó
tvisvar í viku og verð-
ur það fyrsta þann 30.
júní. Fyrir þann tima
verður flogið þrisvar
til Pisa og munu ís-
lenskir kórar verða
fjölmennir í því flugi.
Þetta er þriðja árið
sem Úrval-Útsýn held-
ur úti Mílanóflugi og
að sögn Guðrúnar Sig-
urgeirsdóttur hjá
ferðaskrifstofunni
hafa vinsældirnar
aukist jafht og þétt.
Brottfarir verða síð-
degis á þriðjudögum
og laugardögum fr£im
til 12. september nk.
„Við leggjum
áherslu á pakkaferðir;
þar sem fólk nýtur
þess að flatmaga á
ströndinni og fara í
skemmtilegar skoðun-
arferðir til merkra
staða. Um er að ræða
ferðir annars vegar tii Gardavatns-
ins og hins vegar til Toskana-hér-
aðs: nánar tiltekið til strandbæjar-
ins Viareggio. Pakkaferðirnar eru
famar á laugardögum eingöngu en
ítalir hafa ætíð haft þann háttinn á
að taka aðeins á móti hópum á laug-
ardögum í strandbæjunum," segir
Guðrún.
Úrval-Útsýn
býður ferðir til
bæjarins Torbole
við Gardavatnið.
Gardavatnið er í
faðmi Dólómíta-
fjallanna sem af
mörgum eru tal-
in til fegurstu
staða í Evrópu. í
Torbole er kjörið
að stunda segl-
brettasiglingar
og fyrir þá sem
hafa gaman af
gönguferðum era
hlíðarnar fyrir
ofan bæinn afar skemmtilegar.
Strandbærinn Viareggio, sem er
einn elsti og merkasti baðstranda-
bær í hinu rómaða Toskanahéraði,
er annar áfangastaður ferðaskrif-
stofunnar. Fyrr á tímum var Viar-
eggio vinsæll af aðlinum og bera
stórfenglegar hótelbyggingar þess
enn merki.
„Fólk getur valið um að gista á
hótelum eða í ibúðum en í Viar-
eggio er að finna ekta ítalskt strand-
líf og það er nóg við að vera jafnt á
degi sem kvöldi. Það eru frábærir
veitingastaðir í bænum eins og
reyndar í héraðinu öOu en Toskana
hefur löngum verið frægt fyrir stór-
kostlega matarmenningu," segir
Guðrún. Bæði frá Gardavatni og Vi-
areggio er hægt að velja um mikinn
fjölda áhugaverðra skoðunarferða.
Guðrún segir fjarlægðirnar stuttar
og bendir á að frá Viareggio sé að-
eins 15 mínútna akstur til Pisa, 30
mínútur til Síena og klukkustund
til Flórens. Skoðunarferð til Rómar
gæti þó tekið tvo daga. „Þá eru lika
ekki nema 150 kílómetrar til ítölsku
ríveríunnar og
þaðan er stutt
yfir á þá
frönsku ef fólk
hefur áhuga á
að skoða hana.“
í sumar verða
skoðunarferð-
irnar með
enskumælandi
fararstjórum en
næsta sumar
stefnir ferða-
skrifstofan að
því að leiðsögn-
in fari fram á
íslensku.
Háborg tískunnar
Eins og áður kom fram verður
einnig flogið á þriðjudögum til
Mílanó og segir Guðrún þær ferðir
henta betur þeim sem hyggjast
leigja sér bil og ætla jafnvel að
dvelja í borginni í nokkra daga.
„Það er gríðarlega margt að sjá í
Mílanó og við mælum oft með því við
farþega okkar sem dvelja á sólar-
ströndu að taka sér dagsferð til borg-
arinnar. Dómkirkjan er gríðarlega fal-
leg og eins er gaman að skoða eitt
frægasta óperuhús veraldar, Scala, en
því miður eru engar sýningar á sumr-
in. Það er auðvitað frábært að skoða
fataverslanir í Mílanó. Fatnaöur er
reyndar ekki sá ódýrasti í Evrópu en
verslanir eru örugglega með þeim fal-
legustu." -aþ
Strandlíf á Miöjaröarhafsströnd ftalíu.
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
Madame Tussaud á toppnum
Vaxmyndasafh Madame Tussaud
trónir á toppnum sem vinsælasti
ferðamannastaður Bretlands á síð-
asta ári. Það er að segja af þeim
stöðum sem krefjast aðgangseyris.
Fimm árin þar á undan varð vax-
myndasafnið að láta sér lynda ann-
að sætið en þá voru Alton Towers í
Staffordskiri á Mið-Englandi vin-
sælastir.
Til þess að gefa mönnum hug-
mynd um vinsældir þessara staða
má geta þess að 2,8 milljónir heim-
sóttu Tussaud í fyrra en 2,7 milljón-
ir Alton Towers þannig að munur-
inn er kannski ekki ýkja mikill.
Færeyskir sumartónar
Mikil tónlistarhátíð verður hald-
in í Færeyjum frá 19. júní næstkom-
andi og stendur tii 6. júlí. Á tónlist-
arhátíðinni verður einkum flutt
klassisk tónlist og áhersla lögð á
tónhst samtímans. Á hveijum degi
verða haldnir tónleikar víðs vegar
mn eyjamar. Flestir flytjendumir
; eru heimamenn en einnig munu
tónlistarmenn frá Danmörku, Nor-
egi og héðan koma fram á hátíð-
inni. Frekari upplýsingar um sum-
artónana færeysku er að fmna á
slóðinni summar.olivent.fo á Net-
I inu.
1
I
«
Maðurinn á myndinni hefur
það náðugt en nú munu „sætis-
rúm“ sem þessi vera farin að sjást
í ílugvélum en auðvitað aðeins fyr-
ir þá sem borga mest og eru á
fyrsta farrými. Breska flugfélagið
British Airways kveðst hafa verið
fyrst til að bjóða upp á slík þæg-
indi en önnur flugfélög, þ. á m. Air
France, Japan Airlines, Asiana og
Qantas, segjast munu bjóða slík
rúm í vélum sínum innan
skamms.
Nicola nokkur
Pearce í Lundúna-
borg hefúr nýlega
sett upp ferðir fyr-
ir þá sem vilja minnast Díönu
heitinnar prinsessu. Farið er um
þá staði þar sem prinsessan dvaldi
og starfaði. Meðal áfangastaða er
síðasti bústaður Díönu, Kensing-
tonhöll, Westminster Abbey þaöan
sem hún var jarðsett, líkamsrækt-
arstöðin sem hún sótti jafhan, að
ógleymdu bamaheimilinu þar sem
hún vann áður en hún kynntist
Karli ríkisarfa. Pearce hefur sætt
talsverðri gagnrýni vegna þessara
ferða og margir látið í Ijós van-
þóknun á ferðum þessum en hún
svarar af bragði að á meðan ekki
sé eiginlegt Díönusath í London
séu ferðir sem þessar meira en
sjálfsagðar.
Varhugavert
að leika eftir
Það var í lagi
fyrir Billy Crystal
að standa í stafni
þegar hann kynnti óskarsverð-
launin fyrr á þessu ári. Það var
líka í lagi fyrir kvennagullið
DiCaprio aö gera slíkt hið sama í
kvikmyndinni Titanic. Áhrifa
þeirrar myndar gætir hins vegar á
skemmtiferðaskipum sem ekki
einasta státa af fjölgun farþega
heldur hafa margir ungir menn
reynt að leika kvikmyndaatriðið
góða eftir. Nýlega sendu samtök
þrjú hundruð skipafélaga frá sér
viðvörun þess efliis að starfsmenn
skemmtiferðaskipa gættu þess að
fólk léki ekki þennan leik eftir því
talsverð hætta væri i því fólgin.